Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999 33 Myndasögur Veiðivon co m cö >-t r-H i—H E3 >H CO co • l-l o =0 co ,0 }—I Pl < "CÖ J Ö) O (Ö co kH Það er frekar kuldalegt enn þá við sumar veiðiárnar en þessi mynd var tek- in við Hallá á Skaga fyrir fáum dögum. Ána verður brátt farið að opna veiði- mönnum. DV-mynd G.Bender Þverá í Borgarfirði: 500. laxinn veiddist í gær Þverá í Borgarflrði er langfeng- sælasta veiðiá landsins þessa dag- ana en í gærmorgun veiddist 500. laxinn í henni. Stærsti laxinn er enn þá 22 pund þar um slóðir. Norðurá í Borgarfirði kemur næst með um 300 laxa en síðan Blanda með 250 laxa. í Rangánum hafa veiðst um 30 laxar en veiðin fer ekki á fulla ferð þar fyrr en eftir mánaöamót. Það verður spennandi að sjá í hvaða sæti hún verður þetta sumarið. Veiðimaður sem var að veiða í Blöndu á föstudaginn veiddi tvo 19 punda laxa. Umsjón GunnarBender „Veiðin gengur vel og núna var 500. laxinn að veiðast. Þetta hefur heldur betur tekið kipp,“ sagði Jón Ólafsson, einn af leigutökum Þver- ár í Borgarfirði, en Þverá er á toppnum. „Margir hafa veitt vel og smá- laxinn er að koma í ríkari mæli en áður. Veiðin í Kjarrá er líka fin,“ sagði Jón enn fremur. menn eru byrjaðir að fá hann meira,“ sagði Óli Johnson í gær er við spurðum um stöðuna í Leir- ársveitinni. „Það voru margir laxar i Lax- fossinum, líklega um 100-120 fisk- ar. í morgun veiddust 7 laxar og hann er 18 pund, sá stærsti. Þetta á eftir að lagast þegar fiskurinn er ekki á sama staðnum," sagði Óli. Afætusúpa í Laxá á Ásum „Þetta var rosalegt í Laxá, það var lítið annað en afæta og aftur afæta um alla á. Maður var ekki fyrr búinn að beita og setja út í en öngullinn var hreinsaður," sögðu veiðimenn sem voru að koma úr Laxá á Ásum með tvo laxa, annan 5 pund en hinn 12. „Maður þarf mikið af maðki til að standa í þessum ósköpum. Það er lax í ánni en ekki mikið. Þegar við vorum að hætta komu laxar í Dulsana en þeir tóku mjög illa,“ sögðu veiðimennimir í lokin. Júni hefur ekki alltaf gefið mik- ið í Laxá á Ásum en júlí þeim mun meira. Enda er stækkandi straum- ur og þá er aldrei að vita hvað skeður þegar laxinn er annars veg- ar. Það vita veiðimenn. Aðalatriðið er að taka nóg af maðki með sér i Ásana eða bara veiða með flugunni. Hún gefur oft vel. Aðeins að glæðast í Laxá í Leirársveit Hún hefur gengið rólega, lax- veiðin í Laxá í Leirársveit, en áin hefur gefið 50 laxa. Veiðin byrjaði rólega og hefur verið róleg, en um helgina lifnaði hún aðeins við. „Mér sýnist þetta vera að koma eitthvað, alla vega hefur laxinn farið upp úr Laxfossinum og dreift sér fyrir ofan. Það þýðir að veiöi- ÞÍN FRÍSTUND . -OKKAR FAG INTER SPORT Bíldshöföa 20 • 112 Reykjavík « 510 8020 • www.intersport.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.