Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
Útlönd
Stuttar fréttir r>v
Kínverjar þróa
nifteindasprengju
Kínverjar tilkynntu í gær að þeir
byggju yfir þekkingu til að búa til
nifteindasprengju. Það var kín-
verska fréttastofan Xinhua sem
greindi frá þessu í gær en ekki kom
fram hvenær Kínverjar þróuðu
þessa tækni né hvort þeir hefðu haf-
ið framleiðslu á slíkum sprengjum.
Samkvæmt skýrslu bandarískrar
þingnefndar munu Kínverjar hafa
náð í þekkingu sína með njósnum í
Bandaríkjunum á 20 ára tímabili.
Kínverjar neita þessu og segja vís-
indamenn sína fullfæra um slík
verkefai. Nifteindasprengja er þeirr-
ar náttúru að hún drepur fóik en
veldur ekki annarri eyöileggingu.
Liðsmaður franska lýðveldishersins féll af baki þegar hestur hans hnaut
um götustein í skrúðgöngu sem haldin var í tilefni Bastilludagsins í París
í gær. Símamynd Reuter
dauðarefsingu
Stuðningsmenn klerkastéttarinnar í
íran gengu um Teheran í gær og
hrópuðu slagorð. Símamynd Reuter
Ritari þjóðaröryggisráðs írans,
Hassan Rouhani, tilkynnti í gær
að þeir sem tekið hefðu þátt í upp-
þotum og eyðileggingu opinberra
eigna ættu yfir höfði sér dauða-
dóm.
Samtímis lofaði hann því að
rannsakað yrði hvers vegna lög-
regla réðst á stúdentagarða með
þeim afleiðingum að námsmenn
særðust og létu lífíð.
írönsk yfirvöld lýstu því yfir í
gær að öryggissveitum hefði tekist
að brjóta á bak aftur óeirðirnar í
Teheran í kjölfar mótmæla stúd-
enta undanfarna viku. Klerkastétt-
in hafði skipulagt göngu stuðnings-
manna sinna um höfuðborgina í
gær og gengu tugir þúsunda um
miðborgina. Sjálfir segja klerkarn-
ir að þátttakendur hafi verið um
ein milljón. Viðstaddir voru helstu
leiötogar stjórnarinnar með
Khameini erkiklerk í broddi fylk-
ingar. Khatami, forseti írans, var
hins vegar ekki viðstaddur.
Samkvæmt írönsku
unni IRNA hvöttu leiðtogar stúd-
enta námsmenn til þess aö efna
ekki til neinna mótmæla fyrr en á
laugardaginn. Þangað til ætla leið-
togar stúdenta að ræða við yfirvöld
um ýmsar kröfur.
# Faxafeni 8
UTSHLR
Kjama útsala
á fatnaði fyrir
alla aldursnópa
Opið: mán-fim 10 -18
Fd 10-19
lau 10-18
Su 12-17
Hóta stúdentum
Morð í Noregi:
Vill láta kanna
fortíð Paust hjá
NATO I Brussel
Verjandi Veronicu Orderud,
mágkonu Anne Orderud Paust,
sem var myrt í maílok ásamt for-
eldrum sínum utan við Ósló, telur
að rannsókn á fortíð Anne sem
ritara í aðalstöðvum NATO í
Brussel geti leitt lögregluna á slóð
morðingjans.
Veronica er nú í gæsluvarð-
haldi ásamt Kristian eiginmanni
sínum, bróður Anne. Eru þau
gnmuð um morðin á Anne og for-
eldrum hennar og Kristians.
Lögmaður Veronicu, Frode Sul-
land, vill í viötali við norska blað-
ið Aftenposten ekki segja frá því í
smáatriðum hvaða atburðir í
Belgíu geti verið áhugaverðir í
sambandi við morðrannsóknina.
Sulland heldur því fram að lög-
reglan sé á röngu spori.
Viðbúnaður í Taívan
Aukinn viðbúnaður er í Taívan
vegna hótunar kínverskra yfir-
valda um að brjóta á bak aftur all-
ar tilraunir til sjálfstæðisbaráttu.
Djukanovic varkár
Milo Djukanovic, forseti Svart-
fjallalands, sagði í gær að íbúar
landsins vildu vera áfram í lýðræð-
islegu sambands-
ríki Júgóslavíu.
Fái SvartfeUingar
hins vegar ekki
meiri sjálfstjórn
muni þeir krefj-
ast sjálfstæðis.
Viðræður hófust
í gær milli fulltrúa Svartfjallalands
og Serbíu um framtíð Júgóslavíu.
Djukanovics kveðst ekki hafa
áhuga á að verða eftirmaður
Slobodans Milosevics Júgóslavíu-
forseta.
Úrslit í Indónesíu
Kjörstjórn Indónesíu ætlar að
birta í dag óopinber úrslit kosn-
inganna sem haldnar voru 7. júni
síðastliðinn.
Svipti sig lífi
Ríkissaksóknari í Belgíu,
Hubert Massa, sem stýrt hefur
rannsókninni* á morðum bama-
níðingsins Marcs Dutroux á fjór-
um ungum stúlkum, svipti sig lífi
á þriðjudaginn.
Bankaræningi hetja
Bankaræninginn Attila
Ambrus, sem rænt hefur 27 banka
á sex árum og flúði úr fangelsi
fyrir fimm dögum, er nú hetja í
Ungverjalandi. 1008 aðspurðir
vilja að hann sleppi undan lög-
reglunni. Aðeins 91 vill að
Ambms verði gripinn.
Hótaði Viktoríu
Dani, sem í bréfi haíði hótað
Viktoríu Svíaprinsessu, var grip-
inn í gær við sumarhöll sænsku
konungsfjölskyld-
unnar á Öland í
gær. Maðurinn,
sem flúði á þriðju-
daginn frá geð-
deild sjúkrahúss í
Hróarskeldu, er
þekktur fyrir sjúk-
legan áhuga á sænsku konungsfjöl-
skyldunni. Stuttu eftir flóttann frá
sjúkrahúsinu hélt hann til Ölands
þar sem prinsessan hélt upp á 22
ára afmæli sitt í gær. Daninn, sem
var óvopnaður, var dæmdur í vor
fyrir ofbeldi gegn lögreglu.
Stal hálfum milljarði
41 ára Svíi, sem ætlaði að reisa
183 íbúðir og smáhús í Gallinchen
í Cottbus í austurhluta Þýska-
lands, er nú horfinn með um hálf-
an milljarð íslenskra króna. Að-
eins 30 hús vora byggð.
Kjötbanni aflétt
Evrópusambandiö tilkynnti í
gær að frá og með næstu mánaða-
mótum félli bann við sölu bresks
nautakjöts úr gildi. Bannið var
sett í kjölfar kúariðufárs fyrir
þremur áram.
Krefst skaðabóta
Borgarstjóri Rio de Janeiro í
Brasilíu ætlar í mál við banda-
ríska tóbaksframleiðendur. Borg-
arstjórinn krefst 10 milljarða dala
í skaðabætur vegna kostnaðar
sem rakinn er til veikinda reyk-
ingamanna.
Á brattann að sækja
Samkvæmt nýrri skoðanakönn-
um sem gerð var í New York á dög-
unum fengi Rudolph Giuliani,
borgarstjóri og
repúblikani, tals-
vert meira fylgi
en Hillary Clint-
on en þau keppa
um sæti í öld-
ungadeild banda-
ríska þings. Fylgi
Giulianis mældist
46,7% en Hillary 40,7%. Ekki hafa
skoðanakannanir áður sýnt viðlíka
forskot Giulianis en talsmenn Hill-
ary segja engu að kviða enda eitt
og hálft ár til kosninga.