Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1999, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 5 pv___________________________Fréttir Tryggingastofnun tekur til baka fullyrðingar sínar: Þroskaheft börn fá aft- ur tannlæknaþjónustu Fundur á dögunum um skerðingu Tryggingastofnunar á réttindum þroska- heftra til tannlækninga. Frá vinstri: Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Guðmundur Ragnarsson, formaður Þroskahjálpar, Kristján Sigmundsson, framkvæmdastjóri Styrktarfélags vangefinna, Friðrik Alex- andersson, formaður Styrktarfélags vangefinna, Sigfús Þór Elíasson, pró- fessor í tannlækningum, Sigurgísli Ingimarsson, varaformaður Tannlækna- félags íslands, Gísli Vilhjálmsson, stjórnarmaður íTannlæknafélagi íslands, Helgi Seljan, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags íslands, Gunnar Þormar tannlæknir, Inga Árnadóttir tannlæknir og Sigurður Rúnar Sæmundsson, formaður Félags íslenskra barnatannlækna. „Það hefur verið staðfest af lög- fræðingi Tryggingastofnunar sjálfr- ar að yfirtannlæknir hennar hefur haft uppi rangar staðhæfingar í málinu," segir Gunnar Þormar tannlæknir, en hann hefur um ára- bil annast tannlækningar fyrir þroskahefta með öðrum störfum. Reynir Jónsson tryggingayfir- tannlæknir svarði gagnrýni á stofn- unina þannig að forvarnir meðal fatlaðra og þroskaheftra hefðu ekki breyst undanfarin 3 ár. Það væri misskilningur Gunnars Þormars að verið væri að skerða þjónustu við börn á dagheimilinu Lyngási. Gunn- ar tilkynnti foreldrum barnanna fyrr í þessum mánuði að hann væri tilneyddur að hætta þjónustu við bömin vegna nýrrar reglugerðar um þátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í tannlæknakostnaði sjúkratryggðra bama, sem hann sagði að yrði þess valdandi að for- vamir skertust verulega. Trygg- ingastofnun hafði sett „þak“ á tann- læknakostnað þessa hóps við 30 þús- und krónur. Allt umfram það ætti að sækja um til stofnunarinnar og rökstyðja þyrfti aðgerðina. Haldinn var fundur allmargra þeirra sem að málinu koma, meðal annars Þroskahjálpar og Styrktarfé- lags vangefinna, en einmitt þann sama dag kom yflrlýsing frá Ingi- björgu Þorsteinsdóttur, lögfræðingi Tryggingastofnunar, þar sem stað- fest var að fyrri yfirlýsing væri röng, einhver mistök hefðu átt sér stað og þau yrðu leiðrétt. Gunnar Þormar hefur tekið upp störf sín, en hann er sérfræðingur í viðgerðum og fyrirbyggjandi að- gerðum gagnvart fjölfotluðum böm- um. Hópurinn sem um ræðir er um 600 manns og endurgreiðslur Trygg- ingastofnunar til hans nema um einu prósenti af heildarendur- greiðslum. I Lyngási eru 40 böm og segir Kristján Sigmundsson, fram- kvæmdastjóri Styrktarfélags van- gefmna, að þau þurfi mikils eftirlits og umhirðu við, meiri en önnur böm. Aukakostnaður stafar oft af því að bömin þurfa svæfmgu við tannaðgerð. „Við álítum að þetta mál sé far- sællega í höfn, það er ekki vitað annað en að til standi að greiða þá reikninga sem hafnað hafði verið hjá Tryggingastofnun. Þetta voru reyndar ekki margir reikningar, en við teljum okkur hafa tryggingu fyr- ir því að þeir verði greiddir," sagði Kristján. -JBP Kotndu i reynslu- aksturl Hefur þú séð svona verð á 4x4 bíl? SUZUKIBÍLAR HF Skcifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is • Mest seldi bíllinn í Japan(l), annað árið í röð. • Öruggur Suzuki fjölskyldu- og fjölnotabíll. • Skemmtilequr bíll meomiklum staðalbúnaði: ABS hemlaíæsivörn rafdrifnu aflstýri, samlæsingu, o.m.fl. Ódýrasti 4x4 billinn á Islandi llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll GL 1.099.000 KR. GL 4x4 1.299.000 KR. Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll $ SUZUKI I"" ... — Opið í dag frd 12.00 til 18.30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.