Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1999, Qupperneq 30
34
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
Afmæli
Elínborg Einarsdóttir
Elínborg Einarsdóttir húsmóöir,
Veghúsum 31, Reykjavík, er sextug í
dag.
Starfsferill
Elinborg fæddist í Kjarnholtum í
Biskupstungum og ólst þar upp.
Hún stundaði nám við Héraðskól-
ann í Reykholti og aflaði sér síðan
menntunar við aðra skóla og á ýms-
um námskeiðum.
Elínborg var búsett í Keflavík
1961-92 en hefur síðan verið búsett í
Reykjavík.
Jafnframt húsmóðurstörfum
stundaði Elínborg m.a. verslunar-
störf og starfaði síðast hjá Pósti og
síma.
Elínborg sat i skólanefnd Tónlist-
arskólans í Keflavik í nokkur ár og
var formaður síðustu árin, var
gjaldkeri Árnesingafélagsins í
Keflavík um árabil og starfaði í mál-
freyjudeild á Suðumesjum í nokkur
ár.
Fjölskylda
Elínborg giftist 3.6. 1961 Ingólfi
Falssyni, f. 4.12. 1939, d. 8.8. 1998,
framkvæmdastjóra í Keflavík og
forseta Farmannasambandsins. El-
ínborg og Ingólfur slitu samvistum
1991.
Börn Elínborgar og Ingólfs eru
Margeir, f. 20.9.1961, framkvæmda-
stjóri og bóndi að Brú í Biskups-
tungum, kvæntur Sigríði J. Guð-
mundsdóttur, bónda og
húsfreyju, og eru börn
þeirra Elías, f. 5.6. 1990,
og Marta, f. 7.3. 1996, og
Aron Freyr, f. 15.7. 1997,
auk þess sem sonur Mar-
geirs frá fyrra sambandi
er Ólafur Rúnar, f. 2.1.
1984; Rúnar, f. 23.10 1963,
d. 5.1. 1965; Einar Falur,
f. 24.10.1966, bókmennta-
fræðingur, ljósmyndari
og myndstjóri Morgun-
blaðsins en kona hans er
Ingibjörg Jóhannsdóttir
myndlistarmaður og er
dóttir þeirra Hugrún Egla, f. 8.6.
1998; Guðrún Helga, f. 4.6. 1970,
skrifstofumaður í Noregi og eru
sýnir hennar Haukur Ingi Gunnars-
son, f. 20.8. 1989, og Diðrik Hilmar
Hjörleifsson, f. 28.3. 1994; Kristinn
Ágúst, f. 1.2.1973, viðskiptafræðing-
ur í Reykjavík.
Systkini Elínborgar eru Ingi-
björg, f. 13.8. 1931, kaupkona, búsett
í Kópavogi, gift Katli Kristjánssyni;
Gísli, f. 2.9. 1932, bóndi og fyrrv.
oddviti í Kjarnholtum, kvæntur
Ingibjörgu Jónsdóttur; Ingimar, f.
5.8. 1935, starfsmaður nautastöðvar-
innar á Hvanneyri, kvæntur Önnu
Kristinsdóttur; Guðrún, f. 16.2. 1937,
skrifstofumaður í Reykjavík, gift
Þorsteini Hjartarsyni; Þóra, f. 29.8.
1945, starfsmaður ORA, búsett í
Kópavogi, gift Jóni Gísla Jónssyni;
Magnús, f. 24.1. 1949, hrossaræktar-
bóndi i Kjamholtum en kona hans
er Guðný Höskuldsdóttir.
Foreldrar Elínborgar
voru Einar Gíslason, f.
1.9. 1904, d. 11.12. 1996,
bóndi í Kjarnholtum, og
k.h., Guðrún Ingimars-
dóttir, f. 4.8. 1905, d.
17.3.1981, húsfreyja.
