Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1999, Qupperneq 62
74
tyndbönd
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1999
Kvikmyndahátíð á myndbandaleigunum
I síðasta helgarblaði byrjaði ég
urnfjöllun mína um það sem ég
kalla - kvikmyndahátíð á mynd-
bandaleigunum - þ.e. hið mikla úr-
val gæðamynda úr óháða geiranum
sem hægt er að fá á myndbandaleig-
unum. Ég byrjaði að segja frá því
helsta sem íslenskir útgefendur
hafa gefið út síðustu árin og fjallaði
um nokkur stærstu nöfnin meðal
evrópskra leikstjóra. Bandaríkin
eru hins vegar í forystu óháðrar
kvikmyndagerðar rétt eins og í gerð
afþreyingarmynda.
Bandarísku snillingarnir
John Sayles ætti að vera orðinn
góðkunningi kvikmyndahátíða-
gesta, en hann hefur um nokkurt
skeið verið í fremstu röð óháðra
leikstjóra. Flestar af hans nýjustu
myndum hafa komist í myndbanda-
'taP
Kvikmynda
GAGNRÝNI
Egypski prinsinn:
Bræður munu berjast
★★★ Bræðumir Moses og Rameses er mestu
mátar og bíður þeirra björt framtíð, enda konungssynir - eða svo halda þeir.
Þegar Móses kemst að því að hann sé í raun Hebrei yflrgefur hann hirðina.
Og þegar Guð boðar honum að frelsa þjóð sína undan oki Egypta hittir hann
Rameses á ný en við öllu ógnvænlegri kringumstæður.
Mikil tilhneiging virðist ríkja til að bera þessa mynd saman við teikni-
myndir Walt Disneys-fyrirtækisins, og vissulega ekki að ástæðulausu. Hún
er jú tilraun DreamWorks-fyrirtækisins til að brjóta „einokun" Disneys á
bak aftur. Einn þriggja stofnenda DreamWorks og framleiðandi myndarinn-
ar, Jeffrey Katzenberg, er fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Disney og hef-
ur staðið í ströngum málaferlum við fyrirtækið um greiðslur. Einnig mætti
líta á myndina sem enn eitt skrefið í baráttu Stevens Spielbergs fyrir mái-
stað gyðinga en hann er einnig meðal stofnenda fyrirtækisins. Slíkt bak-
tjaldamakk skiptir börnin þó litlu. Þau hafa eflaust gaman af islensku útgáf-
unni meðan hinir eldri kjósa líklega frumgerðina. Útgefandi á mikið hrós
skilið fyrir að gefa þær út á sömu spólu.
Utgefandi: Haskolabio. Leikstjórar: Brenda Chapman, Steve Hickner og
Simon Wells. Bandarísk, 1998. Lengd: 2x96 mín. Öllum leyfð.
Festen:
Vandræðaleg veisla
★★★★ j dogma-yfirlýsingunni er að finna ýmsar
reglur sem flestar miða að því að sía frá alla aukavinnslu
við kvikmyndir þannig að engar brellur séu notaðar til að
blekkja áhorfendann. Allt er í alvöru - það sem áhorfand-
inn sér er það sem gerðist.
Þegar sjónræni þátturinn er takmarkaður á þennan
hátt verður handritið og leikurinn að vera því sterkara og
þar brillerar Festen. Best er að segja sem minnst frá söguþræðinum en hann
er mjög magnaður og tilfinningaþrunginn og grípur mann heljartökum. í sem
allra stystu máli segir hann frá einhverri vandræðalegustu veislu sem sögur
fara af, eftir að einn veislugestanna kastar sprengju í samkvæmið með ræðu
sinni. Persónusköpun er í örfáum tilvikum svolítið ýkt, sérstaklega í hlut-
verki Mikaels, óþolandi rudda og ofstopamanns, en yfir heildina gæti leik-
hópurinn vart verið sterkari.
Það má auðvitað deila um hversu gáfulegt það er að takmarka sjálfan sig,
og Festen hefði örugglega ekki verið neitt verri mynd þótt lýsingin hefði ver-
ið betri og myndin oftar í fókus. En sagan er svo sterk að hún þarf enga sjón-
ræna fágun, aðeins góðan leikhóp til að gera henni skil.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Thomas Vinterberg. Aðalhlutverk: Henn-
ing Moritzen, Unlich Thomsen, Birthe Neumann, Trine Dyrholm, Paprika
Steen, Thomas Bo Larsen og Helle Dolleris. Dönsk, 1998. Lengd: 110 mín.
