Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Síða 29
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 33 Myndasögur £ > ffi T3 £ :0 w -<D u TJ £ <! • rH "(Ö Ö) O £ w <f-l h£ •i—I & Ö) •i—I in Veiðin hefur verið í lagi í Elliðaánum en þeir Jón Þ. Einarsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Haukur Leósson voru með fjóra laxa úr ánni fyrir fáum dög- um. Áin nálgast óðfluga 200. laxinn. DV-mynd S Norðurá: Mikið af fiski í ánni Vatnavextir í veiðiánum hafa sett veiðimenn aðeins út af laginu en koma vonandi til góða næstu daga þegar vatnið minnkar og fiskur kem- ur í stórstrauminn sem var í gærdag. En það getur verið ansi erfltt að veiða þegar alltof mikið vatn er í ánum og erfitt að flnna fiskinn. En það verður ekki á allt kosið. „Þetta var skemmtilegt þrátt fyrir mikið vatn og flóð, það er nefnilega mikið af flski víða í ánni. Ég veiddi lax í Kríuhólmanum í drullumallinu,“ sagði Bjarni Júlíusson sem var að koma úr „drullu“-hollinu í Norðurá í Umsjón GunnarBender Borgarflrði. Veiðst hafa yfir 900 laxar og veiðimenn segja mikið af flski víða í ánni. „Stöngin mín veiddi 13 laxa og mað- ur getur verið hress með það, miðað við aðstæður. Það gæti orðið og verð- ur örugglega góð veiði þegar vatnið dettur niður í ánni, það var byrjað að minnka verulega þegar ég fór heim,“ sagði Bjarni enn fremur. Norðurá var öll að koma til seinni partinn í gær sögðu mér veiðimenn sem voru að veiða í Ferjuhylnum. Þeir veiddu lax um leið og áin komst í sitt rétta form. Og laxinn er byrjaður að veiðast í Hrútafjarðará, einn af öðrum taka þeir í ánni en einhverjir tugir fiska hafa veiðst. Það er bara flugan sem er boðin fiskum í Hrútafjarðará. Stangarþjófnaðurinn: Váleg tíðindi „Þetta hefur ekki gerst áður, svo ég viti, við íslenskar veiðiár að stangir og hjól séu tekin af bílum og við veiði- hús,“ sagði Þröstur Elliðason, leigu- taki Ytri-Rangár, en eins og við greindum fyrstir frá á Visir.is var stöngum stolið við ána fyrir þremur dögum en það hefur ekki gerst áður við laxveiðiár svo vitað sé, eigur ann- arra hafa verið látnar vera og svoleið- is á það að vera. En þessi tíðindi eru váleg fyrir veiðimenn ef þeir þurfa að ganga frá stöngum sínum á hverju kvöldi og læsa þær inni. Það er nokkur sem veiðimenn eru ekki vanir að gera en Svanur Jónatansson með stærsta laxinn úr Rangánum í sumar, 19 punda fisk á Laxablá númer 8. DV-mynd Þ verða að gera því að þetta eru dýrir hlutir. Góð stöng getur kostað 60-70 þúsund og eitt vandað hjól yflr 100 þúsund kall. Og hvað ætla þjófarnir aö gera við þessa hluti, veiða eða selja þá úr landi? Eitthvað af þessu var merkt þeim sem áttu. ÞÍN FRÍSTUND -OKKAR FAG / INTER Bíldshöföa 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.