Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Blaðsíða 17
Bandaríkjanna
en bandarísku
stúlkurnar
komust
áfram.
-Ji
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999 25
Sport
Það vakti athlygli í sumar þegai’ KR-liðið kom
undan vetri að Guðmundur Benediktsson var
kominn í nýtt hlutverk. Guðmundur hefur spilað
sem fremsti maður allt frá því að hann kom í
vesturbæinn frá Þór Akureyri, 1995, en það sem
af er tímabilinu hefur hann legið aftar á vellin-
um, verið meira i boltanum og er með flestar
stoðsendingar í deildinni eða fimm eftir 7 leiki.
Guðmundur er einnig sá sem á þátt í flestum
mörkum í sumar en hann hefur skoraö 2 mörk
sjálfur og átt því þátt í sjö einu fleiri en þeir
Steingrímur Jóhannesson hjá ÍBV og Kristján
Brooks hjá Keflavík.
Hann getur eigilega allt
En sá Atli Eðvaldsson þjálfari þennan hæfi-
leika Guðmundar fyrir að leggja upp mörkin.
„Hann Gummi getur eiginlega allt í fótboltanum
en ég held að hann sé þannig leikmaður að með
því að spila frjálsa stöðu njóti hann sin best, bæði
með að leggja upp mörk og líka að skora þau
sjálfur. Þetta sýnir að hann er í réttri stöðu í lið-
inu,“ sagði Atli um Gumma og enn fremur:
„Hann hefur nú ekkert misst úr í eitt og hálft
ár en árin þar á undan var hann meira og minna
meiddur. Þar af leiðandi er þetta afrek fyrir hann
persónulega að vera þetta ofarlega miðað við öll
þau meiðsli sem hann er búinn að lenda í,“ sagði
Atli aðspurður um hinn nýja Gumma Ben.
Vildi vera búinn að skora meira
5 stoðsendingar í 7 fyrstu leikjunum er afar
glæsilegur árangur hjá Guðmundi en hvemig sér
hann sitt nýja hlutverk. „Þetta er ánægjulegt. Ég
vildi þó vera búinn að skora fleiri mörk sjálfur
en aðalmálið er að liðið vinni og ef ég get átt
sendingar sem skapa mörk þá er það mjög fínt
mál. Ég hef dottið aftar, verið meira í boltanum
og haft kannski meiri yfirsýn yfir völlinn. Það er
aldrei að vita nema Atli hafi talið mig hafa auga
fyrir þessu og því fært mig aftar á völlinn en ég
vona að hann sjái að ég geti skorað mörk þannig
að ég verði frammi líka“.
Met Haraldar í hættu
Haraldur Ingólfsson á metið yfir flestar
stoðsendingar síðan fyrst var farið að taka þær
saman 1992. Haraldur átti ellefu slíkar, tímabilin
1995 og 1996 og gæti Guðmundur því verið á góðri
leið með að bæta það met en hann hefur aldrei átt
fleiri en 5 stoðsendingar á tímabili eins og sjá má
hér á töflu til hliðar og ætti því alla vegna að
setja persónulegt met í sumar. Hvort hann tekur
met Haraldar verður framtíðin leiða í ljós. -ÓÓJ
Hinn nýi Gummi Ben
- er meö flestar stoðsendingar í úrvalsdeildinni, fimm í fyrstu sjö leikjum KR
Intertoto-bikarinn:
Lokeren ánægt
með mótherjann
- fyrri leikurinn á laugardaginn kemur
Forráðamenn belgíska liðsins
Lokeren eru ánægðir með
Skagamenn sem mótherja í 2.
umferð Intertoto-bikarsins. Lokeren
sat yflr í 1. umferð keppninnar en
Skagamenn komust áfram eftir að
hafa lagt að velli albanska liðið
Teuta Durres. Fyrri leikur Lokeren
og Skagamanna verður ytra á
laugardaginn kemur en síðari
leikurinn viku síðar.
