Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Page 18
26
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
Sviðsljós
Ofurfyrirsætan og markvörðurinn:
Bíða spennt eftir
fæðingu dóttur
Sophie reið
vegna ásakana
fjölmiðla
Sophie, greifynja af Wessex og
eiginkona Játvarðar prins, er
reið vegna ásakana fjölmiðla
umað hún noti tengsl sín við
bresku konungsfjölskylduna al-
mannatengslafyrirtæki sínu til
framdráttar. Meðeigandi Sophie
að fyrirtækinu, Murray Harkin,
sagði í sjónvarpsviðtali að
Sophie hefði skýrt frá því að hún
myndi ekki semja við viðskipta-
vini sem ætluðu að hagnast á
stöðu hennar.
Franski markvörðurinn Fabien
Barthez og ofurfyrirsætan Linda
Evangelista eiga von á dóttur í
febrúar, að því er erlend slúðurblöð
greina frás. Fabien, sem er 28 ára, og
Linda, sem er 34 ára, hittust á
næturklúbbnum Pigeonnier í St.
Tropez í júlí í fyrra þegar hann var að
halda upp á sigurinn í
heimsmeistarkeppninni í fótbolta.
Evangelista var þá nýbúin að slíta
sambandi sínu við leikarann Kyle
Maclachlan.
Fabien og Linda hafa siðan verið
eitt frægasta par Evrópu og Lindu
líður svo vel í Monakó að Barthez
hefur meðal annars afþakkað
spennandi tilboð frá Manchester
United. Hann vill vera áfram í
skattaparadísinni vegna þess að
Lindu líður vel þar.
Og gárungarnir segja að nú feti
Barthez í fótspor fótboltakappans
Linda og Fabien hittust í júlí í fyrra. Þau eiga von á dóttur í febrúar.
Davids Beckhams þar sem hann eigi
von á barni með einni af eftirsóttustu
konum heims. Beckham eignaðist fyrr
á árinu barn með eiginkonu sinni,
Kryddpíunni Victoriu Adams.
Linda á að hafa sagt vinum sínum
fyrr i þessum mánuði frá því að hún
vissi þegar hvers kyns bamið væri
sem hún gengi með. Hún gat ekki
stillt sig um að segja frá því að hún
ætti von á stúlkubarni. Og Fabien
mun hafa orðið himinlifandi.
Hinir verðandi foreldrar búa í húsi
í Roquebrune-Cap Martin rétt við
Mónakó. Linda og Fabien fengu
reyndar óskemmtilega heimsókn í
upphafi ágústmánaðar. Þjófar höfðu á
brott með sér skartgripi að andvirði
10 milljóna islenskra króna, tölvu og
farsíma. Á meðan sváfu Linda og
Fabien vært á efri hæð hússins sem
ekkert viðvörunarkerfi var í.
Elísabet setur
Camillu í bann
Elísabet Englandsdrottning
hefur ákveðið að ástkona Karls
prins, Camilla Parker Bowles,
fái ekki að taka þátt í athöfnum
undir þaki drottningar, að þvi er
æsifréttablaðið Sunday Express
skrifar. Drottningin á einnig að
hafa tjáð Karli að bannið gildi
um alla framtið. Sunday Express
segir bannið gilda í Bucking-
hamhöll, Windsorkastala og Hol-
yroodhöll í Edinborg.
BORGARSKIFULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi
í Reykjavík
Víðidalur, dýraspítali
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Víðidal, hvað
varðar lóð dýraspítalans. Breyting verði á mörkum lóðar og staðsetningu
byggingarreits.
Borgartún 19, nýbygging
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Borgartún,
hvað varðar lóðina Borgartún 19. Tillaga er um að reisa skrifstofuhús á
lóðinni, þriggja hæða með inndreginni þakhæð ásamt tveggja hæða
bílgeymslu í mön við Sætún, en rífa hús sem fyrir er.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í
Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 10:00 til 16:00 frá 22. september til 20.
október 1999. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 3. nóvember 1999. Þeir sem eigi gera
athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
_
Italska stórstjarnan Sophia Loren hélt upp á 65 ára afmæli sitt í Miinchen í
Þýskalandi á mánudag og brá sér í leikhús til að horfa á söngleikinn
Koppafeiti. Sophia var létt í skapi og glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Sophia Loren orðin 65 ára:
Sem hvert annað starf
að vera stórstjarna
Trúi því hver sem vill. ítalska
kvikmyndaleikkonan Sophia Loren
varð 65 ára á mánudag og gerði sér
ekki neinn stóran dagamun af því
tilefni. Hún lýsti því þó yfir að það
væri bara rétt eins og hvert annað
starf að vera stórstjama. Ekki var
að heyra á henni að hún hygðist
draga sig í hlé í bráð.
„Það er bara eins og hvert annað
starf að vera díva,“ sagði Loren í
viðtali við italska dagblaðið La
Repubblica á mánudag. „Þegar mað-
ur fer heim er það ósköp ámóta og
að fara heim af skrifstofunni."
Ekki er ofsögum sagt að Sophia
Loren sé lifandi tákn italskrar
menningar síðustu áratuga. Hún
hefur lifað af marga helstu kvik-
myndaforkólfa Ítalíu eftirstriðsár-
anna, menn eins og leikstjórana
Federico Fellini og Vittorio De Sica
og stórleikarann Marcello Mastroi-
anni.
Italskir fjölmiðlar voru mjög upp-
teknir af afmæli leikkonunnar,
enda kannski ekki ástæða til að
hampa mörgu í ítölsku kvikmynda-
lífi um þessar mundir. En hún
Sophia blivur.
Nicholson og
Lara Flynn par
Það vakti athygli þegar Jack
Nicholson og Lara Flynn Boyle, sem
lék í sjónvarpsþáttaröðinni Tví-
drangar, komu saman til Emmy-
verðlaunaafhendingarinnar í
Bandarikjunum. Nú skrifa netútgáf-
ur bandarískra fjölmiðla að Jack og
Lara séu ekki bara nánir vinir.
Samkvæmt Daily News eru þau
kærustupar og hafa verið það síðan
snemma i sumar.
Það var við Emmy-verðlaunaaf-
hendinguna sem þau sýndu sig fyrst
saman opinberlega. En Jack Nichol-
son var ekkert sérstaklega vingjam-
legur við forvitna blaðamenn og
ljósmyndara. Að verðlaunaafhend-
ingunni lokinni flýtti hann sér
ásamt ungu kærustunni sinni út
um bakdyr í límósínu sem beið
þeirra.
Þau hefðu getað tekið þátt í sigur-
hátíð ánægðra starfsfélaga Lauru.
Hún leikur nefnilega í mynda-
flokknum The Practice sem varð
verðlaunaðm-: En samkvæmt Daily
News kusu Linda og Jack að eyða
kvöldinu heima í ró og næði út af
fyrir sig.
Heimildir Daily News segja að
Lara og Jack búi ekki saman. Sam-
band þeirra hefur þróast smátt og
smátt og nú er það komið á það stig
að þau vilja láta sjá sig saman.
Ýmsir velta því nú fyrir sér
hvaða ráðum gamlingjar eins og
Jack og Michael Douglas, sem er
með Catherine Zeta-Jones, beiti til
að krækja í ungar konur.