Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Page 15
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 15 Verðkönnun í stórmörkuðum: Mikill verðmunur - Bónus lægstur en Nýkaup hæst Samkeppnin á matvörumarkaðnum er afar hörð og sviptingar þar talsverð- ar. Hagsýni kannaði verð á matarkörfu með 15 vörum í sjö stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu. Verslanirnar eru: Bónus, Fjarðarkaup, Hagkaup, Nettó, Nýkaup, Nóatún og 10-11. Verð var kannað samtímis í öllum verslunummi og nákvæmlega sömu vörur keyptar. Vörumar sem eru: 1 kg af rauðri papriku, 1 pakki af Homeblest súkkulaðikexi, 1/2 litri af Egils appel- síni í flösku, 1 lítri af Brazzi appel- sínusafa, 1 lítri af súrmjólk, 567 g Cheerios, 1 kg af tómötum, 1 kg af app- elsínum, 1 pakki af Frón mjólkurkexi, 2 kg af Komax hveiti, einn pakki af Ritzkexi, sveppaostur í öskju (250 g), 1 staukur Pringles kartöfluflögur með salti og Dansukker púðursykur (500 g). Skýrt skal tekið fram að hér er ein- ungis um verðkönnun að ræða og því ekkert tillit tekið til mismunandi gæða og þjónustu verslananna. Einnig skal taka fram að Frón mjólk- urkexfékkstekkií Bónusi og var því tekið meðaltals- verð úr hinum verslunum og sveppaosturinn sem beðið var um fékkst ekki í Nettó og þvi var einnig tekið meðaltals- verð í því tilfelli. Mikill verð- munur Að þessu sinni reyndist matar- karfan ódýrust í Bónusi. Þar kostar karfan 2480 krónur. Næstódýrust reyndist karfan í Nettó þar sem hún kostar 2713 krónur. Þar á eftir koma þijár verslanir á svipuðu róli. Það eru Fjarðarkaup í Hafnarfirði með körfuna á 2805 krónur, Hagkaup með körfuna á 2821 krónu og 10-11 með körfuna á 2855 krónur. Dýrustu búðimar í könnuninni eru siðan Nóatún sem selur sömu körfú á 3079 krónur og Nýkaup sem selur körf- una á 3134 krónur. ' Munurinn á ódýrustu og dýrustu körfunni er rúmlega fjórðungur, eða 26%. Þó virðast hafa dregið saman með ódýrustu og dýrustu búðunum því sem dæmi má nefna að í svipaðri könnun, sem gerð var síðasta haust, var verð- munurinn á ódýmstu og dýrastu körf- unni 47%. Einstakar vörur Þegar einstakar vörur eru skoðað- ar kemur í sumum tilfellum ótrúlega mikill verðmunur í ljós. Head’n’Shoulder sjampó kostar t.d. 199 krónur í Bónusi þar sem það er ódýrast en 279 krónur í Nýkaupi og Nóatúni. Verðmunurinn er 40% Egils appelsín í 1/2 lítra flösku kost- ar síðan 70 krónur í Fjarðarkaupum þar sem það er ódýrast en 98 krónur í Nýkaup og Nóatúni. Verðmunurinn þar er einnig 40% Appelsínur era ódýrastar í Bónus á 97 krónur en dýrastar í Nýkaupi og Hvað kostar matarkarfan? 3500 3000 2500 2000 1500 1000 500 0 ; . .. ■' •v-- •■■■■■ ■ :: vyv "V'- . ITrai Verðmunur á einstökum vörum -hæsta og lægsta verö HS sjampó Egils appelsín 199 kr. 2 a no Nýkaup - Nóatún Appelsínur Nýkaup - Nóatún F^aröarkaup Pringles snakk jX 97 kr. 2 iM & Nýkaup - Nóatún Súrmjólk Nýkaup Cheerios Bónus 10-11, Nýkaup og Nóatún Bónus, Nettó Brazzi appelsínusafi Nýkaup - Nóatún Bónus Dansukker púðursykur Nýkaup - Nóatún * WÁn Bónus Nýkaup - Nóatún Bónus 1 kg rauð papríka Nýkaup - Nóatún 575 kr. Bónus EEE2 Nóatúni á 198 krónur. Verðmunurinn er hvorki meira né minna en 104%. Pringles kartöfluflögur eru ódýrastar í Bónusi á 159 krónur en dýrastar í Nýkaup á 234 krónur. Verðmunurinn er 47% Minnstur var verðmunurinn á ein- um lítra af súrmjólk í könnuninni. Súrmjólkm er ódýrast í Nettó og Bónusi á 92 krónur en dýrast í 10-11, Nýkaupi og Nóatúni á 99 krónur. Munurinn er 7,6%. Talsverður munur var á Cheerios morgunkomi. Ódýrast er það í Bón- usi á 297 krónur en dýrast í Nýkaupi og Nóatúni á 347 