Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
Fréttir
Orkubú VestQaröa lætur til skarar skríða á Þingeyri:
Rafmagnsleysi
ofan í atvinnuleysi
„Þeir fóru hér um eins og eldur í
sinu og lokuðu fyrir rafmagnið hjá
þeim sem skulduðu reikninga," seg-
ir Kristjana Vagnsdóttir, um starfs-
menn Orkubús Vestfjarða sem
heimsóttu íbúa á Þingeyri í vikunni
með fyrrgreindum hætti.
„Ég veit ekki hvað þeir lokuðu
hjá mörgum en mér tókst að fá raf-
magn aftur þegar ég lofaði þeim elli-
styrknum mínum sem ég fæ um
mánaðamótin - en hvað á ég þá að
borða?“ spurði
Kristjana, sem er
á sjötugsaldri og
starfaði í frysti-
húsinu hjá Rauð-
síðu á meðan það
gekk. Síðan hefur
hún, eins og fjöl-
margir aðrir íbú-
Kristján Har- ar á Þingeyri,
aldsson orku- verið atvinnu-
bússtjóri. laus fyrir
bragðið ekki fengiö laun: „Hvar eig-
um við að fá peninga til að borga
fyrir rafmagnið? Rafmagnið er dýrt
hér og ég skuldaði 14 þúsund krón-
ur fyrir tvo mánuði. Ekki getum við
unnið við að tína peninga upp af
götunni þvi það er enginn sem dreif-
ir þeim,“ sagði Kristjana.
Kristján Haraldsson, orkubús-
stjóri á Vestfjörðum, segir að lokað
hafi verið fyrir rafmagnið hjá tíu
aðilum á Þingeyri en í gær hefðu að-
eins þrír átt eftir að semja um sínar
skuldir og því væri enn lokað hjá
þeim:
„Flestir sem við lokuðum hjá eru
það sem ég myndi kalla góðkunn-
ingja okkar og aðeins einn eða tveir
fyrrum starfsmenn Rauðsíðu. Þeir
aðilar fá sérmeðferð hjá okkur því
við höfum fullan skilning á vanda-
málum þess fólks,“ sagði Kristján
Haraldsson.
-EIR
Sól á Austurlandi, dag eftir dag, viku eftir viku. Sumir bölva þessu góða veðri. DV-mynd Helgi Garðarsson
Sumir bölva góðviðrinu
Akureyri:
Hryggbrotn-
aði eftir fall
ofan af
íþrótta-
skemmunni
Tvítugur piltur úr Eyjafjarð-
arsveit slasaðist mjög illa er
hann féll niður af þaki íþrótta-
skemmunnar við Árstíg á Ak-
ureyri á þriðjudagsmorgun.
Pilturinn var fluttur á Fiórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri og
síðan með sjúkraflugi skömmu
síðar til Reykjavíkur. Hann var
hafður í öndunarvél í gær.
Pilturinn, sem var ekki í ör-
yggislínu eða neinni festingu,
féll um fjóra metra. Hann var
með meðvitund þegar að var
komiö við íþróttaskemmuna.
Hann hlaut hryggbrot og rif-
bein gekk inn í lunga, auk þess
sem hann fékk áverka á háls,
hönd og víðar.
Þegar slysið átti sér stað var
verið að vinna við skiptingu á
þakklæðningu á iþróttahúsinu.
Pilturinn hafði verið í stuttan
tima uppi þegar hann féll nið-
ur. Vinnueftirlit ríkisins vinn-
ur að gerð eftirlitsskýrslu sem
verður fljótlega lokið, meö við-
eigandi framlagningu á kröfum
um endurbætur til SJS-verk-
taka, sem sjá um verkið í
íþróttahúsinu. -Ótt
Hér hefur verið sólskin og logn og
hin besta veðrátta, 15 til 25 stiga
hiti, dag eftir dag og viku eftir viku.
Því er ekki að leyna að sumu fólki
líður illa í sumarhitunum á Austur-
landi, ekki bara eldra fólkinu, sem
ég umgengst mest, heldur líka þeim
sem yngri eru. Veðrið er búið að
vera svona í nánast allt sumar.
