Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 27 Sviðsljós Dalen jarðvinnusög Fraser vill enga nema Afton Elskhugi númer, eitt í Hollywood, Brendan Fraser, sem lék i Múmíunni, segir kvik- myndaborgina fulla af fallegum konum. Hann vill samt enga aðra en Afton, konu sína. Þau kynnt- ust í garðveislu þar sem hann þekkti ekki sálu. Lítill hundur kom til Frasers í veislunni og þefaði af honum. Eigandinn kom á hæla hundsins og Fraser vissi um leið að þar var komin konan sem hann vildi giftast. Nú er Afton sem sé orðin eiginkona Fra- sers. Hún hefur reynt fyrir sér í kvikmyndabransanum en ekki verið jafnheppin og eiginmaður- inn sem fullyrt er að verði nýr Harrison Ford eða Cary Grant. Sinead O'Connor á von á barni Hin umdeilda írska söngkona, Sinead O’Connor, sem óháður kaþólskur biskup vígði til prests í óþökk kaþólsku kirkjunnar, er nú sögð eiga von á barni, þó svo að hún hafi unnið skirlífisheit um leið og hún var vigð. Það er blaða- maður og vinur söngkonunnar, sem var viðstaddur prestsvígsl- una í Lourdes í Frakklandi, sem kveðst vera faðirinn. „Það er von á barninu í byrjun næsta árs. Við erum bæði mjög hamingjusöm," segir blaðamaðurinn er heitir Michael Cox. Will Smith í milljóna- klúbbinn Leikaranum Will Smith hafa verið boðnar 20 milljónir dollara fyrir að leika Muhammed Ali í nýrri kvikmynd. Þar með er Smith kominn í flottan klúbb. Hann verður nefnilega félagi í 20 milljóna strákaklúbbnum sem í eru auk annarra Jim Carrey, Adam Sandler og John Travolta. Smith segist stoltur yfir því að Ali skuli hafa viljað fá hann í hlutverkið. Hjásvæfa Nicholsons fullyrðir: Heilasködduð eftir nótt losta Jack Nicholson gæti verið í vond- um málum þessa dagana. Fyrrum hjásvæfa leikarans held- ur því nefnilega fram að hún þjáist af heilaskaða eftir að Nicholson sló hana ítrekað í gólflð. Konan, Catherine Sheehan, 36 ára, sættist reyndar á hálfa milljón króna úr hendi Nichol- sons í fyrra gegn því að láta málið niður falla. Nú hafa lögfræðingar hins vegar fengið pata af málinu og eru víst búnir að sannfæra ungfrú Sheehan að hún geti rúið leikarann inn að skinni. í blaðinu News of the World lýsir Sheehan atburðinum á þá leið að kvöld eitt hafi hún ásamt vinkonu sinni þegið heimboð Nicholsons. Allt hafi verið í stakasta lagi og þre- menningarnir skemmt sér vel eða þar til Sheehan krafði Nicholson um 60 þúsund krónur sem hann á að hafa heitið henni að launum. Nicholson mun hafa orðið æfur og segir Sheehan hann þá hafa ráðist að sér og slegið sig ítrekað í gólf- ið. Eftir atburðinn hafi hún síðan farið að frnna fyrir minnisleysi auk þess að vera með stöðugan höfuðverk. Lögfræðingar Sheeh- an eru staðráðnir í að hafa sem mest fé af Nicholson en af því á hann nóg. Hvað Nicholson sjálfan snertir þá segir hann málið uppspuna og er það mat sumra að lögfræðingunum muni reynast það hægara sagt en gert að sanna að meintar heilaskemmdir séu af völdum leikarans. Jack Nicholson Getur sagað niður á 1 metradýpi, 35 til 40 sm , breiðan skurð. , Ástand vélar gott. Á sama stað Bo Bcat 120 mínigrafa, 1,4 tonn, árg. ‘89, í mjög góðu standi. Upplýsingar í símum 421 2564 / 892 0364. /---------------------------\ DRATTARBEISU - DRÁTTARBBSLI Subaru, Daewoo, Galloper, Toyota, Opel, Mitsubishi, Volvo. Sœnsk gœðavara á góðu verði. Takmarkað magn. V Fjaðrabúðin Partur Eldshöfða 10, Reykjavík, símar 567 8757, 587 3720. J Nicole Kidman og Tom Cruise koma til forsýningar á síðustu kvikmynd leikstjórans Stanleys Kubricks, Eyes Wide Shut, í Los Angeles í gær. Þau Kidman og Cruise fara með aðalhlutverkin í myndinni. Símamynd Reuter Þelr flska sem róa... Þelr ílska sem róa... Þelr liska sem róa... Þelr wwwvisir is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR Ljósahlífar á flestar tegundir bifreiða Karl prins setur á laggimar keðju grænmetisstaða Karl Bretaprins íhugar nú að opna veitingastaði þar sem ein- göngu verður boðið upp á lífrænt ræktað grænmeti. Búist er við harðri gagnrýni úr herbúðum þeirra sem fram- leiða erfðabreytt matvæli. Prins- inn hefur áður vakið reiði fyrr- nefndra aðila með gagnrýni á ei-fðabreyttan mat. Karl og ráðgjafar hans hafa haldið leyndum áætlununum. Blaðið Sunday People upplýsir að fyrsti staðurinn verði ef til vill opnaður í Chelsea Harbour eða Battersea í London. Fram- kvæmdastjóri prinsins segir að málið sé í athugun en neitar að tjá sig frekar um það. Græn- metisætur eru þegar farnar að hlakka til að snæða hjá Karli. * -r < *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.