Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Síða 30
34 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 Afmæli Páll Stephensen Hannesson Páll Stephensen Hann- esson, fv. hreppstjóri á Bildudal, er níræður í dag. Starfsferill Páll fæddist á Bíldudal og ólst þar upp. Hann lauk barnaskólaprófi þar en byrjaði sjómennsku á skútum föður síns um fermingaraldur. Hann lauk farmanna- og eim- vélaprófi frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík 1934. Páll var háseti á gamla Ægi um skeið en síðar í millilandasigl- ingum hjá Eimskipafélagi íslands 1930-1939 sem háseti og stýrimaður, stundaði útgerð á Bíldudal 1940- 1943 og var jafnframt skipstjóri á línubátnum Úðafossi. Fór þá í land og hóf störf hjá Gísla Jónssyni, fv. alþingismanni. Páll gerðist síðar umhoðs- maður Eimskipafélags- ins og Ríkiskipa og gegndi þeirri stöðu til 1984 þegar hann og Bára fluttu til Reykjavíkur. Auk þessara starfa var Páll hreppstjóri Suður- fjarðahrepps í 20 ár, sat í hreppsnefnd í mörg ár og var m.a. oddviti í átta ár. Hann sat i sýslu- nefnd fyrir V-Barð- strandasýslu i mörg ár og gegndi auk þess mörgum trúnaðarstörfum fyrir sitt sveitarfélag og Sjálfstæðisflokkinn. Fjölskylda Páll kvæntist Báru Kristjánsdótt- ur árið 1937, f. 27 12. 1910, d. 9. 8. 1989, húsmóður á Bíldudal. Hún Páll Stephensen Hannesson. var dóttir Kristjáns Sigurgeirsson- ar, f. 6. 7. 1875, d.15.7. 1944, sjó- manns, og Þuríðar Björnsdóttur, f. 8. 9.1869, d. 22. 3.1949, húsmóður og formanns verkakvennafélagsins Vonarinnar á Húsavík. Bam Páls og Báru er Sigríður Stephensen Pálsdóttir bankaritari f. 4.7. 1938. Maki hennar var Pétur Valgarð Jóhannsson, f. 17.8. 1935, d. 25.2. 1980, útgerðarmaður og skip- stjóri á Bíldudal. Börn þeirra eru Páll Ægir skip- stjóri, Kristín skrifstofustjóri, Hannes Sigurður flugmaður og Pét- ur tónlistarmaður. Systkini Páls eru: Kristín, f. 1.10. 1910, húsmóðir; Bjami, f. 30. 5. 1912, d. 6.3. 1968, bóndi á Litlu Eyri við Bíldudal; Theodór, f. 16.11. 1913, d. 23.10. 1916; Agnar, f. 12.4. 1916, d. 12.10. 1916; Amdís f. 30.6. 1917, hús- móðir; Þórey f. 26. júní 1919, d. 14. 12. 1994, bankaritari; Jón f. 19.9. 1921, rafvirki; Erla f. 4.5. 1923, hús- móðir. Ætt Páll Stephensen var sonur Hann- esar B. Stephensens, kaupmanns á Bíldudal, Bjarnasonar, b. á Reykhól- um, Þórðarsonar. Móðir Hannesar var Þórey Kristín Ólína Pálsdóttir. Móðir Páls var Sigríður Pálsdóttir, prests á Prestbakka í Hrútafirði, síðar alþm. og prófasts í Vatnsfirði, Ólafssonar og Arndísar Pétursdótt- ur Eggerz. Páll hefur búið á Dvalarheimili aldraðra sjómanna í Reykjavík frá því Bára andaðist, 1989, og vill hann koma sérstöku þakklæti til fyrrver- andi og núverandi starfsfólks fyrir frábæra umönnun og elskulegheit á liðnum árum. Páll dvelur í faðmi fjölskyldu sinnéir á afmælisdaginn. Ingi Ragnar Helgason meinsfélagsins frá 1991. Islands Fjölskylda Ingi er tvíkvæntur og var fyrri kona hans Ása Guðmundsdóttir, f. 24.8. 