Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1999, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 23 Fréttir Glæsiskip í flota Hólmara DV-myndir Birgitta Gunniaugur Árnason framkvæmdastjóri og Páll Guðmunds- son skipstjóri í brúnni. Grettir við bryggju í Stykkishólmi - hið glæsilegasta skip. DV, StykWshólmi: Hátíðleg stund var á bryggjunni í Stykkishólmi 8. ágúst þegar skipið Grettir SH 104 kom sem nýtt frá Pól- landi. Það er Útgerðarfélagið SnæfeO ehf. sem gerir skipið út en framkvæmdastjóri er Gunnlaugur Árnason. Að sögn Gunnlaugs var skipið komið til ára sinna - orðið 36 ára gamalt - og því ekki um annað að ræða en endurbyggja það eða kaupa nýtt skip. Að vel athuguðu máli kom í ljós að fyrri kost- urinn var mun ódýrari. Skipið sigldi til Póllands 5. apríl þar sem það var end- urbyggt í Vélasölunni Nauta í borginni Gdynia. Allar áætlanir stóðust um verk- lok. Ný brú var sett í skipið og öll aðstaða fyrir áhöfn er ný. Vélin og spilið er það eina sem eftir er úr gamla Gretti. í áhöfn eru sjö menn - skipstjóri Páll Guðmunds- son. Við komuna til Stykkis- hólms blessaði séra Gunnar Eiríkur Hauksson sóknar- prestur skipið og síðan var gestum boðið upp á kafii og veitingar. -BB Einmuna veðurblíða hefur verið það sem af er ágústmánuði. Þess- ir herramenn nutu hennar og veltu fyrir sér landslagi skýjanna í Örfirisey í gær. DV-mynd Pjesi Hann er stórvirkur í nýja garðinum sínum við Hlíðarveg á Ólafsfirði, hann Ingvi Óskarsson sjómaður - fékk sér stór- grýti í garðvegginn og mikla gröfu til að koma grjótinu fyrir. Glæsilegt verður það og bæjarbúar hafa fylgst vel með árangrinum. Veðurblíða hefur verið í Ólafsfirði lengi og fólk hefur nýtt sér það vel til að sinna görðum sínum. Garð- rækt er almenn í firðinum og margir fallegir garðar þar. DV-mynd Helgi Jónsson Lftleiga á alls konar leiktækjum f bamaafmæli götuparti ættarmót o.fl. Herkúles Sími 568-2644 GSM 891-9344 falleg og sterk Le'y samkomutjöld ▲ ▲ ▲ ▲ ▲ ▲ ▲ ▲ ^ Leigjum borð, stóla, ofna'o.fl. Tjaldaleigan Skemmtilegt hf. Skógarsel 15, sími 557 7887 Sigurlín Sumarliðadóttir við myndina sína. DV-mynd Birgitta Stykkishólmur: Myndlistarsýning barna DV, Styktóshólmi: Félagið Efling Stykkishólms efndi til samkeppni meðal grunn- skólanemenda í bænum í vor um myndir í tileftii Danskra daga í Hólminum sem verða um miðjan ágúst. Þrjátíu bestu myndimar hafa nú verið hengdar upp í íþróttahúsinu og eru þar til sýnis fyrir gesti og gangandi. Verðlaunamyndin er eftir Krist- in Bjama Heimisson og hefur hún verið gefm út á póstkorti. -bb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.