Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 13 Úr kvennabúri á hóruhús Bestu skáld og lista- menn í Sovétríkjunum og öðrum flokksræðis- löndum nutu mikillar samúðar og athygli heima fyrir og erlend- is. Þau fóru með það hlutverk að segja óþægilegan sannleika í samfélögum sem voru full af hræsni og vald- hroka og sættu ritskoð- un og ýmiss konar of- sóknum - í mjög mis- jöfnum mæli þó, eftir löndum og timabilum. Samt fannst mörg- um kollegum þeirra á Vesturlöndum að aust- antjaldsskáldin væru öfundsverð: lesendur leituðu af kappi og gleði að dulinni merkingu og lævísu háði í verkum þeirra, og valdhafarnir tóku svo mikið mark á þeim að þeir voru tilbúnir að refsa þeim fyrir ljóð og sögur. En Vestur- landabúum fannst það æ meira þreytandi að sigla í tjáningarfrelsi sínu jafnt og þétt burt frá athygli fólks, vekja öngvan áhuga lengur. Afdrif gagnrýninnar. Skáldin létu sig að sjálfsögðu dreyma um þann sæludag þegar öll- um óæskilegum afskiptum af þeirra starfi væri lokið og þau fengju frels- ið dýra sem nóg var af á Vestur- löndum. Síðan hrynur hið komm- úníska flokksræði og þá kemur upp nýr vandi. Frægasta skáld Eistlands, Jan Kaplinski, lýsti þeini vanda á eftirminni- legan hátt í sænskum sjónvárpsþætti sem RÚV sýndi á dögun- um. Hann sagði sem svo: Á Sovéttímunum héldum við sem störf- uðum að eistneskri menningu uppi gagn- rýnni hugsun, andófi gegn hugmyndafræði sem reynt var að þröngva upp á okkur. Nú er verið að þröngva upp á okkur annarri hugmynda- fræði, hugmynda- fræði íjármagnsins og nú bregður svo við að öll gagnrýnin hugsun er gufuð upp. Ég hef, sagði skáldið, lýst þessu svo, að við höfum verið í kvenna- búri og flutt á hóruhús. Við vorum undir Sovétstjóm eins og konur í kvennabúri, okk- ar var vandlega gætt - en við höfðum samt okk- ar gildi og verð- leika. Svo var dyrum búrsins lokið upp og við vomm. frjáls en vissum ekki hvað við ættum við frelsið að gera - og lentum í hóru- húsi þar sem hver selur sig þeim sem kynni að kaupa ( áhorfanda þáttarins skildist að kaupendur væru reyndar af skornum skammti því mun minni peningar færu til menningarlífs nú en áður). Við höf- um þurft að velja á milli nauðgun- ar kvennabúrsins og vændis - og það er ekki skemmtilegt val. Vítahringur? í þáttunum um menningarlíf í Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur „ Vandinn er sá að þetta „eðlilega hlutverk“ bókmenntanna er ekki til. Skáld og listamenn vilja frelsi undan pólitísku valdi ogafskipta- semi og þeir vilja einnig komast bjá því að duttlungar markaðar- ins ráði lífí þeirra og starfí. “ Hvernig standa málin þarna úti hjá ykkur? Eystrasaltslöndunum hafa sum skáld og listamenn sagt sem svo: Áöur var til of mikils ætlast af t.d. bókmenntum, þær áttu að taka að sér alla umræðu sem gat ekki farið fram á öðrum vettvangi. Nú hafa þær sett ofan í vitund manna, en það verður að hafa það því markað- urinn mun sjá til þess að bók- menntir gegni „eðlilegu hlutverki“. Vandinn er sá að þetta „eðlilega hlutverk" bókmenntanna er ekki til. Skáld og listamenn vilja frelsi undan pólitísku valdi og afskipta- semi og þeir vilja einnig komast hjá því að duttlungar markaðarins ráði lífi þeirra og starfi. Þeir vilja hvorki vera með öllu auralausir (hinn sveltandi og misskildi snill- ingur er ekki hátt skrifaður eins og er) né heldur vilja þeir vera áhrifa- lausir og sæta þögn og afskipta- leysi. Þeir