Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Side 10
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999
10 viðtal_______________
Helga Braga býöur mér að
draga gyðjukort og setur um
leið upp ábúðarfullan svip
spákerlingarinnar. Oft hafa
slík spil dauða og djöful í
hverju horni en Helga Braga
þvertekur fyrir að í gyðju-
kortunum sé nokkuð slœmt
að finna. Bara Ijósið. Úllalla
segir hún þegar ég dreg ein-
hverja dóttur Gaiu úr spil-
unum en bætir því viö aö
annars sé hún góð norn.
„Lifi Ijósið. Ég er bara í
þeirri deild, “ segir hún.
Helga Braga Jónsdóttir ólst upp á
Akranesi, en er Snæfellingur í báð-
ar ættir. Komin af því vonda fólki
sem Árni prófastur Þórarinsson til-
einkaði heilt bindi ævisögu sinnar.
„Pabbi og mamma fæddust hvort
sínum megin við jökulinn. Þau voru
kærustupar þegar ég kom undir en
voru hætt saman áður en ég fædd-
ist. Sveitastúlkan mamma mín,
Svala Bragadóttir, flutti til bróður
síns á Akranesi og þar ólst ég upp.
Ég er einkabam hennar og frum-
burður föður míns, Jóns Hjartar-
sonar leikara."
slægð til þess að fá að ráða meiru en
þeir?
„Ég grét fógrum támm í síðustu
hrinu. Þá hljóp ég inn á klósett, yfir-
komin af tilfinningum. Það virkaði,
þó að ekki væri það planað. En ég er
ekkert á þessari „ég er kona“ línu. Ég
er ein af Fóstbræðrum og Fóst-
bræðranafnið skiptir mig engu máli.
Mér finnst það bara fyndið."
Hvað fmnst þér um það þegar karl-
menn útiloka komrn úr svona grín-
hópum og leika kvenhlutverkin bara
sjálfir?
„Þetta er náttúrlega bara lenska og
svo sem ekkert við því að segja. Mér
fmnst karlar líka oft ógeðslega fyndn-
ir í kvenhlutverkum. Til dæmis Jón
Gnarr þegar hann leikur kerlingar
og Örn Árnason þegar hann er
skautakonan. Það er viðbjóðslega
fyndið."
En era karlaklíkur ekki tregari til
þess að hlæja að bröndurum kvenna
en karla?
„Ég hef ekki fundið fyrir því. Ég
vann með Lollu og Dóra í Gríngellun-
um og okkur var vel tekið, hvort sem
viðbrögðin komu frá konum eða körl-
um. Ég hef líka mikið verið að
skemmta í karlaklúbbum og þeir
snarkaupa mig. Ég kem þá fram ein
með mitt prógramm, leik ýmsa
karaktera og segi brandara og það
gengur vel í þá. Ég nenni ekkert að
vera að pæla í kvennahúmor eða
karlahúmor, enda er það ekki málið,
málið er bara að finna eitthvað fynd-
ið.“
Þið Ólafia Hrönn og Halldóra Geir-
harðs hafið að mörgu leyti brotið
blað í gamanleik kvenna. Vora
leikkonur fyrram ekki hræddari við
að vera ókvenlegar?
„Að minu mati var það Edda
Björgvins sem raddi okkur brautina.
En það er rétt, þetta hefur heilmikið
breyst enda erum við önnur kynslóð.
Áður þótti ekki tilhlýðilegt að konur
væru með dónaskap. í mínum leik
geri ég og segi það sem mér þykir
fyndið. Þó að ég þurfl að vera dóna-
leg eða ljót skiptir það ekki máli.“
Langar ekki að gifta mig
Helga segir að Fóstbræður munu
áreiðanlega ekki starfa endalaust
áfram. En að hverju ætlar hún að
snúa sér eftir þessa törn í gaman-
leik?
„Ég á mér ofsalega marga drauma
sem ég ætla að láta verða að veru-
leika. Aðaláhugamál mitt er að ferð-
ast, enda hef gert mikið að því. Ég
er kafari og hef farið nokkrum sinn-
um til útlanda til þess að kafa og
það er æðislegt. Það er svo fallegt
þama niðri. í Key West í Flórída
synti ég með höfrungum og náði
góðu sambandi við þá. Enda mikill
höfrungur í mér. Mig langar að geta
sameinað leiklistina og ferðalögin
og gera ferðaþætti fyrir sjónvarp,
þar sem ég ferðast og grínast og tek
upp á ýmsu. Þetta er minn aðal-
draumur þessa stundina."
Önnur áhugamál Helgu Brögu
eru andleg málefni. „Fyrir sex árum
skildi ég við sambýlismann minn og
upp úr því vildi ég „gera upp mín
mál“ eins og oft gerist þegar fólk er
að skilja og verður svolítið þung-
lynt. Ég fór að íhuga ýmislegt sem
ég hafði ekki leitt hugann að áður
og stunda hugleiðslu. Mér fmnst
þessi andlega tenging jarðbinda mig
og færa mér innri ró sem er nauð-
synleg í mínum bransa. Ef ég hefði
ekki gert þetta væri ég sennilega
einhvers staðar á taugahæli því ég
hef alltaf verið æðislega tens týpa.“
Helga Braga er ógift, á ekki bam
og ekki einu sinni kærasta. Á ekk-
ert að fara að bæta úr því?
„Ég sé ekkert endilega fram á að
gifta mig, því ég held að það sé bara
ekki mitt karma. Ég vil vera frjáls.