krónur. Verðmun- urinn er 16.8% Brazzi appelsínusafi er einnig ódýrastur í Bónusi á 82 krónur en dýrastur í Nýkaupi og Nóatúni á 103 krónur. Munurinn er 25.6% Dansukker púðursykur kostar 61 krónu í Bónusi en 78 krónur í Nýkaupi og Nóatúni. Munurinn er 27,8%. Eitt kiló af rauðri papriku er lika ódýrast í Bónusi á 575 krónur en dýrast í Nýkaupi og Nóatúni á 698 krónur. Verðmunurinn er 21%. Af þessum tölum má sjá að betra er að fylgjast vel með verðlaginu í mat- vöraverslunum ef halda á matarreikn- ingnum í skefjum. -GLM Matarreikningarnir lækkaðir Matarinnkaup era stór útgjaldaliður á flestum heimöum sem margir reyna sifellt að lækka. Ef hagsýnin er höfð að leiðarljósi er auðveldlega hægt að lækka matarreikningana umtalsvert. Hér á eftir fylgja ýmis einfóld ráð sem hafa ber í huga á heimilinu. Engu hent Auðveldlega má komast hjá því að henda mat sem I raun er ekki orðinn skemmdm- heldur e.t.v. bara farinn að láta aðeins á sjá ef þessum einfóldu spamaðarráðum er fylgt: a) Lítið er varið í gúrkur þegar þær eru famar að linast eftir nokkra daga í ísskápnum. Auðveldlega má komast hjá því með því að skera annan endann af gúrkunni og stinga henni í vatn. Þá verður hún aftur stinn og ásjáleg innan stundar. b) Oft er hag- stæðara að kaupa ost í stórum pakkn- ingum en ekki er víst að hægt sé að klára ost- inn á stuttum tíma. Þá er ráð að frysta ost- inn. Hann er þá skorinn í hæfi- lega bita, vafinn í álþynnu og sett- ur í plastpoka. Osturinn þarf að vera frekar feitur til að haldast ferskur í frystinum og þá geymist hann auðveldlega í 3-4 mán- uði. c) Það er skömm að sjá nálega heila sítrónu þorna upp þegar ein einasta sneið hefur verið skorin af henni. Réttara er að pressa safann úr henni og búa til sítrónu- ísmola. Þegar þig vantar næst sítrónusafa seilist þú eftir sítrónuismola í frystinn. Gott er að nota ísmolaform úr plasti. d) Annað spamaðarráð sem kemur í veg fyrir að henda þurfi heilum sítrón- um er að stinga grófri nál í sítrónuna og kreista úr henni svolítið af safanum. Gatið lokast fljótlega aftur og sítrónan heldur afganginum af safanum í sér. e) Oft verða eftir smásopar í rjóma- fernunum sem venjulega er hent. Betra er að hella þeim í ísmolamót og frysta. Þá er þægúegt og ódýrt að grípa til þeirra ef þig vantar smá ijómaslettu í sósur eða súpur. f) Flysjuð epli og perur verða fljótt brún. Ekki er ástæða til að henda þeim þrátt fyrir það. Gamalt húsráð er að nota edik, en C-vítamíntöflur virka þó enn betur. Tíu litlar C-vítamíntöflur era leystar upp í volgu vatni og þvi síð- an hellt í skál með köldu vatni. Flysjað- ir ávextimir era síðan settir í vatnið. Hentar líka ávöxtum sem á að frysta. -GLM Ef hagsýnin er höfð að leiðarljósi er vel hægt að lækka matarreikninga fjöl- skyldunnar umtalsvert. Leigjum borð, stóla, ofna o.fl. Tjaldaleigan Skemmtilegt hf. Dalbrekku 22 - sími 544 5990 , Foxafeni 8 Dömupeysur tvœr fyrir eina Herrabolir tveir fyrir einn Opið. Mán - Fi Fö Lau Su 10-18 10-19 10-18 12-17 NÝJAR VÖRUR DAGLEGA Á FRÁBÆRU VERÐI BOSCH Handverkfæri fagmannsins! VERÐ- ÆKKU //a'i Hleðsluborvél GSR 12 VE-2 ATH! 47 Nm andslípivél GVS 350 AE Stmgsog GST100 Slipirokkur GWS14-125C Þjonustumiðstöð i hjanta borganinnap — BRÆÐURNIR Fræsari GOF900A m \ í Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820 BOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut *^* Hefill GHO 31-82 FD Lofthoggborvel GBH 2-24 DSR Velsog GKS 54 Soluaðilar: Velaverkstæðið Vikingur, Egilsstoðum.Velar og þjonusta, Akureyri. Véismiðja Hornafjarðar, Hornafirði. Hegri, Sauðárkróki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.