vilja vera þeir sjálfir, gera það sem þeim sýnist og láta taka mark á sér - eins og eðlilegt 'er. En þessar eftirsóknarverðu að- stæður liggja ekki á lausu. Ritskoðun er lika svo margvísleg og lúmsk - og mönnum finnst kannski illskárra að fá útgáfubann frá pólitískum varðhundi heldur en markaðssetjara sem segir: nei, vin- ur - þetta selst ekki. í fyrra dæm- inu ertu hetja og píslarvottur, í því seinna barasta aumingi og lúser. Eða eins og segir í gömlu ævin- týri: farir þú til vinstri verðurðu brenndur, farir þú til hægri verð- urðu hengdur og haldir þú beint af augum verður þér kastað fyrir björg. Árni Bergmann Skörungsskapur umhverfisráðherrans Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra lætur fólkið í landinu ekki bíða lengi eftir þeim vinnubrögðum sem hún ætlar að viðhafa. Eitt fyrsta verk hennar var að segja landinu stríð á hendur. Hún hikar ekki við að taka þátt i eyðileggingu um alla framtíð einstæðar nátt- úruperlur á hálendi íslands og það fyrir verra en ekki neitt. Álver í botni fagurs fjarðar með öllum þeim ljótleika og mengun sem fylgir. Allt tal um að litil sem engin mengun fylgi slíkri stóriðju er óábyrgur mál- flutningur, kannski vísvitandi ósannindi og er Hvalfjörðurinn lýsandi dæmi um slíkt. Úrelt vinnubrögð Háttvirtur umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, lét verða sitt fyrsta verk að hafna umhverfis- mati norðan Vatnajökuls því Landsvirkjun hafi þar virkjunar- leyfi frá 1981. Sú stofnun er stein- dauð gagnvart fegurð og við- kvæmni íslenskrar náttúru. Engin grið skulu landinu gefin og þar á bæ er útlendingum sagt að ekkert mál verði að sökkva Eyjabökkum fyrir þá. Blinda Landsvirkjunarmanna snýst rnn þeirra eigið atvinnuör- yggi og því vilja þeir ekki gefa færi á að málið sé hugsað og rætt og hengja hatt sinn á nær 20 ára gamalt vilyrði um virkjun. Fyr- irtæki þetta hef- ur, eftir þessu að dæma, staðið í stað í allan þenn- an tíma. Engar framfarir og vinnubrögð Lands- virkjunar þvi löngu úrelt. Er nokk- uð vit í að láta þvílíkt heimskunn- ar bákn hafa slíkt vald? Allir sem hugsa vita að göng undir Hvalfjörð og brú yfir Gils- fjörð eru allt annað mál í dag en fyrir 20 árum og eins er með virkj- anir. Það verða alltaf til einstaklingar sem láta sér umhverfið i léttu rúmi liggja og sá fyrirsláttur að fólks- flótti sé yfirvofandi á Reyðarfirði vegna fækkandi atvinnu- tækifæra er nánast hlægilegur þegar horft er til þess sem er að gerast á Vestfjörðum og víðar. Allur sá vandræðagangur á rót í aðgerðum stjóm- valda. Umhverfismat norð- an Vatnajökuls verður að eiga sér stað þótt það tefji útlendinga í að gera þá hluti hér sem þeim leyf- ist ekki í heimalandinu. Umhverf- ismat gerir kleift að sjá fyrir hluti sem mönnum var síður mögulegt fyrir 20 árum. Hvar er hugvitið? í Ameríku og víðar eru menn að vakna við vondan draum i um- hverfismálum og sækjast nú eftir að fá að setja upp síðustu leifar úr- eltrar atvinnustarfsemi í öðrum löndum, þ.e. að færa mengunar- vandræði og eyðilegginu lands frá eigin dyrum. Það liggur við að maður trúi ekki eigin eyrum þegar hlustað er á suma ráðherra, íslenska, tala um að bjarga öðrum löndum frá mengun með því að virkja hér allt hvað af tekur og menga. Og svo er tal- að um að flytja út ís- lenskt hugvit! Myndir Ómars Ragnarsonar þann 8 júlí, frá Eyja- bökkum, ættu að ýta við mönnum. Og þeg- ar næstu kynslóðir harma