Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfuslyóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar plmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Takmörkuð biðlund Útkoma Samfylkingarinnar í þingkosningunum í vor olli fylgismönnum hennar vonbrigöum. Fylkingin bauð fram sem kosningabandalag fjögurra flokka, enda ekki orðin formlegur stjórnmálaflokkur. Fyrir bandalaginu fór talsmaður en ekki formaður. Liklegt er að fyrirkomu- lagið hafi háð starfinu fyrir kosningarnar og með því haft áhrif á úrslitin. Þá skipti og verulegu máli að klofn- ingur varð á vinstri væng stjórnmálanna. Vinstrihreyf- ingin - grænt framboð náði fótfestu vinstra megin við Samfylkinguna. Stöðunni eftir kosningarnar, ekki síst vegna skipu- lagsmála og forystuvanda Samfylkingarinnar, var lýst sem tilvistarkreppu. Þá þegar var kallað eftir flokks- stofnun og nýrri forystu sem fyrst en þeir sem ráðið hafa ferðinni hafa viljað fara hægar. Sighvatur Björg- vinsson hefur til dæmis sagt að menn hlaupi ekki til og stofni flokk án undirbúnings. Spor liðinna ára og ára- tuga hræði. Undirbúningsstarf sé í gangi og formleg flokksstofnun verði á næsta ári. Skoðanakönnun sem Gallup birti í liðinni viku sýnir að kjósendur virðast ekki hafa sömu þolinmæði og bið- lund og forysta Samfylkingarinnar. í henni mældist fylgi Samfylkingarinnar rúmlega 18 prósent sem er nærri 8 prósentustigum minna en í kosningunum. Mið- að við könnunina hefur Samfylkingin tapað nær þriðj- ungi fylgis síns. Það má með sanni segja að pólitísk umræða sé í lág- marki yfir hásumarið. Flokkarnir fengu þó tækifæri til að kynna sig og stefnumál sín á stuttu sumarþingi í síð- asta mánuði. Ekki er að sjá að 'Samfylkingunni hafi tek- ist að nýta sér það tækifæri. Annað gildir um Vinstri- hreyfmguna - grænt framboð. Fylgi flokksins mældist rúmlega 14 prósent í könnuninni. Hann hefur því bætt verulega við sig frá kosningum eða sem nemur 5 pró- sentustigum. Á meðan Samfylkingin tapar þriðjungi fylg- is er fylgisaukning Vinstrihreyfingarinnar - græns fram- boðs um 40 prósent. Ágúst Einarsson, fyrrum þingmaður, hefur hvatt fé- laga sína til þess að hraða flokksstofnun. Á vefsíðu sinni segir hann fylgistap Samfylkingarinnar ekki koma á óvart. Það vanti skýra stefnumörkun eftir kosningar. Fólkið sem kaus Samfylkinguna hafi enn ekki séð hvern- ig hún ætli að mæta væntingum með nýjum flokki. For- ystan hafi kosið að vinna áfram í farvegum gömlu flokk- anna í stað þess að hraða stofnun flokks. í könnuninni hafi kjósendur sagt álit sitt á þessum vinnubrögðum. Hvað sem líður erfiðleikum þess að koma saman nýj- um flokki á grunni gamalla er það veikt að ætla sér að sitja allt næsta þing án formlegrar flokksstofnimar með tilheyrandi innra starfi og kjöri forystu. Það veikir Sam- fylkinguna sem forystuafl stjórnarandstöðunnar. Á því hagnast stjómarmeirihlutinn en ekki síður helsti keppi- nautur Samfylkingarinnar um fylgi vinstrimanna, Vinstrihreyfingin - grænt framboð. Forysta kosningabandalagsins ætlar sér tíma til næsta árs og skákar í því skjóli að langt sé til næstu kosninga. Því sé hægt að bíða til næsta árs. Þótt ekki megi gera of mikið úr einni könnun hlýtur fylgistapið þó að koma róti á hugi forystumanna. Biðlund kjósenda