1927, d. 19.4. 1962, hann- yrðakona. Dóttirlngaog Ásu er Álfheiður, f. 1.5. 1951, líffræðingur og rit- stjóri í Reykjavík, en sambýlismaður hennar er Sigurmar Kr. Alberts- son hrl. og er sonur þeirra Ingi Kristján, f. Ingi Ragnar Helgason. Ingi Ragnar Helgason, fyrrverandi forstjóri Branabótafélagsins og fyrr- verandi stjórnarformaður VÍS hf., Hagamel 10, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Ingi fæddist í Vestmannaeyjum og fluttist til Reykjavikur 1930. Eftir nám í barnaskóla Austurbæjar fór hann í Ingimarsskólann, lauk stúd- entsprófi frá MR 1945, lögfræðiprófi frá HÍ 1953, öðlaðist hdl. réttindi 1956 og hrl. réttindi 1964. Ingi rak eigin málflutningsskrif- stofu 1953-1981. Hann var forstjóri Brunabótafélags íslands frá 1981 til 1996 og BÍ Líftryggingar GT frá 1985 til 1990. Hann var stjómarformaður Vátryggingafélags íslands hf. frá 1989 til 1996 og stjómarformaður Líftryggingafélags íslands hf. frá 1991 til 1996. Ingi var formaður Félags rót- tækra stúdenta 1945, ritari stúdenta- ráðs HÍ 1946, í miðstjóm Sósíalista- flokksins 1949-68 og framkvæmda- stjóri flokksins 1956-62. Hann var forseti Æskulýðsfylkingarinnar 1950-1953, borgarfulltrúi í Reykja- vík 1950-58, varaborgarfulltrúi 1958-62, í fyrstu stjórn Lánasjóðs stúdenta 1952, í kosningalaganefnd 1954, í yfirmatsnefnd um skatt á stóreignir 1957, átti sæti á Alþingi sem landskjörinn varaþingmaður í nóvember 1961 og i október, nóvem- ber og desember 1965. Ingi sat í bankastjórn Seðlabanka íslands 1957-60, í bankaráði 1961-68 og 1974-82 og var bankaráðsformaður 1979-80. Hann sat í stjórn Sements- verksmiðju ríkisins 1960-68, í yflr- kjörstjórn Reykjavíkur vegna borg- arstjórnarkosninga 1970, 1974, 1978, 1982 og 1986 og formaður 1982. Ingi sat í viðræðunefnd um orkufrekan iðnaö 1971-82, var fulltrúi ríkis- stjórnarinnar í stjórn ÍSAL hf. 1972-75 og 1979-81, formaður Iðn- lánasjóðs 1972-75 og 1979-83, í stjóm Sinfóníuhljómsveitar íslands 1978-82, stjórnarmaður í Norræna iðnþróunarsjóðnum 1979-85, for- maður olíunefndar 1979, í olíuvið- skiptanefnd 1980, í starfsskilyrða- nefnd atvinnuveganna 1980-1982. Hann sat í stjórn Sambands ís- lenskra tryggingafélaga frá 1982-92 og var formaður 1983 og 1990-92, for- maður Brunamálastofnunar ríkis- ins 1982-86 og í stjórn frá 1991-94, stjórnarmaður í Lýsingu hf. frá 1986-97, formaður fulltrúaráðs Listasafns Sigurjóns Ólafssonar frá 1990, í stjóm Bifreiðaskoðunar ís- lands hf. frá 1988-97, í stjórn Við- lagatryggingar 1991-95, í fulltrúa- ráði Samtaka inn tónlistarhús frá 1983, formaður Samtakanna frá 1993-96 og í stjórn þeirra frá 1996. Ingi sat í Tónlistarráði íslands frá 1993, var formaður stjórnar Afmæl- issjóðs MR frá 1996-99 og í sjóðs- stjórninni síðan, í vísindaráði Krabbameinsfélags Islands 1988-91 og formaður 1990-91, í fram- kvæmdastjóm og gjaldkeri Krabba- 12.2. 