Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 Utlönd Viðræður milli Arafat og Barak Yasser Arafat og Barak, forsæt- isráðherra ísraels, töluðu báðir viö Clinton Bandarikjaforseta á miðvikudag og skýrðu honum frá stöðu mála i friðarviðræðunum. Barak og Arafat hittust á þriðju- dag við Ezer-landamærin, milli ísraels og Gazasvæðisins, og ræddust við. Barak segist ætla að virða Wye-samkomulagið en gaf Arafat 2 vikur til þess að íhuga það að fresta framkvæmd þess sem þýðir að land yrði afhent seinna en áætlað var. Senuþjófur í stjórnarráðinu í London: Leikkonu langar að verða borgarstjóri Breska kvikmyndaleikkonan fyrrverandi Glenda Jackson sagði af sér ráðherraembætti í gær til að hefja baráttu fyrir borgarstjóra- embættinu í London. Þar með tókst henni að stela senunni frá Tony Blair forsætisráðherra og uppstokkun hans á ríkisstjóminni. Jackson hafði verið aðstoðar- samgönguráðherra frá því Blair komst til valda 1997. Hún mun berjast um stólinn við samflokks- mann sinn úr Verkamanna- flokknum, „Rauða Ken“ Livingstone. Hann hefur þegar boðið sig fram en leiðtogar Verkamannaflokksins era hon- um andvígir. „Ég hef beðist lausnar frá emb- ætti og hefur forsætisráðherrann fallist á beiðni mína. Ég lýsi því yfir að ég sækist eftir að verða frambjóðandi Verkamannaflokks- ins til embættis borgarstjóra Tony Blair er ánægður með að Glenda Jackson ætli í framboð til borgarstjóraemb- ættis Lundúna. Lundúna," segir í yfirlýsingu sem leikkonan fyrrverandi sendi frá sér í gær. Jackson var einn nokkurra að- stoðarráðherra sem létu af störf- um í gær. Hærra settir ráðherrar sluppu óskaddaðir frá uppstokk- uninni, nema hvað Alun Michael, ráðherra málefna Wales, fór úr stjórninni. Frá því í maí hafði hann farið fyrir nýju fram- kvæmdavaldi sem komið var á í Wales eftir þjóðaratkvæða- greiðslu. Talsmaður rikisstjómarinnar sagði að Blair fagnaði ákvörðun Glendu Jackson um að bjóða sig fram í borgarstjórakosningunum á næsta ári. Hann lét þó að því liggja að forætisráðherrann kynni að hvetja aðra til að bjóða sig fram gegn Livingstone sem margir líta á sem draug úr fortíð-. inni. SMÁAUGLÝSINGADEILD verður opin um verslunarmannahelgina sem hér segir: Fimmtudaginn 29. júlí kl. 9-22 Föstudaginn 30. júlí kl. 9-18 Mánudaginn 2. ágúst kl. 16-22 Lokað: Laugardag og sunnudag Athugið: Síðasta blað fyrir Verslunarmannahelgi kemur út föstudaginn 30. júlí SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLT111 SÍMI550 5000 Hundruð syrgjenda komu saman í þorpinu Gacko í Kosovo í gær þar sem fjórtán serbneskir bændur voru jarðsettir. Bændurnir voru myrtir með köldu blóði fyrir skömmu. Morðin eru mesta voðaverkið sem framið hefur verið í héraðinu frá því friðargæslusveitir NATO komu þangað. \ , J V| 1- ' j'M : Gljúfraferðin sem breyttist í martröð Svissneska lögreglan leitar enn tveggja manna sem saknað er eftir gljúfraslysið í Sviss þar sem að 19 ferðamenn létu lífið, þar af allt að 13 Ástralir. Áströlsku fórnarlömbin eru talin vera 10 karlmenn og 3 kvenmenn á aldrinum 19-31 árs. Þeir sem lifðu martröðina