Ætt
Systir Einars var
Dóróthea, móðir Rögn-
valds Þorleifssonar lækn-
is. Einar var sonur Gísla,
b. í Kjarnholtum, Guð-
mundssonar, b. í Kjarnholtum, Dið-
rikssonar, hreppstjóra. í Laugarási,
bróður Þorláks, langafa Önnu,
ömmu Björns Bjarnasonar mennta-
málaráðherra og Markúsar Amar
Antonssonar útvarpsstjóra. Annar
bróðir Diðriks var Þorsteinn,
langafi Sigurðar, föður Eggerts
Haukdal. Diðrik var sonur Stefáns,
b. í Neðradal, Þorsteinssonar, b. í
Dalbæ, Stefánssonar, pr. í Steins-
holti, Þorsteinssonar. Móðir Þor-
steins var Ingibjörg Jónsdóttir, pr. á
Ólafsvöllum, Erlingssonar, bróður
Gísla, afa Eiríks, ættfoður Reykja-
ættarinnar, Vigfússonar. Móðir Dið-
riks var Vigdís Diðriksdóttir, b. á
Önundarstöðum, Bjamasonar og
Guðrúnar Högnadóttur prestaföður,
pr. á Breiðabólstað I Fljótshlíð, Sig-
urðssonar, langafa Þuríðar,
langömmu Vigdísar Finnbogadótt-
ur. Móðir Stefáns var Guðríður
Guðmundsdóttir, ættföður Kóps-
vatnsættar, Þorsteinssonar, langafa
Magnúsar Andréssonar, ættföður
Langholtsættarinnar, langafa Ás-
mundar Guðmundssonar biskups og
Sigríðar, móður Ólafs Skúlasonar
biskups. Móðir Gísla var Vilborg,
systir Gísla, langafa Guðna Ágústs-
sonar alþm. Systir Vilborgar var
Guðrún, amma Vilhjálms, skálds
frá Skáholti. Vilborg var dóttir Guð-
mundar, b. á Löngumýri, Arn-
björnssonar, bróður Ögmundar, fóð-
ur Salvarar, langömmu Tómasar
Guðmundssonar skálds. Móðir Vil-
borgar var Ingibjörg Gísladóttir, b. í
Útverkum á Skeiðum, Jónssonar og
Vilborgar Jónsdóttur, systur Guð-
mundar, langafa Margrétar, móður
Ólafs Thors forsætisráðherra. Móð-
ir Einars var Guðrún Sveinsdóttir,
systir Elínar, móður Guðmundar
Jóhannessonar læknis.
Guðrún var dóttir Ingimars, b. á
Efri-Reykjum í Biskupstungum,
Guðmundssonar, b. á Bergsstöðum^
Ingimundarsonar en hann fékk kon-
ungsverðlaun fyrir framfarir í jarð-
rækt. Móðir Guðmundar var Þórey
Guðmundsdóttir, b. í Syðra-Lang-
holti, Björnssonar og Guðrúnar
Ámundadóttur, b. og smiðs í Syðra-
Langholti, Jónssonar. Móðir Guð-
rúnar var Ingibjörg Guðmundsdótt-
ir, systir Gísla í Kjarnholtum.
Elínborg verður ekki heima á af-
mælisdaginn.
Elínborg
Einarsdóttir.
Baldur Sveinsson
Baldur Sveinsson véla-
verkfræðingur, Grana-
skjóli 34, Reykjavík, er
áttræður í dag.
Starfsferill
Baldur fæddist í Ytra-
Brekkukoti í Amames-
hreppi í Eyjafirði. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA
1945, fyrrihlutaprófi í
verkfræði við HÍ 1948 og
prófi í vélaverkfræði frá
DTH í Kaupmannahöfn
1951 með sérstaka áherslu á kæli-
tækni.
Baldur var verkfræðingur hjá
Vélaverkstæði Björgvins Frederik-
sen hf. í Reykjavík 1951-57 og verk-
Baldur
fræðingur hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna
1957-89.
Baldur sat í stjóm Hins
íslenska náttúrufræðifé-
lags 1977-83, í stjórn
Ferðafélags íslands
1979-87, sat í ferðanefnd
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni í
sjö ár og var formaður í
tæp þrjú ár.