Einn af stjómarmönnum Lokeren
sagði það mun betri kost að fara til
Islands í góðan fisk en að fara til
Albaníu.
Leikmenn Lokeren hófu æflngar
að loknu sumarfríi í síðustu viku og
fóru þá strax í æfingabúðir í
Þýskalandi. Liðið verður þvi ekki í
sínu besta leikformi þegar að
leikjunum við Skagamenn kemur.
Ef Skagamenn komast áfram í
þriðju umferð mæta þeir annað
hvort MSK Zilina frá Slóvakíu eða
franska liðinu Metz.
-JKS
Króatarnir úr leik á EM í körfu
Þjóðverjar unnu Króata með 17 stiga mun á Evrópumótinu í körfu í
gær og komust því í 8 liða úrslitin á kostnað Króata. Rússar urðu fyrstir
til að vinna Júgóslava í gær, 76-68, og tryggðu sér um leið sæti meðal átta
bestu á kostnað nágranna sinna í Slóveníu sem töpuðu fyrir
heimamönnum Frökkum. Átta liða úrslitin fara fram á flmmtudaginn og
þá mætast Frakkland - Tyrkland, Júgóslavía - Þýskaland, Rússland -
Ítalía og Spánn - Litháen. -ÓÓJ
Hið árlega hlaup, Skúlaskeið, var þreytt í Viðey um helgina og
voru þátttakendur á fjórða hundrað. Lagðir voru að velli um 4
km og voru hlauparar á öllum aldri, sá yngsti 2 ára og sá elsti 72
ára. Þátttakendum fer fjölgandi ár frá ári og lístu þeir ánægju
sinni með hlaupi um helgina en það þar Reykjavíkur-maraþon
sem hafði veg og vanda að hlaupinu. Fremst á myndinni sést
Ragnar Sigurjónsson, ráðsmaður í eynni, ræsa þátttakendu.
-JKS/DV-mynd SOS
Guðmundur Benediktsson hjá
KR hefur átt 5 stoðsendingar í
fyrstu sjö leikjunum.
DV-mynd Anton Brink
Flestar stoðsendingar 1999
Guðmundur Benediktsson, KR . . 5
Seott Ramsey, Grindavík .........3
Andri Sigþórsson, KR.............2
Baldur Bragason, ÍBV.............2
Einar Þór Daníelsson, KR........2
Kjartan Einarsson, Breiöabliki . . 2
Marcel Oerlemans, Fram ..........2
Páll Guðmundsson, Leiftri .......2
Ólafur Ingason, Valur............2
Ragnar Steinarsson, Keflavík ... 2
Róbert Sigurösson, Keflavik .... 2
Sigþór Júlíusson, KR ............2
Steinar Guðgeirsson, Fram.......2
Þórarinn Kristjánsson, Keflavík . 2
Sport
Drauma-
liðDV
Sturlaugur J. Ásbjömsson úr
Reykjavlk er áfram efstur í
draumaliðsleiknum eftir 7. um-
ferð úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu, og leik Leifturs og KR á
sunnudag. Lið hans, Kría, fékk
reyndar 3 mínusstig en heldur
samt forystunni.
Hér á eftir koma efstu liðin í
heildarkeppninni. Bókstafurinn
fyrir aftan nafn liðsins táknar
landshlutann þar sem það er
skráð til leiks.
00527 Kría R...................75
00799 FC Spartakus G...........69
03472 Theopopolapas United N . . 69
02086 Lionsklúbburinn Diddi N . 67
03696 Petra PG N...............65
03545 Litla Ekkó G.............64
00876 Haukar G.................63
02056 Krullupinnamir G.........63
02235 Fowler N.................62
00664 FC Njarðvík United G .... 61
03205 SVE R....................61
03382 Hausverkur Jennu R......61
02039 Strikers R ............. 60
02605 Sutton United R..........60
03296 FC Sól S.................60
03442 Fulham 2 R...............60
02453 Ice-9 V..................59
03044 Lömbin sókn R............59
03056 Draumur í dós R..........59
03574 Kjúklingar United R......59
00976 Yfirmaður Tenex S........58
00778 Gigaspeed R..............56
02389 Jóhannesson S............56
02525 Lídds G..................56
02642 Samba HT R...............56
03364 Eimreiðin G..............56
03556 Sigurkarl Akranesi V .... 56
Skagamaðurinn enn efstur
Svavar Ingþórsson, 17 ára
Skagamaður, er enn efstur í öðr-
um hluta keppninnar með lið
sitt, Svabbsterarnir. Svavar er
með flest stig samanlagt í 5.-7.
