Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999
Utlönd_______________
Þýskir jafnaðar-
menn tapa fylgi
Jafnaðarmenn töpuðu umtals-
verðu ‘fylgi í tveimur fylkiskosn-
ingum í Þýskalandi í gær, Saar-
landi og Brandenborg. Gerhard
Schröder kanslari sagði að þrátt
fyrir tapið myndi stjóm hans ekki
hvika frá víðtækum sparnaðarað-
gerðum í ríkisrekstri, svo sem
niðurskurði til velferðarmála.
Guðbjargar Björgvinsdóttur
íþróttahúsinu
Seitjarnarnesi
í Nemendur N
(frá 4 ára aldrjj
Innritun
stendur yfír
í síma 5620091.
Stjórnleysi á Austur-Tímor:
Blóð flæðir
um göturnar
Vopnaðar sveitir stuðnings-
manna stjórnarinnar í Indónesíu
gengu berserksgang um götur Dili,
höfuðborgar Austur-Tímor, í gær-
kvöld. Þær réðust á heimili Carlos
Belos, biskups og friðarverðlauna-
hafa Nóbels, og kveiktu í kirkju-
skrifstofu og fjölda húsa, að sögn
sjónarvotta.
Sjálfstæðissinnar sögðu í gær að
eitt hundrað manns að minnsta
kosti hefðu fallið í valinn í blóðug-
um átökum frá því úrslit þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar um sjálfstæði
landsins voru kynnt á laugardag.
Yfirgnæfandi meirihluti íbúa Aust-
ur-Tímor lýsti yfir stuðningi sínum
við sjálfstæði landsins í atkvæða-
greiðslunni sem var haldin síðast-
liðinn mánudag.
Austur-Timor er fyrram portú-
gölsk nýlenda en Indónesar hafa
stjórnað landinu með harðri hendi í
meira en tuttugu ár.
Stuðningsmenn sjálfstæðis sök-
uðu indónesíska herinn um að
skipuleggja blóðbaðið á sama tíma
og ráðherrar í stjórn Indónesíu
flugu til Austur-Tímor til að ræða
ófremdarástandið sem þar hefur
ríkt.
Fáir þorðu út úr húsum sínum í
gær til að ganga úr skugga um
hvort tölur um fjölda látinna væru
réttar. Fulltrúi portúgalskra stjórn-
valda í Jakarta, höfuðborg
Indónesíu, sagði að meira en eitt
hundrað manns hefðu hugsanlega
verið drepnir og að tugir hefðu
særst í árásum óaldarflokka stuðn-
ingsmanna Jakartastjórnarinnar.
„Allar upplýsingar benda til að
verið sé að fremja fjöldamorð. Mér
er sagt að hundrað látnir sé variega
áætlað," sagði Ana Gomes í viðtali
við portúgalska útvarpsstöð.
Einn af leiðtogum andspymunn-
ar, sem hefur aðsetur í Lissabon,
sagði síðar að meira en tvö hundruð
hefðu verið drepnir.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
átti að koma saman á bak við lukt-
ar dyr í gærkvöld til að ræða
ástandið á Austur-Tímor.
Carlos Belo biskup, andlegur leiðtogi Austur-Tímora, biðst fyrir við messu í
höfuðborginni Dili í gær. Hundruð hafa fallið á Austur-Tímor um helgina eft-
ir að landsmenn lýstu yfir sjálfstæðisvilja sínum. Tuttugu og fimm þúsund
manns hafa flúið heimili sín síðustu daga vegna ofbeldisverka.
Veröbréfasvikari handtekinn:
Faldi sig á lúxus-
hóteli i Hamborg
Bandaríski verðbréfasalinn Mart-
in Frankel, sem sakaður er um að
hafa svikið hundruð milljóna dollara
út úr tryggingafélögum í flmm rikj-
um, dúsir nú í fangelsi í Hamborg í
Þýskalandi. Hann var handtekinn á
fimm stjörnu lúxushóteli þar á laug-
ardagskvöld. Þar með lauk fjögurra
mánaða leit lögreglu að honum.
Frankel og lagskona hans,
Cynthia Allison, höfðu dvalið á hót-
elinu í átta vikur undir fólskum
nöfnum.
