Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1999, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 1999
Fréttir
i>v
Nýtt starf sviðsstjóra félagssviðs hjá Akureyrarbæ:
Núverandi sviðs-
stjórum ekki treyst
DV, Akureyri:
Ráðning sviðsstjóra félagssviðs
hjá Akureyrarbæ hefur verið nokk-
uð til umræðu að undanförnu. Um
nýtt starf er að ræða en sameina á
fræðslu- og fristundasvið og félags-
og heilsugæslusvið undir nafn fé-
lagssviðs.
Átta umsækjendur eru um starf
sviðsstjóra félagssviðs og hafa um-
sóknirnar verið að velkjast um
nokkra stund í kerfinu án þess að
ákvörðun hafi verið tekin um hver
hlýtur starfið. Málið kom m.a. til
umræðu á fundi bæjarstjórnar og
þar lýsti einn bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks yfir undr-
un sinni á því að sviðsstjórar
þeirra sviða sem sameina á
hefðu ekki verið meðal um-
sækjenda. Kristján Þór Júlí-
usson svaraði því þannig að
hann hefði átt samtöl við
sviðsstjórana tvo, Ingólf Ár-
mannsson og Valgerði Magn-
úsdóttur, og það væri engin
launung á því að hann hefði
tjáð þeim að þau teldust ekki
líkleg til að hljóta nýja starflð.
„Já, ég tjáði þeim að ég sæi þau
ekki fyrir mér í þessu nýja starfi.
Ástæðan fyrir því að ég
svaraði þessu alveg skýrt á
bæjarstjómarfundinum
var sú að það var verið að
gefa undir fótinn einhverj-
um söguburði úti í bæ og
óþarfi að tala einhverja
tæpitungu um þetta mál.
Þetta starf er miklu um-
fangsmeira en þau störf
sviðsstjóra sem verið er að
sameina og hið nýja félags-
svið mun velta 2,5-3 millj-
örðum króna og er miklu meira
stjórnunar- og flármálastarf en hin
störfin hafa verið. Það verður því að
vanda mjög vel til valsins á þeim
sem kemur til með að stýra þessu,“
segir Kristján.
Umsækjendurnir um starfið eru
Sturla Kristjánsson, Akureyri,
Benedikt Sigurðarson, Akureyri,
Karl Guðmundsson, Akureyri,
Björn Baldursson, Höfnum, Elín M.
Halldórsdóttir, Akureyri, Eyþór
Þorbergsson, Akureyri, Valgerður
Bjamadóttir, Akureyri, og Eiríkur
Björn Björgvinsson, Akureyri. Bæj-
arráð mun koma saman til fundar á
mánudagsmorgun og væntanlega
munu línur skýrast eitthvað eftir
þann fund. -gk
Kristján Þór
Júlíusson.
DV-mynd gk
Kvennaflug Flugleiða:
Blóm og
kampavín
frá Atlanta
Starfsmenn Atlanta tóku vel á
móti kvenáhöfn Flugleiða þegar
hún lenti á Keflavíkurflugvelli síð-
degis á laugardag. Um tímamótaflug
var að ræða því að áhöfn þotu hefur
ekki áður hér á landi verið ein-
göngu skipuð konum. Flugstjóri í
ferðinni var Geirþrúður Aifreðs-
dóttir og var flogið til Kaupmanna-
hafnar og til baka. Skömmu eftir
lendingu mættu starfsmenn Atlanta
prúðbúnir út í vél og færðu áhöfn-
inni blómvendi og kampavín.
„Þetta flug verður skráð á spjöld
sögunnar enda afar merkur áfangi í
flugsögunni. Þess vegna tókum við
þá ákvörðun strax á fostudag að
fagna þessu með einhverjum hætti.
Það varð úr að við tókum á móti
vélinni og færðum öllum í áhöfn-
inni gjafir í tilefni dagsins. Þær
voru, að ég held, mjög ánægðar með
þetta framtak okkar,“ sagði Hafþór
Hafsteinsson, flugrekstrarstjóri Atl-
anta, í samtali við DV.
