Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Page 19
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
23
DV
Kennslu hætt í
skólanum að
_________Fréttir
framhalds-
Skógum
- einn
Sú ákvörðun var tekin í síðustu
viku að hætta starfsemi framhalds-
skólans í Skógmn undir Eyjafjöllum.
Þar hefur undanfarin ár verið starf-
ræktur framhaldsskóli með bóknáms-
braut og hestabraut, nemendum við
skólann hefur fækkað önn frá önn og
nú í vor sóttu aðeins 18 um skólavist
og þar af höfðu aðeins 11 staðfest um-
sóknir sínar.
í vor kom upp sú hugmynd að sam-
eina skólann Lýðskólanum í Reykja-
vík en um það náðust ekki samningar
svo að af því varð ekki. í Skógum var
stofnaður héraðsskóli 1949. Skóga-
skóli var síðasti héraðsskólinn sem
stofnsettur var en alls voru héraðs-
skólarnir 8 talsins um allt land. Nú er
aðeins kennt í einum þeirra, á Laug-
um í Þingeyjarsýslu, þar sem rekin er
framhaldsskóli. Við héraðsskólann í
Skógum var framhaldsbraut frá 1974
og 1991 var hann gerður að framhalds-
skóla. Það er því eftir miklar breyt-
ingar og á 50 ára afmælisári Skóga-
skóla sem formlegt skólahald leggst af
í gamla héraðsskólanum í Skógum.
Of fáir umsækendur
um skólavist
„Ástæðan er einfaldlega sú að í vor
voru of fáir nemendur sem sóttu um
til að hægt væri að halda áfram með
skólann. Aðeins 18 sóttu um og af
þeim voru 11 búnir að staðfesta að
þeir kæmu. Ég vil þó taka það fram að
öllum sem sóttu um í Skógum hefur
verið tryggð skólavist annars staðar,"
sagði Drífa Hjartardóttir á Keldum,
formaður skólanefndar. Hún sagði að
ýmsir möguleikar væru til að nýta
húsin í Skógum.
„Það hefur verið rætt um að hús-
næðið muni nýtast í þágu Byggða-
safnsins í framtíðinni. Það verður
lögð áhersla á að það verði menning-
arstarfsemi í húsinu sem tengist safn-
inu. Það mun geta nýst vel til kennslu
i þjóðháttafræði, einnig mætti nýta
húsið til hótelreksturs lengri tíma af
árinu en nú er. Byggðasafnið í Skóg-
um er einn vinsælasti viðkomustaður
þeirra sem koma á Suðurland og það
skiptir miklu máli fyrir byggðirnar
sem að því standa, bæði menningar-
lega og atvinnulega,
í byggðasafniö koma árlega um
40.000 manns og mikilvægi þess fyrir
byggðimar sem að því standa er ótvi-
rætt,“ sagði Drífa.
Reiðarslag
fyrir sveitarfélagið
„Við höfum verið vitandi um að
þetta gæti gerst og ræddum það á
fundi í vor. Ef af verður að engin
starfsemi verði í skólanum er það
reiðarslag fyrir sveitarfélagið. Þar
hafa um 11 manns haft atvinnu sína,
svo að þetta er gríðarlegt áfall fyrir
okkur ef ekkert kemur í staðinn en
við vonum að það gerist," sagði Mar-
grét Einarsdóttir, oddviti A-Eyjafjalla-
hrepps.
Hún segir að menn ætli ekki að gef-
ast upp þó á móti blási. „Það eru í
gangi viðræður um að byggðasafnið
yfirtaki húsnæði skólans og þar verði
komið á fót þjóðháttakennslu og nám-
skeiðum í samstarfi við háskólann,
sem er mjög gott mál. Það verður að
viðurkennast að þetta er búinn að
vera mikill bamingur með Skóga-
skóla og alveg með ólíkindum hvað
þessu hefur lengi verið haldið gang-
andi svo þetta á ekki að koma neinum
á óvart,“ sagði Margrét.
Virði ráðherra
fyrir ákvörðunina
„Ég held að ákvörðun ráðherra að
samþykkja ekki þessa nýju braut hafi
verið skynsamleg og rétt, þó að hug-
myndin um að reyna að bjarga skóla-
starfinu með sameiningu við lýðskól-
ann í Reykjavík hafi verið góð, alveg
þess verð að reyna hana en þá kom í
ljós að það þurfti miklu meira tú.
Þetta var ókynnt og það vora engir
héraðsskóli þá eftir af átta sem stofnaðir voru
Skógaskóli - sögu hans sem menntastofnunar virðist nú lokið.
Guðmundur Sæmundsson skóla-
meistari.
nemendur sem fylgdu með. Það þurfti
að kynna skólann upp á nýtt og tveir
mánuðir til þess var allt of skammur
tími til þess að það hefði tekist. Með
þessari ákvörðun firrti ráðherra okk-
ur þeim vandræðum að standa með
allt niður um okkur í septemberbyrj-
un. Ef þetta hefði dregist fram á
haustið hefðum við verið búin að setja
þá krakka sem sóttu um til okkar í al-
ger vandræði.
Það hefði verið erfitt að hringja í
þessa krakka í lokin og tilkynna þeim
að það yrði ekki skóli. Ég tel að þetta
hafi verið hárrétt ákvörðun og virði
Drífa Hjartardóttir alþingismaður.
Fréttaljós
Njörður Helgason
ráðherra fyrir að hafa gengið svona
hreint til vérks í stað þess að láta
þetta dankast," sagði Guðmundur Sæ-
mundsson, skólameistari í Skógum.
í vor komu upp hugmyndir um að
sameina Framhaldsskólann í Skógum
Lýðskólanum í Reykjavík en Guð-
mundur sagði aö þær hefðu fallið í
grýttan jarðveg hjá kennurum skól-
ans.
„Ég er ekki að segja að þessi hug-
mynd hafi verið vond. Hún var
ábyggilega góðra gjalda verð hjá
skólanefndinni að reyna þetta en bara
því miður þá komst málið ekki á það
stig að það væri hægt að treysta á það.
Þetta hefði þurft að koma fyrr og það
hefði þurft að liggja fyrir að ákveðinn
fjöldi nemenda vildi koma í þannig
skóla sem hugmyndin snerist um,“
sagði Guðmrmdur.
Eyfellingar á miklum
tímamótum
í kringum Skógaskóla hefur byggst
upp sá byggðakjarni sem er í Skógum
og fjölmargir hafa haft atvinnu sína af
skólanum og starfsemi honum
tengdri. Þá er það víst að ef engin
starfsemi verður í skólanum verður
sveitarfélagið af miklum tekjum og at-
vinnulíf verður fábrotnara. í skólan-
um hefur verið rekið vinsælt Eddu-
hótel yfir sumartímann til margra ára
og ef til vill verður hægt að hafa það
opið lengur vor og haust. Þá er
Byggðasafnið í Skógum eitt fjöl-
sóttasta safn landsins og mikill vilji er
fyrir því að koma á fót starfsemi í
skólahúsinu sem gæti tengst því á ein-
hvern hátt. Það er enn á viðræðustigi
og hver niðurstaðan verður á eftir að
koma í Ijós.
Shower
Shows
Most elegant
erotic club in
Reykjavík
BRAUTARHOLTI 20
SÍMI 552 8100
www.thorscafe.com
Nýir dansarar
frástærstu
klúbbum
Englands:
Stringfellow's
Venus
Astro
Big dreams in
a small city