Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 58
66
myndbðnd
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 UV
Geimverur og aðrar eftirmyndir
- Kvikmyndin The Faculty (1998,
sjá umfjöllun) er gerö eftir handriti
Kevins Williamsons sem þekktastur
er fyrir að hafa skrifað Scream
(1996) og framhald hennar (1997).
Scream-myndirnar vöktu sérstaka
athygli fyrir bersögla meðvitund
um eðli hrollvekja og síðar fram-
haldsmynda. Leiknum er viðhaldið
í The Faculty en athyglinni er beint
að afmörkuðum hópi mynda sem
fjalla um geimverur er gera manns-
líkama að sínum. Fer því víðsfjarri
að um „stuld“ sé að ræða því hvað
eftir annað er fjallaö með beinum
hætti um „frummyndina" Invasion
of the Body Snatchers (1956). Per-
sónan Stokely bendir meira að segja
á að framhaldssaga Jacks Finneys
sem Body Snatchers er gerð eftir sé
i raun stuldur á framhaldssögu Ro-
berts A. Heinleins, The Puppet
Masters (1951), sem var aftur á móti
ekki kvikmynduð fyrr en árið 1994.
The Faculty (1998). Geimverur sestar að í mannslíkömum.
kommúnista. Sú túlkun er þó fjarri
því að vera rétt þar sem myndin
varar við hvers lags hugmynda-
fræðilegri kúgun - kommúnískri
eður ei. Kemur það skýrt fram í
þeim tveimur eftirmyndum sem
gerðar hafa verið.
Afmennskun nútíma-
mannsins
Þótt vegur vísindamynda færi
minnkandi eftir sjötta áratuginn
varð minnið sem lýsir því hvemig
nútíma-/framtíðarmaðurinn tapar
mennsku sinni sífellt fyrirferðar-
meira og áhrifaríkara. Við þekkjum
það úr myndum á borð við 2001: A
Space Odyssey (1968), THX-1138
(1971), Logan’s Run (1976) og Blade
Runner (1982), auk tveggja eftir-
gerða Invasion of the Body
Snatchers (1956). Samnefnd útfærsla
frá árinu 1978 í leikstjórn Philips
Kaufmans flytur atburðarásina til
San Francisco og gerir geimverum-
ar að manngervingum nútíma-
mannsins sem lifa í firrtum tengsl-
um við samborgara sína. Það var
síðan Abel Ferrcira sem leikstýrði
þriðju myndinni Body Snatchers:
The Invasion Continues (1993) en
hún leggur fræbelgina að jöfnu við
bandaríska herinn. Gagnrýnin á
heilaþvott hefur því flust frá komm-
únistum yfir á herinn.
Undanfarið hefur enn einu sinni
verið snúið upp á formúluna með
unglingahrollvekjunum Disturbing
Behaviour (1998) og The Faculty
sem gera fyrirmyndarnemendur að
heilaþvegnum einstaklingum í
formi geimvera. Skilaboð mynd-
anna eru skýr: Treystið á persónu-
legar tilfinningar í stað forræði
samfélagsins.
-Bjöm Æ. Norðfjörð
.„.jFVRRII VIKUR J TIT1M { llTrFr J Tr„
SÆT,i VIKA JÁ LISTAj TITILL J UTGEF' J TEG>
1 j j j 1 j j . i. 3 j j . ,).. Youve Got Mail j j j Wamer Myndir j Gaman
2 i NÝ j j ) 1 j j j Comipter J J j Myndform j J J Spenna
3 j j 5 j j 2 j j Istill knowwhatyoudid... Skífan Spenna
4 j j j 3 j j j 5 j j j ’j j Blast From The Past J J J Myndfoim J J J Gaman
5 j j 2 j j 3 Basketball { CIC Myndbönd j Gaman
6 j j j ) j t 6 j j j 3 j j j j Night At The Roxbury J j j CIC Myndbön j f j Gaman
7 4 j j 6 j j j j j Waterboy J SAM Myndbönd J J J j Skffan j J J Gaman
8 J i ) j 7 j j j j 3 Thin Red Line Drama
9 j j 8 i j 7 j j American History X j Myndform j Drama
10 NÝ j j j 1 j j j Mighty Joe Young J J j SAM Myndbönd j J J Spenna
11 j j 11 j j 2 j j Permanent midnight j SAM Myndbönd j Drama
12 j j j 10 j j j 6 j j j Stepmom J J J Skffan J > J Drama
13 j j 9 j j 4 j j Soldier j Wamer Myndir j Spenna
14 j j j j 12 j j j 9 j j j j j 1 MeetJoeBlack J 1 j CIC Myndbönd j J J Drama
15 j 15 j j 5 EverAfter J Skífan J Gaman
16 i j j j 17 j j j j 2 i j j. j Phonix J -r’:- *•.•". J” j Háskólabíó j j i Spenna
17 j j 13 j i 2 j j Babe: Pig in the city j CIC Myndbönd j Gaman
18 j j j 19 i j j j 2 j j Pecker 1 J j Myndfoim j J J Gatnan
19 j j 14 j j 8 j j Practical Magic j Wamer Myndir j Gaman
20 j j i 18 j j 11 j j i Enemy Of The State J J J SAM Myndbðnd J Spenna
Invisible Invaders (1959). Óvelkomnir gestir í
kvikmynd frá gullöll vísindamyndanna.
