Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Side 9
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
9
DV
Wesley Clark hættir sem yfirmaður herafla NATO:
Gerir lítið úr ágrein-
ingi við Hvíta húsið
Bandaríski hershöfðinginn
Wesley Clark tilkynnti i gær að
hann mundi láta af embætti æðsta
yfirmanns herafla Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), þremur mán-
uðum áður en fyrirhugað var. Hann
gerði þó lítið úr fréttum um að hann
væri á fórum vegna þess hvernig
hann stjómaði lofthemaði banda-
lagsins gegn Júgóslavíu.
Ágreiningur kom upp milli ráða-
manna í Hvíta húsinu í Washington
og Clarks um hvemig stríðið var
rekið og olli það nokkurri spennu
innan bandaríska landvamaráðu-
neytisins.
Á fundi með fréttamönnum í Lit-
háen, þar sem hann fylgdist með
heræfmgum, sagði Clark að brottfór
hans tengdist á engan hátt frammi-
stöðu hans í starfi.
„Þetta er að mestu leyti eðlileg
breyting á starfsliði. Þegar skyldu-
störfum hermanns er lokið er þeim
lokið. Hvort heldur sem hann er
óbreyttur eða hershöfðingi," sagði
Clárk.
Clark hefur gegnt starfi yfir-
manns herafla NATO frá árinu 1997.
Á fundinum með fréttamönnum
sagðist hann hafa verið mjög
ánægður með starfið og að hann
ætlaði að sinna þvi af kostgæfni
fram á síðasta dag. Hann tekur pok-
ann sinn í apríl.
Bandaríska blaðið Washington
Post sagði að brottför Clarks fylgdi í
kjölfar margra mánaða spennu milli
hershöfðingjans og ráðamanna í
landvamaráðuneytinu vegna stríð-
rekstrarins i Júgóslavíu. Háttsettir
embættismenn í stjóm Bills Clintons
forseta bám þó mikið lof á Clark og
sögðu brotthvarf hans í engu endur-
spegla óánægju með störf hans á
meðan á lofthernaðinum stóð.
Wesley Clark yfirhershöfðingi er á
förum frá NATO, þremur mánuðum
á undan áætlun.
„Það er ekki verið að reka
neinn,“ sagði Joe Lockhart, tals-
maður Hvita hússins, og bætti við
að Clinton hefði verið ánægður með
störf Clarks.
Eftirmaður Clarks hjá NATO
verður Joseph Ralston hershöfðingi
sem hefur verið varaformaður
bandaríska herráðsins frá árinu
1996. Hann hlaut margar viðurkenn-
ingar fyrir framgöngu sína í Ví-
etnamstríðinu, þar sem hann fór í
147 árásarferðir sem flugmaður. Þá
tókst honum að halda virðingu
sinni innan hersins þegar gert var
opinbert fyrir tveimur árum að
hann hefði átt í ástarsambandi á ní-
unda áratugnum, þegar hann og eig-
inkona hans höfðu skilið að borði
og sæng.
Ekki er búist við öðru en að Ral-
ston hljóti náð fyrir augum banda-
ríska þingsins og fái starfið.
_____________Utlönd
Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn
veitir Rúss-
landi lán
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hef-
ur samþykkt að veita Moskvu 4,5
milljarða króna lán í því skyni að
aðstoða borgina við að gi'eiða nið-
ur skuldir sínar og koma í veg
fyrir vanskil. Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn hefur greitt Rússlandi
marga milljarða á undanfórnum
sjör árum, síðast 4,8 milljarða í
júlí í fyrra. Sjóðurinn hefur beð-
ið um upplýsingar um það hvað
orðið hafi um um fyrri lán til
landsins. Tölur frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum sýna að Rússland
skuldaði sjóðnum í kringum 17
milljarða í lok júní.
Sjálfsmorðs-
tilraun á Spáni
Spænskur maður liggur á
sjúkrahúsi eftir tvær sjálfsmorðs-
tilraunir á miðvikudag. Maður-
inn stökk fram af svölum á þriðju
hæð, í því skyni að svipta sig lífi,
en lifði fallið af. Hann staulaðist
þá inn í ibúö sina þar sem hann
reyndi aö skera sig á háls en þá
vildi ekki betur til en svo að lög-
reglan braust inn og flutti mann-
inn á sjúkrahús.
Lundúnalögreglan þurfti aö elta nakinn mann upp í Ijósastaur í miðborginni
til að fjarlægja hann. Maðurinn og skoðanabræður og -systur fækkuðu föt-
um til að leggja áherslu á kröfur um að fá að vera nakin á almannafæri.
Kosið um framtíð Austur-Tímor:
Kofi Annan frest-
ar kosningunum
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hefur frestað
kosningum í Austur-Tímor til 30.
ágúst, þar sem hann telur að tryggja
þurfi að kjörskrár landsins séu rétt-
ar. Kosningamar varða framtíð
landsins þar eð kosið er um það
hvort landið skuli fá sjálfstæði eða
víðtæka sjálfstjóm innan Indónesíu.
Kofi tjáði öryggisráðinu á miðviku-
dag að starfsmenn Sameinðu þjóð-
anna þyrftu lengri tíma til þess að
ganga úr skugga um það að farið
yrði eftir lögum og reglum við
framkvæmd kosninganna. Annan
hefur einnig lýst yfir áhyggjum
vegna kosningaréttar þeirra
flóttamanna sem flúið hafa landið
en um 60.000 manns eða um 15%
kjósenda hafa verið hraktir frá
heimilum sínum af her Indónesíu.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna.
OSTUR I SALATIÐ
Kitlaðu bragðlaukana!
Kerskt, nýsprottið salat með grœnmeti og osti er enduimœrandi
sumarmáltíð sem þú setur saman á augabragði.
Taktu lífinu létt í sumar — og njóttu þess í botn!
Ostur í allt sumar
ISI.KNSKIR
OStar, -