Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1999, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
Fréttir
Bleikt og blátt stöövað i prentsmiðju:
Falsaðar klámmyndir
af íslenskum konum
- ritstjórinn, Davíö Þór Jónsson, ekki látinn víkja
AUt upplag nýjasta tölublaðs
klámblaðsins Bleiks og blás, sem
Davíð Þór Jónsson ritstýrir, var
stöðvað í prentsmiðju á laugardag-
inn. Ástæðan var sú að í blaðinu
var myndasería þar sem andlitum
nokkurra islenskra kvenna var
skeytt saman við búka nakinna
kvenna í hinum ýmsu steUingum.
Myndaserían hét „Séð með augum
ljósmyndafalsara". Birtar voru
myndir af Unni Steinsson fyrirsætu,
Siv Friðleifsdóttur alþingiskonu,
Ragnheiði Elínu Clausen þulu,
Lindu Pétursdóttur, eiganda Bað-
hússins, Jóhönnu Vigdísi Hjalta-
dóttur fréttamanni og Evu Maríu
Jónsdóttur dagskrárgerðarkonu.
Að sögn Magnúsar Hreggviðsson-
ar, stjómarformanns Fróða hf., sem
Stafræna kortageröin:
Fundi frestað
vegna
Kosovo
DV, Akranesi:
„Viðræður eru langt komnar
við Bandaríkjamenn um staf-
ræna kortagerð og er gert ráð
fyrir undirritun nýrra samn-
inga í kjölfar næsta samninga-
fundar. Vegna átakanna í
Kosovo hefur fyrirhuguðum
samningafundi í lok apríl verið
frestað en ákveðið er að halda
fund í byrjun júní í Washington.
Ólokið er gerð 98 korta af 200
en samkvæmt samningsdrögum
er gert ráð fyrir að flestir þættir
verksins verða unnir hér á
landi undir stjórn Landmælinga
íslands. Gerð kortanna er mikil-
vægur hlekkur í áætlun um
uppbyggingu stafræns korta-
grunns af landinu öllu,“ sagði
Magnús Guðmundsson, forstjóri
Landmælinga, við DV.
-DVÓ
Bein
gefur út Bleikt og
blátt, var ákveðið
að gera breyting-
ar á blaðinu og
var það sökum
þess ekki sett í
sölu í búðir.
„Það urðu viss
mistök með þetta
síðasta tölublað
svo við ákváðum
að gera breytingar
á því og nýtt tölu-
blað er væntanlegt um næstu
helgi,“ sagði Magnús.
- Telurðu það mistök að skeyta
hausa þekktra kvenna á klámmynd-
ir?
„Eins og ég segi þá ákváðum við
að gera á þessu breytingar."
Magnús Davíð Þór
Hreggviðsson. Jónsson rit-
stjóri.
Hann segir að Fróði hafi haft
frumkvæði að því aö stöðva dreif-
ingu blaðsins. Aðspurður sagði
Magnús að ritstjórinn, Davíð Þór
Jónsson, yrði ekki látinn víkja
vegna málsins.
Unnur Steinsson, ein þeirra sem
myndir birtust af, vildi ekki tjá sig
um málið þegar DV hafði samband
við hana í gær. „Þú verður að tala
um þetta við Fróða. Ég vil ekkert
um þetta mál segja,“ sagði hún.
Talið er að umtalsvert tap hafi
orðið af prentun tölublaðsins þar
sem það var tilbúið í prentsmiðj-
unni Odda og nú þarf að prenta nýtt
upplag af því. Ekki náðist í ritstjór-
ann, Davíð Þór Jónsson, né vildi
nein þeirra sem myndir birtust af
tjá sig um hvort krafist yrði skaða-
bóta á hendur útgáfunni eða rit-
stjóranum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
mætti lögregla í prentsmiðju Odda
og gerði tímaritið upptækt.
-hb
Unnur Steins-
son fyrirsæta.