Það er ekki að ástæðulausu
að 6. áratugurinn er jafnan
nefndur gullöld vísindamynda
því á tímabilinu 1948-62 vorú •
gerðar um 500 slíkar myndir.
Margar þeirra byggðu á lyk-
ilminni í visindaskáldskap sem
lýsir hvernig persónur tapa
mannlegum eiginleikum og
verða að skynlausum skepnum
(þ.e. geimverum). Mætti hér
tína til myndir eins og
Invaders From Mars (1953),
Plan 9 From Outer Space
(1956), I Married a Monster
From Outer Space (1958), The
Invisible Invaders (1959) og
The Day Mars Invaded the
Earth (1962) en sú mikilvæg-
asta er án efa mynd Dons Sie-
gels, Invasion of the Body
Snatchers (1956). Hún fjallar
um lækninn Miles (Kevin
McCarthy) sem kemur í byrjun
myndarinnar aftur heim til bæjar-
ins Santa Mira eftir að hafa verið
fjarverandi á ráðstefnu. Fjöldi sjúk-
linga biður hans og allir halda því
fram að nákomnir ættingjar þeirra
séu ekki það sem þeir líta út fyrir
að vera. Miles er vantrúaður í
fyrstu en fær brátt óyggjandi sann-
anir fyrir því að mannslíki vaxi upp
úr risavöxnum fræbelgjum og taki
yfir frummyndir sínar meðan þær
sofa. Miles og unnusta hans, Becky
(Dana Wynter), leggja á flótta og
reyna að koma mönnum í skilning
um hvað sé á seyði áður en eftir-
myndirnar leggja heiminn undir
sig.
Margir hafa talið myndina vara
við kommúnisma og litið svo á að
fræbelgirnir tákni heilaþvegna
Vikan 31. ágúst - 6. september
The Faculty
Æ, þessir kennarar
++ Líkt og fjölmargar aðrar unglingamyndir ijallar þessi um líf ung-
menna í menntaskóla. Eins og gengur kemur nemendum misvel saman
þótt þeir séu nú almennt sammála um að kennarar séu furðuleg fyrirbæri.
Reyndar er það svo að kennaramir verða fúrðulegri með hverjum deginum
og fljótlega hættir aðalhetjunum að standa á sama. Casey Conner (Elijah
Wood) kemst á þá skoðun að þeir séu hreinlega geimverur og rökstyður það
með vísindasöguminnum sem Stokely (Clea DuVall) skólasystir hans hefur
frætt hann um. Ásamt öðrum utangarðsnemendum ákveða þau að komast til
botns i þessu einkennilega máli. Þótt The Faculty sé sæmilegasta mynd gerir
hún varla mikið fyrir feril Robert Rodriguez sem virðist heldur á niðurleið.
Myndin sker sig lítt frá öðrum táningatrekkjurum nema hvað leikaramir era
miklu skemmtilegri en allajafna í slíkum myndum. Reyndar em í myndinni
tilburðir sem hefði mátt telja frumlega hefði Disturbing Behaviour (1998) ekki
leikið þá nokkm fyrr. Þessar myndir faila einnig báðar í þá gryfju að upphefja
eiturlyfjaneyslu sem baráttuúrræði gegn forræði samfélagsins - en ætli for-
fólinum eiturlyfianeytendum verði ekki lítið ágengt gegn „kerfmu“?