Sumir eru vissulega þakklátir fyrir
þetta veðurfar en aðrir bölva því.
Ég hitti ungan mann á göngu
minni um þorpið. Hann var að fara
að sinna heyi fyrir pabba sinn inni
í Eskifirði. Hann sagði að faðir
sinn, sem er orðinn roskinn maður,
minntist ekki annarrar eins tíðar og
í sumar. Hjá þeim sem eru að heyja
fyrir skepnur sínar þomar heyið
fljótt og vel og er flutt í hlöðu.
Hingað hefur komið fólk frá út-
löndum í sumar, hvítt eins og næp-
ur á hörand, miðað við Eskfirðing-
ana sem lifa í sífelldri sól. Á götun-
um hjá okkur gengur fólk um svo
fáklætt að sumum þykir nóg um.
-Regína
Trúnaðarlæknir lífeyrissjóðs tók ekki mark á þremur sérfræðingum:
Framsýn á að greiða
verkakonu 1,3 milljónir
- tóku ranga ákvörðun þegar gigtveikri konu var neitað um örorku
Lífeyrissjóðurinn Framsýn hefur
verið dæmdur til að greiða óvinnu-
færri verkakonu samtals 1,3 millj-
ónir króna í örorkubætur og máls-
kostnað, þar sem trúnaðarlæknir
sjóðsins hafði hafnað umsókn kon-
unnar, þrátt fyrir umsögn lækna
Tryggingastofnunar ríkisins og
þriggja annarra lækna um að kon-
an væri ófær um að sækja vinnu
vegna slæmrar gigtar. Trúnaðar-
læknir lífeyrissjóðsins tók, sam-
kvæmt dómnum, ranga ákvörðun
um að hafna umsókn konunnar
árið 1996.
Konan flutti til Reykjavíkur frá
Austfjörðum árið 1988 en þar hafði
hún unnið sem fiskverkakona.
Fyrsta árið í Reykjavík stundaði
hún skúringar fyrir ýmsa aðila en í
ársbyrjun 1989 var hún við skúring-
ar í mötuneyti Pósts og síma - allt
þar til á síðari hluta árs 1995. Árin
1992-93 fékk konan vöðvabólgu,
var illa haldin af gigt og leitaði
lækninga. Tryggingayfirlæknir úr-
skurðaði hana svo 65 prósent ör-
yrkja í mars 1995 og frá 16. ágúst
1996 til dagsins í dag hefur hún
samkvæmt TR verið 75 prósenta ör-
yrki.
Konan sótti því um örorkulífeyri
frá Lífeyrissjóði Framsýnar sem
féllst ekki á beiðnina. Skýringin
var sú að örorka konunnar væri
minni en 40 prósent að mati trúnað-
arlæknis sjóðsins. Samkvæmt regl-
um hans skal orkutap vera metið 50
prósent eða meira til að greiddur sé
örorkulífeyrir úr sjóðnum. Konan
hefur frá árinu 1995 tO dagsins í
dag aðeins haft lítilfjörlegar tekjur,
samkvæmt gögnum málsins.
Þegar lífeyrissjóðurinn Framsýn
tók til vama í málinu kom fram að
afgreiðsla sjóðsins á umsókn kon-
unnar hafi verið í einu og öllu við
samþykktir sjóðsins. í áliti Júlíusar
Valssonar trúnaðarlæknis komi
skýrt fram að ekki væra klínísk
merki um líkamlega kvilla og ekki
væri að merkja að konan væri hald-
in vefjagigt. Auk þess væri ekki að
sjá að hún hefði orðið fyrir orku-
tapi á undanfómum árum.