eru takmörk sett. Fyrrum þingmaður talar fyrir hönd margra flokks- systkina sinna þegar hann brýnir forystuna til stofnun- ar Samfylkingarfélaga í einstökum kjördæmum strax í haust sem leiði til stofnunar flokks á landsvísu sem fyrst. Jónas Haraldsson „Einn fyrrv. bankastjóri Landsbankans er nú talinn bíða eftir bankastjórastóli í Seðlabankanum." Sök bítur saklausan " eftir að hafa tapað stór- Kiallarinn hafðí venð í*l*,,,**, ,,,,, m.a. til atvinnugreina á tilraunastigi, eins og loðdýra- og fiskeldis, einnig til tækjaleigunn- ar Lindar. Ljóst var frá upphafi að loðdýraeldi væri mjög áhættusamt. Lax- eldi til útflutnings var fyrirsjáanlega ekki sam- keppnishæft vegna mun betri aðstöðu t.d. Norð- manna sem hafa lygna firði og hærri sjávar- hita. Erlendir bankar fara mjög nákvæmlega yfir rekstraráætlanir og áhættu áður en lánað „Landsbankinn fékk áður margra milljarða framlag úr ríkissjóði til að laga eiginfjárstöðu eftir að hafa tapað stórfé; lánað hafði verið m.a. til atvinnugreina á til- raunastigi eins og loðdýra- og fiskeldis, einnigtil tækjaleigunn- ar Lindar.“ Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur Það má með sanni segja að margur landinn hafi hlotið skrá- veifur vegna efna- hagsstjómunar og ástands i þjóðmál- um. Langtímum saman geisaði óða- verðbólga sem brenndi sparifé fólks og hugtakið „græddur er geymdur eyrir“ snerist upp í farsa. Fjármálastofnun- um var stjórnað pólitískt og þær réðu hvert auöur- inn rann og hvar rauður loginn brann, „græddur var lánfenginn eyr- ir“. Landbúnaður var ríkisrekinn og dýr rányrkja á kostnað almenn- ings sem hafði enga aðra leið til spam- aðar og öryggis en að fjárfesta í steypu. Snjallir braskarar, sem þekktu Matador- spilið, högnuðust; almenningur kunni ekki leikreglumar eða hafði ekki aðgöngumiða. Afleiðingamar blöstu við, eng- inn spamaður, fjárfestingarmistök í atvinnulífi og slæm afkoma eldri borgara og vanmáttugra. Hugtakið ábyrgð var meiningarlaust með öllu. Hvað er ábyrgð? Fyrir nokkrum árum bar svo til tíðinda að ráðherra sagði af sér. Undur og stórmerki. Þrir banka- stjórar Landsbankans (Lsb.) urðu svo að segja af sér vegna misnotk- unar á risnu. Sko til, er virkilega að rofa til? Landsbankinn fékk áður margra milljarða framlag úr rikissjóði til að laga eiginfjárstöðu er. Hvöpnig var fagmennsku Lsb. háttað og hver bar ábyrgð? Auðvit- að varð almenningur að borga brúsann! Fúapyttur Lindarmálið svokallaða sýndi að ekki era allar lindir auðsupp- sprettur. Tækjaleigur eru nokkurs konar gorkúlufyrirbæri sem þrifst á vanþroskuðum atvinnu- og pen- ingamarkaði. Ekkert er við því að segja að einstaklingar reyni fyrir sér í slíku. En hvemig ratar slíkt fyrirtæki í eigu Lsb.? Á endanum tapaðist milljarður króna á ævin- týrinu. Viðskiptaráðherra telur að mannorð ábyrgðaraðila sé hreins- að með því að lögreglurannsókn leiddi ekki í ljós saknæmt athæfi. Ábyrgðarleysi og glæframennska með almannafé era sem sagt ekki ámælisverð! Einn fv. bankastjóri Lsb. er nú talinn bíða eftir banka- stjórastóli í Seðlabankanum. Verði það hefur viðskiptaráðherra end- anlega reist sér minnisvarða fyrir eitt mesta hneyksli aldarinnar. Hringekjan Verðbólguhringekjan á síðustu áratugum var mesti arðræninginn en rætumar era margar. Ein