Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1999, Blaðsíða 30
34
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999
Afmæli
Sigurður Karl Sigurkarlsson
Sigurður Karl Sigurkarlsson, fjár-
málastjóri Sjóvá-Almennra trygg-
inga hf., Heiðarlundi 2, Garðabæ, er
sextugur í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann stundaði nám
við MA 1957-60.
Sigurður starfaði hjá Landsbanka
íslands 1960-62 og hjá Almennum
Tryggingum hf. frá 1962. Hann varð
aðalgjaldkeri þar 1965, fjármála-
stjóri 1970, framkvæmdastjóri 1982
og er fjármálasjóri Sjóvá-Almennra
hf. frá 1989.
Sigurður sat í skólanefnd Grunn-
skóla Garðabæjar, í stjórn íþrótta-
bandalags drengja, Knattspymu-
dómarafélags Reykjavíkur, íþrótta-
félagsins Stjörnunnar í Garðabæ,
Taflfélags Garðabæjar, Stangaveiði-
félags Ármanna, Loftpressunnar sf.,
glerverksmiðjunnar Esju, Fellalax
hf., Steins hf„ Plastprents hf., Jök-
uls hf„ Reykvískrar endurtrygging-
ar hf„ Sambands íslenskra bruna-
trygginga og Almenna líftrygginga-
félagsins hf.
Fjölskylda
Siguröur kvæntist 6.7. 1968 Amal-
íu Svölu Jónsdóttur, f. 1.8. 1943,
hjúkrunarfræðingi. Hún er dóttir
Jóns Pálssonar, f. 6.6. 1904, sund-
kennara í Reykjavík, og Þórunnar
Sigurðardóttur, f. 9.9. 1899, húsmóð-
ur. Þorsteinn Erlingsson skáld var
afabróðir Jóns, Jón og
Þórunn voru systkina-
börn. Sigurður Pétursson
landpóstur var faðir Þór-
unnar.
Börn Sigurðar og
Amalíu Svölu eru Sindri
Karl, f. 20.3. 1970, sjávar-
útvegsfræðingur er
starfar hjá Síldarvinnsl-
unni í Neskaupstað en
kona hans er Elín Hjalta-
lín Jóhannesdóttir, f. 5.4.
1969, hjúkrunarfræðing-
ur, og er sonur þeirra
Sigurpáll, f. 27.6. 1996;
Þórann, f. 5.8.1971, skrifstofumaður
í Reykjavík, var gift Jóhanni Helga-
syni, f. 26.9. 1967, en þau skildu og
er dóttir þeirra Svala Jóhannsdótt-
ir, f. 30.8. 1995; Anna Sigríður, f.
11.10.1978, nemi í heimspeki við HÍ.
Systkini Sigurðar eru Anna, f.
14.7. 1927, kennari og fyrrv. for-
stöðumaður aldraðra í Kópavogi,
gift séra Magnúsi Guðjónssyni,
fyrrv. biskupsritara; Stefán, f. 12.7.
1930, fyrrv. lyfsali í Reykjavík,
kvæntur Önnu Guðleifsdóttur lyfja-
tækni; Guðjón, f. 17.10. 1931, læknir
á Selfossi, kvæntur Unni Baldvins-
dóttur meinatækni; Gisli Kristinn,
f. 24.1. 1942, lögfræðingur í Reykja-
vík, kvæntur Amheiði Ingólfsdóttur
hjúkrunarfræðingi, Reykjavík;
Sveinn, f. 2.11. 1943, héraðsdómari,
kvæntur Ragnhildi Jóhannesdóttur
viðskiptafræðingi.
Foreldrar Sigurðar voru
Sigurkarl Stefánsson, f.
2.4. 1902, d. 30.9. 1995,
stærðfræðingur og yfir-
kennari við MR og kenn-
ari við Verkfræðideild
HÍ, og Sigríður Guðjóns-
dóttir, f. 25.11. 1903. d.