Bönnuð innan 12 ára. -bæn
Spartacus:
Baráttuglaðir þrælar
★★★Á Þrællinn Spartakus (Kirk Douglas) er keyptur í
upphafi myndarinnar til æfingabúða Batiatusar (Peter
Ustinov), þar sem verðandi skylmingaþrælar hljóta þjálfun.
Áður en langt um líður brýst út uppreisn í búðunum und-
ir forystu Spartakusar. Áhrif hennar fara stigvaxandi og
brátt kemur að því að sjálfri Róm er ógnað. Mikill gaumur er gefinn stjórn-
málaátökum í borginni en það er sjálfur Crassus (Laurence Olivier) sem ætl-
ar sér bæði einræði og dauða Spartakusar.
Valdabaráttan sem var í gangi við gerð myndarinnar var litlu minni en á
hvíta tjaldinu. Aðalleikarinn, Kirk Douglas, sem var einnig framleiðandi,
rak leikstjórann, Anthony Mann, og fékk Stanley Kubrick í hans stað. Sam-
skipti þeirra voru þó ekki öllu rólegri og deildu þeir títt um innihald mynd-
arinnar. Eftir þessa mynd hafði Kubrick einn vald yfir myndum sínum. Eft-
ir að myndin var loks tilbúin upphófst svo barátta gegn ritskoðurum sem
tókst að stytta myndina töluvert. (M.a. var klippt út atriði þar sem Crassus
reynir að draga Antoninus (Tony Curtis) á tálar og varð Anthony Hopkins
að ljá Olivier heitnum rödd sína er atriðinu var bætt við aftur 1991). Erfitt
er aö segja til um hversu mikil áhrif þessar hræringar höfðu á gæði mynd-
arinnar en ljóst er að hún jafnast ekki á við bestu myndir Kubricks. Engu
að síður tilkomumikil epík.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Lelkstjórl: Stanley Kubrick. Aöalhlutverk: Kirk Douglas,
Laurence Olivier, Jean Simmons, Peter Ustinov og Tony Curtis. Bandarísk, 1960.
Lengd: 186 min. Bönnuð innan 12 ára. -BÆN
Annar hluti
Lone Star, 1996. Kris Kristofferson
verki lögregluforingjans.
hlut-
útgáfu hér. Sú besta er Lone
Star, sem vakti mikla at-
hygli á einni hátíðinni og
skartaði m.a. sveitasöngvar-
anum Kris Kristofferson í
ógleymanlegu hlutverki.
Einnig má nefna draum-
kennda selafantasíuna The
Secret of Roan Inish og öfl-
uga stríðsádeilu, Men With
Guns.
Annar óháður snillingur
bandarískur er Hal Hartley,
en hann hefur sennilega
þótt of sérvitur hingað til.
Nú í haust hafa hins vegar
komið út tvær nýjustu
mynda hans, en það eru
Flirt, sem fjaflað var um í
síðasta helgarblaði, og
Henry Fool, um ljóðrænan
öskukarl og hæfileikalaust
ljóðskáld, en hún er sú
mynda hans sem mesta athygli hef-
ur vakið.
Jim Jarmusch er enn einn snill-
ingurinn, en hann er farinn að
verða svolítið latur við kvikmynda-
gerð hin allra síðustu ár og eina
myndin sem komið hefur út hér síð-
ustu árin er Dead Man, mikið meist-
arastykki þar sem Johnny Depp fer
fyrir frábærum leikhópi í hálfsúrr-
ealísku andans ferðalagi deyjandi
skrifstofublókar um villta vestrið.
Að lokum má nefna Paul Auster
sem gerði tvær nátengdar Brooklyn-
myndir á sama tíma, Smoke og Blue
in the Face, báðar sannkallaðir gull-
molar.
Fleiri meistarastykki
En það eru ekki bara þungavigt-
arleikstjórar sem gera meistara-
stykki. Priest, Shine, The Pusher
og Sling Blade eru vel þekktar
myndir og þarfnast varla kynn-
ingar. Svo má einnig nefna The
Basketball Diaries, átakanlega
sögu eiturlyfjasjúklings, sem Le-
onardo DiCaprio leikur, en
myndin hefur verið í fréttum
vegna atriðis sem sumir vilja
meina að ýti undir ofbeldi í skól-
um. Myndin gengur hins vegar
síst af öllu út á ofbeldisdýrkun
og er auðvelt að sannfærast um
það með því að sjá myndina.
