Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1999, Side 31
MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1999
_______œ*
Fréttir
Á dögunum voru kynntar niðurstöður úr samkeppni um hönnun viðbyggingar við Árbæjarskóla. Teiknistofa Ingi-
mundar Sveinssonar arkitekts varð hlutskörpust í samkeppninni. Á myndinni eru Ingimundur, Sigrún Magnúsdótt-
ir, formaður fræðsluráðs Reykjavfkur, og arkitektarnir Ólafur Axelsson og Jóhann Einarsson sem eru samstarfs-
menn Ingimundar við hönnunina. DV-mynd Teitur
íbúöalánasjóður á Sauðárkróki:
Mikið álag
vegna skatt
framtala
Mikið álag var á símkerfi og
starfsfólk deildar íbúðalánasjóðs á
Sauðárkróki áður en frestur til að
skila skattframtali rann út og gekk
viðskiptavinum gengið mjög erfið-
lega að ná símasambandi við stofn-
unina. Svanhildur Guðmundsdóttir
forstöðumaður sagði að um tíma-
bundið ástand hefði verið að ræða.
Mikill hluti fyrirspuma hafi verið
vegna þess að fólk vantaði eða hafi
spurst fyrir um gögn vegna skatt-
framtala.
Svanhildur segir að bætt hafi
verið við hálfu stöðugildi hjá deild-
inni og eru þau þvi orðin sex og
hálft og að auki vinna tveir starfs-
menn fyrir sjóðinn í útibúi Búnað-
arbankans.
“Þetta hefur gengið mjög vel. Við
erum hér með nýtt fólk í störfum og
það tekur sinn tíma að þjálfa það.
Tíminn leiðir það síðan í ljóst hvað *
við þurfum á miklu starfsliði að
halda í framtíðinni,“ segir Svanhild-
ur.
Eins og áður hefur komið fram í
Feyki er starfssvið deildar íbúða-
lánasjóðs á Sauðárkróki að veita all-
ar almennar upplýsingar um íbúða-
lán auk þess að annast vörslu og
umsýslu fasteignaverðbréfa. Fyrir
liggur að skanna verðbréfm, koma
þeim í tölvutækt form og koma
þeim inn í gagnagrunn stofnunar-
innar. Verður það nokkuð viðamik-
ið verkefni þannig að ljóst er að
starfsfólk íbúðalánasjóðs á Sauðár-
króki hefur næg verkefni á næst-
unni. -ÞÁ
Borgarbyggð:
Sorpið boðið út
DV, Vestnrlandi:
Bæjarstjóm Borgarbyggðar
samþykkti á síðasta fundi að fela
tæknideild að hefja nú þegar und-
irbúning að gerð útboðsgagna
vegna sorphirðu og sorpeyðingar
íyrir Borgarbyggð. Til grundvall-
ar verði lagt að verktaki sjái al-
farið um sorphirðu og sorpeyð-
ingu miöað við að nýta sér urð-
unarstað í Fíflholtum. Gert verði
ráð fyrir að samningar verði
geröir tii 5-8 ára þannig að fjár-
festing verktaka hafi nokkum af-
skriftartima uns eignir, svo sem
sorpílát, falla til Borgarbyggðar.
Einnig verði tekið miö af skýrslu
Línuhönnunar ehf. sem unnin
var fyrir nokkur sveitarfélög á
Vesturlandi í mars 1998. -DVÓ
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er
afsláttur
af annarri auglýsingunni,
aW milli himjfy
Smáauglýsingar
B3
5505000
Samskip að kaupa Bifreiða-
stöð KB í Borgarnesi
DV, Vesturlandi:
Um áramót var undirrituð vilja-
yfirlýsing á miili Kaupfélags Borg-
firðinga í Borgarnesi og Samskipa
um kaup Samskipa á Bifreiðastöð
KB í Borgamesi. Heimamönnum
var hins vegar gefinn kostur á að
ganga inn í kaupin en þeir hafa
gefið það frá sér og hefur stjórn
Kaupfélags Borgfirðinga ákveðið
að ganga til samninga við Samskip
um væntanlega sölu á Bifreiðastöð-
inni.
Menn ætla að gefa sér tima til 1.
mars til að ganga frá samningum
um söluverðið.
-DVÓ
c