1991. Eiginkona Inga er Ragna Magnea Þorsteins, f. 5.12. 1938, ritari og fyrrv. flugfreyja. Hún er dóttir Karls Andreas Þorsteins stórkaup- manns, f. 18.8. 1901, d. 21.1. 1987, og Steinunnar Jóhönnu Þorsteins hús- móður, f. 16.8. 1909. Böm Inga og Rögnu eru Eyrún, f. 1.11. 1968, nemi í Reykjavík, gift Birgi Ellert Birgissyni sem rekur verslunina Búsáhöld og gjafavörur; Ingi Ragnar, f. 25. 5. 1971, kvik- myndagerðarmaður í Reykjavík. Stjúpdóttir Inga er Steinunn Ás- mundsdóttir, f. 31.12. 1962, húsfrú í Reykjavík, býr með Stefáni Bjama- syni sem rekur Stillingu hf. og eiga þau eina dóttur, Áslaugu Rögnu f. 19. 1. 1990. Dóttir Inga og Geirlaugar Sigurð- ardóttur er Ragnheiður, f. 21. 11. 1958, ritari í Reykjavík, og á hún einn son, Magnús Inga Haraldsson, f. 23.6. 1981. Systkini Inga era Guð- mundur, f. 6.11.1911, d. 13. 2. 1999, húsgagnasmiður; Guðlaug, f. 9.11. 1913, d. 4. 2.1988; Sigdór, f. 18.1.1917, húsgagnasmiður; Hulda, f. 4.9. 1930, d. 1. 5. 1995, rit- ari; og Fjóla, f. 4.9. 1930, húsmóöir. Foreldrar Inga voru Helgi Guðmundsson, f. 8.10. 1881, d. 30.3. 1937, sjómað- ur í Vestmannaeyjum, og k.h., Einarína Eyrún Helgadóttir, f. 16.5.1891, d. 31.5. 1980, húsmóðir. Ætt Helgi var sonur Guðmundar, út- vegsb. á Þórkötlustöðum í Grinda- vík og sjómanns i Eyjum, Jónsson- ar, b. á Jámgerðarstöðum, Gíslason- ar. Móðir Guðmundar var Helga Þórðardóttir, b. á Jámgerðarstöð- um, Einarssonar. Móðir Helgu var Gróa Jónsdóttir, ættfóður Járngerð- arstaðaættarinnar, Jónssonar. Móðir Helga var Guðlaug Einars- dóttir, b. í Stóra-Nýjabæ, Sæmunds- sonar og Guðlaugar Þórarinsdóttur. Eyrún var dóttir Helga, útvegsb. á Kvíavöllum, Jónssonar og Guð- laugar Jónsdóttur. Ragna og Ingi verða að heiman á afmælisdaginn. Hafsteinn Magnússon Álfheiður Magnúsdóttir Álfheiður Magnúsdóttir húsmóðir, Bogaslóð 22, Höfn í Hornafirði, er átt- ræð i dag. Starfsferill Álfheiður fæddist á Holtum á Mýram og óls þar upp. Hún hlaut bama- skóla- og unglingafræðslu og var einn vetur í Hér- aðsskólanum á Laugar- vatni. Eftir það hefur Álf- heiður stundað húsmóð- urstörf. Hafsteinn Magnússon, starfsmaður í trésmiðju, Sumarhúsum, Sólheim- um, er fimmtugur í dag. Starfsferill Hafsteinn fæddist á Landspitalan- um í Reykjavík. Hann dvaldist í Skálatúni í Mosfellsbæ á árunum 1954 til 1985. Það ár fluttist hann að Sólheimum. Starfar hann þar í tré- smiðju. Fjölskylda Systkini Hafsteins em Magnea, f. 1944; Snæbjöm, f. 1947; Magnús, f. 1952; Kristbjörg, f. 1955; Helga, f. 1963; Hildur, f. 1966. Foreldrar Hafsteins eru Magnús Helgason bifreiðarstjóri, f. 30. 9. 1923, og Ása Snæbjömsdóttir hús- móðir, f. 26. 10. 