20.10. 1984, húsmóðir.
Ætt
Sigurkarl var sonur
Stefáns, b. á Kleifum,
Eyjólfsson, b. í Múla í
Gilsfirði, Bjarnasonar,
pr. í Garpsdal, Eggerts-
sonar, pr. í Stafholti, Bjamasonar,
landlæknis Pálssonar. Móðir Egg-
erts var Steinunn Skúladóttir, land-
fógeta Magnússonar. Móðir Bjama
var Þorgerður Eyjólfsdóttir. Móðir
Eyjólfs í Múla var Guðrún Gríms-
dóttir á Espihóli, Grímssonar.
Móðir Stefáns á Kleifum var Jó-
hanna Halldórsdóttir, pr. í Trölla-
tungu, Jónssonar, b. á Kleifum, Þor-
leifssonar. Móðir Halldórs var Hall-
dóra Ólafsdóttir, pr. í Hvítadal,
Gíslasonar. Móðir Jóhönnu var
Oddfríður Gísladóttir, hreppstjóra í
Þorpum, Eiríkssonar.
Móðir Sigurkarls var Anna, dótt-
ir Eggerts, b. á Kleifum, Jónssonar,
b. á Kleifum, Ormssonar, ættfóður
Ormsættarinnar, Sigurðssonar.
Móðir Eggerts var Kristín Eggerts-
dóttir úr Hergilsey, Ólafssonar.
Móðir Önnu var Ingveldur Sig-
urðardóttir, pr. á Stað í Steingríms-
firði, Gíslasonar, pr. í Selárdal, Ein-
arssonar. Móðir Sigurðar var Ragn-
heiður eldri Bogadóttir, fræði-
manns í Hrappsey, Benediktssonar.
Móðir Ingveldar var Hildur Guð-
mundsdóttir, pr. á Stað í Hrútafirði,
Eiríkssonar. Móðir Hildar var Ing-
veldur, systir Ragnheiðar í Selár-
dal.
Sigríður var dóttir Guðjóns, út-
gerðarmanns í Hrauni í Grindavík,
Guðmundssonar, b. á Stóra-Nýjabæ
og á Móum í Þorkötlustaðahverfl í
Grindavik, Einarssonar. Móðir
Guðjóns var Elín Steingrímsdóttir.
Móðir Sigríðar var Engilbertína
Hafliðadóttir, b. á Hrauni, Magnús-
sonar, b. á Járngerðarstöðum, Þórð-
arsonar. Móðir Hafliða var Margrét
Einarsdóttir. Móðir Engilbertínu
var Sigríður Jónsdóttir, hreppstjóra
og dbrm. á Hrauni, bróður Gróu,
móður Katrínar, langömmu Þor-
valds, fóður Guðlaugs sáttasemjara
og Tómasar útgerðarmanns. Systir
Katrínar var Helga, langamma
Björns R. Einarssonar hljómsveitar-
stjóra, foður Gunnars, pr. og selló-
leikara í Holti í Önundarfirði. Jón
var sonur Jóns, ættfóður Jámgerð-
arstaðaættar, Jónssonar. Móðir Sig-
ríðar var Guðbjörg, dóttir Gísla, b. á
Lambafelli undir Austur-Eyjafjöll-
um, Eiríkssonar og Gyðríðar Jóns-
dóttur.
Sigurður verður erlendis á af-
mælinu
Sigurður Karl
Sigurkarlsson.
Þorkell Jóhannesson
Þorkell Jóhannesson, prófessor i
lyfjafræði við læknadeild HÍ og for-
stöðumaður Rannsóknarstofu í
Lyfjafræði, Oddagötu 10, Reykjavík,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Þorkell fæddist í Hafnarfirði en
ólst upp í Reykjavík hjá kjörforeldr-
um sínum, Jóhannesi S. Jónssyni,
gjaldkera hjá Eimskipafélagi ís-
lands, og k.h„ Bergþóru Júlíusdótt-
ur húsmóður.