Einnig eru nokkrar minna
þekktar kvikmyndahátíðar-
myndir sem mér finnst vera með
því athyglisverðasta í mynd-
bandaútgáfunni. Þar er t.d. les-
bíska unglingsástarævintýrið The
Incredibly True Adventures of 2
Girls in Love, frönsk dæmisaga um
ofbeldisfull ungmenni, firrt af sjón-
varpsglápi, sem nefnist L’Appát, og
brasilíska myndin Fjórir dagar í
september sem byggð er á sönnum.
atburðum og sýnir mannlegt sjónar-
hom á frægu mannránsmáli. Að
lokum vil ég nefna tvær bandarísk-
ar gæðamyndir, Georgia og Grid-
lock’d, sem segja frá eiturlyfja-
vandamálum á mjög ólíkan hátt.
Önnur leggur áherslu á brostna
drauma meðan hin gerir grín að
öllu saman.
Meistaraverkum sleppt?
Svona umfiöllun getur auðvitað
aldrei verið tæmandi og sjálfsagt
finnst mörgum ég vera að sleppa
einhverjum ódauðlegum meistara-
verkum. Eflaust hefur mér yfirsést
einhverjar myndir sem vert hefði
verið að minnast á, en einnig em
Blue In the Face, 1995. Harvey Keitel
og Lou Reed.
margar myndir, sem hlotið hafa
nær einróma lof gagnrýnenda, sem
ég sleppi af þeirri einfoldu ástæðu
að ég er alveg ósammála þessum
gagnrýnendum. Ég læt því aðra um
að lofsyngja þær myndir. Ég hef
megnustu skömm á þeirri tegund
mynda sem ég vil kalla sálarlaust
listasnobb, en það er krabbamein
sem breiðst hefur út í óháöri kvik-
myndagerð, sérstaklega í Evrópu og
Asíu. Ætli ég láti þó ekki vera að
nefna einhverjar af þessum mynd-
um, svo menn verði ekki of móðgað-
ir.
Síðasti hluti umfiöllunar minnar
verður tileinkaður þeim mörgu
áhugaverðu myndum sem aldrei
rötuðu í bíó hér á landi, hvorki á
hátíð né í almennar sýningar, og
einnig þeim fiölmörgu myndum
sem íslenskir útgefendur hafa ekki
séð ástæðu til að gefa út, en hægt er
að nálgast ótextaðar á sumum leig-
um.
Myndbandalisti vikunnar
Vikan 14. - 20. september
S/ETI | FYRRI VIKA j VIKUR [ A LISTAj j j TITILL J ÚTGEF. j j TEG. j
1 í NÝ J 1 J ■ 1 j Payback j Wamer Myndir j Spenna
2 ! j 1 j J j 2 J j J Patch Adams J j CIC Myndbönd J J j Gaman
3 i 2 J ? J j 3 j Corrupter Myndform Spenna
j 4 í 6 j J i 2 i Faculty J Skífan J j Spenna
5 i 3 i 5 i You ve Got Mail j Wamer Myndir j Gaman
j 6 i J 4 j J > 5 J ) 3 J > 1 Basketball J j CIC Myndbönd J J j Gaman J J Gaman J j Gaman J
7 J 1 5 J J i 7 i Blast From The Past J Myndfomi i
8 i j 9 J 1 J c J j 6 J j J Night At The Roxbury 1 j CIC Myndbönd
9 i 19 J 2 j L J Rushmore j SAM Myndbönd j Gaman
10 i j 8 j j j 5 J j J Thin Red Line J j Skffan J J j Drama j
11 i 12 J 9 J J 2 J Free money Myndfoim j Gaman
j 12 j 11 | J i 9 i Amerícan History X J J Myndfoim J J Drama j
13 i NÝ i 1 i Festen J j Háskólabíó j Drama
HÍ 1 7 S 4 i fnmMi■ Istill knowwhatyou did... J j Skífan J J Spenna
15 J NÝ J J i 1 i Litlevoice Skffan J Gaman
.« i j 17 j J j ,, t j 11 j j j MeetJoeBlack J i CIC Myndbönd j j Drama j
17 i 20 J 2 1 j 1 j How Stella got her groove back j Skifan j Gaman
j 18 J j Al i 3 J j J Pecker J J Myndfotm J J j Gaman
19 i 18 J fi J j 6 J Soldier j Wamer Myndir j Spenna
j 20 j 10 i 3 i Mighty Joe Young J J ; SAM Myndbönd j Spenna