Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1999, Side 33
UV LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1999
_________________________________________ #/*»
30 ára samband við ísland:
Dos Paraguayos yfirgefa Hveragerði
hafa spilað frítt á næstum hverju sjúkrahúsi og elliheimili á Islandi
Þeir félagar, Tveir Paragvæar, hluti af hinni gamalfrægu grúppu Los Paraguayos, hafa skemmt hótelgestum á Örk-
inni í sumar og heimsóttu flest íslensk sjúkrahús. DV-mynd Eva Hreinsdóttir.
Sannkallaður sjónarsviptir
verður að brottför hinna frægu
Dos Paraguayos, sem áður hétu
Los Paraguayos, þegar þeir fara
senn frá Hveragerði eftir sumar-
samning við Hótel Örk. Þeir hafa
óneitanlega sett svip sinn á bæjar-
lífið hér, ekki síst þegar þeir eru
íklæddir skrautlegum skyrtum
sínum, með barðastóra hatta, og
syngja og spila af innlifim fyrir
gesti Arkarinnar og fleiri. Frétta-
ritari DV spjallaði við þá stutta
stund í síðustu viku á Örkinni,
þar sem þeir voru að fara að spiia
og syngja fyrir matargesti.
Blandaðu meira
Tvímenningamir Dos Paragu-
ayos heita Felix Peralta og
Francisco Marecos. Þeir komu
fyrst til íslands árið 1968 og segjast
þá hafa kynnt íslendingum lagið
vinsæla (eins og við þekkjum það)
„Dibbidibbi-dimm-, dibbi-dimm“.
Lagið er frá Mexíkó og mjög fallegt
en síðan hafi margir íslenskir tón-
listarmenn útsett og sungið lagið
og breytt því í dægurlag. Þeir fé-
lagar segjast lika hafa kynnt ís-
lendingum lögin „Labamba" og
„Guantana Mera“. Margir hafi
einnig leikið sér að útsetningum á
þeim. Og flestir þekkja síðast-
nefnda lagið sem Blandaðu meira!
„Við komum svo aftur til ís-
lands ári siðar, íslendingar eru
svo yndislegt fólk,“ rifja þeir félag-
ar upp. Síðast voru þeir hérlendis
árið 1993 en í ár hafa þeir verið í
Hveragerði síðan í apríl. Það er
einkum Felix sem verður fyrir
svörum og hann bætir iðulega við
„minn“ eða „mín“ aftan við nöfn
íslendinga sem hann ræðir við.
Eiga heimili á Kanarí-
eyjum
„Okkur finnst svo gaman að
spila, þetta er nú einu sinni okkar
l£f og list. Við búum á Kanaríeyj-
um á vetuma. Þar eigum við fjöl-
skyldur. Ég er fráskilinn og á einn
uppkominn son en vinur minn,
Francisco er enn þá kvæntinr og
talar daglega við konu sína. Hann
á líka einn son. Við lifum einföldu
lífi en lifum lífinu eins og okkur
finnst best. Við þurfum ekki mikið
til þess að lifa, tónlistin er okkar
líf,“ segir Felix.
Dos Pcuaguayos hafa nóg að
gera á vetuma á Kanaríeyjum og
eru þeir liklega kunnir mörgum
íslenskum ferðalöngmn þar. Þeir
hafa alls gefið út 78 plötur og
geislaplötur og hafa unnið 21 gull-
plötu. Þeir félagar segjast hafa
heimsótt 68 lönd en vilja ekki gera
upp á milli þeirra hvað móttökur
snertir.
„Maður finnur að nú er fólk í sí-
aúknum mæli að verða hrifið af
diskómúsík og karaókí. Þessi teg-
und tónlistar verður þó aldrei lik
okkar. Sem betur fer verður alltaf
til fólk sem kann að meta okkar
tónlist," segir Felix.
Spilað og sungið á spít-
ölum
Talið berst að heimsóknum
þeirra félaganna tveggja til ís-
lenskra sjúklinga í sumar:
„Það sem gefur okkur einna
mest er það leika fyrir sjúklinga á
sjúkrahúsum og íbúa elliheimila.
Við höfúm spilað, að ég held, í öU-
rnn slikum stofnunum á íslandi
við góðar undirtektir og að sjálf-
sögðu höfum við gefið vinnu okk-
ar,“ segir Felix og endurtekur:
„Icelanders are so nice people," og
undir það tekur Francisco.
Dos Paraguayos eru ekki alfarn-
ir frá íslandi, ekki strax. Þeir hafa
gert samning við veitingastaðinn
Genghis Kahn í Reykjavík til loka
október og þar gefst Reykvíking-
um og öðrum kostur á að hlusta á
ljúfa tónlist þeirra félaga.
-EH
a einu bretti
Við hjá Toyota - betri notuðum bílum höfum fengið 200 góða og trausta Toyota Corolla á sölu á Nýbýlaveginum
Bílárnir, sem allir eru mjög nýlegir, koma frá Bilaleigu Flugleióa, hafa fengió gott og reglulegt eftirlit og eru
allir í ábyrgð.
Viðskipti við Toyota - betrí notaða bíla
eru örugg og áhyggjulaus viðskipti
<$£>TOYOTA
Betn notaðir bílar
Sími 563 4400
Nánarí upplýsingar fást á www.toyota.is