Þorkell lauk stúdentsprófi frá MR
1950, fyrrihlutaprófi í læknisfræði
við HÍ 1953, embættisprófi í læknis-
fræði frá Árósaháskóla 1957, var að-
stoðarmaður í líffræði- og lyfja-
fræðirannsóknum hjá Lövens Kem-
iske Fabrik 1958-59, stundaði nám
og rannsóknir við Lyfjafræðistofn-
un Kaupmannahafnarháskóla
1959-63, var aðstoðarlæknir héraðs-
læknis í Borgarneshéraði og Ólafs-
víkurhéraði 1959, í Höfðahéraði og
Laugaráshéraði 1960, var Full-
brightstyrkþegi við Department of
Pharmacology við læknadeild Iowa-
háskóla í Bandaríkjunum 1963-64 og
lauk doktorsprófi í lyfjafræði frá
Kaupmannahafnarháskóla 1967.
Þorkell starfaði á vegum land-
læknis við undirbúning fram-
kvæmdar lyfsölulaga 1963, var
kennari í lyfjafræði fyrir tann-
læknanema við HÍ 1965, læknir í
Kirkjubæjarhéraði 1967 og Borgar-
neshéraði 1968, hóf kennslu í eitur-
efnafræði við læknadeild HÍ 1966 og
í lyfjafræði 1966, er prófessor í lyfja-
fræði við læknadeíid HÍ frá 1967,
skipaður 1968, hóf fyrst störf við
Rannsóknarstofnun í lyfjafræði 1966
og er forstöðumaður hennar frá 1990
en stofnunin er nú hluti af Lyfja-
fræðistofnun HÍ.
Þorkell hefur setið í Lyfjaskrár-
nefnd og verið formaður hennar, í
Læknaráði, samdi, ásamt Erlingi
Edwald, frumvarp til laga um eitur-
efni og hættuleg efni, hefur verið
formaður og ráðunautm- eiturefna-
nefndar, hóf undirbúning að
klínískum lyfjamælingum í Rann-
sóknarstofu í lyfjafræði 1971 og hef-
ur staðið fyrir mengunarrannsókn-
um. Á síðustu árum hef-
ur hann og samverkafólk
hans, Jón Snædal og Jak-
ob Kristinsson, unnið að
rannsóknum á hrömun-
arsjúkdómum í miðtauga-
kerfinu auk annarra
verkefna.
Hann á sæti í ráðgjafa-
nefnd um erfðabreyttar
lífverur frá 1997.
Fjölskylda
Sonur Þorkels og Hólm-
fríðar Júllusdóttur, f. 5.9.
1926, er Jóhannes, f. 5.12.
1950, efnafræðingur, búsettur í Mos-
fellsbæ, kvæntur Unni Hjaltadóttur
sjúkraþjálfara.
Fyrri kona Þorkels var Bodil, f.
23.4. 1924, hjúkranarkona, dóttir
Emsts Vilhelms Hoffmanns, for-
stjóra í Kaupmannahöfn. Þau
skildu.
Synir Þorkels og Bodil era Einar
Torkelsson Hoffmann, f. 3.6. 1958,
tölvunarfræðingur, búsettur í Dan-
mörku, kvæntur Hanne Hoffmann
og eiga þau tvö böm; Jón
Torkelsson Hoffmann, f.
4.9. 1959, verkfræðingur,
búsettur í Danmörku,
kvæntur Karinu Hoff-
mann og eiga þau þrjú
börn.
Þorkell kvæntist 27.7.
1963 Ester Eggertsdóttur,
f. 6.4. 1927, hjúkrunar-
fræðingi. Hún er dóttir
Eggerts Einarssonar,
læknis í Borgarnesi, og
k.h„ Magneu Jónsdóttur
húsmóður.