Samkvæmt heimildum DV var
ekki um formlega móttöku af hálfu
Flugleiða að ræða. -aþ
Mikill viðbúnaður var við syðri bakkann í Hafnarfjarðarhöfn um tíuleytið á föstudagskvöld. Hringt hafði verið til lög-
reglu og sagt frá því að bíll hefði fallið í sjóinn. Lögreglan kallaði þegar í stað út kafara hjá Slökkviliði Reykjavíkur
og sjúkrabifreiðir. Björgunarsveitin Fiskaklettur var einnig kölluð út. Kafarar leituðu lengi en án árangurs og loka-
niðurstaðan var sú að bfll hefði ekki farið fram af bryggjunni. Á þessum slóðum er grjótgarður sem getur villt fólki
sýn og svo hefur líklega verið um „sjónarvottinn" sem hringdi til lögreglu. DV-mynd HH
Hættir án þess að hætta
Uniifíi/J
þegar formaðurinn vill losa framkvæmdastjór-
ann og ráða nýjan, er það að sjálfsögðu samþykkt
orðalaust, eins og annað sem Kristján segir.
Að þessu loknu var Kristjáni formanni falið að
ganga frá starfslokasamningi við Kristján fram-
kvæmdastjóra og af því að Kristján framkvæmda-
stjóri hefur unnið svo lengi hjá Kristjáni for-
manni, má fastlega búast við því að Kristján for-
maður geri vel við Kristján framkvæmdastjóra
þegar hann lætur nú af störfum.
Þeir hafa unnið náið saman og formaðurinn
veit manna best hversu framkvæmdastjórinn hef-
ur lagt mikið á sig og þess vegna mun formaður-
inn hafa ríka ástæðu til að gera rausnarlegan
starfslokasamning við framkvæmdastjórann.
Ef einhver heldur að Kristján sé að hætta hjá
LÍÚ er það mikill misskilningur og i raun og veru
munu völd hans aukast til muna þegar hann þarf
ekki að láta framkvæmdastjórann tefja fyrir for-
manninum og formaðurinn þarf þá heldur ekki
að leita uppi framkvæmdastjórann til að segja
honum hvað formaðurinn hafi ákveðið. Kristján
er sem sagt laus við það að þurfa að spyrja sjálf-
an sig um það hvaða afstöðu eigi að taka, þegar
hann snýr sér alfarið að formennskunni, sem hef-
ur hingað til verið aukastarf hjá framkvæmda-
stjóranum. Nú ræður Kristján einn.
Þetta er skynsamleg ráðstöfun hjá Kristjáni í
LÍÚ, að hætta sem framkvæmdastjóri án þess að
hætta sem formaður, því þetta hefur í raun og
veru verið bráðabirgðaástand síðustu þrjátíu
árin. Dagfari
Það barst út sá kvitt-
ur um bæinn um dag-
inn að Kristján Ragn-
arsson hjá LÍÚ væri að
hætta. Það var rétt svo
langt sem það náði.
Kristján hefur nefni-
lega bæði verið formað-
ur og framkvæmda-
stjóri hjá útvegsmönn-
um, þannig að það var
tiltölulega auðvelt fyrir
formanninn að segja
framkvæmdastj óran-
um til og sömuleiðis
voru hæg heimatökin
hjá framkvæmdastjór-
anum að vita hvað for-
maðurinn vildi að gert
yrði.
Nú hefur Kristján
formaður komið að
máli við Kristján fram-
kvæmdastjóra og sagt
honum að hann vilji
hætta sem framkvæmdastjóri og vilji bara vera
formaður. Formaðurinn hlustaði á þessa ósk
framkvæmdastjórans og af því formaðurinn er
framkvæmdastjóri og framkvæmdastjórinn er
formaður, gat Kristján formaður sætt sig viö það
að Kristján framkvæmdastjóri léti af störfum og
svo var haldinn fundur nú í vikunni og Kristján
formaður lagði til að Kristján framkvæmdastjóri
fengi starfslokasamning.