Kannski eignast ég einhvern tíma
mann og barn en ég hef bara haft
svo hræðilega mikið að gera. Sið-
ustu tveir kærastar hafa báðir
kvartað yfir því að það nægi þeim
ekki að sjá mig klukkutíma á dag.
Ég hef sem sagt rekið mig á að til-
hugalíf þarf tíma.
En ástin er samt það sem blífur
og þó að ég eigi ekki kærasta, þá er
ég svo heppin að eiga mjög góða
vini. Ég vinn líka með dásamlegu
fólki sem ég elska og sem elskar
mig. Það er sem sagt ástarflæði í
mínu lífi.“
-þhs
Vantaði leikkonu sem
gæti leikið allan skalann
Helga segir að sem einkabarn
hafi hún fengið næstum of mikla at-
hygli móður sinnar en að sama
skapi of litla athygli föður síns þar
sem hann bjó ekki í sama bæjarfé-
lagi.
„Ég ákvað að verða leikkona
strax og ég byrjaði að geta tjáð mig.
Ef til vill hefur mér fundist það
færa mig nær pabba þar sem hann
var leikari. „Þú varst nú alltaf svo
kostulegur krakki," segja gamlar
frænkur við mig í dag því ég byrjaði
strax að performera. Ef ég sá hurða-
karm fannst mér hann vera svið og
byrjaði umsvifalaust að leika og
grína. Þegar ég fór til Reykjavíkur
um helgar til þess að heimsækja
pabba þá fór ég í leikhús. Hann fór
lika með mig á æfíngar í Iðnó og ég
sat stillt og prúð og fylgdist með. Ég
vissi alltaf að þetta var það sem ég
vildi gera.“
Helga varð stúdent frá Fjölbrauta-
skólanum á Akranesi 1984, var au
pair í París eitt ár og fór svo i inn-
tökupróf í Leiklistarskólann um
vorið. Hún á sem sagt tíu ára leikaf-
mæli í vor.
„Fyrsta hlutverkið mitt var í
verkinu Lítið fjölskyldufyrirtæki
eftir Alan Ayckbome í Þjóðleikhús-
inu. Þar lék ég dóttur Arnars Jóns-
sonar, afskaplega venjulega stúlku.
Svo gekk ég til liðs við Borgarleik-
húsið og fór að æfa í Fló á skinni.
Þá lék ég á móti pabba sem var
mjög skemmtileg lífsreynsla. Hann
þurfti að öskra á mig og skammast í
leikritinu. í fyrsta skipti."
Helga var lausráðin hjá Borgar-
leikhúsinu nokkur ár og svo fast-
„Áður þótti ekki tilhlýðilegt að konur væru með dónaskap. í mínum leik geri ég og segi það sem mér þykir fyndið.
Þó að ég þurfi aö vera dónaleg eða ijót, þá skiptir það ekki máli.“ DV-mynd E.ÓI.
w
Eg er góð norn
ráðin í tvö ár. Einnig starfaði hún
með ýmsum leikhópum, m.a. Frú
Emilíu og leikhópnum Þíbilju. Fyr-
ir einu og hálfu ári sagði hún samn-
„Ég er ekkert á þessari „ég er kona“
skiptir mig engu máli. Mér finnst það
-línu. Eg er ein af Fóstbræðrum og Fóstbræðranafnið
bara fyndið."
ingi sinum í Borgarleikhúsinu laus-
um þegar henni bauðst að skrifa
með strákunum í Fóstbræðrum en
áður hafði hún starfað með Jóni
Gnarr og Sigurjóni
Kjartanssyni í sjón-
varpsþáttunum Örn-
inn er sestur.
„Fóstbræðranafn-
ið hafði orðið til
vegna þess að það
voru tvö lið sem
sköpuðu heildina.
Fóstbræðurnir Jón
og Sigurjón og fóst-
bræðurnir Benni og
Hilmir. Þá vantaði
leikkonu sem gæti
leikið allan skalann;
kærustur þeirra,
dætur og mæður.
Þeir vildu fá mig
með og ég sagði nátt-
úrlega bara já, takk.
Við ákváðum síð-
an að gefa okkur
nægan tíma og mæta
alltaf tiu á morgnana
til þess að skrifa. Við
leggjum mjög mikla
vinnu í þættina og
viljum vanda okkur
eins og við getum.“
Hljóg inn á klósett, yfir-
komin af tilfinningum
Hvernig er að taka töm í því að
skrifa eitthvað sem á að vera rosa-
lega fyndið þegar maður er illa upp-
lagður?
„Við bara byrjum, þó að það sé
stundum erfitt. Sigurjón skrifar
„Mjög fyndið atriði" á blað og svo
bíðum við bara þar til eitthvað kem-
ur. Annars er mjög mikilvægt að
vera á vaktinni fyrir því sem er fynd-
ið og hafa alltaf með sér bók til þess
að skrifa í það sem manni dettur í
hug. Fyndnar aðstæður og fyndnar
persónur og vinna svo úr því.“
En rífíst þið ekki heiftarlega yflr
því hvað er fyndið og hvað er ekki
fyndið?
„Við rífumst ekkert voðalega mik-
ið þegar við erum að skrifa þættina
og æfa þá. Við rífumst hins vegar
þegar við erum að ákveða hvað á að
nota af þeim atriðum sem við höfum
unnið. Við höfum mjög ólíkan húmor
og þegar við erum að velja ef til vill
100 atriði af 300 erum við ekki sam-
mála um hvað á að velja og gagnrýn-
um hvert annað villt og galið. Þá
koma rifrildin."
Getur þú ekki notað kvenlega