Böm Þorkels og Esterar
era Bergþóra, f. 21.3. 1963, dýra-
læknir á Selfossi, gift Auðunni Her-
mannssyni mjólkurverkfræðingi og
eiga þau tvö börn; Þorkell, f. 13.5.
1965, ljósmyndari hjá Morgunblað-
inu, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Þorkels ,voru Einar
Þorkelsson, f. 11.6.1867, d. 27.6.1945,
skrifstofustjóri Alþingis, og þriðja
k.h„ Ólafía Guðmundsdóttir, f. 18.5.
1889, d. 9.10. 1929, húsmóöir.
Þorkell
Jóhannesson.
BRYGGJUSVÆBI
Á bryggjum verður oft launhált
vegna vatns eða ísingar.
Ökum hægtá bryggjum!
U
umferðar\
RÁÐ
Til hamingju
með afmælið
30. september
80 ára_______________
Ingjaldur Kjartansson,
Furagerði 1, Reykjavík.
75 ára
Ingibjörg
Björgvinsdóttir
húsmóðir,
Trönuhólum 16,
Reykjavík.
Eiginmaður
hennar er
Ingólfur Jónsson bókari.
Hún er að heiman í dag.
Jóhanna Thorarensen,
Stuðlaseli 32, Reykjavík.
Lilja Eiríksdóttir,
Hamraborg 14, Kópavogi.
Valdls Jóhannsdóttir,
Dalbæ, Dalvík.
Þorkell Guðmundsson,
Furugerði 13, Reykjavík.
70 ára
Ingibjörg Jónsdóttir,
Kleppsvegi 30, Reykjavík.
Sigurður I. Sigurðsson,
Melholti 2, Hafnarflrði.
Stefán Ármann Þórðarson,
Skólavöllum 6, Selfossi.
Sverrir Bjarnason,
Miklubraut 84, Reykjavík.
60 ára
Ásta Tryggvadóttir,
Mávanesi 10, Garðabæ.
Birgir Þórðarson,
Borgarvík 8, Borgarnesi.
Helga Kristinsdóttir,
Eyjahrauni 30, Þorlákshöfn.
Sigurður Einir Kristinsson,
Áshamri 57,
Vestmannaeyjum.
Stefán Þór Guðmundsson,
Tjarnargötu 17, Sandgerði.
Unnur Sigursteinsdóttir,
Þorfinnsgötu 12, Reykjavík.
50 ára
Árni Ingi Garðarsson,
Byggðarholti 7, Mosfellsbæ.
Bragi Þór Sigurdórsson,
Bjarkargrund 46, Akranesi.
Einar Þorgrímsson,
Þverholti 5, Reykjavík.
Erna G. Sigurjónsdóttir,
Þórshamri, Borgarfirði eystri.
Gísli Sigurjónsson,
Arnarsmára 28, Kópavogi.
Sigrún Viggósdóttir,
Ljárskógum 8, Reykjavik.
Sigurjón Guðmundsson,
Rauðagerði 40, Reykjavík.
Þorsteinn Björnsson,
Hafnargötu 8, Siglufirði.
40 ára
Aðalheiður Magnúsdóttir,
Móasíðu 2 C, Akureyri.
Bjami Guðmann Ólafsson,
Hliðnesi 4, Bessastaðahreppi.
Guðjón Bogason,
Skúlagötu 80, Reykjavik.
Guðný Aðalbjörg
Jónsdóttir,
Bergstaðastræti 9 B,
Reykjavík.
Guðný Ólöf Viðarsdóttir,
Smáratúni 17,
Bessastaðahreppi.
Ingólfur Garðarsson,
Grófarsmára 20, Kópavogi.
Siggeir Siggeirsson,
Álfatúni 21, Kópavogi.
Sigríður Pálsdóttir,
Sigtúni 45, Patreksfirði.
Stefán Kjartan
Ríkharðsson,
Fjallalind 32, Kópavogi.
U
www.visirJs
FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR