Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999
Fréttir
Nathan & Olsen stefndi endurskoðunarskrifstofu sinni og krafðist fjárbóta:
Situr uppi meö 25
milljóna fjárdráttartap
- Qölskipaður dómur sýknaði endurskoðendurna og vísaði á ábyrgð fyrirtækisins
Endurskoðunarskrifstofan Price-
waterhouseCoopers ehf., sem sá um
ársreikninga fyrir Nathan & Olsen hf.
á árunum 1992-96, ber ekki bótaábyrgð
á því að gjaldkera félagsins tókst að
draga sér 32 milljónir króna á tímabil-
inu. Þetta er niðurstaða flölskipaðs
dóms Héraðsdóms Reykjavíkur eftir
að Nathan & Olsen hf. stefndi endur-
skoðunarskrifstofu sinni, sem félagið
hafði keypt vinnu af um áratuga skeið,
í kjölfar þess að
tugmilljóna flár-
dráttur komst
skyndilega upp
árið 1996. Nathan
& Olsen tókst að-
eins að fá 7 af 32
milljónum króna
endurgreiddar
sem gjaldkerinn,
kona, dró sér.
Konan gegndi
stöðu gjaldkera og
hafði hún notið
mikils trausts um
árabO hjá Nathan
og Olsen. Eftir að flárdrátturinn hafði
komist upp var hún kærð til lögreglu.
Reyndar hafði það vakið talsverða at-
hygli fram að því að konan hafði borist
talsvert á. Hún var reyndar einnig for-
maður starfsmannafélagsins og var vin-
sæl og virk í félagslífl.
Fjárdráttarkonan gat ekki greitt
Málið var rannsakað, konan viður-
kenndi brot sín greiðlega og var hún
síðan dæmd í 2ja ára fangelsi. Henni
var jafnframt gert að greiða 25 milljón-
ir króna, þá fjármuni sem sem þá
stóðu eftir af Qárdráttarupphæðinni.
Þrátt fyrir aðfor og gjaldþrotaskipti að
búi konunnar fengust aðeins 7 milljón-
ir greiddar.
Þegar Qárdrátturinn komst upp
urðu samstarfsslit hjá Nathan & Olsen
og PricewaterhouseCoopers ehf. Álit
óvilhallra endurskoðenda þann 9. febr-
úar 1998 var á þá leið að konan hefði
notið nær ótakmarkaðs trausts, bæði
Nathans & Olsens og endurskoðenda
þeirra en innra eftirlit hefði verið
af
PricewaterhouseCoopers. Sýknað.
veikt í ýmsum atriðum. Aðhald og eft-
irlit með gjaldkeranum, konunni, hefði
verið ofmetið.
Nathan & Olsen ákvað að stefna
endurskoðunarskrifstofunni til fé-
bótaábyrgðar. Skrifstofan hefði ekki
staðið í stykkinu varðandi endur-
skoðun með hliðsjón af fjárdrættin-
um. Reyndar hafi komið fram í bréf-
um endurskoðunarskrifstofunnar til
Nathans & Olsen að gerðar hefðu
verið kannanir á innra eftirliti - sú
endurskoðun og könnun hefði ekki
gefið tilefhi til sérstakra athuga-
semda. Nathan & Olsen lögðu
áherslu á það í stefnu að gjaldkeri fé-
lagsins hefði ekki skilað afstefmning-
um til endurskoðandans í tæka tíð
eins og hann tók
sjálfur fram í
skýrslu til fé-
lagsins.
Eftirliti var
ábótavant
Héraðsdómur
Reykjavíkur, sem
var skipaður
tveimur héraðs-
dómurum og ein-
um dómkvöddum
endurskoðanda,
taldi að leitt hefði
verið í ljós að
innra eftirliti hjá Nathan & Olsen
hefði verið ábótavant hvað varðar um- •
sjón og eftirlit með störfum konunnar
- þrátt fyrir að hún hafi ítrekað skilað
afstemningum bæði seint og illa og að-
eins hluta þeirra við hvert uppgjör.
Samt hefði það verið látið gott heita,
ekkert hefði verið brugðist við þar sem
konan var „störfum hlaðin". Dómur-
inn bendir einnig á að framkvæmda-
stjóri Nathans & Olsens hafi vitað af
því að konan skilaði ekki afstemning-
um ítrekað fyrir gerð ársreikninga.
Jafnframt er tekið fram að í lögum um
hlutafélög komi skýrt fram að félags-
stjóm skuli annast um að nægilegt eft-
irlit sé með bókhaldi og meðferð gár-
muna félagsins. -Ótt
Nathan og Olsen hf. Ber sjálft ábyrgð.