umferð. Þessi lið eru efst í öðr-
um hluta, sem nær yflr umferðir
5 til 9 í úrvalsdeildinni:
03560 Svabbsterarnir V.........51
02579 Los Bissos R.............50
02866 Canon-blast G............46
03289 Pentium V R..............46
03708 Ingvar N.................45
00203 Fávitarnir RE 1804 R.....45
00626 Kaktus S.................44
02056 Krtdlupinnarnir G........43
02898 Gullborg S...............43
02203 Magic MGH G..............43
00647 Johnny's Team N..........42
03825 Tuminn Rovers N..........42
00439 Hattur & Fattur R........42
00664 FC Njarðvík United G .... 41
03205 SVE R....................41
02605 Sutton United R..........41
03056 Draumur i dós R..........41
03389 BÓgUS 1 R................41
00289 Dabbi O S................41
03382 Hausverkur Jennu R.......40
02275 Gullpool G...............40
03075 Jón Jónasson G...........40
02084 Lionsklúbburinn Fiddi N. . 40
03352 Andrea R.................40
Leikmannaskiptin
Heimilt er að skipta um þrjá
leikmenn í hverju draumaliði til
31. júlí og tilkynna leikmanna-
skiptin á faxi, 550 5020, í tölvu-
pósti, draumur@ff.is, eða í pósti
til íþróttadeildar DV, Þverholti
11,105 Reykjavík.
Þær breytingar sem gerðar
eru á liðunum og skilað til DV
fyrir kl. 19 næsta sunnudags-
kvöld taka gildi fyrir 8. umferð
úrvalsdeildarinnar.
Leikmannalistann í heild er
að finna á íþróttavefnum á
Visi.is og hann birtist síðast í
DV flmmtudaginn 3. júní. Eftir-
taldir leikmenn hafa bæst á list-
ann síðan þá:
TE54 Jóhannes Gíslason, ÍA . . 50.000
TE55 Marko Tanasic, Keflav. 150.000
TE56 Þórhallur Hinrikss, KR 150.000
TE57 Ólafur Stígsson, Val .. . 150.000
TE58 Hilmar Bjömss, Fram . 250.000
TE59 Allan Mörköre, ÍBV .. . 150.000
TE60 Örlygur Helgas., Leiftri . 50.000
SM34 Kenneth Matijani, lA . 250.000
SM35 Ólafur Ingason, Val . . . 50.000
VM55 Izudin Daði Dervic, Val 150.000
VM56 Kristján Jóhannss., ÍA . 50.000
Bikar í kvöld
Fiórir fyrstu leikimir
fara fram í kvöld í 16
liða úrslitum bikarsins.
Þeir heþast abir kl. 20.
FH-Stjarnan
Keílavik-ÍBV
Breiðablik-ÍR
Þróttur R.-Víkingur R.
m m
m
ENGLAND
Fabio Capello, hinn nýráðni þjálfari
Roma, hefur mikinn áhuga á því að
fá enska landsliðsmanninn Sol
Campbell hjá Tottenham. Capello
segir að Campbell myndi styrkja
Rómarliðið gríðarlega. Fréttir herma
að Roma sé tilbúið að greiða 13 mUlj-
ónir punda fyrir leikmanninn.
Samkomulag hefur náðst um að
ísraelski landsliðsmaðurinn Eyal
Berkovic hjá West Ham geti farið frá
félaginu. West Ham viU fá um 6 miUj-
ónir punda fyrir leikmanninn og hef-
ur Celtic sýnt leikmanninum mikinn
áhuga.