1926. Hafsteinn býður vinum og frænd- um í kafli á afmælisdaginn kl. 16 í Sólheimahúsi. Fjölskylda Alfheiður giftist árið 1940 Gísla Arasyni, f. 16.9.1917. Hann er sonur Ara Sigurðssonar og Sigríðar Gísla- dóttur, bænda á Borg á Mýrum. Böm Álfheiðar og Gísla eru Guð- rún Sigríður, f. 8. 4.1941, bókasafns- fræðingur. Maki hennar er Eymar Ingvarsson og eiga þau tvö börn; Sigur- borg, f. 25. 6. 1943, kenn- ari. Maki hennar er Ingólfur Arnarson og eiga þau þrjú börn; Magnhildur, f. 7. 7. 1946, þroskaþjálfi. Maki henn- ar er Þórólfur Ámason og eiga þau eitt bam; Ingibjörg, f. 6. 9. 1951, þjónn. Maki er Björn Bjömsson og eiga þau tvö böm; Erna, f. 28. 9. 1959, bankastarfsmaður. Maki Haukur Reynisson og eiga þau þrjú börn. Faðir Álfheiðar var Magnús Hall- sson bóndi, f. 24.9.1874, d. 1945. Móð- ir hennar var Guðrún Benedikts- dóttir, f. 20. 6.1879, d. 1963, húsmóð- ir á Holtum á Mýrum. Álfheiður verður að heiman á af- mælisdaginn. fii ím/fí! Askrifendur fa j[| aukaafsláft af smáauglýsingum DV (fltni/fc. '4 Smáauglýsingar DV i ..... ■ > 'umnmmiiui IIÉiÉ K0iW0 DV Tll hamingju með afmælið 29. júlí 85 ára Jón Björn Benjamínsson, Kópavogsbraut la, Kópavogi. 75 ára Fríða Ása Guðmundsdóttir, Ölduslóð 21, Hafnarfirði. Guðrún Ingjaldsdóttir, Eylandi 4, Djúpavogi. Halldór Ágústsson, Eyri, ísafirði. Júlíus Óskar Halldórsson, Hrísrima 4, Reykjavík. Magnús Guðbrandsson, Tómasarhaga 53, Reykjavík. Ragnar Þór Jörimdsson, Skipagerði 2, Hvolsvelli. Sigurlína Gunnlaugsdóttir, Kleppsvegi 144, Reykjavík. 70 ára Bragi Jónsson, Hjálmholti 5, Reykjavík. Elisabet Sveinsdóttir, Vogatungu 1, Kópavogi. Magnús Arnórsson, Silfurgötu 11, ísafirði. Magnús verður að heiman á afmælisdaginn. 60 ára Herdís Hall, Einimel 26, Reykjayík. Jóhanna Sigurrós Árnadóttir, Grundargötu 52, Gmndarfirði, Margrét Ólafsdóttir, Skólavegi 23, Vestmannaeyjum. 50 ára Annie K. Steingrímsdóttir, Bergþómgötu 8, Reykjavík. Guðrún Guðmimdsdóttir, Skálatúni Litluhlíð, Mosfellsbæ. Jóhanna Pétursdóttir, Asparfelli 4, Reykjavík. Kolbrún Guðjónsdóttir, Fellsási 7, Mosfellsbæ. Logi Björgvinsson, Suðurgötu 80, Hafnarfirði. Magnús Jónsson, Heiðarbrún 2, Bolungarvík. Sigríður Stefánsdóttir, Suðurbyggð 4, Akureyri. Sigurður Tryggvason, Furubyggð 25, Mosfellsbæ. Þóra Gissurardóttir bóndi, Borgareyrum 2, Hvolsvelli. Hún og eiginmað- ur hennar, Þorste: Markússon bóndi, bjóða til grillveislu að'Borgareyrum laugardagskvöldið 31. júlí kl. 20. 40 ára Aðalbjörg Sigtryggsdóttir, Bergholti 13, Mosfellsbæ. Ásvaldur Friðriksson, Nóatúni 30, Reykjavík. Erla Líney Agnarsdóttir, Hvaleyrarbraut 23, Hafnarfirði. Eyjólfur Þór Guðlaugsson, Suðurvör 11, Grindavík. Hulda Hallgrímsdóttir, Fagrahjalla 32, Kópavogi. Kristín Auður Eliasdóttir, Fjarðargötu 16, Þingeyri. Óskar Arnórsson, Vesturgötu 17, Akranesi. Pétur Friðrik Sveinsson, Ásabraut 17, Sandgerði. Sigríður Sigmundsdóttir, Suðurhólmn 2, Reykjavík. Sólrún Hauksdóttir, Merki, Egilsstöðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.