Nú eru að vísu einhverjir aðrir i stjórn LÍÚ, án
þess að vitað sé hverjir það séu, enda lætur bæði
þjóðin og útvegsmenn sér það i léttu rúmi liggja,
því Kristján formaður hefur haft tögl og haldir og
stýrt þessum samtökum í heilan mannsaldur og
Hetjudáðir
Hinn kunni hestamaður Hjalti
Pálsson hefur barist við sykursýki
megnið af ævinni eða hálfan átt-
unda áratug. Hjalti geymir gæðinga
sína í Borgarfirði á sumrum og á
leið þangað ríður
hann jafnan um
Þingvöll og Uxa-
hryggi. Vegna kuld-
ans þetta vorið bár-
ust Hjalta þau tíð-
indi frá Þingvöll-
um að enga beit
væri þar að hafa
og ekki hægt að
æja. Þá voru góð
ráð dýr. Hefur Hjalti því
ákveðið að blása á aldurinn og syk-
ursýkina og fara beinustu leið upp
í BorgarQörð yflr tvo háa og mjög
torfæra fjallvegi, Svínaskarð í Esju
og Síldarmannagötur upp af Hval-
firði. Hefur Sandkorn eftir reynd-
um hestamönnum að með þessu
skjóti Hjalti yngri hestamönnmn
ref fyrir rass en þeir gera lítið ann-
að en góna upp eftir Sfldarmanna-
götum úr Hvalfírði og fer um þá
hroflur...
Rauða spjaldið
í tímaritinu Nordic Travel Jo-
urnal, sem geflð er
út mánaðarlega,
var nýlega viðtal
við Helga Jó-
hannsson, for-
stjóra Samvinnu-
ferða-Landsýnar.
Þar segir hann
norrænum les-
endum frá þeirri
sérkennilegu
stöðu að Samvinnuferðir séu hvort
tveggja í senn, stærsti viðskiptavin-
ur og stærsti keppinautur Flug-
leiða. Er haft eftir Helga að mark-
mið hans sé að halda Flugleiðum í
skeijum svo félagið einoki ekki ís-
lenska ferðaþjónustu. Og hann fjall-
ar um afleiðingar þess að tala opin-
skátt um samkeppnisstöðu Flug-
leiða. „í hvert skipti sem ég tala við
blaðamenn um tflraunir Flugleiða
til að einoka islenska ferðaþjónustu
fæ ég að líta rauða spjaldið í þrjá til
sex mánuð...“
Vindhaninn
Útvarpsráð, pólitiskur varðhund-
ur Ríkisútvarpsins, fundaði 1. júní
síðastliðinn. Þetta var síðasti fund-
ur þessa útvarpsráðs, undir forsæti
Gunnlaugs Sævars
Gunnlaugssonar og
ýmis mál til umfjöll-
unar. Þótti sérstök
ástæða til að geta
frammistöðu
þeirra sem komu
fram fyrir hönd
Sjónvarpsins i
Eurovision-
keppninni, með
Selmu Bjömsdóttur í broddi fylk-
ingar, og framganga þeirra og ár-
angur þakkaður. Hins vegar hjó
Sandkom eftir því að útvarpsráði
þykir dagskrá Sjónvarpsins góð það
sem af er sumri og þá sérstaklega
þátturinn Vindhaninn. Það er
kannski dæmigert þar sem þar á
bæ virðast menn láta gagnrýni hins
almenna notanda sem vind um
eyru þjóta...
Tapsárir
Á Eskifirði eru menn afar
hreyknir af nýja vall-.
arhúsinu sínu enda
aöstaða vegna kapp-
leikja önnur og
betri en verið hef-
ur. Heimaliðið,
KVA, lék við KA
um helgina og
unnu heimamenn
einu mai-ki gegn engu. Ósigurinn
virðist hafa farið flla í KA-menn því
þegar komið var inn í búningskefla
þeirra eftir leik blasti við brotin sal-
emishurð. Ummerkin, grasgræna
og takkafór, þóttu taka af allan vafa
nm hvaft aprct hpfrSi
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is