Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1999, Side 20
ööömaí/1.. if>i:j{>AuiJií/ii/.
MÁNUDAGUR 10. MAÍ 1999
20
Fréttir
Bæta við sig manni a Reykjanesi
„Við ræðum það ekki í kvöld,“
sagði Árni M. Mathiesen, oddviti
sjálfstæðismanna í Reykjaneskjör-
dæmi, þegar hann var spurður
hvort hann gerði kröfu til þess að fá
ráðherrastól á næsta kjörtímabili.
Hann var að vonum ánægður þegar
tölur gáfu til kynna að sjáifstæðis-
menn hlytu 7 þingmenn í kjördæm-
inu en hann hefur fyrir 5 menn.
„Það er erfítt að segja til um uppbót-
arþingmennina svona snemma næt-
ur en prósentutalan er mjög góð.
Við höfum verið að stefna að því að
Þorgerður Gunnarsdóttir Ijómar af
hamingju á kosningahátíðinni.
fá sex þingmenn þannig að við
erum hörkuánægð með þetta,“ sagði
Ámi.
Hverju ber aó þakka þennan ár-
angur?
„í fyrsta lagi góðri forystu flokks-
ins í landsmálum og í öðm lagi held
ég að við höfum fengið mjög góðan
lista út úr prófkjörinu," segir hann.
Auk þess hefur baráttan gengið
mjög vel hjá okkur og hefur verið
vel rekin og svo hefur flokkurinn
verið að sækja í sig veðrið í sveitar-
félögunum hér í kjördæminu og það
er mjög góður grannur að byggja á,“
sagði Ámi.
Þegar fyrstu tölur vora birtar
hafði flokkurinn 5 menn í kjördæm-
inu, næst 7 og það sem eftir lifði
nætur hafði hann 6 þingmenn.
Sjötti maður á lista flokksins er
þingmaðurinn Ámi R. Ámason.
Þorgerður Gunnarsdóttir, sem er
í fjórða sæti Sjálfstæðisflokksins,
sagði eðlilegt að kjördæmið gerði
kröfu um ráðherrasæti. „Það væri
óeðlilegt ef við myndum ekki gera
kröfu um ráðherrasæti í kjördæm-
inu. Það er hins vegar erfitt að segja
til um það á svona stundu en ég legg
persónulega gríðarlega áherslu á
það að við fáum ráðherrasæti,“
sagði Þorgerður.
-hb
Stærðir 75-90
Skálastærðir
B-C-D-E-F-G
Laugavegi 40
sími 551 3577
Árni M. Mathiesen fagnar með eiginkonu og stuðningsmanni á kosningahátíð Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í
gærkvöld. DV-mynd Teitur
Halldór raðar í ráðherrastóla
- segir Siv Friðleifsdóttir
„Við höfum ekki síðan Reykjanes-
kjördæmi var myndað, eða í 40 ár,
náð því að halda tveimur þingmönn-
um inni tvö kjörtímabii í röð þannig
au pau ef Sága tll nScSta uSSjar ög ég
ætla að vona að nóttin sýni það,“
sagði Siv Friðleifsdóttir, oddviti
Framsóknarflokksins í Reykjanes-
kjördæmi, í gærkvöld. Framsóknar-
flokknum tókst að halda báðum
þingmönnum sínum í kjördæminu.
„Þetta er góð kosning. Við unnum
héma stórsigur síðast en þetta er að-
eins fyrir neðan það. Miðað við
stöðu flokksins í heild getum við
verið mjög ánægð héma á Reykja-
nesi. Ég vil þakka framsóknarfólki
og öllum stuðningsmönnmn og þeim
sem hafa unnið baki brotnu við að
gera þetta að veruleika. Ég hef fund-
ið mjög mikinn velvilja, sérstaklega
hjá ungu fólki og konum,“ sagði Siv.
Hún telur að sama stjómarmynstur
verði áfram að loknum kosningum
og að niðurstaðan sé sú að fólk vildi
áframhaldandi stjórnarmynstur. En
hvaö með ráöherrasœti á Reykjanesi?
„Ég tel að það sé mjög mikilvægt
fyrir fólkið að kjördæmið; sem er
hið næststærsta, taki á sig meiri
ábyrgð. En það er Halldórs Ásgríms-
sonar að raða niður ráðherrastólum
og það verður að koma í ljós hvern-
ig hann gerir það,“ sagði Siv.
„Við sem komum ný inn síðast höf-
um verið mjög dugleg. Við höfum til-
einkað okkur ákveðin málefni, sem
við höfum náð að skila áfram, og góða
kosningabaráttu," sagði Hjálmar
Árnason, í öðra sæti framsóknar-
manna, þegar hann var spurður
hverju það væri að þakka að flokkur-
inn héldi báðum mönnum sínum inni.
Hann sagði líklegast að núverandi
stjómarflokkar héldu áfram að starfa
saman. „Við sögðum fyrir kosning-
amar að ef Framsóknarflokkurinn
gyldi afhroð væri eðlilegt að hann
drægi sig til hlés. Ég hygg hins vegar
að þá sé komin upp mjög erfið staða í
íslenskum stjómmálum sem kynni að
hafa ill áhrif á efnahagsmálin," sagði
Hjálmar sem var, líkt og Kristín Hall-
dórsdóttir, til skiptis inni og úti sem
þingmaður allt kvöldið. -hb
KRONUR
KRÓNUR
KRÓNUR
KHONUR
NÓATÚN 17
TOPPMERICI A