Talsmaður Hamborgarlögreglunn-
ar sagði að skötuhjúin hefðu gefist
upp mótþróalaust. Fölsuð vegabréf,
demantar og reiðufé fundust einnig á
hótelherberginu.
Bandaríska alríkislögreglan FBI
lét þýsku lögregluna vita um dvalar-
stað verðbréfasalans. Frankel á yfir
höfði sér allt að tuttugu og fimm ára
Martin Frankel verðbréfasvikari var
gómaður í Hamborg um helgina.
Hann hafði þá verið á flótta undan
réttvísinni í fjóra mánuði.
fangelsi í Bandaríkjunum, verði
hann fundinn sekur.
Stuttar fréttir i>v
Berklar í sókn
Berklar eru vaxandi vandamál
í Danmörku. Að sögn blaðsins
Jótlandspóstsins hefur tilfellum
fjölgað úr um það bil 350 frá upp-
hafi þessa áratugar til 548 tilfella
á síðasta ári. Sjúkdómurinn
grasserar einkum meðal heimilis-
lausra, innflytjenda og þeirra sem
hafa orðið undir í samfélaginu.
Helveg í takt við ESB
Niels Helveg Petersen, utanrík-
isráðherra Danmerkur, er sam-
stíga nýjum
framkvæmda-
stjóra utanrík-
ismála innan
Evrópusam-
bandsins þegar
hann segir að
sambandið
þurfi að auka
Qárframlög sín til varnarmála.
Niels Helveg segir að ESB þurfi
að vera betur í stakk búið til að
beita herafla þegr neyðarástand
komi upp. Þann lærdóm megi
draga af átökunum í Kosovo.
Barist við Bogota
Að minnsta kosti sex kól-
umbískir hermenn hafa fallið í
átökum við marxíska skæruliða í
Qalllendi rétt sunnan við Bogota,
höfuðborg Kólumbíu.
Sprengt á Korsíku
Öflug sprengja olli miklum
skemmdum á stjórnarskrifstofu í
Ajaccio, höfuðborg frönsku eyjar-
innar Korsíku, í gær, aðeins
nokkrum klukkustundum fyrm
komu franska forsætisráðherr-
ans.
Samherji gegn Ciinton
Einn helsti forystumaður
demókrataflokksins í öldunga-
deild Banda-
ríkjaþings, Pat-
rick Leahy, tók
í gær undir með
þeim sem hafa
hvatt Bill Clint-
on forseta til að
hætta við að
veita sextán fé-
lögum í skæruliðahópi frá Puerto
Rico sakaruppgjöf. Skæruliðahóp-
urinn er grunaður um að hafa
staðið fyrir 130 sprengjutilræðum
í Bandaríkjunum hið minnsta.
Lofa bót og betrun
Fundi leiðtoga frönskumælandi
ríkja lauk í Kanada í gær með lof-
orði um að bæta ástand mannrétt-
indamála innan eigin raða. mann-
réttindafrömuöir voru þó
vonsviknir yfir að ekki skyldi
gripið til aðgerða gegn brotlegum.
Eldar slökktir
Slökkviliðsmenn í Kaliforníu
náðu um helgina tökum á eldum
sem höfðu logað í meira en viku í
fjöllunum austur af Los Angeles.
Dennis skvettir úr sér
Leifar fellibylsins Dennis fóru
yfir Norður-Karólínu í gær og yf-
ir í Virginíú þar sem hann færði
íbúunum langþráð regn.
Árásir í Kosovo
Albanskur flutnmgabústjóri lét
lífið og tveir albanskir farþegar í
langferðabíl slösuðust í tveimur
aðskildum handsprengjuárásum í
Kosovo um helgina.
Prímakov snortinn
Jevgení Prímakov, fyrrum for-
sætisráðherra Rússlands, sagðist
í gær véra
snortinn af
hlýjum óskum
Madeleine Al-
bright, utanrík-
isráðherra
Bandarikjanna,
í sinn garð.
Hann sagði að
njósnarar hefðu veitt henni rang-
ar upplýsingar um heilsufar hans.
Engar dagsetningar
Evrópusambandið vék sér und-
an því í gær að fastsetja dagsetn-
ingar fyrir lokaviðræður um inn-
töku nýrra ríkja.