Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 37 Leikarar gera meira en að leika, þeir þjóna til borðs. Þjónn í súpunni í kvöld verður leikritið Þjónn í súpunni sýnt í Iðnó en það hefur slegið rækilega í gegn og er nú komið á fjalirnar á ný. Leikstjóri er Maria Sigurðardóttir sem leik- stýrir einnig Sex í sveit en sýning- ar á því gengu fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu. Þjónn í súp- unni er sérstakt að því leyti að það gerist á veitingahúsi og er sýningargestum boðið upp á mat og drykk meðan á sýningu stend- ur og má segja að allur salurinn og rúmlega það sé leiksviðið. I salnum eru bæði alvöruþjónar, sem og leikarar. Leikhús Leikararnir eru ekki af verri endanum. Bessi Bjarnason og Edda Björgvinsdóttir hafa í gegn- um tíðina skilað gamanhlutverk- um sem eftirminnileg eru. Mar- grét Vilhjálmsdóttir og Kjartan Guðjónsson eru leikarar í yngri kantinum og léku meðal annars saman í Stonefree og Veðmálinu og Stefán Karl Stefánsson sá yngsti í leikarahópnum. Hljómsveitin N-Daze leikur á aðal tónleikum á föstudagskvöld. Styrkur unga fólksins Styrkur unga fólksins ‘99 er ráð- stefna sem hófst í gær í Skautahöll Reykjavíkur og lýkur á sunnudags- kvöld. Styrkur unga fólksins er þverkirkjulegt félag sem starfar meðál ungu kynslóðarinnar á ís- landi. Starf félagsins gengur út á að stuðla að jákvæðu hugarfari, hafa áhrif á hugsanagang ungs fólks, hjálpa því að losna úr viðjum áfeng- is og eiturlyfja og koma því inn á spor þar sem það finnur tilgang með lífínu. Samkoman er vettvangur sem opnar dyr fyrir erlent og innlent fag- fólk, ráðgjafa sem hafa reynslu og menntun til að taka á vandanum. Á samkomunni nú verða kröftugir predikarar frá Bandaríkjunum og ís- _________________landi sem ná Samkomur um boðskap -----------------sínum, til unga fólksins. Einnig koma fram rapphljómsveitin N-Daze frá London en hún heldur tvenna tónleika 16. og 17. júlí, breakararnir Set Free, Dj Royal Priest, rapparinn Gammaman og G-X danshópurinn. Auk þess að skemmta á kvöldin munu hópar þessir halda uppi líflegri dagskrá á ráðstefnunni á daginn. Á ráðstefnunni verður leitast við að hjálpa ungu fólki að tjá sig og finna lausnir á sjálfsvígsvandanu- málum þjóðfélags okkar, einnig áfengis- og fikniefiiavandanum. Far- ið verður í þætti eins og höfnun að- gerðarleysis, óframfærni og ótta, svo eitthvað sé nefnt. Þjóðleikhúskj allarinn: Lög sem spanna allan tilfinningaskalann í tilefni af nýútkominni geisla- plötu Möggu Stínu og sýrupolka- hljómsveitarinnar Hringir verða haldnir útgáfútónleikar í Þjóðleik- húskjallaranum í kvöld og hefjast þeir kl. 22. Á efnisskrá verða lög af hinni mjög svo fjölbreyttu og skemmtilegu 16 laga geislaplötu sem komin er í verslanir. Platan er víð- óma í ýmsum skilningi, lögin spanna allan tilfinn---------------- ingaskalann, írá hams- lausri og allt að því dýrslegri gleði yfir í angurværð og þunglyndi. Veitingar verða í boði og huggulegheitum lof- að. Tónlistarfólkið, Magga Stína, Hörður, Kristinn og Kommi, ætlar ----------------að vanda sig og skila Qkommtanir fáguðum og kraftmikl- j^emmidmr um leik Kannski er þetta viðburður sem minnst verður langt fram eftir næsta árþúsundi, kannski upphafið að nýjum tímum. Magga Stína og Hringirnir leika lög af nýrri plötu í Þjóðieikhúskjallaranum. Miles Davis minnst á Bræðingstónleikum Þriðju tónleikarnir í röðinni Bræðingi verða haldnir í KaflUeik- húsinu í kvöld kl. 21. Á efnisskrá verða lög hljóðrituð af Miles Davis á árunum 1951-1954. Þetta tímabil á ferli Davis einkennist af tilrauna- starfsemi, ekki síst í sambandi við mannaval, en upp úr tímabilinu varð til einn frægasti kvintett jass- sögunnar. Trommuleikarinn Matth- ías Hemstock leiðir sveitina sem auk hans er skipuð Kjartani Valde- marssyni á píanó, Sigurði Flosasyni á altsaxófón, Jóel Pálssyni á tenór- saxófón og Tómasi R. Einarssyni á kontrabassa. Tölur við vindfiaðrir sýna metra á sekúndu. Norðlægar áttir Næsta sólarhring verða norðvest- an og vestan 5-10 m/s en 8-13 norð- Veðrið í dag vestan til. Viða verður rigning eða skúrir en lítil úrkoma suðaustan- lands. Hiti verður 5 til 16 stig. Á höf- uðborgarsvæðinu verður hitinn 7 til 11 stig. Sólarlag í Reykjavík: 23.26 Sólarupprás á morgun: 3.42 Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.14 Árdegisflóð á morgun: 8.41 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri Bergsstaöir Bolungarvík Egilsstaöir Kirkjubœjarkl. Keflavíkurflv. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöfði Bergen Helsinki Kaupmhöfn Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Þrándheimur Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Halifax Frankfurt Hamborg Jan Mayen London Lúxemborg Mallorca Montreal Narssarssuaq New York Orlando París Róm Vín Washington Winnipeg alskýjaö 6 alskýjaö 5 8 skýjaö 10 skúr 8 rigning 7 skýjaö 7 skýjaó 6 skúr á síö.kls. 11 rign. á síö.kls. 20 skýjaö 16 skýjaö 15 18 skúr á síö.kls. 10 rigning og súld 13 heióskírt 24 hálfskýjaö 14 þokumóöa 21 léttskýjað 16 léttskýjaó 23 léttskýjaö 11 skýjaö 18 skýjaö 16 skýjaö 14 rigning 7 léttskýjaö 13 skýjaó 12 léttskýjaö 22 léttskýjaó 22 léttskýjaö 8 skýjaö 21 hálfskýjaö 25 skýjaö 17 hálfskýjaö 19 léttskýjaö 16 heiöskírt 14 Lokað í Heiða- bæjarstíg Flestir hálendisvegir eru orðnir færir að undan- skildum vegunum í Hrafntinnusker, í Fjörður og um Dyngjufjalla- og Gæsavatnaleiðir. Þeir sem eru opnir eru þó flestir aðeins jeppafærir enn sem kom- Færð á vegum ið er. Grafningsvegur nr. 360 verður lokaður í Heiðabæjarstíg milli kl. 7.30 og 21.00 í dag, en á morgun, fóstudag, verður lokað milli kl. 7.30 og 14.00 en opið um helgina. Ástand vega 4^ Skafrenningur m Steinkast 0 Hálka C^j) Ófært 1S Vegavinna-aðgát 0 Öxulþungatakmarkanír m Þungfært (£) Fært fjallabílum Anna Kristín Stúlkumar tvær á myndinni eru systur og heita Alexandra Björg, sem verður tveggja ára 29. júli, og Anna Kristín, Barn dagsins sem fæddist á Sjúkrahúsi Suðurlands 9. maí síðast- liðinn kl. 0.35. Hún var 4.920 grömm að þyngd og 57 sentímetra löng. For- eldrar systranna eru Bryndís Guðmundsdóttir og Ægir Guðmundsson. Josie (Drew Barrymore) ásamt kenn- ara sínum Sam (Michael Vartan). Aldrei verið kysst Regnboginn og Bíóhöllin sýna Never Been Kissed, sem fjallar um Josie, sem komin er eitthvað á þrí- tugsaldurinn og vinnur á Chicago Sunday Times sem yfirlesari frétta. Josie á sér þann draum að verða rannsóknarblaðamaður og óvænt rætist hann þegar ritstjór- inn, eftir að hafa rekið einn blaða- manninn, snýr sér óvænt að henni og heimtar að hún dulbúist sem táningur, setjist á skólabekk í menntaskóla og komi með kryddaðar greinar af skólalífinu og Kvikmyndir ekki væri verra ef hægt væri að finna sjóöandi heita kynlífsfrásögn. Josie fer með miklum hug í verkiö en rekur sig fljótt á vegg þar sem hún fellur ekki beint í kramið hjá djammliði skólans, auk þess veit hún lítið um ástarlífið, hefur aldrei verið við karlmann kennd. Hún kemst aftur á móti fljótt í samband við „nördana" í skólan- um, enda var hún einn slíkur á sínum skólaárum. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: The Mummy Saga-Bió: Entrapment Bióborgin: Matrix Háskólabíó: Perdita Durango Háskólabíó: Hásléttan Kringlubíó: 10 Things I Hate about You Laugarásbíó: Austin Powers Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 18 20 Lárrétt: 1 spark, 8 orsökuðu, 9 skelfing, 10 fljótfærni, 12 kroppi, 13 karlmannsnafn, 15 flökt, 16 kaup, 17 sál, 19 erfiður, 21 veröld. Lóðrétt: 1 óhreinindi, 2 kvelur, 3 hlýju, 4 röðin, 5 ask, 6 deilunni, 7 lögun, 11 pretti, 14 hræddu, 16 vökva, 18 tafði, 20 varðandi. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 skemma, 8 pár, 9 aula, 10 álfu, 11 nót, 13 keikar, 16 orður, 19 ás, 20 tifaði, 21 auðs, 22 rið. Lóðrétt: 1 spákona, 2 kál, 3 erfiði, 4 mauk, 5 mun, 6 al, 7 pati, 12 óráði, < 14 ertu, 15 arar, 17 ufs, 19 sið. Gengið Almennt gengi LÍ15. 07. 1999 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenqi Dotlar 74,970 75,360 74,320 Pund 117,530 118,130 117,600 Kan. dollar 50,560 50,870 50,740 Dönsk kr. 10,3010 10,3580 10,3860 Norsk kr 9,3800 9,4310 9,4890 Saensk kr. 8,7260 8,7740 8,8190 Fi. mark 12,8801 12,9575 12,9856 Fra. franki 11,6748 11,7449 11,7704 Belg.franki 1,8984 1,9098 1,9139 Sviss. franki 47,7500 48,0100 48,2800 f Holl. gyllini 34,7511 34,9599 35,0359 Þýskt mark 39,1554 39,3907 39,4763 ít. lira 0,039550 0,03979 0,039870 Aust. sch. 5,5654 5,5988 5,6110 Port. escudo 0,3820 0,3843 0,3851 Spá. peseti 0,4603 0,4630 0,4640 Jap. yen 0,620900 0,62460 0,613200 Irskt pund 97,238 97,822 98,035 SDR 99,790000 100,39000 99,470000 ECU 76,5800 77,0400 77,2100 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.