Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999 Spurningin Hver er uppáhaldshöf- undurinn þinn? Anna Nordal afgreiðslukona: Enid Blyton. Ásgrímur Högnason, eldri borg- ari: Halldór Laxness. Smári Kristjánsson leigubílstjóri: Það er Kiljan. Stefán Stefánsson húsasmiður: Laxness, ekki spuming. Marinó Eymundarson prentari: Allistair Maclean. Lesendur NATO notaði geisla- virk vopn í Júgóslavíu - segja bréfritarar í Bandaríkjunum í bréfi til blaðsins Mæður og börn í þjáningunum í Kosovo. í Júgóslavíu voru geislavirk vopn notuð í loftárásum á Serba, fullyrða bréfritarar. Selma Þórunn Káradóttir og Ólafur Þór Magnússon, í Madi- son, Wisconsin, og Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, Pleasant HiU í Kaliforníu, skrifa: Lítið sem ekkert hefur verið fjall- að í íslenskum fjölmiðlum um þau geislavirku vopn sem Bandaríkja- her (NATO) notaði í loftárásum á Júgóslavíu. Hér í Bandaríkjunum er ekki mikið fjallað um málið en þó birtist á forsíðum helstu bandarískra dag- blaða fyrir skömmu að Pentagon hefði viðurkennt að nota svokölluð „DU“ vopn (Depleted Uranium, sneytt úran) í árásinni á Júgóslavíu. Sneytt úran er afgangsefni sem verður til þegar verið er að auðga úran til notkunar i kjarnavopn og kjarnorkuver. Bandaríski herinn notar sneytt úran í sprengjuodda til að sprengjukúlur komist betur í gegnum brynvarnir. Ef sprengju- kúla úr sneyddu úrani fer í gegnum stál brennur úranið og sendir eitrað geislavirkt úran-ildi frá sér út í and- rúmsloftið sem ryk og reyk. Þegar menn anda rykinu að sér og taka það inn í líkamann verður það hættulegt heilsu þeirra og lífi. (Heimild: National Gulf War Reso- urce Center). Sneytt úran var fyrst notað í írak árið 1991. Víst þykir að beint sam- band sé á milli notkun þess og hás hlutfalls hvítblæðis, fæðingargalla og vöggudauða bama í írak. Einnig hafa margir þeirra bandarísku her- manna er tóku þátt í Persaflóastríð- inu orðið alvarlega veikir og hefur Sigrún Reynisdóttir hringdi: Fyrir bráðum mánuði síðan lenti ég í slysi, axlarbrotnaði, og var rek- in heim til mín af slysadeildinni þótt ég sé eldgömul. Ég er komin í hóp þeirra mörgu sem hafa lent í þessu. Ég var gjörsamlega ósjálf- bjarga héma heima. Ég var héma heima í tvo daga, gat ekki þvegið mér eða skipt um föt og gat engan veginn verið fyrir kvölum, það var svo sárt að liggja. En á slysadeildinni gat hjúkran- arfræðingurinn ekkert fyrir mig gert og spurði ekki um aðstæður mínar heima. Gamalmenni væm Kona í Reykjavík hringdi: Einkennilegt fyrirtæki í borginni heitir Bílastæðasjóður Reykjavíkur. Ég lenti í því að fyrirtækið sem ég ætlaði að fara í við Laugaveginn var flutt í hús neðar við götuna. Ég var búin að kaupa miða sem maður setur í gluggann. Nú, ég færði mig neðar og lagði við mæli. Ég taldi mig eiga talsverða „inneign" hjá þessu ágæta fyrirtæki okkar borgar- anna, setti miðann í gluggann þannig að stöðumælavörðurinn gæti séð með eigin augum að ég ætti inneign. Þegar ég kom að bílnum var hins m.a. mælst úran i þvagi þeirra og sæðisvökva. Vinsamlegast aðstoðið okkur við að upplýsa sem flesta um þetta um- hverfisslys á Balkanskaga sem átti að heita friðarstríð. Ef þið viljið styðja þetta málefni, sendið þá bréf- send heim svona á sig komin, ég yrði að tala við heimflislækninn minn. Auðvitað fékk ég kvalastill- andi lyf, en þá tók ekki betra við, ég virðist hafa ofnæmi fyrir slíku, mig svimaði af lyfinu, fyfltist öryggis- ieysi og varð óglatt. Auðvitað átti ég að vera á spítala meðan það versta gekk yfir. Ég spurði hvort spítalinn bæri ekki ábyrgð á mér, en mér var sagt að svo væri ekki. Nú eru það fleiri en ég sem hafa þessa sögu að segja. Nú er ég með þá hugmynd að stofna samtök fólks sem á rétt á að njóta heilbrigðiskerfisins en fær vegar komin sekt á rúðuna, undir- rituð af þessu sama ágætis fyrir- tæki. Ég talaði við þá á skrifstof- unni. Þeir voru afai- liðlegir