Þaó benti margt tU þess á tímabili
að Glenn Hoddle yrði næsti knatt;
spyrnustjóri Nottingham Forest. í
gær komst á hreint að ekkert yröi úr
þeim áformum.
Stoke City leitar að knattspyrnu-
stjóra og hefur fátt gengið í þeim efn-
um og ótalmörg nöfn hafa verið nefnd
i því sambandi. Lee Dixon, bakvörö-
ur Arsenal, var nefndur tU sögunnar
í gær en hann kom til Stoke frá
Arsenal fyrir 12 árum síðan.
Útlit er fyrir að Jordi Cruyff verði
kaUaður á nýjan
leik tU
Manchester
United. Sir
Alex Ferguson
segir að hann
muni styrkja
leikmannahóp-
inn næsta vetur
en Jordi var
leigður i sex mánuði tU Celta Vigo á
sl. tímabUi.
John Gregory, knattspyrnustjóri
Aston ViUa, hefur lagt þunga áherslu
á að halda Ugo Ehioghu hjá félaginu
og virðist ætla aö takast það. Þessi 26
ára gamli leikmaður hefur veriö und-
ir smásjánni hjá Tottenham sem var
reiðubúiö að borga 6 miUjónir punda
fyrir hann.
Á nœstu dögum veróur gengið frá
sölunni á Frakkanum Oliver
Dacourt frá Everton tU Lens.
Dacourt kom tU Everon í fyrra frá
Strassboug fyrir 4 miUjónir punda.
Nú selur Everton hann á 6 miUjónir
punda.
Southampton hefur gengið frá kaup-
unum á Spánverjanum Sergio
Martinez Ballesteros frá Tenerife.
Enska liðið greiddi fyrir hann sem
svarar um 220 miUjónum króna.
Þarna er á ferð sterkur miðjumaður.
Ken Monkou er nú sagður á leiðinni
tU Chelsea. Eftir að Lundúnaliðið
seldi Michael Duberry tU Leeds eru
talin góð not fyrir Monkou.
Fftir allt saman er talið líklegt að
Nicolas Anelka fari tU Lazio á Italiu.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, segir tUboö Lazio sé gott að
erfitt reynist fyrir Anelka að hafna
þvi. -JKS
Stulkurnar i landsliði Nigeriu komust i fyrsta skipti i 8
liða úrslit í heimsmeistarakeppni kvenna í
knattspyrnu. Þær fögnuðu gífurlega en á minni
myndinni sjást vonbrigði stúlknanna frá Norður-
Kóreu sem sátu eftir. Myndin var tekin í leik Norður
41
Nigeria
áfram
- í fyrsta sinn í sögu HM kvenna
Nígería varð aðfaranótt mánudags fyrsta Afríkuþjóðin í sögu
heimsmeistaramóts í kvennaknattspymu til að komast alla leið í 8 liða úrslit.
Nígería hafði leikið 6 leiki á fyrri tveimur heimsmeistaramótum án þess að
vinna, árin 1991 og 1995, þegar liðið vann Norður-Kóreu í fyrsta leik, 2-1. Liðið
tryggði síðan sætið með því að vinna síðasta leikinn gegn Dönum 2-0. Inn á
milli lék Nígería við heimamenn í Bandaríkjunum og varð þar eina liðið til að
skora hjá þeim og að komast yfir í leik gegn hinu sigurstranglega bandaríska
landsliði. Þá var reyndar gamanið búið, Bandaríkin gerðu 2 mörk á einni
mínútu og 6 mörk í fyrri hálfleik og unnu leikinn örugglega, 7-1.
8 liða úrslitin fara fram á miðvikudag og flmmtudag. Á miðvikudaginn
mætast Svíar og Norðmenn annars vegar og Kínverjar og Rússar hins vegar.