Biðin eftir
Bónusi á enda
DV, ísafjaröarbæ:
„Við höfum fengið æði margar áskor-
anir frá íbúum héma á svæðinu um að
opna Bónusverslun hér á ísafirði og svo
þegar okkur bauðst hentugt húsnæði
ákváðum við að slá til,“ segir Jóhannes
Jónsson, kaupmaður í Bónusi.
Á laugardaginn opnaði Bónus versl-
un á ísafirði og kom strax mikill fjöldi
viðskiptavina frá þéttbýlisstöðunum á
norðanverðum Vestfjörðum tO að gera
innkaup í hinni nýju verslun. Húsmæð-
ur á svæðinu flykktust í nýju verslun-
ina með vonarglampa í augum. Víst er
að mikil viðbrigði urðu hjá mörgum
þeirra að hafa í fyrsta sinn aðgang að
vörum á hinu fræga „Bónusverði".
„Það er mikill munur á verðinu hér.
Það á eftir að verða mikil kjarabót að fá
Bónus hingað enda höfum við beðið
lengi,“ segir Elinóra Guðmundsdóttir,
húsmóðir á Flateyri, sem var með þeim
fyrstu sem komu í nýju verslunina.
Vestfirðingar hafa ítrekað kvartað
yfir háu vöruverði og hefur verið bent
á það sem þátt í fólksflótta af svæðinu.
„Við stefnum á að halda sama verði
hér og í öðrum verslunum okkar. Á
móti flutningskostnaði hingað vegur að
húsnæði er miklu ódýrara hér,“ segir
Jóhannes í Bónusi. -GS
„Það er mikil kjarabót að Bónusi hingað, enda höfum við beðið lengi eftir þessu,“ sagði Elinóra Guðmundsdóttir,
húsmóðir á Flateyri, sem var meðal fyrstu viðskiptavina. DV-mynd GS
Nýtt öflugt sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörðum:
Öllu starfsfólki íshúsfélagsins sagt upp
Stjómir Hraðfrystihússins hf„
Gunnvarar hf. og íshúsfélags ísfirð-
inga hf„ sem er dótturfélag Gunnvarar
hf„ hafa skrifað undir viljayfirlýsingu
um sameiningu félaganna. Stefnt verð-
ur að því að ljúka samruna íyrir 1.
september nk. og að félagið fari á aðal-
lista VÞÍ fyrir áramót. Um nokkurt
skeið hefur verið unnið að sameiningu
félaganna í eitt fyrirtæki sem verður
með öflugri sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins. Kvótastaða hins sameinaða
félags verður 13 til 14 þúsund
þorskígildistonn. Ætlunin er að endur-
skipuleggja reksturinn og selja eignir
sem ekki nýtast félaginu, þannig að
skuldastaða félagsins verði viðunandi.
íslandsbanki hf. - F&M er þátttak-
andi í sameiningu félaganna og keypti
í gær 18,85% hlut í Hraðfrystihúsinu
hf. og 67% hlut í Gunnvöm hf. Aðrir
hluthafar í Gunnvöm em Kristján Jó-
hannsson og Jóhann Júlíusson. Með
kaupum á þessum hlutum fær íslands-
banki - F&M tæplega 40% eignarhlut í
hinu sameinaða félagi en hefur þegar
selt af þessum bréfum er nemur 20%
eignarhlut í hinu sameinaða félagi.
Kaupendur að þeim hluta em að jöfnu
Þormóður rammi - Sæberg hf. og Rán-
arborg ehfi, sem er félag í eigu Þor-
steins Vilhelmssonar. íslandsbanki -
F&M stefnir að því að selja sinn eign-
arhlut síðar meir.
Öllum sagt upp
Til hagræðingar verður vinnsla bol-
fisks sameinuð á einn stað í húsi Hrað-
frystihússins hf. og starfsfólki þar
íjölgað. Fiskvinnslu verður því hætt í
húsi íshúsfélagsins hf. og starfsfólki
þar vafr sagt upp störfum í gær. í
beinu framhaldi verður hluta þess
starfsfólks boðið störf hjá Hraðfrysti-
húsinu hf. á næstu vikum. Til að
greiða fyrir þeim ráðningum mun
Hraðfrystihúsið hf. fækka lausráðnu
starfsfólki og þeim sem aðeins hafa
starfssamninga fram á haustið.