og ið áfram tfl vina og vandamanna. Nánari upplýsingar um sneytt úran er t.d. hægt að finna á: www.gulfweb.org/ngwrc (National Gulf War Resource Cent- er). það ekki, eins og í mínu dæmi. Kerf- ið er að mörgu leyti gott, en mann- legi þátturinn verður út undan. Ekki það að það er gott fólk sem vinnur á sjúkrahúsunum, það era stjómmálamennimir sem skammta naumt, skera niður og spara og halda að þeir séu að spara fé. Það er mikill misskilningur. Fólk bíður áram saman, brotnar niður og ver- ið er að búa tfl enn meiri og enn dýrari sjúklinga. Símar Sigrúnar eru 587 5801 og 698 5998. Þangað getur fólk hringt og borið saman bækur sín- ar við Sigrúnu. sögðu að það eina í stöðunni fyrir mig væri að borga fyrir brot mitt. Finnst fólki þetta ekki óliðlegt og óeðlilegt? Ingibjörg Sólrún kjörinn leiðtogi Villijálmur Alfreðsson lagði orð í belg um leið- togamál Sam- fylkingar: í DV þann 21. júní birtist ágætisbréf, „Jón Baldvin á að koma heim“ og var frá Einari krata. en ég verð að _segja það að ísland verður að hafa bæði sterkt og skilningsríkt fólk á erlendum vettvangi. Hvað varöar leiðtoga- efhi Samfylkingarinnar hefði ég haldið að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir væri kjörin sem leiðtogi. Reykjavíkurflug- völl á Reykjanes Suðurnesjabúi hringdi og vildi Reykjavíkurflugvöll suður eftir: Hugmynd Jóhönnu Þórarins- dóttur í DV um flutning Reykja- víkurflugvallar er góð. Þarna er á ferðinni hagsýn húsmóðir, og á þær«igum við ævinlega að hlusta. En kannski er hægt að bæta við og benda á að Suðurflug er með ágæta farþegaafgreiðslu á Kefla- víkurflugvelli, sem gæti hiklaust annað öllu innanlandsflugi. Gamla flugstöðin er að ég held á verra svæði og húsið kannski ekki heppilegt. En þetta ættu menn að skoða betur. RÚV lengir og bætir kvöldin Jóhannes Guömundsson hringdi: Nýju fréttatímamir hjá Ríkisút- varpinu, útvarpi og sjónvarpi, eru mjög til bóta. Ég hef tekið eftir því að eftir að fréttatímarnir voru flutti fram um klukkutíma verður manni miklu meira úr kvöldinu. Núna getm' maður lesið bækur, farið út, jafnvel á völlinn eða i heimsóknir eða gert eitthvað þarf- legt heima við. Áður datt maður ofan í eitthvert sjónvarpsefni, sama hversu ómerkflegt það var, og kvöldin urðu að engu. Núna fer maður út og gerir eitthvað af viti. Kossar frétta- mannsins ekki til fyrirmyndar Ásdís hringdi og lýsti yfir van- þóknun á kossum til sölu: Ég var að koma heim frá útlönd- um og las þá í DV eftir sautjándann, að Gísli Marteinn sjónvarpsmaður hefði selt kossa til ágóða fyrir Rögn- una, knattspymufélag sem ég hef nú aldrei heyrt um. En varðandi þessa kossa frá þessum sæta strák, þá er þetta ekki í lagi. Það vita all- ir um smithættuna sem svona skap- ar. Þetta á hann ekki að gera. Partur af plotti að bola Guðmundi frá Þórarinn hringdi í kjölfar frétta af forstjórastöðu Lands- símans: „Þessar fréttir af því að Þórar- inn Viðar Þórarinsson komi í for- stjórastól hjá Landssímanum fara afar illa í fólk. Sjálfur er ég eldheit- ur sjálfstæðismaður, en ég get ekki tekið hverju sem er af mínum mönnum, allra síst svona yfir- troðslu yfir ágætan framkvæmda- stjóra sem hefur starfað stutt en náð frábærum árangri. Manni skilst að þetta sé allt partur af plotti, að flokkurinn eigi að eignast Landssímann ásamt Hagkaupsfam- ilíunni. Varðandi Vinnuveitendasam- bandið sé ég að talað er um Óskar Magnússon í embætti, trúlega nýju samtakanna sem byrja í haust. Mér líst vel á það, Óskar er afar hæfur maður, og óvenju tillögugóður. Samtök vanræktra sjúklinga - fórnarlamb hyggst stofna félag til að þrýsta á heilbrigðisyfirvöld Bílastæðasjóður lætur ekki eiga inni hjá sér - engin miskunn hjá Magnúsi ef ekki er borgað Sektarmiði var kominn undir rúðuþurrkuna, þrátt fyrir „inneign“ ökumanns. Ingibjörg Sólrún nægir að mati bréfritarans, Jón þarf þá ekki að koma heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.