Sveinsson.
Fjölskylda
Baldur kvæntist 29.8. 1959 Arn-
dísi Margréti Þórðardóttur, f. 1.6.
1923, d. 12.9. 1996, skrifstofustjóra.
Hún var dóttir Þórðar Gunnlaugs-
sonar, f. 30.10. 1889, d. 21.2. 1943,
kaupmanns í Reykjavík, og k.h.,
Ólafíu Ingibjargar Þorláksdóttur, f.
13.12. 1895, d. 18.3. 1975, húsmóður.
Dóttir Baldurs og Amdísar Mar-
grétar er Þórunn Björg, f. 26.2. 1962,
starfsstúlka í Reykjavík, gift Erni
Ingólfssyni. Börn Þórannar Bjargar
eru Ólafia Ingibjörg Sverrisdóttir, f.
15.4. 1986; Baldur Örn Magnússon, f.
12.11. 1993; Sigurður Birgir Amars-
son, f. 18.8. 1998.
Bræður Baldurs em Hallur Jó-
hann Marinó Sveinsson, f. 19.7.1921,
iðnverkamaður, búsettur á Akur-
eyri, kvæntur Elsu Vestmann; Jó-
hann Benedikt Sveinsson, f. 8.1.
1931, rafvirki, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Önnu Ólafsdóttur.
Foreldrar Baldurs voru Sveinn
Geirmar Benediktsson, f. 6.7. 1891,
d. 24.11. 1957, bóndi á Miðlandi 1
Öxnadalshreppi, á Hallfríðarstöðum
og á Neðri-Rauðalæk, síðar verka-
maður i Glerárþorpi, og Sigurbjörg
Sigfúsdóttir, f. 24.8. 1891, d. 15.4.
1967, húsfreyja.
Ætt
Sveinn var sonur Jóhanns Bene-
dikts Jónssonar, b. á Skjaldarstöð-
um í Öxnadalshreppi og síðar í
Garðshorni, og k.h., Jóhanna Halls-
dóttir húsfreyja.
Sigurbjörg var dóttir Sigfúsar
Bjöms Halldórssonar, b. í Dagverð-
artungu, og k.h., Maríu Sólveigar
Jóhannsdóttur húsfreyju.
Sveinn verður að heiman á af-
mælisdaginn og afþakkar gjafir.
Guðmundur Kjartansson
Guðmundur Kjartansson, löggilt-
ur endurskoðandi, Heiðarholti 13,
Keflavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Keflavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá Fjölbrautaskóla Suður-
nesja 1978, viðskiptafræðiprófi frá
HÍ 1985 og er löggiltur endurskoð-
andi frá 1989.
Guðmundur hóf störf hjá Endur-
skoðun Sigurðar Stefánssonar hf.
1984, var þar löggiltur endurskoð-
andi og hefur verið meðeigandi end-
urskoðendaskrifstofunnar Deloitte
& Touche hf frá 1990.
Guðmundur sat í stjóm Hjálpar-
sveitar skáta í Njarðvík 1981-88 og
Björgunarsveitarinnar Suðurnes
1994-97.
Fjölskylda
Sambýliskona Guðmundar frá
1987 var Heiðrún Sigurðardóttir, f.
28.1. 1960, lögreglumaður. Þau slitu
samvistum 1993. Heiðrún er dóttir
Sigurðar Ámasonar, f. 8.3. 1927,
fiskmatsmanns í Keflavík, og k.h.,
Guðbjargar Svövu Lárusdóttur, f.
8.10. 1937, verkakonu.
Dóttir Guðmundar og Heiðrúnar
er Þórdís Halla, f. 27.3. 1990.
Stjúpdóttir Guðmundar og dóttir
Heiðrúnar er Sonja Sigurjónsdóttir,
f. 27.2. 1978, húsmóðir í Keflavík og
á hún tvö böm.
Albróðir Guðmundar er Þórður
Magni Kjartansson, f. 23.2. 1958,
rekstrarfræðingur hjá íslenskum
aðalverktökum, búsettur í Keflavík.