Sigurvegarar úr þeirri viðureign mætast i undanúrslitum. Á flmmtudag spila
síðan Nígeríustúlkurnar við Brasilíu og hinum megin mætast heimamenn
Bandaríkjanna og Þjóðverjar. Bandaríkin, Kína og Norðmenn eru öll ósigruð i
keppninni til þessa.
-ÓÓJ
Breyttur Guömundur Ben
Ferill Guðmundar Benediktssonar í efstu deild:
(17 leikir).................. 4 mörk + 5 stoðsendingar
................ 4 mörk + 5 stoðsendingar
(14 leikir) ................. 9 mörk + 5 stoðsendingar
................ 3 mörk + 3 stoðsendingar
................ 7 mörk + 4 stoðsendingar
................ 2 mörk + 5 stoösendingar
(81 leikur) ...............29 mörk + 27 stoðsendingar
1994 Þór (17 leikir)
1995 KR (14 leikir) ,
1996 KR (14 leikir)
1997 KR (11 leikir)
1998 KR (18 leikir)
1999 KR (7 leikir)
1994-99 (81 leikur)
Bryndis ur leik
Bryndís Jóhannesdóttir úr
ÍBV í úrvalsdeild kvenna er
með rifinn liðþófa og verður
frá í að minnsta kosti í 6
vikur. Bryndís meiddist í leik
gegn Grindavík fyrr í sumar
en í fyrstu var ekki talið að
um svo alvarleg meiðsli
væru að ræða. -ÓÓJ
Fyrsta tap Stolanna
Þór A. - Tindastóll .........1-0
óðinn Ámason.
Selfoss - Léttir.............4-4
Steindór Elíson 2, Guðjón Þorvarðar-
son, Gunnar Valgeir Reynisson - Eng-
ilbert Friðfinnsson 2, Þórir Örn Ing-
ólfsson, Óskar Grétarsson.
TindastóU 7 4 2 1 18-5 14
HK 7 4 2 1 17-12 14
Leiknir R. 7 3 4 0 12-5 13
, Sindri 6 2 4 0 7-2 10
KS 7 2 2 3 10-10 8
Þór A. 7 2 2 3 8-13 8
Selfoss 7 1 4 2 14-14 7
Ægir 6 1 4 1 9-12 7
Léttir 7 1 1 5 14-24 4
Völsungur 7 1 1 5 7-19 4
Bland i poka
Bandariski kyhlngurinn David Duval heldur efsta sætinu á styrkleikalista
Alþjóða golfsambandsins en nýr listi var birtur í gær. Duval hefur 13,76 stig en
á hæla honum kemur landi hans Tiger Woods með 13,64 stig. Davis Lowe er í
þriðja sæti með 10,85 stig. I næstum sætum koma Vijay Singh frá Fiji, Colin
Montgomerie og Mark O’Meara.
Claudio Ranieri var í gær ráðinn þjálfari Atletico Madrid í stað Radomir
Antic. Það verður fróðlegt að sjá hvað Ranieri verður lengi í starfi en Jesus
Gil, forseti Atletico, hefur rekið menn í unnvörpum i forsetatíð sinni á sl.
12 árum.
Belgisku meistararnir í RC Genk hafa hafið undirbúning sinn fyrir tima-
bUið. Þess má geta að á fyrstu æfingunni meiddist Bjarni Guðjónsson á
hné en meiðslin eru ekki talin alvarleg.
Malaga og Numancia leika í A-deUd spænsku knattspyrnunnar á næsta
tímabili. Numancia hefur aldrei áður leikið í efstu deUd áður. Tvö sæti
eru enn laus og um þau berjast SevUla gegn Extramadura og Rayo Val-
lecano gegn ViUareal. Þess má geta að Hercules frá Alicante, sem lék í
efstu deUd fyrir tveimur árum, er komið í 3. deUd.
Franski landsliðsmaðurinn Zinedane Zidane er á góðum batavegi eftir
aðgerð sem hann gekkst undir á hné í síðasta mánuði. Hann sagðist í gær
gera sér vonir um að mæta á æfingu hjá Juventus þegar æfingar hæfust 3.
júlí.