Félögin þrjú em öil með starfsemi í
ísafjarðarbæ auk þess sem rækju-
vinnsla er í Súðavík. Sameiginleg velta
var um 3,4 milljarðar króna á síðast-
liðnu ári. Hagnaður Hraðfrystihússins
hf. var 179 m.kr. 1997 og 40 m.kr. á sið-
asta ári. Hjá samstæðu Gunnvarar hf.
og dótturfélaga var tap bæði þessi ár,
61 m.kr. 1997 og 100 m.kr. 1998. Rekstr-
artap hefur verið hjá íshúsfélaginu hf.
mörg undanfarin ár. -bmg
Stuttar fréttir i>v
Vilja bráðabirgðalög
Samband ís-
lenskra sveitarfé-
laga hefur faiið
fram á að ríkis-
stjómin setji bráða-
birgðalög til þess að
tryggja rétt starfs-
manna fyrirtækja
Rauða hersins á
Vestíjörðum til atvinnuleysisbóta á
meðan fyrirtækin em í greiðslustöðv-
un. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður samtakanna, leggur málið fyr-
ir félagsmálaráðherra i dag.
Skyttur dæmdar
Tvær gæsaskyttur hafa verið
dæmdar í héraðsdómi Norðurlands
eystra í 30 daga fangelsi, skilorðs-
bundið til tveggja ára. Mennimir
skutu tæplega 60 helsingja og nokkr-
ar heiðargæsir í Vatnsdal í maí.
RÚV greindi frá.
Enginn verðugur
Dómnefnd sem hefur umsjón með
úthlutun bókmenntaverðlauna Hall-
dórs Laxness hefur komist að þeirri
niðurstöðu að ekkert þeirra hand-
rita sem send vom inn verðskuldi
að hljóta verðlaunin.
Flestir orönir hluthafar
Nær 100% þátttaka var í nýafstað-
inni sölu hlutafjár í EJS til starfs-
manna fyrirtækisins og tóku 148
starfsmenn þátt í útboðinu. í boði var
u.þ.b. 10% af heildarhlutafé fyrirtæk-
isins og seldist það allt. Stjóm EJS
hefur ákveðið að sækja um skráningu
á hlutabréfamarkað ftrir árslok 2001.
Viðskiptablaðið greindi frá.
Deilt um afréttinn
Páll Lýðsson,
bóndi og sagn-
fræðingur, segir
að í lögum um
þjóðlendur komi
fram nýr skiln-
ingur á hugtak-
inu afréttur. Það
virðist ekki leng-
ur vísa til eignarréttar á ákveðnu
landsvæði heldur einungis afnota-
réttar. RÚV greindi frá þessu.
Stórlaxasumar
Á síðasta ári veiddust tæplega
40.300 laxar hér á landi. Árið í fyrra
var mjög gott í alla staði eftir tvö
mjög mögur ár á undan er færri en
30.000 laxar veiddust hvort árið.
Veiðimenn búast við góöu veiðisumri
en upphaf þess lofar góðu.
Ekkert deiliskipulag
Lögformlegt deiliskipulag er ekki
til fyrir hluta höfuðborgarinnar. Ef
það hefði verið til hefði mátt koma í
veg fyrir mikið af þeim ágreiningi
um nýbyggingar sem verið hefúr að
undanfómu samkvæmt ffétt RÚV í
gær og DV fyrir hálfu ári.
Bændagisting
Ferðaþjónustubændur hafa eytt
hátt í 800 milljónum í fjárfestingar á
síðustu fimm árum. RÚV greindi ffá
því að þó svo að meðlimum Ferða-
þjónustu bænda hafi ekki flölgað
hafi gistirúmum fiölgað um górðung
og em núna 2500.
200 þúsund á dag
Samkvæmt verðlista Sportveiði-
blaðsins yfir laxveiðiár landsins er
Laxá á Ásum sú dýrasta. Þar kostar
stöngin 200 þúsund krónur á dag á
dýrasta tímabilinu.
Vigdís verðlaunuð
Evrópustjóm al-
heimssamtaka
kvenskáta
WAGGGS (World
Association of Girl
Guides and Girl
Scouts) hefúr ákveð-
ið að veita Vigdísi
Finnbogadóttur fyrrverandi forseta
verðlaun sem konum era veitt fyrir
að hafa skarað fram úr og náð ein-
stæðum árangri í þágu kvenna.
Ríkið sýknað
Ríkið hefur verið sýknað af kröf-
um tveggja fyrrverandi starfsmanna
Landsbankans. Þeir höfnuðu starfi
hjá bankanum eftir að hann var
gerður að hlutafélagi því þeir töldu
að það myndi skerða réttindi þeirra
sem opinberra starfsmanna. Þá
kröfðu þeir ríkið um ýmsar launa-
tengdar greiðslur sem þeir töldu sig
eiga inni. -SÁ