Hálfsystir Guðmund-
ar, samfeðra, er Elsa
Björk Kjartansdóttir, f.
19.8. 1943, þjónustufull-
trúi hjá Reykjanesbæ,
búsett í Keflavík.
Foreldrar Guðmundar:
Kjartan Guðmundsson, f.
24.4. 1921, d. 12.8. 1972,
bifreiðarstjóri í Keflavík,
og k.h., Esther Eygló
Þórðardóttir, f. 12.6.1936,
bankafulltrúi í Keflavík.
Ætt
Kjartan var sonur Guð-
mundar, sjómanns og b. á Núpi í
Haukadal í Dalasýslu Guðmunds-
sonar, og Sólveigar Ólafsdóttur.
Esther Eygló er dóttir Þórðar, bif-
reiðarstjóra í Reykjavík og Grinda-
vík, sonar Helga Jóns Jósefssonar
og Guðbjargar Guðmundsdóttur.
Móðir Estherar var Margrét Dag-
bjartsdóttir, b. á Velli og í Ásgarði í
Grindavík, Einarssonar,
útvegsb. og hreppstjóra í
Garðhúsum, Jónssonar.
Móðir Dagbjarts var Guð-
rún Sigurðardóttir. Móðir
Margrétar var Valgerður
Guðmundsdóttir, b. og
sjómanns á Klöpp í
Grindavík, Jónssonar, b.
á Þorkötlustöðum, Jóns-
sonar og Valgerðar Guð-
mundsdóttur. Móðir Val-
gerðar var Margrét Áma-
dóttir, b. á Klöpp og í
Buðlungu, Einarssonar, b.
á Þorkötlustöðum, Áma-
sonar, b. á Þorkötlustöðum, Einars-
sonar. Móðir Einars á Þorkötlustöð-
um var Kristín Jónsdóttir, ættfóður
Járngerðisstaðaættar, Jónssonar.
Guðmundur tekur á móti gestum
í safnaðarheimilinu Innri-Njarðvík,
fóstudaginn 30.4. milli kl. 20.00 og
23.00.
Guðmundur
Kjartansson.
Hl hamingju
með afmælið
29. apríl
80 ára
Kristján
Hafliðason,
fymv. póst-
rekstrarstjóri,
Æsufelli 2,
Reykjavík.
Kathinka Klausen,
Stóragerði 30, Reykjavík.
Margrét Pálsdóttir,
Akm-bakka, Grenivík.
70 ára
Anna Ingadóttir,
Grænuhlíð 14, Reykjavík.
Kristján A. Guðmundsson,
Vesturbergi 46, Reykjavík.
60 ára
Þorvaldur
Þórðarson
múrarameistari,
Hjallabrekku 37,
Kópavogi.
Sigmar Hjelm,
Miðvangi 2, Hafnarfirði.
Sigurður Hrafn Þórólfsson,
Arnartanga 13, Mosfellsbæ.
50 ára
Leifur Þorsteinsson,
Rauðalæk 38, Reykjavík.
Guðmundur I. Jónsson,
Tjarnarbóli 2, Seltjamamesi.
40 ára
*
Ingveldur Þ.
Einarsdóttir
Bollagörðum 59,
Seltjarnarnesi.
Sophie Marie
Schoonjans,
Ásvallagötu 7, Reykjavík.
Lilja Guðný Friðvinsdóttir,
Tunguvegi 70, Reykjavík.
Einar Albert Sigurðsson,
Hraunbæ 60, Reykjavik.
Kolbrún ívarsdóttir,
Álfatúni 8, Kópavogi.
/W//4
Smáauglýsinga
W-
deild DV
er opin:
• virka daga kl, 9-22
• laugardaga kl, 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Skilafrestur smáauglýsinga
er fyrir kl, 22 kvölaið fyrir
birtingu.
Ath, Smáauglýsing í
Helgarblað DV verður þó að
berast okkur fyrir kl. 17 á
föstudag.
aWmillí%
Smáauglýsingar
PVI
550 5000