Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
17
Spár verðbréfafyrirtækja:
Hvaða hlutabréf
gefa mest?
Fjárfestu i
húsbréfa-
Hlutabréfaeign almennings hefur
aukist jafnt og þétt undanfarin ár.
Bæöi er fólk að kaupa í einstökum fé-
lögum og í hlutabréfasjóðum. í kjöifar-
ið hefur áhugi á fróðleik og sérfræðiá-
liti stóraukist. Upplýsingar fyrir al-
menna fjárfesta verða sífellt betri og
fjármálastofnanir leggja mikinn metn-
að í greiningu sína. Eðli málsins sam-
kvæmt er um spá að ræða og áhuga-
vert getur verið að bera þær saman.
Með slíkum samanbm'ði er hægt að
gefa fólki vísbendingu um hvar pening-
um þeirra er best borgið. Rétt er að
benda fólki á að á heimasíðum verð-
bréfafyrirtækja er að fmna þessar spár.
En við hverju er að búast bæði hjá
einstökum geirum og fyrirtækjum?
Sjávarútvegur
Afkoma sjávarútvegsins í heild sinni
hefur verið léleg bæði á þessu ári og
því síðasta. Hins vegar hafa skráð fyr-
irtæki á Verðbréfaþingi jafnan staðið
sig betur en önnur. Fyrirtæki sem stóla
á uppsjávarfisk og mjöl eiga erfiða tima
framundan en bolfiskvinnsla hefur
gengið vel. Flest verðbréfafyrirtækin
gera ekki ráð fyrir miklum hækkunum
í sjávarútvegi á seinni hluta þessa árs.
Það sem af er árinu hefur vísitala sjáv-
arútvegs lækkað.
Fjármálastarfsemi
Fjármálastarfsemi er vábatasöm.
Bankar og verðbréfafyrirtæki hafa
hagnast vel, eigendur bréfa í þessum
fyrirtækjum líka. F&M telja að bankar
og fjármálastofnanir muni halda áfram
að hækka í verði á þessu ári. FBA tel-
ur að hagræða þurfl í rekstri og að
áframhaldandi hagnaður þurfi í aukn-
um mæli að koma fram i hagræðingu í
rekstri. Fjármálafyrirtæki ættu því að
vera góður kostur, sérstaklega til
skemmri tima litið.
Upplýsingatækni
Vöxtur tölvu- og tæknifyrirtækja
virðist engan endi ætla að taka. Frá
áramótum hefur vísitala í þessum
geira hækkað um 48,22% og því geta
eigendur hlutabréfa brosað breitt.
Flestir sérfræðingar telja hins vegar að
verð bréfanna sé nokkuð hátt og gengi
sumra þeirra gæti því lækkað á seinni
hluta ársins. Hins vegar eru gríðarleg-
ir vaxamöguleikar innan þessa geira
og því líklegt að um góða langtíma Qár-
festingu sé að ræða.
Flutningastarfsemi
Þar sem ágætar efnahagshorfúr eru
áfram er líklegt að umsvif í þjóðfélag-
inu komi til með að aukast áfram. Það
kallar á meiri vöru- og fólksflutninga.
Þess vegna búast flest öll verðbéfafyrir-
tækin við því að afkoma Eimskips og
Flugleiða verði sæmileg. Búst er við
hægum vexti hjá Eimskip á þessu ári
en mun minna tapi hjá Flugleiðum en
i fyrra. Það er því tæpast hægt að mæla
með bréfum i þessum fyritækjum
nema fyrir fjárfesta með langtíma sjón-
armið að leiðarljósi.
Olíudreifing
Olíufyrirtækin halda áfram sínu
striki. Afkoma þeirra var þokkaleg á
síðasta ári og þrátt fyrir minnkandi
tekjur sýndu öll fyrirtækin aukna
framlegð. Horfur á þessu ári eru góðar
þrátt fýrir hækkandi olíuverð en þeim
hækkunum er fleytt yfir á neytendur.
F&M telur ekki líklegt að frekari
hækkanir verði á þessu ári en FBA ger-
ir ráð fyrir áframhaldandi hagræðingu
í rekstri félaganna. Flestir virðast sam-
mála um að ef bréfin eiga að hækka í
verði þurfi að koma tO betra innra
skipulag félaganna.
Nóg að gera
Bygginga- og verktakafyrirtæki hafa
nóg að gera um þessar mundir. Meðan
svo er bendir ekkert til annars en að af-
koma þeirra verði góð á árinu og að
það endurspeglist í gengishækkunum.
Aðeins eru tvö fyrirtæki i þessum
geira skráð, íslenskir aðalverktakar og
Jarðboranir íslands. Afkoma þeirra er
mjög háð hagsveiflunni en á meðan allt
liggur upp á við í þeim efnum er óhætt
að mæla með bréfum þessara fyrir-
tækja.
Verslun og iðnaður
Innan þessa geira eru mjög ólík fyr-
irtæki. Almennt eru sérfræðingar sam-
mála um að horfur séu góðar til dæm-
is hjá Sæplasti hf. og Marel og mæla
með kaupum í þeim. Innan lyQaiðnað-
ar eru veruleg sóknarfæri og svigrúm
til hækkana. Hins vegar einkenna
sveiflur þessa starfssemi en langtíma-
horfur eru góðar. í verslun ber Baugur
höfuð og herðar yfir önnur fyrirtæki.
Frá skráningu hafa bréfin lækkað en
afkoma á þessu ári ætti að vera góð.