af hafa sagt að fómarlömbin hafi horfið í 6 metra vatnsöldu. Svissnesk yfirvöld sögðu í gær að vitað hefði verið af flóðhættunni og maður hefði verið sendur að ánni til þess að vara hópinn við hættunni. Á blaðamannafundi sagði lögreglan að það tæki daga, jafnvel vikur að bera kennsl á líkin. Gljúfraferðir njóta mikilla vinsælda í Evrópu um þessar mundir og er bömum allt niður í 8 ára gömlum leyft að taka þátt að sögn fyrirtækja sem skipuleggja ferðirnar. Stuttar fréttir i>v Fundað í Sarajevo Leiðtogar þjóða heims safnast nú saman í Sarajevo í Bosníu til að leggja grunninn að friði og hagsæld á Balkanskaga. Ekvador mikilvægt Barry McCaffrey, yfirmaður bandarisku fíkniefnalögreglunn- ar, sagði að lykil- atriði væri að stöðva flutning ólöglegra flkni- efha um Ekvador ef koma ætti í veg fyrir að flkniefnabarónar kæmu varningi sínum til Bandaríkjanna. McCaf- frey var í Ekvador í gær. Bækur eyðilagðar Stjómvöld í Kína lýstu því yfir í gær að þau hefðu eyðilagt hálfa aðra milljón bóka frá Falun Gong frá því þessi hálfgerði trúarhópur var bannaður. Stjómvöld saka Falun Gong um að vilja steypa stjóm kommúnista. Talebanar í sókn Þúsundir stríðsmanna Tale- bana í Afganistan sækja nú fram gegn liðsmönnum Ahmads Shahs Masoods á þrennum vígstöðvum. Sigri Talebanar ná þeir öllu Afganistan undir sig. Indónesíu lofað fé Stjómvöld í Indónesíu hafa fengið loforð um fjögur hundrað milljarða króna erlend lán vegna umbótastefnu sinnar í efnahags- málum og fyrirhugaðra kosninga á Austur-Tímor. Viðvörun Greenspans Alan Greenspan, seðlabanka- stjóri í Bandaríkjunum, endurtók í gær þá hótun sína að grípa skjótt og ákveð- ið í taumana ef verðbólgan stefndi upp á við. Þá ítrekaði hann andstöðu sína til miklum skattalækkunum. Verðbólguorð Greenspans frá i síðustu viku kom óróa á hlutabréfamarkaði og lækkuðu bréf í verði. Fleiri látast úr hita Fórnarlömbum hitabylgjunnar í Miðvesturríkjum Bandaríkj- anna heldur áfram að fjölga og eru þau nú orðin 36. íbúar hafa verið hvattir til að fylgjast meö nágrönnum sínum, einkum gömlu fólki og lasburða. Leitað að kampavíni Fjái’sjóðsleitarmenn greindu frá því í gær að þeir ætluðu að leita að kampavini Rússakeisara í Eystrasalti. Kampavínið var í tveimur skipum sem Þjóðverjar sökktu í heimsstyrjöldinni fyrri. Konungur lofaður Hassan heitinn, annar Marokkókóngur, var lofaður og prísaður á vett- vangi Samein- uðu þjóðanna í gær. Kofí Ann- an fram- kvæmdastjóri sagði að kon- ungurinn hefði verið „vitur maður, fágaður stjómmálamaður og framúrskarandi diplómat.“ Annan lét þessi orð falla á fyrsta fundi Allsherjarþingsins frá því Hassan lést á fostudaginn var. Þjófurinn sofnaði Spænskur innbrotsþjófur sem sofnaði í innbroti var dæmdur I 5 ára fangelsi á þriðjudag. Eigandi húss kom að þjófnum sofandi inni í eldhúsi með poka af stolnum mat sér við hlið. Dæmdur í Kína Maður var í fyrsta sinn dæmdur fyrir hugbúnaöarþjófnað i Kína á þriðjudag og hlaut fyrir 4 ára dóm. Hugbúnaðarþjófnaður kostaði landið 1,8 milljarða í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.