Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 29. JULI 199Í
Verslunarmannahelgi:
Árvökulir
grannar1
þjófa frá
- segir Guðmundur Gígja
„Innbrotum í heimahús um versl-
unarmannahelgi hefur fækkað
seinni árin. Ein af ástæðunum er
aukinn áróður fyrir því að fólk
reyni að koma í veg fyrir innbrot
með fyrirbyggjandi aðferðum,“ seg-
ir Guðmundur Gígja en hann er lög-
reglufulltrúi í forvamadeild. Lög-
reglan hefur ákveðið að nota mestu
ferðahelgi ársins til þess að minna
fólk á aö tryggja sig gegn innbrot-
um með fyrirbyggjandi aðferðum.
„Ástæðan fyrir því að viö notum
þessa helgi er að þetta er mesta
ferðahelgin og veitir fólk þessu þá
meiri athygli. Þrátt fyrir það gildir
alltaf að ganga tryggilega irá húsi
þegar farið er í ferðalög. Fólk á líka
að geyma dýra hluti í bankahólfum
þegar það fer í ferðalag. Það er lítið
vit í því að vera með dýra hluti
heima hjá sér ef fólk er ekki að nota
þá dags daglega," segir Guðmundur.
„Nágrannar geta hjálpað hverjir
öðrum og litiö hverjir eftir húsum
annarra. Hér á landi hefur þó ekki
verið skipuleg nágrannavarsla en
við höfum reynt að koma einhverju
slíku á fót en ekki tekist þrátt fyrir
góða byrjun oft á tíðum. Nágrannar
hafa oft komið í veg fyrir innbrot
með því að stugga við innbrotsþjóf-
um og hafa auga með húsum ná-
granna sinna. Við höfum einnig
upplýst nokkur innbrot með því að
nágrannar hafa skrifað niður núm-
er á grunsamlegum bílum og látið
okkur hafa. Þá hefur verið um að
ræða innbrotsþjófa og höfum við
náð þýfi úr mörgum innbrotum
vegna þess að fólk er á varðbergi.
Að lokum væri fínt að minna fólk í
fjölbýlishúsum á að hleypa ekki inn
fólki sem á ekki erindi í húsin.
Margir innbrotsþjófar hafa komist
inn þannig. Fólk á ekki að hleypa
fólki inn nema það sé að koma og
tala við það sjálft. Það á ekki að
hleypa fólki inn til annars fólks því
það fólk er fullfært um það sjálft ef
þaö er á annað borð heima. Sumir
hleypa fólki inn án þess að tala við
það. Það getur boðið hættunni
heim,“ segir Guðmundur Gígja hjá
forvarnadeild lögreglunnar. Lög-
reglan verður einnig með ómerkta
bíla á ferðinni í sérstöku þjófaeftir-
liti auk venjulegs eftirlits. -EIS
Verslunarmannahelgin:
Reynt að koma í
fyrir innbrot
- góð ráð fyrir húseigendur
Nú fer í hönd mesta ferðahelgi árs-
ins og um leið mesta innbrotahelgin.
Mjög margir skilja við heimili sín
óvarin og því auðvelt fyrir innbrots-
þjófa að athafna sig. Lögreglan og aðr-
ir hafa ávallt brýnt fyrir fólki að huga
vel að því hvernig gengið er frá heim-
ilinu þegar farið er í ferðalag og gild-
ir einu hvort um er að ræða verslun-
armannahelgi eða annan tíma.
Mjög mikilvægt er að líti út fyrir
að einhver sé heima. Innbrotsþjófar
vakta hús og fylgjast vel með fólki
sem er að pakka niður eða er líklegt
til þess að fara úr bænum. Ýmis góð
ráð eru til að láta sem einhver sé
heima.
Eitt það mikilvægasta sem fólk
gerir er að vinna saman þegar kemur
að þjófavörnum, nágrannarnir eru yf-
irleitt besta þjófavörnin. Allir fara í
frí í lengri eða skemmri tíma
og því eðlilegt að fólk sem býr
við hliðina hvað á öðru hjálpi
til við að vakta húsin.
Alltaf eru einhverjir ná-
grannar heima um verslunar-
mannahelgi. Sjálfsagt er að
ræða við þá og biðja þá að líta
eftir húsinu. Hægt er að biðja
þá um að hafa auga með hús-
inu og láta þá athuga hvort
einhverjar grunsamlegar
mannaferðir eru í kringum
húsið. Sumir eru í svo góðu
sambandi við nágranna sína
að þeir láta þá hafa lykill og
láta þá líta eftir húsinu. Ná-
grannar geta líka náð sam-
bandi við íbúana ef eitthvað
kemur upp á. Ættingjar geta
einnig litið eftir húsnæði
fólks. Þeir geta fjarlægt póst,
slökkt og kveikt ljós og fylgst
með að allt sé í lagi.
Það getur skipt lögreglu
miklu máli ef fólk fylgist með
hvað er að gerast i kringum
það og lætur lögregluna fá
upplýsingar um bílnúmer,
lýsingu á mönnum og bifreið-
um sem eru á ferðinni í nágrenninu.
Athugull nágranni getur með þessu
styggt innbrotsþjóf. Það er betra að
hringja einu sinni of oft í lögregluna
heldur en aldrei og lenda í því að
brotist inn í nágrenninu.
Hér í grafmu eru nokkur góð ráð
sem geta komið sér vel þegar fólk er
að fara í ferðalag. -EIS
Símsvari má ekki koma upp um fólk
og segja að það sé fjarverandi í ein-
hvern tíma.
Ekki þvott á snúru - fólk í ferðalagi
geymir ekki þvott á snúrunni.
111 umhugsunar áður en farið
er að heiman um helgina
• Mikilvægt er að þaö líti út eins og einhver sé heima.
• Hafa bíl á bílastæöinu (kannski er nágranni aflögufær meö bíl).
• Hafa þvott á snúru.
., ; #Gott er aö hafa Ijós einhvers staöarí húsinu.
• Sumir skilja eftir útvarp í gangi, hæfilega hátt stillt.
'fÆ •Þaö má ekki vera póstur sem auglýsir fjarveru ibúa.
Varist að póstur hlaöist upp á sýnilegum staö.
p ; • Menn veröa aö muna eftir símsvaranum,
aö hánn tilkynni ekki um fjarveru fólksins.
' •Loðinn grasblettur bendir líka til þess aö íbúar séu aö heiman.
•Heppilegt er aö koma dýrmætum hlutum, eins og frímerkja-
eöa myntsafni, og dýrum skartgripum fyrir á öruggum staö, t.d. í bankahólfi.
Gera skrá yfir verömæti og taka jafnvel myndir af þeim ef
fólk veröur fyrir baröinu á innbrotsþjófum.
Ganga vel frá huröum og gluggum og skilja ekki
varalykil eftir á vafasömum staö.
Hí flölbýlishúsum eiga íbúar aö bindast fastmælum um aö
hleypa ekki ókunnugum inn í sameignina.
Tæma póstkassa til þess að inn-
brotsþjófar átti sig ekki á að eigand-
inn sé fjarverandi.
Gott getur verið að skilja eftir ijós til
þess að fæla frá þjófa.
Reyna að fá bíl í bílastæði við húsið
þannig að einhver virðist vera
heima.