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Robert Rodriguez. Aðalhlutverk: Elijah Wood, Clea
DuVall, Josh Hartnett og Robert Patrick. Bandarísk, 1998. Lengd: 100 mín. Bönnuð
innan 16. -bæn
The Revenger s Comedies
Hefndin er sæt
++ Henrý Bell og Karen Knightly hittast þegar þau
bæði hýggjast fyrirfara sér með því að kasta sér í
Thames-ána. f stað þess að ljúka verkinu kikja þau við á
kaffíhúsi og segja hvort öðm sorgarsögur sínar. Bæði
kenna þau einni manneskju öðm fremur um ófarir sínar, Henry Bell mann-
inum sem rændi starfmu hans og Karen Knightly konunni sem rændi elsk-
huga hennar. Þau ákveða að hefna sín og skiptast á fómarlömbum.
Söguþráðurinn gefúr til kynna nokkuð svarta kómedíu en í rauninni er
myndin í fremur hefðbundnum leikhúss/sjónvarpsmyndastil og alltof góðlát-
legum tO að ná einhverjum almennilegum kvikindisskap. Myndin er nokkuð
fyndin á köflum, ekkert átakanlega þó, og telst varla merkilegt stykki. Nokkr-
ar skrýtnar og skondnar aukapersónur og fyrirtaks leikarar redda myndinni
þannig að hún verður sæmOeg afþreying. Þar má nefna m.a. Liz Smith og
Charlotte Coleman í hlutverkum undarlegs þjónustufólks, Rupert Graves í
hlutverki bróður Karen Knightly og Martin Clunes í hlutverki óþolandi held-
rimannsmdda. Stórleikararnir Sam NeOl, Helena Bonham Carter og Kristin
Scott Thomas gera hins vegar lítið meira en fyrir þau er lagt.
Útgefandl: Skífan. Leikstjóri: Malcolm Mowbray. Aðalhlutverk: Sam Neill, Helena
Bonham Carter og Kristin Scott Thomas. Bresk/frönsk, 1997. Lengd: 92 min. Ekki
við hæfi mjög ungra barna. -PJ
Free Money m},
Tveir iúðar o| trylltur faðir 'i:
^ Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar menn
geta ekki gert upp við sig hvemig mynd þeO: ætla að
gera. Free Money er að upplagi grínmynd en tapar svo þræð-
Oium stundum í einhverjum spennumyndatOburðum og
óviðeigandi dramatik. Aðalsöguhetjur myndarinnar era
tveir ógæfulegir ólukkufuglar sem neyðast tO að giftast tviburastelpum fyr-
ir að hafa bamað þær. Faðir þeirra er ófrýnOegur skapofsamaður sem þræl-
ar þeim út og stjómar heimOOiu með harðri hendi. TO að losna undan of-
rOti hans ákveða þeir að ræna lest en flest fer úrskeiðis sem hugsast getur
í þenri framkvæmd. Þessi mynd gerir út á nokkuð groddalega persónusköp-
un, sérstaklega hvað foðurinn varðar, og kemst nokkuð áleiðis með hana,
sem og ófyrirleitnu gríni með ógæfu náungans. Það vantar hins vegar svo-
lítið upp á að myndin heppnist nógu vel, sérstaklega er langt á mOli góðra
brandara í seinni hlutanum. Ágætir leOíarar lífga mynduia upp og fer Mar-
lon Brando fyrir hópnum í hlutverki hins iOvíga foður. Thomas Haden
Church er eninig mjög skemmtOegur í hlutverki annars aulans. Svo er
einnig merkOega mikið af úrvalsleOíurum i litlum aukahlutverkum, svo
sem Donald Sutherland, David Arquette og MartOi Sheen.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Yves Simoneau. Aðalhlutverk: Marlon Brando,
Charles Sheen og Thomas Haden Church. Bandarísk, 1998. Lengd: 91 mín. Bönn-
uð innan 12 ára. -PJ
Líkamsþjófarnir