Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Blaðsíða 8
. IIelkerinn
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999 T>V
Kynþokkafyllsti maður íslands er leikari, sjónvarpsmaður og sælkeri:
„Matreiðsluþáttur
Þórhalls"
Kæri neytandi.
Þú ferð út í Nóatún, helst á
þriðjudegi því þá koma tandoori-
kjúklingamir í búðina. Þeir eru vel
kryddaðir svo ekki þarf að hafa
áhyggjur af því. Nú, heima fyrir
skaltu setja slatta af súrmjólk í
kaffipoka og láta sýruna renna af
henni, helst í 4 klst.
Þegar því er lokið saxarðu agúrk-
ur í örsmátt og blandar þeim saman
við súrmjólkina.
Sjóddu kartöflur (þú hlýtur aö
kunna það, asninn þinn). Og sjóddu
líka hrísgrjón (frekar auðvelt).
Skerðu nú niöur 1 stk. lauk og
nokkra sveppi. Hitaðu ofninn vel
(ca 175°C) og skelltu kjúklingnum í
eldfast mót og leggðu laukinn allt í
kringum hann.
Þegar ofninn er orðinn vel heitur
skaltu setja kjúklinginn inn og læt-
ur hann brasa þar í 45 mín ásamt
lauknum. Eftir 35 mínútur fleygirðu
sveppunum í mótið og lætur þá
steikjast með lauknum síðustu 10
mínúturnar.
Kartöflumar sem þú sauðst svo
glæsilega eru settar á pönnu og
skornar til helminga og
tandoorikryddi (RaJah) sáldrað yfir
þær. Steikist í örfáar mínútur.
Síðan tekurðu kjúklinginn með
lauknum og sveppunum og reynir
að koma þvl sómasamlega fyrir á
fati.
Hellir hrísgrjónum í skál og kart-
öflunum í aðra skál og lætur súr-
mjólkina í þriðju skálina.
Skál!
Ef þið lendið í einhverjum vand-
ræðum með þetta þá endilega hring-
ið í konuna mina.
Og ef þið nennið að læra hvemig
á að baka nanbrauð þá væri það
mjög gott en ég kann það ekki.
Kveöja
Þórhallur Gunnarsson
Þórhallur var fyrir skemmstu
kjörinn kynþokkafyllsti maður
íslands af hlustendum rásar
2. Spurning er hvort elda-
mennskan hefði haft áhrif á
valið.
DV-mynd ÞÖK
Nykaup
Þar seinferskleikiiui býr
matgæðingur vikunnar
“a'.mí Uppáhaldskjötrétturiiin og mar-
jnstasíukremi gpgj mg(j fer$kum ÓVÖXtUm
6 sneiðar ferskur ananas
6 stk. vanillustangir
pistasíukrem
250 g Mascarponeostur
100 g pistasíumassi
2-3 dl rjómi
1-2 dl mjólk
Skerið ferskan ananas í 1-1,5
cm þykkar sneiðar (u.þ.b. 100 g
hver) og leggið á
smurða
bökun-
arplötu.
Stingið
vanillu-
stöngun-
um í an-
anas-
sneiðam-
ar. Bakið
í 40 mín-
útur við
180”C. Setj-
ið eina
sneið á
hvem disk.
„Þessi kjötréttur er í miklu uppá-
haldi á mínu heimili og einnig er
vinsælt að bjóða gestum hann,“ seg-
ir Fanney Björk Ásbjörnsdóttir,
fóstra úr Vestmannaeyjum.
Pistasíukrem
Maukið í matvinnsluvél
Mascarponeost, pistasíumassa,
rjóma og mjólk. Setjið í kringum
ananasinn.
Hoilráð
Bragðast afar vel með vanillu-
ís.
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem allt hráefni í
þær fæst.
4 laukar
paprikuduft
sellerísalt
hvítlauksduft
salt og pipar (grófmalaður)
oregano
chili (gróft)
tómatþykkni (ein dós þykkni á
móti tæpum tveimur af vatni)
kjötteningar
worchestershiresósa
Laukurinn er soðinn
í matarolíu, krydd
og tómatþykknið
sett út í og sósan
soðin í tvo til
þrjá tíma. Far-
ið er varlega í
krydd og sósan er
bragðbætt eftir
smekk.
Kjöt
Nautasnitsel
er léttsteikt og
kryddað með
sama kryddi og
fór í sósuna, ost-
ur settur yfir og látið
inn í ofn í klukkutíma.
