Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1999, Síða 7
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
7
Fréttir
Ert þú nokkiið
að mlssa af þættlnum
Bak við tjöldin
með Vðlu Matt
9
Flmmtudaga kl. 22m
og Laugardaga kl. 10ö°
Flateyri:
Lækninum skipt út
fyrir sýslumanninn
- Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður syngur á Rolling Stones-kvöldi
„Þetta var hugmynd strákanna í
hljómsveitinni COR að vera með
Rolling Stones-kvöld í Vagninum og
auðvitað féll það að mínum smekk.
Strákarnir eru greinilega að fást við
það besta,“ segir Ólafur Helgi Kjart-
ansson, sýslumaður á ísaflrði og
Rolling Stones-aðdáandi númer eitt
hér á landi.
Á morgun, fóstudaginn 30. apríl,
verður haldið á Flateyri Rolling
Stones-kvöld. Um er að ræða veg-
lega dagskrá þar sem Ólafur Helgi
verður sögumaður og rekur hann
sögu þessarar uppáhaldshljóm-
sveitar sinnar allt frá upphafi og
til dagsins i dag. Hljómsveitin COR
mun flytja liðlega 30 Stones-lög og
er ekki talið útilokað að Ólafur
Helgi muni syngja einhverjar perl-
ur goða sinna með sveitinni.
COR hefur leikið undir með
Lýði Árnasyni lækni og félögum
hans á tónleikum á Flateyri auk
þess að sjá um hljóðfæraleik í
poppmessunni sem flutt var á
staðnum nú um páskana. En nú
hafa þeir drengir skipt lækninum
út fyrir sýslumanninn. Að þessu
sinni leikur Kristinn Níelsson, tón-
listarkennari á staðnum, með
hljómsveitinni.
„Þetta hefur vakið nokkra at-
hygli. Strákamir eru búnir að aug-
lýsa Stones-kvöldið á flutningabíl
hérna og menn hafa stoppað bíl-
sljórann og spurt hvort virkilegt sé
Ólafur Helgi Kjartansson á æfingu
með hljómsveitinni COR. Hér er
Honkitongið tekið með tilþrifum.
DV-mynd Guðm. Sig.
að Rolling Stones verði eftir allt
saman með tónleika á Flateyri. Ég
er nú bara að æfa með hljómsveit-
inni til að komast í réttan flling.
Það er svo sem ekkert útilokað að
ég syngi með þeim einhver lög en
það er klárt að ég verð ekki
dragdrottning," segir Ólafur Helgi
sýslumaður.
-GS
Kynntu þér viðhorf Agústs Einarssonar
Agust Einarsson
er í baráttusæti
Samfylkingarinnar
á Reykjanesi.
Breytum rett
finndu frelsið í fordfiesta
á aðeins milljón og tólf
www.bnmborg.is
INJCjKIA
5110
gsm simi og talfrelsi í kaupbæti
brimborg