Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Page 31
33 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 ■ - Þorbjörn Jensson íslenska karlalandsliðið í hand- f* bolta mætir á morgun Makedóníu í fyrri leik þjóðanna á einni viku en þjóð sem hefur betur í tveimur leikjum vinnur sér þátttökurétt á landsliða í Króatíu í lok anúar. ísland hefur aldrei komist á jrslit Evrópumóts í þau 3 skipti sem keppnin hefur farið fram frá 1994 en nú er möguleikinn að bæta úr því. Þorbjöm Jensson landsliðsþjáifari er vongóður en hann er þó án þriggja burðarása liðsins undanfarin ár, þeirra Geirs Sveinssonar sem er hættur og Valdimars Grímssonar og^ Patreks Jóhannessonar sem eiga báðir við meiðsli að stríða. - Hvemig er staðan á hópnum? „Það er nokkur staða, þó enn sé tvísýnt með Dag Sigurðsson. Það verð- ekkert hægt að með hann fyrr en á leikdag. Við erum búnir að æfa vel á síðustu dögum, erum að ná upp einbeitingunni á leikina og höfum til þess spilað æfinga- leiki við Aftureldingu og Stjömuna." íslenska karlalandsliðið í handbolta - sigursælir í Kaplakrika 1990 28. júní 29. júní 30. júní Kuwait Noregur Danmörk 26-15 © 18-21 © 18-22 © 1992 19. október Egyptaland 24-23 © 1993 20. október Króatía 24-22 © 1995 28. apríl Austurríki 25-24 © 1. október Rúmenía 24-23 © 1. nóvember Rússland 20-18 © 29. nóvember Pólland 31-26 © 1999 15. maí Kýpur 42-11 © 16. maí Kýpur 34-13 © 30. maí Sviss 32-23 © Er Kaplakriki lykilstaffur? íslenska karlalcuidsliðið í handbolta spilar um helgina afar mikilvægan heimaleik gegn Makedóníu í undankeppni Evrópumótsins í handbolta sem fram fer í Króatíu í janúar næstkomandi. Leikstaðurinn, sem varð fyrir valinu í þetta skiptið, hefur reynst íslenska landsliðinu mjög vel þegar liðið hefur leikiö þar sína leiki frá því að húsið var tekið í notkun 1990. Eins og sjá má á grafínu hér fyrir ofan hefur ísland unnið 10 af 12 landsleikjum, er með 83,3% sigurhlutfall, og einu leikimir sem hafa tapast vom gegn Noregi og Danmörku í æfingamóti fyrir rúmum níu áram. Síðustu níu landsleikir hafa unnist í húsinu og allir sjö í undankeppni Evrópumóts landsliða þefrri sömu og keppt er í nú. Sigurhefðin fleytir liðinu því vonandi langt á morgun. í vor lékum við leikina í undanriðlinum gegn Kýpur og Sviss í Kaplakrika og unnum þá mjög sannfærandi, Kýpur með 31 og 21 marki og Svisslendinga með níu mörkum en sá sigur tryggði liðinu leikina sem era fram undan við Makedóníu. -ÓÓJ iífslgarsport» Ekki miss af... Laugardagur Úrvalsdeild karla í knatt- - Margir telja að við höfum ver- ið heppnir með mótherja að þessu sinni: „Ég hef heyrt á fólki að það héldi að Makedónía væri ekki okkur mikil ógnun en þeir hafa komist á tvö síð- ustu stórmót, bæði á EM á Ítalíu og á HM í Egyptalandi og það er ekki bara hvað lið sem er sem nær svo langt. Þegar við fórum að skoða líka hvem- ig liðið hefur komist svo langt er það heimavöllurinn sem er að skila þeim á þessi stórmót. Það er einkum þessi staðreynd sem við þurfum að berjast gegn og þá með því að ná góðri for- ustu á heimavelli.“ - Hvemig handbolta spilar þetta makedóníska lið? „Þeir spila þennan dæmigerða júgóslavneska handbolta, framliggj- andi vöm, mjög tæknilegt lið og með boltatæknina því í góðu lagi. Við undirbúum okkur í takt við hvemig þeir spila en liðið er með nýjan þjálf- ara sem gæti reyndar hafa breytt út frá fyrri leikaðferðum þeirra.