Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Blaðsíða 22
26
Fréttir
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ1999
Sérblað DV
E)W
HMlR INMMlL^iDE
Miðvikudaginn 21. júií nk. mun veglegt sérblað um ferðir innanlands fylgja DV.
I>V
Frá Hrísey, þar verður mikið um dýrðir um helgina.
DV-mynd gk
Fjolskylduhatið
í Hrísey
DV, Akureyri:
Hrlseyingar efna til mikillar há-
tíðar um helgina undir heitinu
„Fjölskylduhátið fullveldisins" og
verður boðið upp á mjög fjöl-
breytta dagskrá sem stendur frá
föstudagskvöldi til simnudagseftir-
miðdags.
Hríseyjarferjan Sævar verður í fór-
um milli Árskógssands og Hríseyjar
11 sinnum á dag en siglingin tekur
um 15 mínútur. Farþegar fá „vega-
bréf' í öllum ferðum eftir M. 16 á
föstudag en meðal dagskrárliða má
nefna diskótek fyrir ungu kynslóðina,
ökuferð um þorpið fyrir böm, göngu-
ferð með leiðsögn, leiktæki, ökuferð
út í vita, markaðstorg, bátaleigu,
keppni í akstursleikni á dráttarvél-
um, myndlistarsýningu, ratleik, úti-
grill, kvöldvökur á hátíðarpalli,
óvissuferðir, útidansleiki, flugelda-
sýningu, stangaveiðikeppni o. fl. -gk
Eyrnalokkar úr
kvörnum
DV, Vesturlandi:
Tvær hugmyndaríkar konur í
Snæfellsbæ, þær Júlíana Karlsdótt-
ir og Svanhildur EgOsdóttir, hafa
um nokkum tíma verið að fram-
leiða eyrnalokka úr kvörnum.
Kvamir em perluhvítir kalksteinar
sem finnast í haus fiska. Þær gegna
svipuðu hlutverki og innra eyra
mannsins - það er sem jafnvægis-
skynfæri.
Kvamir em einnig mikilvægar
fyrir heymarskyn flska. Allir bein-
fiskar hafa þrjú kvarnapör en
eyrnalokkarnir eru gerðir úr
stærsta parinu sem heitir á latínu
sagitta. Kvamir eru ákaflega mikil-
vægt hjálpartæki í fiskifræðinni því
úr þeim má lesa ýmislegt úr lífsferli
fiska. í kvörnum myndast árhringir
á svipaðan hátt og í trjám sem gerir
mönnum kleift að meta vöxt og ald-
ur einstaklinga. Kvamaeymalokk-
amir verða meðal annars seldir í
Pakkhúsinu i Ólafsvík. -DVÓ
Starfsmenn Fyllingar í stálhólknum, Jósteinn Guðmundsson, Erling Kristinsson, Hrólfur Sigurgeirsson, Ellert Jó-
steinsson og Gauti Þórðarson. DV-mynd Guðfinnur
Strandasýsla:
Flöskuhálsi rutt úr vegl
Umsjón efnis er í höndum Jóns Birgis Péturssonar, blaðam.
DV, í síma 550 5000
Auglýsendum er bent á að hafa samband sem fyrst við
Sigurð Hannesson, auglýsingadeild DV,
í síma 550 5728, netfang: sh@ff.is,
eða Þórð Vagnsson í síma550 5722, netfang: toti@ff.is
JAPISS BBBHEaE
DY Hólmavík:
Allmiklar framkvæmdir í vega-
gerð standa yfir þessar vikumar á
nokkrum stöðum í Strandasýslu.
Fyrirséð er að einn mesti flöskuháls
umferðar nánast við bæjardyr
Hólmvíkinga heyri brátt sögunni
til. Fyrir margt löngu var skilinn
eftir stuttur vegarkafli með aldur-
hniginni brú með nánast vinkil-
beyju beggja vegna þegar hafist var
handa við vegaframkvæmdir við
svonefnd Fellabök við bæina Ytra-
Ós og Innri-Ós.
Nútímavinnubrögð með stálhólk-
um hafa víða tekið við af hefð-
bundnum brúarbyggingum með
steypu frá sökkli til brúargólfs og
hliðarveggja. Svo er einnig að stað-
ið við Ósána. Aðeins sökklar og brú-
arvængir verða steyptir. 7 mm
þykkt stál er í hólknum sem kom í
einingum og er boltaður saman á
staðnum.
Vinnuumhverfi er þægilegt smið- • verður að brú og nýjum vegi á þess-
um og öðrum starfsmönnum þar um stað. Framkvæmdir eru á hendi
sem vatnið er enn fjarri væntan- Fyllingar hf. á Hólmavík. Steypu-
legri rennslisleið og ónáðar því framkvæmdir annast Ásmundur og
ekki. Mikil og góð samgöngubót Ólafur sf. á Hólmavík. -GF
Fenðip innanlands hafa komið út í tæpa tvo áratugi og en löngu búið að festa sig í sessi hjá
lesendum DV sem margir hverjir geyma blaðið sér til upplýsíngar þegar leggja á land undir fót.
Heppinn áskrifandi fær SONY
heim.abíó frá Japis sem er:
Heildarverðmæti vinninga er
700.000 kx.
29" 100 riða sjónvarp
6 hatalarar
ogr auk þess:
var
14" sambyggt sjónvarp og vídeó, ferðageislaspilara fyrir öll börn
og unglinga á heimilinu sem eru yngri en 18 ára.
Dregid 20. ágúst
Auglýsendur,
athugið að auglýsingum
þanf að skila tii DV fynir
föstudaginn 16. júlí.