Almennt má segja að hlutabréfakaup
séu langtímafjárfesting. Fyrir þá sem
ekki hafa tíma og þekkingu til að fylg-
ast vel með eru hlutabréfasjóðir betri
og öruggari kostur. Aldrei er skynsam-
legt að setja öll eggin í sömu körfuna og
því borgar sig að dreifa áhættimni.
Unnið upp úr spám verðbréfafyr-
irtækjanna um milliuppgjör. -bmg
Hlutabréf geta gefið góða ávöxtun
en geta jafnframt verið áhættusöm
Margir fjárfestingarráðgjafar
hafa bent á að þrátt fyrir háa
vexti hér á landi séu langtíma-
vextir hér á landi lágir og hafi
lækkað verulega undanfarin
misseri. Almennt er talið að vext-
ir á langtímamarkaði muni halda
áfram að lækka vegna minnk-
andi framboðs skuldabréfa og
lækkandi vaxta í heiminum al-
mennt. Hins vegar hafa húsbréf
ekki lækkað jafnmikið og löng
skuldabréf. Við þær aðstæður
mæla margir sérfræðingar með
því að fólk fjárfesti í fjárfest-
ingarsjóðum sem samanstandi af
húsbréfum. Nánast öll verðbréfa-
fyrirtæki bjóða upp á slíka sjóði
og áhugavert er að líta nánar á
þennan kost.
-bmg
fjárfesting. Á einu ári hefur gengi
margra fyrirtækja hækkað verulega
og skilað eig-
endum sín-
um veruleg-
um gengis-
hagnaði. Á
sama hátt
hafa mörg
fyr irtæki
lækkað veru-
lega og eig-
endur þeirra
hafa tapað
verulegum
fjármunum.
Rétt er að
minna á að
fjárfesting í
hlutabréfum
er háð mik-
illi óvissu og
rétt að fara
sér gætilega
í þeim efn-
um. Þess ber
að geta að í
þssum tölum
hefur verið
tekið tillit til
arðgreiðslna
og útgáfu
jöfnunar-
hlutabréfa.
-bmg
Besta ávöxtun
- frá 1. júlí 1998 til 1. júlí 1999
1 Hampiðjan hf. 206,08%
2 Skeljungur hf. 176,10%
3 Nýherji hf. 174,84%
4 Opin kerfi hf. 157,12%
5 Skagstrendingur hf. 146,91%
6 Þorbjörn hf. 120,85%
7 SR-mjöl hf. 94,96%
8 Tæknival hf. 87,35%
9 Marel hf. 75,40%
10 Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. 50,00%
11 Lyfjaverslun íslands hf. 44,01%
12 Þróunarfélag íslands hf. 39,20%
13 Flugleiðir hf. 29,90%
14 Jarðboranir hf. 29,56%
15 OLÍS hf. 28,10%
Versta ávöxtun
- frá 1. júli 1998 til 1. júlí 1999
1 Hraðfrystihús Þórshafnar hf. -43,55%
2 Tangi hf. -36,45%
3 Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. -35,14%
4 fslenskar sjávarafuröir hf. -34,69%
5 Síldarvinnslan hf. -32,68%
6 Haraldur Böðvarsson hf. -29,51%
7 Hraöfrystihús Eskifjarðar hf. -28,27%
8 Samvinnusjóöur fslands hf. -25,31%
9 Básafell hf. -20,93%
10 íslenskajárnblendifélagiö hf. -13,43%
11 Þormóöur rammi hf. -11,89%
12 Baugur hf. -0,10%
13 Landsbankinn hf. 2,72%
14 Eignarhaldsfélag Alþýðubankans hf. 3,98%
15 Pharmaco hf. 4,72%
irrra
Hægt að hagn
ast verulega
Nýjustu ISDN-símstöðvarnarfrá Siemens hafa svo
sannarlega hitt í mark hérlendis. Því bera frábærar
viðtökur viðskiptavina okkar órækt vitni.
Fjölbreyttir möguleikar kerfanna, s.s. tölvutengingar,
talhólf, sjálfvirk svörun, beint innval, þráðlausar
lausnir og margt fleira, nýtast breiðum hópi notenda
allt frá einstaklingum upp í stærstu fyrirtæki og
stofnanir landsins.
Við bjóðum afbragðsbúnað, fyrsta flokks þjónustu
og hagstætt verð. Láttu í þér heyra. Fáðu verðtilboð.
Það margborgar sig.
SIEMENS
m 1
» aoia - S0B öteö *w n* •* i *• * ■* ;
SSB m ■* ' >mi A
*... það gerðu þau:
• Gula línan • Sjúkrahús Reykjavíkur
• Ríkisútvarp-Sjónvarp
• Félagsþjónustan í Reykjavík
• Skeljungur* ÍSAL* íslenskir aðalverktakar
• Flugmálastjórn • Ræsir hf • Domus Medica
• Mjólkursamsalan • Hallgrímskirkja
• Grímsneshreppur • Magnús Kjaran
• Hótel Keflavík • Rafiðnaðarskólinn
• Sameinaði lifeyrissjóðurinn
• St Jósepsspitali • Taugagreining
•Tölvu- og verkfræðiþjónustan
• Dagvist barna • Rauði kross íslands
• Plastprent • Ölgerð Egils Skallagríms
• íslensk miðlun hf.
o.fl. o.fl.
SMITH &
NORLAND
V
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is