Athugasemd sú er Davíð Oddsson
gerði í bréfi til biskups, vegna birting-
ar á smásögu eftir fræðslustjóra Þjóð-
kirkjunnar í Lesbók Morgunblaðsins,
er aðeins ein setning:
„Það er athyglivert að í kynningu á
„smásögu" þar sem forsætisráðherr-
anum er lýst sem landráðamanni
(manni sem selur fjallkonuna) og
landsölumanni er gefið til kynna að
sendingin sé á vegum fræðslustarfs
kirkjunnar. Davíð Oddsson."
Það var séra Öm Báður Jónsson,
fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar, sem
samdi smásöguna „íslensk íjallasala
hf.“ og Lesbók Morgunblaðsins birti
með eigin myndskreytingu. Að venju
gerði blaðið grein fyrir höfundi, eins
og tíðkast í Lesbókinni, og þar var
séra Örn Bárður réttilega titlaður
fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar. Svar
herra Karls Sigurbjömssonar biskups
til forsætisráðherra var eilítið lengra
en kvörtunarbréf Davíðs Oddssonar,
eða þrjár setningar:
„Ég lýsi vanþóknun minni á vafa-
samri myndskreytingu • með skond-
inni smásögu í Lesbók Morgunblaðs-
ins sl. helgi og get vel skilið gremi
þína hennar vegna. Myndskreytirinn
er mér ókunnur, enda á vegum blaðs-
ins, en höfundur sögunnar vel metinn
samstarfsmaður. Ég get samt ekki
borið ábyrgð á tómstundagamni hans
né annarra starfsmanna minna. Með
virðingu og vinsemd, Karl Sigur-
björnsson." -EIR
Landhelgisgæslan fékk tilkynningu um kl. hálfsex f gær um slasaðan sjó-
mann um borð í bátnum Kristján ÓF-68. Báturinn var staddur um 120 mílur
vestur af Reykjavík og var maðurinn, sem hafði innvortis meiðsl, fluttur á
Sjúkrahús Reykjavíkur til aðhlynningar. DV-mynd S
Athugasemd forsætisráðherra vegna smásögu:
Ein setning frá Davíð til biskups
lína DV hefst að kvöldi síðasta vetrardags:
Foringjar flokkanna svara
spurningum hringjenda
Bein lína DV hefst annað kvöld
og fer kosningaumijöllun blaðsins
um leið á fullt. Á beinni línu DV
gefst fólki kostur á að hringja í síma
550 5000 og spyrja foringja stjóm-
málaflokkanna spuminga um ýmis
málefni. Spurningar hringjenda og
svör stjórnmálaforingjanna munu
síðan birtast í blaðinu næsta virkan
dag.
Fyrsti gestur okkar á beinni linu
er Steingrímur J. Sigfússon, for-
maöur Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs. Hann mun sitja
fyrir svöram miðvikudaginn 21.
apríl kl. 18.30 til 20.30. Athygli skal
vakin á því að allar aörar beinar
línur verða frá kl. 19.30-21.30.
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, verður á
beinni línu fóstudaginn 23. apríl kl.
19.30-21.30.
Mánudaginn 26. apríl er komið að
húmanistum. Þá mun Kjartan Jóns-
Steingrímur J. Sverrir Her-
Sigfússon, 21. mannson, 23.
apríl. apríl.
son sitja 19.30-21.30. fyrir svörum kl.
Davíð Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, verður á beinni
línu þriðjudaginn 27. apríl frá kl.
19.30 til 21.30.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, mun sitja fyr-
ir svömm miðvikudaginn 28. apríl
frá kl. 19.30-21.30.
Halldór As-
grímsson, 28.
apríl.
Margrét Frí-
mannsdóttir,
29. apríl.
Margrét Frímannsdóttir, oddviti
Samfylkingarinnar, er síðust í röð-
inni, verður á beinni línu fimmtu-
daginn 29. apríl.
Stuttar spurningar
Geysigóð þátttaka hefur verið i
beinni línu fyrir kosningar undan-
farinna ára. Álagið á skiptiborðinu
getur orðið mikið og hætta á að
biðraðir myndist ef hringjendur eru
ekki með undirbúnar spumingar.
