Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Page 25
Men
Náms- og athafnastyrkir
Veittur verður 200.000 kr. styrkur fyrir
hugmynd að nýrri vöru eða hugmynd að
rekstri fyrirtækis á sviöi vöruframleiðslu
eða þjónustu.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð liggja
frammi í öllum útibúum bankans.
Allar frekari upplýsingar eru veittar
á www.isbank.is og hjá Markaðsdeild
íslandsbanka í síma 560 8000.
Skilafrestur er til 15. mars 1999.
Hugleikur er leikhópur áhuga-
leikara. Þaö þýðir að enginn sem
þar tekur þátt í uppfærslum er
menntaður leikari, heldur er þetta
fólk sem sinnir sínum störfum, en
leikur í hjáverkum. Það gerir líka
höfundur verksins Nóbelsdrauma,
sem Hugleikur frumsýnir í kvöld í
Möguleikhúsinu við Hlemm. Ámi
Hjartarson starfar hjá Orkustofnun
þar sem hann er jarðfræðingur og
vinnur við jarðfræðikortagerð.
Ámi segist í starfi sínu vera mjög
jarðbundinn, eins og gefur að skilja,
en þó leynist í honum einhver mis-
sýnileg athyglissýki, sem verður
þess valdandi að hann sækir í að
vinna í leikhúsi. Arfberamir láti
ekki að sér hæða og það hafi verið
viðloðandi fjölskyldu hans að vilja
láta svolítið á sér bera.
„Starf mitt hjá Orkustofnun er
bara frá níu til fimm og þess utan
verð ég að hafa eitthvað fyrir
stafhi," segir Ámi. „Þetta tímabil
ævi minnar kýs ég að kalla leiklist-
artímabilið, en á undan leiklistar-
tímabilinu var hellatímabilið. Þá
hafði ég brennandi áhuga á því að
skoða manngerða hella og i raun
gerði ég lítið annað í mínum fri-
tíma.“
Farsar hafa löngum verið vin-
sælir hjá áhugaleikhópum; er
Nóbelsdraumar farsi?
„Nei, það em ekki nægilega
margar hurðir í leikmyndinni til
þess að það standi undir farsa-
nafninu," segir Ámi og hlær.
„Ætli það sé ekki nær lagi að
kalla það gamanleik með
söngrænu ívafl. Verkið fjallar
um atvinnuleikhús hér í borg,
sem á í listrænum og fjárhagsleg-
um kröggum. Nýr leikhússtjóri
hefur verið ráðinn til starfa, en
hann hefur ekkert vit á leiklist,
heldur er viðskiptafræðingur og
hefur gráðu í gæðastjórnun.
Hann ætlar sér að leysa mál leik-
hússins, fá til liðs við það frægt
fólk og taka til sýninga stykki
sem gefa pening í kassann. Hann
ræður leikstjóra sem hefur verið
að gera garðinn frægan í London
og París og að auki frægasta rit-
höfund landsins Hallfreð Högna-
Árni Hjartarson segist vera jarðbundinn maður en hafa einhverja sýniþörf
sem leikhúsið fullnægi. Hann hefur ieikið með áhugaleikfélaginu Hugleik, en
hefur nú skrifað fyrir félagið verkið Nóbelsdrauma sem frumsýnt verður í
kvöld.
son sem á að skrifa handrit. Þó
að hann sé ástmögur þjóðarinn-
ar er hann alveg óþolandi per-
sóna og í einhverju bölvuðu
dópi, en hefur fengið bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs og það ganga sögur um að
hann kunni að vera á blaði hjá
Nóbelsnefndinni. Hann er ráð-
inn og fær fyrirfram greitt fyrir
handrit, en fljótt kemur í ljós að
hann hefur ekkert samið og illa
gengur að fá hann til þess að
gera eitthvað af viti. Vonin um
að Hallfreður fái Nóbelinn er
það eina sem leikhúsið á eftir,
því þá skiptir engu máli hvaða
vitleysa rennur upp úr hon-
um.“ Ámi bætir því við að
hann sé ekki með neina raun-
verulega persónu í huga. Hann
viti ekki um neinn óþolandi ís-
lenskan rithöfund sem er á
blaði hjá Nóbelsnefndinni.
-þhs
lo
y.
Allar stærðir
sendibfla
Námsstyrkir - Árlega eru veittir sex námsstyrkir
til námsmanna heima og erlendis í tengslum
við Menntabraut íslandsbanka, hver að
fjárhæð 150.000 kr.
Allir námsmenn sem skráðir eru í Menntabraut
íslandsbanka geta sótt um styrkina. Styrkirnir
eru óháðir skólum og námsgreinum.
Athafnastyrkir - Einnig efnir (slandsbanki til
samkeppni meðal námsmanna sem skráðir eru
í Menntabraut íslandsbanka um nýsköpunar-
eða viðskiptahugmynd. Markmiðið er að örva
nýsköpun og frumkvæði meðal námsmanna.
Magnús Ingólfsson á
stjormiial.is
Leikarar Hugleiks á æfingu verksins Nóbelsdraumar.