Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1999, Blaðsíða 24
V
24
ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 1999
Iþróttir
ÍTflLÍA
Lazio 26 16 7 3 54-23 55
Fiorentina 26 15 5 6 43-26 50
AC Milan 26 13 9 4 39-29 48
Parma 26 13 8 5 47-27 47
Udinese 26 12 6 8 36-33 42
Roma 26 10 9 7 48-35 39
Juventus 26 10 9 7 30-26 39
Bologna 26 10 8 8 35-30 38
Inter 26 10 6 10 45-37 36
Cagliari 26 9 5 12 37-38 32
Bari 26 6 13 7 30-35 31
Venezia 26 8 7 11 26-34 31
Perugia 26 9 4 13 33-46 31
Sampdoria 26 6 9 11 27-43 27
Piacenza 26 6 7 13 35-40 25
Vicenza 26 5 8 13 17-34 23
Salernitana 26 6 5 15 26-46 23
Empoli 26 3 9 14 21-47 16
Næstu leikir- 3. apríl:
Bari-Roma
Empoli-Juventus
Inter-Fiorentina
Lazio-AC Milan
Parma-Cagliari
Perugia-Bologna
■< Piacenza-Udienese
Venezia-Salernitana
V icenza-Sampdoria
Nr. Leikur: Röðin
1. Atalanta - Brescia 1-1 X
2. Ravenna - Verona 2-3 2
3. Torino - Lucchese 2-1 1
4. Napoll - Ternana 1-0 1
5. Reggina - Treviso 1-0 1
6. Pescara - Cesena 0-0 X
7. Lecce - Cremonese 2-1 1
8. Cosenza - Genoa 2-2 X
9. Chievo - Fid.Andria 1-2 2
10. Como - Padova 2-0 1
11. Carrarese - Brescello 0-0 X
12. Cittadella - Pistoiese 2-1 1
13. Arezzo - Livorno 4-3 1
Heildarvinningar
20 milljónir
13 réttir
108.620
kr.
12 réttir
3.640
kr.
11 réttir
400
kr.
10 réttir
kr.
Italir standa
vel að vígi
- í 1. riðli undankeppni EM í knattspyrnu
nte
$
ítalir standa vel að vígi í 1. riðli Evrópumóts
landsliða í knattspyrnu eftir góðan sigur á Dön-
um um helgina. ítalir hafa unnið alla þrjá leiki
sína í keppninni og eru á toppnum.
Það voru tveir leikmenn Juventus, Filippo
Inzaghi og Antonio Conte, sem tryggðu ítölum
sigurinn á Dönum i Kaupmannahöfn. Mark
Inzaghi kom strax á fyrstu mínútu en hann
komst þá inn í sendingu Jespers Gronskjærs til
Peter Schmeichels markvarðar og skoraði örugg-
lega. Gronskjær var að spila sinn fyrsta landsleik
fyrir Dani og hann hefur örugglega óskað sér að
byrja betur.
„Það er alltaf erfitt að vera einn á móti mark-
verði svona snemma leiks en mér tókst sem bet-
ur fer að skora,“ sagði Inzaghi, eftir leikinn.
Danir sóttu hart að marki ítala eftir þetta og
náðu að uppskera mark á 58. mínútu þegar
Ebbe Sand jafnaði. En ítalir voru ekki
af baki dottnir því þeim tókst að
tryggja sér sigurinn þegar Conte
skallaði í markið eftir góða fyr-
irgjöf Francesco Totti en háð-
ir höfðu þeir komið inn á
sem varamenn í síðari hálf-
leik.
Zoff ánægður
Dino Zoff landsliðs-
þjálfari ítala var að von-
um ánægður með sig-
urinn í leikslok.
„Munurinn á lið-
unum var sá að við
nýttum okkar
tækifæri en þeir
ekki. Ég mundi
telja þetta verð-
skuldaðan sig-
ur þrátt fyrir
að við höfum
verið í vörn
meg-
inhlutann af
leiknum.
Fótbolti
snýst
hins
vegar
um að
sltC)r.a Filippo Inzaghi, fram-
Qerrr herki ítalska landsliðs-
ins og Juventus, fagnar
hér marki sínu gegn Dön-
um í Kaupmannahöfn á
laugardagskvöld.
feaaw,.,.
ft
mörk en andstæðingurinn. Það gerðum við í þess-
um leik og ég get ekki verið annað en sáttur við
það,“ sagði Zoff við fréttamenn eftir leikinn.
Gianluca Buffon, markvörður Parma, átti mjög
góðan leik á milli stanganna og varði oft meist-
aralega vel.
„Ég fékk að reyna mikið á mig. Danir voru fjöl-
mennir í teignum og marksæknir og ef við lítum
á gang leiksins hefði jafntefli kannski verið rétt-
lát úrslit. Þrátt fyrir að við séum með fullt hús
stiga eftir þrjá leiki er langur vegur frá að við
séum búnir að tryggja okkur í úrslitin. Við
eigum marga erfiða og mikivæga
leiki eftir og einn þeirra er gegn
Hvít-Rússum á miðvikudaginn,"
sagði Buffon eftir leikinn.
