Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Side 21
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 25 Þeir búa þar sem hjarta Reykjavíkur slær sterkast. Þeir búa í áratugagömlum húsum sem luma á leyndarmálum forvera þeirra. Þeir búa í miðbænum. •••••• •-• •••••••••• lllugi Jökulsson þekkir ekki úthverfatilfinninguna: Háður Lauga- vegsrápinu Illugi Jökulsson hef- ur búið í miðbænum í 11 ár. „Þar áður hafði ég búið hér og þar í bænum; meðal annars í miðbænum. En ég er al- inn upp í vesturbæn- um.“ Illugi er spurður hvort hann gæti hugsað sér að búa í úthverfi. „Nei. Mér hefur ein- hvern veginn aldrei dott- ið það í hug. Ég veit ekki hvemig tilfinning það er að búa í úthverfi." Illuga flnnst að mörgu leyti þægilegt að búa í miðbænum. „Það er stutt að rápa um götur ef mað- ur hefur þörf fyrir það og það er stutt í ágætar bókabúðir. Ég fer yfir- leitt í bókabúðir einu sinni á dag og þá aðal- lega í Mál og menningu og Eymundsson í Aust- urstræti. Ég kaupi oftast eitthvað en skoða þeim mun meira til að athuga hvort eitthvað hafi breyst frá deginum áður.“ Illugi spáir meira í vegfarenduma í miðbænum heldur en húsin. Sumir vegfarendur kveikja hjá honum anda- gift. „Að því marki sem ég skrifa sög- ur.“ Hann er spurður hvort hann sé með bók i smíðum. „Já, já,“ segir hann hikandi og bætir við að hann viti ekki hvort hún verði fyrir full- orðna eða böm. Illugi neitar því að hann sé mið- bæjarrotta. „Ættum við ekki frekar að tala um kött. Maður er orðinn háð- ur því að fara alltaf út einu sinni á dag og rápa upp og niður Laugaveg- inn og eitthvað niður í bæ. Það er þægilegt að geta það.“ Hann gengm- stundum úti í náttúr- Maður er orðinn háður því að fara alltaf út einu sinni á dag og rápa upp og niður Laugaveginn og eitthvað niður í bæ. Það er þægilegt að geta það.“ DV-mynd E.OI. unni. „Ég er ekki mjög gefinn fyrir ferðalög. En ef ég mjakast úr sporun- um þá er það voða gaman. Ég verð reyndar alltaf jafn hissa á því þegar ég kemst út fyrir Reykjavík hvað það er mikill léttir að losna héðan. En að eigin framkvæði þá fer ég ekki víða.“ Þótt kostimir við að búa í miðbæn- um séu margir era gallamir líka til. „Menn nota til dæmis garðana fyrir klósett. Einu sinni gerðist það 17. júní að slagsmál bratust út uppi á þakinu hjá mér. Þegar ég stökk út á þak til að reyna að skakka leikinn sprautaði einn táragasi upp i augun á mér. Það er því ýmislegt sem kemur upp á.“ -SJ „Það getur verið ákaflega gott að rölta hér um. Ég sé alltaf hlutina í nýju Ijósi." DV-mynd E.ÓI. Arnar Jónsson leikari hefur búið í Þingholtunum í tæp 30 ár: Kvöldganga um hverfið Eg hef búið í Þingholtun- um í tæp 30 ár,“ segir Arnar Jónsson leikari sem ásamt eiginkonu sinni, Þórhildi Þorleifsdóttur leikkonu, rekur gistiheimili á sumrin á heimilinu. „Við vild- um vera nálægt miðbænum; annaðhvort rétt austan eða vestan megin við lækinn. Ég vinn við leikhús og Leikfélag Reykjavíkur var niðri við Tjörn og Þjóðleikhúsið er í Skuggahverfinu. Það lá því í augum uppi að það var mjög þægilegt að búa á þessu svæði.“ Arnar segir að fjöl- breytileikinn sé mest heillandi við Þingholtin. „Þá á ég við fjölbreytileik- ann í öllu, bæði í húsakosti og í mannlífinu. Hér er og hefur verið ansi skrautlegt hvað varðar mannlíf. Svo þarf ekki nema að ganga um Þingholtin og þá er Erlingur Gíslason leikari lák sár í Hljómskálagarðinum: Heimalningur í Þingholtunum Þingholtsstræti. Öldugata. Guðrúnargata. Baldursgata. Bergstaðastræti. Laufásveg- ur. Landfræðileg ævisaga Erlings Gíslasonar leikara er ekki mikil. „Þegar maður setur mið- punkt og dregur hring utan um hann þá hefur maður ekki farið langt." Hann kímir. Erlingur er spurður hvort ekki hafi annað komið til greina en að búa í miðbænum þegar hann flutti úr foreldrahúsum. „Ég held ég hafi ekkert hugsað sérstaklega um það. Þetta bara varð svona.“ Hann er heimalningur í Þing- holtunum. „Þótt ýmislegt sé að miðbænum að finna þá þykir mönnum gottast um sitt, eins og einhvern tímann var sagt.“ Þegar hann var að alast upp voru Tjörnin og Hljómskálagarður- inn honum mikils virði. „Þetta var mikill lúxus.“ Hann renndi sér á skautum á Tjörninni þegar ís lagði en veiddi homsíli á sumrin sem hann setti í krukku og vildi ala sem gullfiska. Fótboltaleikir voru haldnir í garðinum. „Þegar ég var smádrengur var þar stór og mikil milli orrusta á Holtastráka og stráka úr Vestur- bænum. Bardaga- vopnin voru trésverð og var þetta allt að því mannskæður bar- dagi sem mættist i miðjum Hljóm- skálagarðinum." Mikið vatn hefur runnið til sjáv- ar frá því Erlingur var sendill í bakaríi við Bergstaðastræti. Þá fannst honum Norðurmýrin vera lengst fyrir utan bæinn. Hann tel- ur að það sé jafn gott fyrir börn að alast upp í miðbænum í dag eins hægt að lesa sögu borgar- innar sem blasir við nánast úr hverju skoti. Maður sér hvemig byggingarlist- in breytist, mað- ur les úr hús- unum mistök og alls kon- ákvarðanir sem teknar hafa verið. Eftir stendur til dæmis á einum stað mikill húsgafl sem greinilega hefur átt að byggja við einhvern tímann." Útsýnið skipti líka máli þegar hjónin festu kaup á húsinu en þeg- ar skyggni er gott geta þau virt fyrir sér Snæfellsjökul. „Við sjáum líka Esjuna og Keili.“ Arnar vinnur á kvöldin og áður en hann fer heim eftir leiksýning- ar fær hann sér stundum kvöld- göngu um hverfið. „Það getur ver- ið ákaflega gott að rölta hér um. Ég sé alltaf hlutina í nýju ljósi. -SJ „Þegar maður setur miöpunkt og dregur hring utan um hann þá hefur maður ekki fariö langt." DV-mynd E.ÓI. og þegar hann renndi sér á skaut- um á Tjörninni og veiddi þar homsíli. „Umferðin er að vísu þéttari en hún var nú líka hættuleg í mínum uppvexti, sérstaklega vegna stríðsáranna en götumar voru ekki undir það búnar að taka við um- ferð hersins. Umferðarslys voru þá engan veginn sjald- gæf.“ -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.