Borið fram með snittu
Fanney Björk Ásbjörnsdótt-
ir fóstra gefur uppskrift að
nautasnitseli með sósu og
dísætum marengs með
ferskum ávöxtum.
DV-mynd Ómar
brauði, hrísgrjónum og lambhaga-
salati með niðurskomum rauðlauk
og olíudressingu.
Olíudressing
6 msk. ólífu-
olía
1 msk.
rauðvín-
sedik
salt og
nýmalaður
pipar
sykur
dijonsinnep
pressaður
ítlauk-
ur
Allt hrist saman og hellt yfir sal-
atið. Ekki sakar að bera gott rauð-
vín með.
Eftirréttur - marengs
með ferskum ávöxtum
Marengsbotn: 4 eggjahvítur og 180
g sykur þeytt vel saman, sett í eld-
fast mót og bakað við 180-200°C í
45-60 mín.
Sósa:
4 eggjarauður
1/4 bolli sykur
1 tsk. vanilla
1 msk. maizenamjöl
Hrært saman og sett í pott, 3/4
bollum mjólk og 1/2 bolla
rjóma bætt út í og hit-
að að suðu. Athugið
að hræra skal í pott-
inum allan tímann.
Ferskir ávextir brytj-
aðir:
Vínber, græn og blá
fersk jarðarber
banani
kíví
ferskjur
Marengsinn er mulinn svolítið í
mótinu, sósan sett yfir og síðast
ávextimir. Borið fram með rjóma
eða Is.
Ég ætla að skora á mágkonu
mína, Ingunni Lísu Jóhannesdótt-
ur, að vera næsti matgæðingur
DV. Hún er snillingur að galdra
fram frábæra pastarétti.
Nykaup
Þar sm jirskleikinn byr
Tómatsalat með
rauðvínsedikssósu
íf:
Fyrir 4
600 g tómatar
150 g sykurbaunir
6 stk. belgbaunir
150 g strengjabaunir
8 msk. furahnetur
8 msk. hjartahnetur
(cashewhnetur)
Rauðvínsedikssósa
(vinaigrette)
4 stk. skalottlaukur
1 búnt fersk steinselja, söxuð
2 dl rauðvínsedik
5 stk. hvítlauksrif í sneiðum
1 1/2 dl matarolía
2 msk. kjúklingasoð (vatn
og teningur)
1 tsk. timian, ferskt
salt og pipar úr kvöm
Skerið
1 belgbaunir i
strimla, sjóð-
ið síöan með
sykur- og
strengjabaun-
um í léttsölt-
| uðu vatni í 1-2
mín. Kælið.
| Skerið tómata
í sneiðar og
blandið saman
við baunimar, leggið í skál.
Hneturnar léttbrúnaðar á
heitri, þurri pönnu, blandað
saman við salatið. Berið fram
með rauðvínsedikssósunni.
Rauðvínsedikssósa
Hvítlaukssneiðarnar létt-
brúnaðar í 4 msk. af matarolíu.
Látið kólna og blandið síðan
; saman við önnur hráefhi í sós-
una. Þeytið vel saman.
Graslauksbrauð
600 g hveiti
50 g birki
4 tsk. þurrger, sléttfullar
| (1 bréf)
1 tsk. lyftiduft, sléttfull
3 msk. sykur, sléttfullar
75 g smjör
11/2 dl mjólk, ylvolg
11/2 dl vatn, ylvolgt
1 egg
4 msk. graslaukur
Hrærið þurrgerið í ylvolgri
mjólkinni í 5 mínútur. Bætið
síðan saman við þurrefnin
ásamt mjólk, bráðnu smjöri,
eggi, vatni og söxuðum gras-
lauk. Hnoðið með hnoðara í 5
mínútur. Mótið í snittubrauð og
skerið í 2 cm þykkar sneiðar
I (hleifa). Úr þessu ættu að verða
15-20 brauð, hvert um 40 g að
þyngd. Setjið á smurða bökim-
arplötu, skerið granna skurði í
hvem hleif og látið hefast við
stofuhita í
20 mínútur.
Bakið við 200°C í 20-25 mínútur.
Skvettið 1 dl af vatni í ofnbotn-
inn um leið og baksturinn hefst.
Aðrir möguleikar
Einnig er hægt að skipta deig-
inu í tvennt og baka tvö 500 g
snittubrauð eða eitt stórt brauð
(1 kg).
Snittubrauðin þurfa að hefast
í 30 mlnútur og bakast í 25-30
mínútur við 200°C, eitt stórt
brauð á að hefast í 35 mínútur
og bakast í aðrar 35 mínútur við
200°C.
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni i þær fæst.