Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1999, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 27. MARS 1999
Hciiíiftta .'11.
ki. 35.000/
llmliiifcttSR
Páskablað^akemur út
fimmtudaginn 1. apríl, skírdag.
Auglýsendur, athugið
Blaðinu fylgir sérblaðið ífið eftir vinnu en þar er
fjallað um það sem er að gerast í skemmti-, lista-, menningar-
og afþreyingargeiranum.
Pantanir og vinnsluauglýsingar þurfa að berast fyrir
kl.14 mánudaginn 29. mars.
Tilbúnar auglýsfngar þurfa að berast fyrir
kl.lt^’raéV&uda^nB 31. mars.
Smáauglýsíngar til birtingar
í páskablaöi þurfa aö berast fyrir
c ntöðvikudaalon*§1. mars.
yrsta Diao eftir páska kemur út
snemma á þriðjudagsmorgun.
Svala Björgvinsdóttir er við dyr heimsfrægðarinnar:
Kemur ekki á óvart
- segir Birkir Björnsson sem var með henni í Scope
Síöasta mánudag var sagt frá því í
fréttum að í skosku stórblaði væri
greint frá milljarðssamningi sem EMI
hljómplöturisinn væri að gera við
unga óþekkta söngkonu. Sá háttur er
stundum hafður á í hljómplötugeiran-
um að fyrirtæki taka upp á arma sína
ungt hæfUeikafólk sem þau sjá fram-
tið í. Þannig á það að hafa verið með
Spice Girls og fleiri heimsfræga tón-
listarmenn.
Söngkonan unga reyndist vera ís-
lensk en alls ekki óþekkt hér á landi.
Svala Björgvinsdóttir hefur sungið
ein og með hljómsveitum þrátt fyrir
ungan aldur en hún er aðeins 22 ára.
Svala er sem kunnugt er dóttir stór-
söngvarans Björgvins Halldórssonar
og konu hans, Ragnheiðar Bjarkar
Reynisdóttur. Bróðir hennar er Oddur
Hrafn.
Frábær söngkona
Við höfum líklega heyrt fyrst í
Svölu þegar hún var aðeins tíu ára og
söng jólalagið Ég hlakka svo til sem
enn nýtur mikilla vinsælda i desem-
ber. Poppið var sterkt í henni og á ár-
unum 1994-5 var hún í hljómsveitinni
Scope með Birki Björnssyni, Svein-
birni Bjarka Jónssyni, Grétari Inga
Gunnarssyni og Margeir Ingólfssyni
og naut sveitin nokkurra vinsælda.
Vinsælasta lag hljómsveitarinnar var
Was it all it was.
Gott gengi Svölu kemur Birki
Bjömssyni ekki á óvart:
„Svala er mjög góður tónlistarmað-
ur og frábær söngkona. Samstarfið
við hana gekk vel. Það er mjög gott að
vinna með henni. Svala, Bjarki og ég
ætluðum alltaf að starfa meira saman
en af því hefim enn ekki orðið.“
Svala með fjölskyldunni í fertugsafmæli föður síns.
Lítil með fjölskyldunni. Ragnheiður, Svala, Oddur Hrafn og Björgvin.
Svala árið 1995 þegar hún lék með
Bubbleflies.
DV-mynd GVA
í maí 1995 voru No Name-andlit
sumarsins kynnt. Það voru söng-
konurnar Emilíana Torrini og Svala.
DV-mynd Teitur
Á þetta innilega skilið
Árið 1995 gekk Svala til liðs við
hljómsveitina Bubbleflies sem þá
hafði starfað í nokkur ár með Pál
Bannine sem söngvara. Páll hætti og
Svala tók við stöðunni. Samstarf við
Bubbleflies hafði hafist nokkru áður
þegar hún söng viðlag í lagi hljóm-
sveitarinnar sem flutt var í kvik-
myndinni Ein stór fiölskylda. Lagið I
Bet You sem þau gáfu út sumarið 1995
naut nokkurra vinsælda.
„Svala er söngvari frá náttúrunnar
hendi og þarf ekki að hafa mikið fyrir
þessu,“ segir Davíð Magnússon sem
starfaði með henni í Bubbleflies. Það
kemur honum ekki á óvart frekar en
Birki að hún skuli vera í samninga-
viðræðum sem þessum. Davíð segir
að Svala sé mjög fagmannleg í vinnu-
brögðum. Hann er ekki hrifmn af
þeirri tónlistarstefnu sem Svala vinn-
ur innan en segir að gæði tónlistar-
innar séu 100%.
„Svala er að spila R&B í
heimsklassa. Það kemur mér því ekki
á óvart að hún skuli vera í þessari
stöðu og ég verð mjög vonsvikinn ef
hún fær ekki þetta tækifæri því hún á
það svo innilega skilið." -sm