sú stærsta er samanburðarfræði og kapphlaup launþega í kjaramál- um. Sólstöðusamningarnir 1977 líktust brunaútsölu á gjaldmiðli og sparnaði þjóðarinnar. Launþegum var beitt purkunarlaust í pólitísku skyni og fyrrverandi ráðherrar vora viðstaddir og kyntu undir; kauphækkun varð tugh- prósenta. Allir nema glámskyggnir sáu glapræðið. Því verr reynast heimskra manna ráð sem þeir fleiri koma saman. Verðbólga var fljót að ónýta árangurinn og gott betur; þeir sem valdið höfðu snúningi hringekjunnar töpuðu en þeir vanmáttugri hrukku af henni og töpuðu mestu. Enn einu sinni bára saklausir skellinn. Samanburðarfræði og stílbrot Opinberir launþegar hafa að undanfornu gengið á undan öðr- um með aðferðum sem eru á mörkum eða utan laga; ekki er staðið við samninga heldur reynt að koma af stað nýjum samning- um með þvingunum. Það er hrein- asti bamaskapur að halda að ein- hverjir hópar hafl fríspil um kjarabætur; öOu slíku er haldið til haga og_samanburðarfræðin sér til þess Áð aðrir hópar safna í sarp- inn og taka tU sinna ráða með nýj- um aðferðum sem heObrigðisstétt- ir og kennarar hafa skapað. Kenn- urúm verður ekki skotaskuld úr því að kenna öðrum. Sá veldur miklu sem upphafinu veldur. Jónas Bjarnason Skoðanir annarra Óvissa um framtíðartekjur „Efnahagslega sjálfstæðar þjóðir og einstaklingar geta ekki eytt um efni fram.... Óvissa ríkir bæði um framtíðartekjur og þau kjör sem bjóðast við endur- fjármögnun skulda í framtiöinni. Skuldum fylgir því áhætta. Eyðsla þjóðar eða einstaklinga kann að byggjast á of bjartsýnu mati á framtíðartekjum. Þaö getur síðan kallað á erfiðan samdrátt í útgjöldum þegar veraleikinn blasir við. Hugsanlegt er að þetta eigi við heimOin hér á landi um þessar mundir en skuldir þeirra voru í lok sl. árs nærri 40% hærri en árlegar ráðstöfunartekjur." Már Guðmundsson, hagfr. Seðlabankans, i Við- skiptablaðinu 28. júlí. Klofin verkalýðshreyfing? „MikO gerjun er um þessar mundir innan sam- taka atvinnurekenda og launafólks. Vinnuveitendur hafa hins vegar þegar náð landi með breyttu skipu- lagi og víðtækari sameiningu en innan hreyfingar launafólks er mikil óvissa ríkjandi um framtiðina og alvarlegur ágreiningur um skipulagsmál. Sú staða gæti hæglega komið upp í næstu samningum að verkcdýðshreyfmgin stæði klofm andspænis sam- einaðri fylkingu atvinnurekenda. ... Það eina sem á að skipta máli varðandi skipulag samtaka launa- fólks er einfaldlega hvaða form dugar best til að ná árangri í kjarabaráttunni." Elías Snæland Jónsson, i forystugrein Dags, 27. júlí. Skuldir heimila tákna bjarta framtíðarsýn „Þeir sem taka neyslulán gera það í trausti þess að síðari tíma tekjur þeirra dugi tO að greiða skuld- ina. Lántaka og sparnaður era aðferðir tO að jafna neyslu yfir ævina. íslendingar gera greinilega ráð fyrir því að mikil kaupmáttaraukning síðustu ára sé varanleg. Þess vegna treysta sumir sér til þess að búa í dýrara húsnæði og aka um á finni bOum en t.d. á árunum 1992-94, þegar blikur voru á lofti og at- vinnuleysi jókst. Aukning skulda heimilanna er því fyrst og fremst merki um bjarta framtíðarsýn en lýsa ekki neinu neyðarástandi.“ Margeir Pétursson, framkvstj. MP Veröbréfa hf., í Viðskiptabl. 28. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.