Þýska félagió Eintracht Frankfurt, sem slapp við faU á eUeftu stundu- í vor,
keypti í gær hinn 24 ára gamla ungverska landsliðsmann Tibor Dombi.
Nokkur önnur lið i Evrópu höfðu þennan leikmann undir smásjánni.
Davió Búi Halldórsson, blakmaður úr KA, sem mun spUa með ÍS, var
rangnefndur Þorsteinsson i DV-sport i gær og beðist velvirðingar á því.
Brasilíumaóurinn Juninho er til sölu hjá spænska
knattspyrnuliðinu Atletico Madrid. Fjölmiðlar á Spáni
greindu frá þessu í gærkvöld. Aston VUla og
Middlesborough höfðu bæði áhuga á að kaupa Juninho
frá Atletico í fyrra en þá var hann ekki sagður tU sölu.
Talið er að áhugi ensku liðanna sé enn fyrir hendi og aö
líklegt kaupverð verði nálægt 1,1 miUjarði króna.
Rigning setti stórt strik
reikninginn
skipuleggjendum Wimbledon tennismótsins í gær. Aðeins tókst að ljúka 8
af 36 leikjum sem voru á dagskrá. Helstu úrslit urðu þau að Andre Agassi
komst 1 8-manna úrslit með þvl að sigra Wayne Arthurs frá Ástraliu,
6-7, 7-6, 6-1 Og 6-4.
ÍBV, Grindavík, RKV og Þór/KA komust í 8 liða úrslit bikarkeppni
kvenna um helgina. ÍBV vann Fjölni 0-7, Kelly Shimmin skoraði
3 mörk og þær Karen Burke, Lára Dögg Konráösdóttir og Lisa
Sandys skoruðu eitt hver en eitt markið var sjálfsmark.
Grindavik vann ÍA 4-3 í Grindavlk, Þór/KA vann KVA 0-5 og
RKV (Reynir, Keflavik, Víöir) vann Hvöt 1-3. Auk þeirra komust
KR, Valur, Stjarnan og Fjölnir í 8 liða úrslitin.
íslenska piltalandsliðió vann Norðmenn, 31-15, í öðrum leik Norðurlandamótsins
í Danmörku í gær og geta strákarnir orðiö Norðurlandameistarar vinni þeir
heimamenn Dani í dag. Liðið vann Svía i fyrsta leik með 10 mörkum og er því með
26 mörk í plús í fyrstu tveimur leikjunum. Bjarki Sigurösson, hornamaöur úr Val,
gerði flest mörk í gær eða átta. -JKS/-SK/-ÓÓJ
Wimbledon-stórmótið í tennis:
Dokic kemur
enn á óvart
Astralski unglingurinn Jelena
Dokic heldur áfram aö koma á
óvart á Wimbledon stórmótinu
í tennis.
Hin 16 ára Dokic varð heims-
fræg á augabragöi er hún sigr-
aði bestu tenniskonu heims,
Martinu Hingis, í fyrstu umferð
mótsins og síðan hefur henni geng-
ið allt í haginn. í gær sigraði hún
Mary Pierce frá Frakklandi sem er
í 9. sæti heimslistans, 6-4 og 6-3.
Tennissérfræðingar eru á því að
Dokic eigi mjög mikla
möguleika á að komast í
undanúrslitin en hún
mætir Alexöndru Steven-
son eða Lisu Raymond I
næstu umferð.
Dokic varð að taka þátt
í undankeppni fyrir
Wimbledon-mótið og eftir
hana öðlaðist hún keppnisrétt.
Keppandi sem þurft hefur að fara í
gegnum undankeppni hefur ekki
náð svona langt á Wimbledon-mót-
Hin 16 ára Jelena Dokic heldur áfram að koma
á óvart á Wimbledon-mótinu í tennis.
inu síðan árið 1985. Telja margir að
Dokic verði án efa næsta stórstjam-
an í tennis kvenna og verði jafnvel
í nokkrum sérflokki. -SK