Dómurinn, með tveimur sérfróð-
um læknum og héraðsdómara, var
þessu ekki sammála og dæmdi að
konan hefði haft mjög skerta vinnu-
fæmi. Tekið var tU þess að athygl-
isvert væri að trúnaðarlæknir
Framsýnar væri hvorki sammála
þremur „meöhöndlandi" læknum
konunnar og læknum TR. „Það er
því ljóst aö einungis Júlíus Vals-
son, núverandi trúnaðarlæknir
Framsýnar, hefur talið orkuskerð-
ingu konunnar vegna veikinda
litla, eða minna en 40 prósent.“
Lífeyrissjóðurinn er dæmdur til
að greiða konunni 900 þúsund krón-
ur, 200 þúsund krónur í málskostn-
að, sem rennur í ríkissjóð og 200
þúsund krónur í gjafsóknarkostn-
að.
-Ótt
Stuttar fréttir r>v
Ráðning stendur
Félagsmálaráðuneytið hefur úr-
skurðað að ákvörðun fram-
kvæmdanefndar Akureyrarbæjar,
um ráðningu í stöður tjögurra
slökkviliðsmanna, skuli standa
óhögguð.
Þórir til RKÍ
Þórir Guðmundsson hefur tek-
ið við störfum
kynningarfull-
trúa Rauða
kross íslands.
Þórir er þjóð-
kunnur frétta-
maður en und-
anfarin þrjú og
hálft ár hefur
hann verið sendifulltrúi Alþjóða
Rauða krossins víða um heim.
Nótin teygðist
Loðnunót norska nótaskipsins
Österbris teygðist nokkuð milli
mælinga sem varðskipsmenn á
Óðni framkvæmdu 18. júlí og
þeirrar sem varðskipsmenn á
Ægi framkvæmdu 25. júlí. Eftir
báðar þessar mælingar var skipið
fært til hafnar á Akureyri vegna
ólöglegra veiða í fiskveiðilögsög-
unni. Dagur sagði frá.
Hærri laun
Kjaranefnd hefur ákveðið að
hækka laun um það bil fimmtán
embættismanna skattkerfisins,
þar á meðal níu skattstjóra, um 11
til 14%.
Gagnrýna ráðherra
ÞingfLokkur Samfylkingarinnar
sendi í dag frá
sér ályktun þar
sem auglýst er
eftir aðgerðum
ríkisstjórnar-
innar gegn
vanda sjávar-
byggðanna í
landinu. Sjávar-
útvegsráðherra er gagnrýndur
fyrir að hafa ekki enn skipað
nefnd til að vinna að endurskoð-
un laganna um stjórn fiskveiða.
Húsnæðisekla
Alls era 253 einstaklingar, 40
pör og 40 fjölskyldur, á biðlista
eftir ibúðum eða herbergjum á
Stúdentagörðum Háskóla íslands.
Mikil áfengissala
Helgarsalan hófst af krafti í
verslun ÁTVR á Akureyri í gær.
Einar Benediktsson aðstoöar-
verslunarstjóri segir Degi að
hann hafi pantað áfengi fyrir um
40 milljónir króna og ef allt gangi
út, verði það um sexfóld sala mið-
að við meðalviku.
Riðuveiki
Fyrsta tilvik riðuveiki á þessu
ári greindist í byrjun júlímánaðar
á bæ á Vatnsnesi í Austur-Húna-
vatnssýslu. Mbl. sagði frá.
Kveðja frá skattinum
í dag munu skattaumdæmi
landsins senda öOum landsmönn-
um álagningarseðla og munu
álagningarskrár liggja fyrir á
morgun. Endurgreiðslur vegna of-
borgaðs skatts verða lagðar inn á
bankareikning fólks á morgun en
ávísanir fara þá í póst.
Varlega í frestun
Guðmundur Bjamason, vara-
formaður sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga,
segir að sveitar-
félögin þurfi að
gæta varúðar
við að fresta
framkvæmdum
til að draga úr
þenslu, eins og forsætisráöherra
hefur hvatt til.
Samsóiukaup
Mjólkursamsalan hefur keypt
mjólkursamlag Sölufélags Austur-
Húnvetninga á Blönduósi. Með
kaupunum bætast 55 mjólkur-
framleiðendur við þá 845 sem
leggja inn mjólk til Mjólkursam-
sölunnar, frá og með 1. septem-
ber. -hlh