gæfuleysi þjóðarinnar í vali ráðamanna okkar tíma, munu þær lofa menn eins og Ómar. Hvorki Reyðfirðingar eða aðrir íslendingar kæra sig um útlend eða innlend landspillingaröfl. Vanda- málanna í dag er að leita í rangri stjómun og röngum ákvarðanatök- um af ýmsu tagi. Ferðaþjónusta og lítil fyrirtæki henta um allt landið og Vestfirðir gætu blómstrað væru stjórnvöld ekki búin að þvergirða fyrir þá atvinnustarfsemi sem þar gefur best af sér. Það eru fleiri en ég sem vonuðu að nýr umhverfis- ráðherra myndi hugsa. Albert Jensen „Það verða alltaf til einstakiingar sem láta sér umhverfíð í iéttu rúmi liggja og sá fyrirsláttur að fólksfíótti sé yfirvofandi á Reyð- arfirði vegna fækkandi atvinnu- tækifæra er nánast hlægilegur þegar horft er til þess sem er að gerast á Vestfjörðum og viðar.u Kjallarinn Albert Jensen trésmiður Með og á móti Rekstur leikskóla er kostnaöarsamur fyrir sveitarfélögin í landinu. í Reykjavík gengur erfiðlega að manna stöður leikskóiakennara vegna lágra launa og biðlistar á leik- skólana eru langir. Því kann að vakna sú spurning hvort útboð á rekstri leikskóla Reykjavíkurborgar geti breytt stöðunni til batnaðar. Skoða mögu- leika með opnum huga „Markmið með þátttöku borg- arinnar í leikskólarekstri er að sjá til þess að leikskólapláss séu næg og að sú þjónusta sem leik- skólarnir veita sé til fyrir- myndar. Það er ekki aðalat- riði hvernig því markmiði er náð heldur einfaldlega að það sé gert. Kostnaður borgarinnar af þessum mála- flokki hefur stóraukist á undanförnum árum en samt lengjast biðlistarnir jafnt og þétt og æ verr gengur að manna stöður leikskólakennara. Nú þegar niðurgreiðir borgin rekst- ur nokkurra einkarekinna leik- skóla og hefur það sýnt sig í gegnum tíðina að sá rekstur er ódýrari á hvert bam og þar að auki hafa þeir aðilar sem standa að rekstri einkarekinna leik- skóla staðið sig frábærlega í sínu starfi. Reykjavíkurborg er eftirilitsaðili með rekstrinum og getur því vitnað um það. Því sé ég ekkert því til fyrirstöðu að þessi möguleiki, að bjóða út rekstur leikskóla, sé skoðaður með opnum huga.“ Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðis- flokks. Markaðurinn leysir ekki öll vandamál „Ég er ekki þeirrar trúar að MARKAÐURINN leysi öll vandamál. í rauninni vil ég halda markaðnum, lögmálum hans og hefð- bundum mælistikum á t.d. arðsemi burtu frá starf- semi eins og umönnun og kennslu ungra barna. Það er ekki þar með sagt að það eigi ekki að gera kröfur um hagkvæman og markvissan rekstur á leikskólum borgarinn- ar. Þau starfsmannavandamál sem leikskólar í Reykjavík standa frammi fyrir verða ekki leyst með útboðum, meiri hag- ræðingu, skilvirkni, kröfum um aukin afköst o.s.frv. Það er ein- faldlega ekki hægt að ganga lengra eftir þeirri braut en gert hefur verið. Það mun bitna á faglegu starfi leikskólanna og á líðan barnanna okkar. Starfs- fólki á leikskólum hefur tekist að reka stórkostlegt faglegt starf við ótrúlega erfiðar aðstæður og að óbreyttu ástandi hlýtur það að gefast upp. Allir vita hver vandinn er - en þó virðist ekki vera hægt að taka á honum. Stjórnvöld hafa ekki leyfi til að koma sér undan honum með því að bjóða út rekstur leikskóla og ætla öðrum að finna leiðir til að borga hærri laun. Það verða þau að gera sjálf.“ -esig Stefania Trausta- dóttir, í stjórn Leik- skólaráós Reykja- víkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.