“ - Stefnir í sams konar dramatík í kringum þessa leiki eins og í leikjunum gegn Sviss í vor? „Ég býst við svipaðri dramatík nú en þá var 18 marka sveifla milli leikja, níu marka heimasigrar á báða vegu. Það koma hundrað stuðnings- menn með liðinu í flugvélinni frá Makedóniu og ég vona að það mæti fullt af fólki til að yfirgnæfa þá. Eins og ég hef séð til leikja í Makedóníu þá taka áhorfendur þar alveg gífur- lega stóran þátt í leiknum og era mjög atkvæðamiklir. Ég myndi vilja fá mikla stemningu hér á morgun sem myndi þá „peppa“ leikmenn okk- ar upp og sjá til þess að það heyrist ekki í þessum 100 sem koma með þeirra liði.“ - Við höfum aldrei komist á Evr- ópumótið, erum við nokkuð búin að byggja okkur vegg? „Við höfum aldrei komist þangað en ég vona að menn trúi því ekki að þetta sé ekki okkar mót. Það kemur að því að við forum á Evrópumót og ég er mikið að vona að það takist núna enda í raun nauðsynlegt því sæti á Ólympíuleikana er í boði.“ - Hvað tekur við komumst við áfram eftir þessa leiki? „Tólf lið komast í úrslitin í Króa- tíu. Það getur verið nóg fyrir okkur að ná þriðja sæti í riðlinum þar til að tryggja okkur Ólympíusæti. Það era það margar þjóðir þar sem era þegar búnar að tryggja sig og það auðveld- ar okkur leiðina til Sydney.“ - Komst þú eitthvað að þeirri ákvörðun að heimaleikurinn er spilaður í Kaplakrika? „Já, ég vildi spila í Kaplakrika því þar hefur okkur gengið vel. Þar hef- ur myndast mikil stemning, þangað mæta margir og ég vildi halda upp- teknum hætti með þennan leik þar sem hann er það mikilvægur. Það hefur myndast sigurhefði í húsinu og ég er að vona að við náum að vinna það stórt að það dugi í seinni leiknum úti í Makedóníu." -ÓÓJ spymu, 17. umferð, kl. 14.00: Víkingur-KR Keflavík-ÍBV ÍA-Breiðablik Valur-Fram Leiftur-Grindavík ... KR-ingar geta tryggt sér ís- landsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í 31 ár með sigri á Víking- um í Laugardalnum og jafn- framt ef Eyjamenn tapa stigum gegn Keflavík. DV-sport tofæran, fimmta og síðasta umferð: Lokaumferðin fer fram á Hellu . Sunnudagur 1. deild karla í knatt- Ispymu, 17. umferð, kl. 14.00: Fylkir-KVA Dalvik-KA V íðir-Skallagr ímur 1 ÍR Stjarnan FH-Þróttur R. ... Fylkir hefur þegar tryggt sér sigur en mikil barátta er Iannars staðar í deildinni, bæði um að komast upp í efstu deild og að falla ekki í 2. deild. Bikarúrslit kvenna í knatt- spymu kl. 17.00: Breiðablik og KR leika til úr- slita á Laugardalsvelli. Evrópukeppni landsliða í handbolta: ísland spilar fyrri leikinn gegn Makedóníu í Kaplakrika ■ kl. 20.00. Úrval irmlendra hlutabréfa Dæmi um félðq Markaðsverð Væqi islensk erfðagreining hf. 48.624.881 17,7% islandsbanki hf. 33.108.499 12,1% Tryggingamiðstöðin hf. 29.263.700 10,7% Opin kerfi hf. 26.678.900 9,7% Eimskipafélag fslands hf. 19.565.715 7,1% Marel hf. 15.302.813 5,6% Önnur félöq oq laust fé 101.730.339 37,1% Samtals eignir 274.274.847 100% Sjóðurinn er fyrir þá sem vilja taka áhættu með hluta af sparifé sínu og líta á eign f sjóðnum sem langtímaeign. Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR fSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 8900. Myndsendir: 560-8910.VefFang: www.vib.is Agla E. Hendriksdóttir deildarstjóri Einstaklingsþjónustu mt Hefur þú áhuga? Komdu viðí dag!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.