Því brýnum fyrir þeim sem ætla að
hringja í síma 550 5000 að vera stutt-
orðir og gagnorðir þegar þeir bera
upp spumingar sínar og forðist í
lengstu lög formála að spurningum
sínum. Ef þessi atriði em virt ganga
hlutimir fljótar fyrir sig og fleiri
komast að. -hlh
Stuttar fréttir r>v
Afkomuviðvörun
Vinnslustöðin hf. í Vestmanna-
eyjum hefur sent frá sér afkomuvið-
vörun þar sem afkoma félagsins er
langt undir áætlunum fyrir fyrstu
sex mánuði rekstrarársins. Verð
hlutabréfa í Vinnslustöðinni lækk-
aði í kjölfarið um 7,7%. Morgun-
blaðið greindi frá.
Bólusetning
Nýtt afbrigði
lungnapestar í
sauðfé hefur
greinst í Borgar-
flrði. Bólusetja
þarf þúsundir
flár við pestinni
og er mikill við-
búnaður af hálfu
embættis yfirdýralæknis. Sigurður
Sigurðarson, dýralæknir á Keldum,
segir við Morgunblaðið að bændur
þurfi sjálfir að kosta bólusetning-
una.
Opinber heimsókn
Guntis Ulmanis, forseti Lett-
lands, er í opinberri heimsókn á ís-
landi. Hann og kona hans skoða í
dag Bláa lónið við Grindavík og
orkuverið í Svartsengi og fer til
Gullfoss, Geysis og Þingvalla.
Fylgistap
JYamsóknarflokkurinn tapar
fylgi samkvæmt nýrri Gallupkönn-
un á Norðurlandi vestra fyrir Ríkis-
útvarpið. Sjálfstæðisflokkurinn fær
svipað fylgi samkvæmt könnuninni
og rúmlega 68% kjósenda á Norður-
landi vestra styðja ríkisstjómina.
Nýr forstjóri
Gunnar Svav-
arsson, fram-
kvæmdastjóri
Hampiðjunnar,
veröur hugsan-
lega næsti for-
stjóri SH og
stjómarformað-
ur dótturfyrir-
tækja SH. Sjónvarpið sagði frá.
Hugmynd Steingríms J.
Skattlagning söluhagnaðar veiði-
heimilda og skattlagning á hagnaði
þeirra aðila sem hverfa úr rekstri í
sjávarútvegi er upphaflega frá
Steingrími J. Sigfússyni. Hann
flutti frumvarp um þetta á Alþingi
veturinn 1997-1998 og leitaði upp-
lýsinga hjá ríkisskattstjóra með
bréfi 7. september síðastliðinn. Vís-
ir.is sagði frá.
Styrktarsjóöur í uppnámi
Framtíð Styrktarsjóðs Sambands
íslenskra bankamanna, SÍB, er í
uppnámi vegna mismunandi túlk-
unar á hlutverki sjóðsins. Bankarn-
ir telja að sjóðurinn sé til að styrkja
íþróttaiðkun bankastarfsmanna en
SÍB telur að hann sé sjúkrasjóður.
Dagur sagði frá.
Deilt um lóð
Annar eigandi heilsuræktar-
stöðvarinnar World Class deilir á
bæjaryfirvöld á Akureyri fyrir að
taka ómálefnalega á umsókn um að
stækka heilsuræktarstöð fyrirtæk-
isins í bænum. Skipulagsnefnd bæj-
arins hafnaði beiðninni en bæjar-
stjórn hefur óskað rökstuðnings
fyrir neituninni. Dagur sagði frá.
Blekkingar
Kári Stefáns-
son, forstjóri ís-
lenskrar erfða-
greiningar, segir
að svo virðist sem
stjórn Læknafé-
lags íslands hafi
blekkt erlenda
lækna og vísinda-
menn til andstöðu við gerð miðlægs
gagnagrunns á heilbrigðissviði með
því að veita þeim rangar og villandi
upplýsingar um hann.
Spurt um efndir
Öryrkjar og eldri borgarar boða
til aðgerða þar sem knúið verður á
um efndir loforða um bætt kjör.
Helgi Seljan, framkvæmdastjóri Ör-
yrkjabandalagsins, er vongóður við
Dag um að komið veröi til móts við
réttlátar kröfur eftir kosningar.
-SÁ