Berjast til þrautar
Danir standa hins vegar illa
að vígi í riðlinum. Þetta var ann-
ar tapleikur þeirra á heimavelli í
röð en Walesverjar gerðu sér lítið
fyrir og skelltu Dönum í október síð-
astliðnum. Bo Jo-
hansson, lands-
liðsþjálfari
Dana og fyrrum
landsliðsþjálfari
Islendinga, hefur
ekki gefið upp alla von.
„Við verðum að berjast til
þrautar og ef okkur tekst að
vinna þá fjóra leiki sem við eigum eft-
ir og ítalir klára sitt þá tel ég möguleika á að
ná öðru sætinu í riðlinum. Við gerðum mistök
með því að bakka aftar á völlinn eftir að við skor-
uðum jöfnunarmarkið," sagði Johansson.
Tekst United loks að slá Juventus út úr
keppni?
Enn einu sinni mætast Manchester United og
Juventus i meistaradeild Evrópu en liðin drógust
saman í undanúrslitunum sem fram fara 7. og 21.
apríl. Þetta er þriðja árið í röð sem þessi félög
mætast í Evrópukeppninni en í tvö skiptin þar á
undan höfðu ítalamir betur. Þeir eru fleiri spark-
spekingamir sem spá því að United fari með sig-
ur af hólmi í þessu einvígi. Þeir segja að að leik-
menn Manchester United hafi yfirstigið erfiðan
þröskuld þegar þeim tókst að slá lið Inter út úr
keppninni en það var í fyrsta sinn í 40 ára sögu
United í Evrópukeppninni sem því tekst að slá
ítalskt félag út. Þá segja þeir að enska liðið hafi
sýnt miklu meiri stöðugleika á tímabilinu. Liðið
sé á toppi ensku A-deildarinnar og sjálfstraust
leikmanna liðsins sé mjög mikið.
Þeir sem spá því að Juventus sigri í þessu ein-
vígi benda á að ítölsku meistaranir hafi verið 1
mikilli uppsveiflu undanfamar vikur eða allt frá
því að Ancelotti tók við liðinu fyrir tveimur mán-
uðum af Marcelo Lippi. Við þjálfaraskiptin hefur
orðið mikil hugarfarsbreyting í herbúðum
Juventus. Liðið hefur leikið 8 leiki undir stjóm
Ancelotti án þess að bíða ósigur og eftir að liðið
varð úr leik í baráttunni um ítalska meistaratit-
ilinn hafa leikmenn Juventus einblínt á Evrópu-
keppnina. Fyrir þremur mánuðum eða svo hefði
ekki nokkrum manni dottið til hugar að Juvent-
us kæmist i undanúrslit Evrópukeppninnar.
Leikur liðsins var kominn á afar lágt plan undir
stjórn Lippis og engu líkara en að leikmenn
ítalska liðsins væru orönir saddir eftir velgengni
síðustu ára. En nú er sagan önnur og fram und-
an tveir hörkuleikir gegn Manchester United. Sá
fyrri fer fram á Old Trafford miðvikudaginn 7.
apríl og sá seinni hálfum mánuði síðar í Torino.
Zidane liklega með
Aðaláhyggjuefni forráðamenna Juventus er
það hvort franski snillingurinn Zinedine Zidane
verður með i leiknum á Old Trafford. Kappinn
meiddist á hné í leik Juventus gegn Olympiakos
og hann hefur verið á sjúkralistanum síðan.
Hann var ekki með franska landsliðinu í leiknum
gegn Úkraínumönnum um helgina en vonir
standa til að hann verði með í leiknum gegn
Armenum á morgun og þá sömuleiðis í leiknum
gegn Manchester United þann 7. apríl.
Eriksson samdi við Lazio til 2002
í ítölsku A-deildinni getur fátt komið í veg fyr-
ir sigur Lazio í deildinni. Liðið hefur 5 stiga for-
skot á toppi deildarinnar og sá mannskapur sem
Lazio hefur yfir að ráða á ekki að geta glatað
svona góðu forskoti niður. Svíinn Sven Göran
Eriksson, þjálfari Lazio, framlengdi samning sinn
við Lazio-liðið i síðustu viku og gildir samningur-
inn til ársins 2002. Forráðamenn Lazio eru í skýj-
unum yfir frammistöðu Erikssons og segja að
hann hafi verið mikill happafengur. fupphafi
tímabilsins voru þessir sömu menn ekki sáttir
við störf Svíans og minnstu munaði að þeir
rækju hann úr starfi. Lazio gekk mjög illa fram-
an af mótinu. Liðið náði alls ekki saman enda
margir nýir menn keyptir til félagsins fyrir mót-
ið. En Eriksson bað menn um að gefa sér og lið-
inu tíma. Hann sagði að liðið myndi slípast hægt
og bítandi og þegar það væri búið og gert skyldu
menn líta á töfluna. Þetta hefur komið á daginn.
Eftir að Laziovélin hrökk loks í gang hefur hún
verið nær óstöðvandi og fyrsti meistaratitill fé-
lagsins í 25 ár blasir nú við.