Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1999, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1999, Side 26
26 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999 JL*"V %/aðan ertu? \ prófíl Guðrún Sóley, efnilegasta knattspyrnu- Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segist lesa mikið, bæði starfsins vegna og tii gamans, og er alæta á bókmenntir og tónlist. DV-mynd E.ól kona landsins Sturla Böðvarsson samgönguráðherra fæddist og ólst upp í Ólafsvík: Ætlaði að verða byggingameistari - segir nám sitt ííækniskólanum hafa nýst vel í að skipuleggja störf sín sem stjórnmálamaður Sturla Böðvarsson hefur verið al- þingismaður fyrir Sjálfstæðisflokk- inn síðan 1991 og varð samgöngu- ráðherra nú í vor. Sturla ólst upp í Ólafsvík og báðum við hann að segja aðeins frá sjálfum sér, æsku- slóðunum og hvað tók við þegar hann óx úr grasi. Þætti varla góð latína í dag „Ég fæddist 23. nóvember 1945 í Ólafsvík á Snæfellsnesi og ólst upp hjá foreldrum mínum, Böövari Bjarnasyni, sem er látinn, og Elín- borgu Ágústsdóttur sem býr nú í Reykjavík. Faðir minn var bygg- ingameistari og byggingafulltrúi og vann ég hjá honum frá unglingsár- um við að byggja mörg hús og mannvirki í Ólafsvík. Eftirminni- ÓlafsfjörðuU DALVIK tíðkaðist oft í þessum sjávarþorp- um, var í saltfiskverkun hjá Hróa hf. í Ólafsvík. Ég held ég hafi verið á tólfta aldursári þá sem þætti varla góð latína í dag. Þar vann ég við að rífa upp saltfisk og keyra hjólbör- ur.“ Skólabróðir Halla Svo tekur skólinn við og þú ferð í Héraðsskólann á Skógum, ekki satt? „Já, ég var á fimmtánda ári þegar ég fór þangað. Þetta var heimavist- arskóli og á ég afskaplega góðar 1 Akureyri • \ legasta verkefnið sem ég vann að með honum var bygging Ólafsvíkur- kirkju en ég vann við það frá 15 ára aldri og faðir minn kláraði það verk. Eins og fleiri unglingar í sjáv- arþorpi ólst ég upp við það að byrja mín fyrstu störf í fiskvinnslu. Fyrsta launaða starfið fyrir utan það aö taka upp kartöflur hjá mömmu og gefa kúnni, en þau voru bæði með kindur og kýr eins og minningar þaðan. Héraðsskólinn á Skógum var mjög góður skóli og var gott að vera á heimavist og þama eignaðist ég marga góða vini.“ Voru einhverjir kunnir einstak- lingar þama á þessum árum? „Já, þeir voru einhverjir og mætti til dæmis nefna mann eins og Harald Sigurðsson sem var annar helmingurinn af Halla og Ladda. Hann var skólabróðir minn og við vorum í sama herbergi og hann var í kojunni fyrir ofan mig. Við áttum góðar stundir saman og í raun vor- um við allir ágætir félagar. Ég fór því næst í Iðnskólann í húsasmíði og ætlaði i raun aldrei að verða stjómmálamaður, ég ætlaði að verða húsasmíðameistari. Eftir Iðn- skólann hóf ég nám í bygginga- tæknifræði í Tækniskólanum og út- skrifaðist þaðan árið 1973.“ Lengi lifir í gömlum glæðum Hvað er það svo sem stendur upp úr? „Ég átti mjög góð ár 1 Iðnskólan- um þar sem ég átti ágæta félaga og ekki síður í Tækniskólanum. Tækniskólinn er um margt öðru- vísi en aðrir skólar því fyrstu tvö árin eru menntaskólanám sem lýk- ur með stúdentsprófí og svo tekur háskólastigið við. Þetta var afskap- lega ánægjulegur tími og hópurinn sem útskrifaðist með mér árið 1973 heldur enn mjög þétt saman. Við hittumst alltaf með jöfnu millibili og konurnar okkar eru með, það sem þær kalla, saumaklúbb. Við förum saman öðru hvoru til út- landa og ferðumst. Þetta er mjög samhentur hópur sem þarna varð til.“ Lengi lifir í gömlum glæðum! „Já, lengi lifir í gömlum glæðum og við reynum að styðja við bakið á Tækniskólanum eins og við get- um.“ Tækninámið hefur nýst vel Og er tækniskólanámið góður grunnur að því sem þú ert að fást við í dag? „Já, ég held að tækninámið, bygg- ingatæknifræðin, hafl nýst mér af- skaplega vel. Fyrst eftir námið og í raun með því vann ég á verkfræði- stofu, Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, sem lá beint við. Nám- ið hefur einnig eftir það nýst mér vel sem bæjarstjóri og stjómmála- maður. I þessu námi er mikið lagt upp úr skipulögðum vinnubrögðum, áætlanagerð og öguðu vinnuum- hverfi. Það hefur nýst mér vel í að skipuleggja störf mín sem stjórn- málamaður.“ í Stykkishólmi þegar færi gefst Hvernig eru fjölskylduhagirnir hjá hinum nýja samgönguráðherra? „Ég kvæntist konu minni, Hall- gerði Gunnarsdóttur, árið 1967 og eignuðumst við það ár soninn Gunnar. Siðan höfum við eignast fjögur börn til viðbótar, Elínborgu, Ásthildi, Böðvar og Sigríði Erlu, þannig að við eigum fimm böm og er það yngsta sjö ára stelpa. Aðal- heimili okkar er í Stykkishóími, enda var ég bæjarstjóri þar 1974-1991, en við höldum líka heim- ili hér í Reykjavík og hér eru börn- in okkar í skóla á veturna. Þau tvö elstu era farin að heiman og eiga hvort sína dótturina. Við erum i Stykkishólmi yfir allar stórhátíðir og í raun alltaf þegar færi gefst.“ Alæta á tónlist og bókmenntir Hvað gerir Sturla Böðvarsson svo þegar frí gefst frá daglegu amstri? „Ég var nú lengi vel með hesta og það var mín helsta skemmtun að sinna þeim. Nú gefst mér ekki lengur tími til að stunda það með- fram stjórnmálunum og að búa á tveimur stöðum. Mestur tíminn núna fer því í að vera með fjöl- skyldunni, þ.e. þær stundir sem gefast, því að starf stjórnmála- mannsins er þess eðlis að fáar stundir gefast. En fjölskyldan reyn- ir að vera saman og mestur partur- inn fer nú I að vera heima í Stykk- ishólmi í kjördæminu og sinna þar því sem þarf að sinna. En þess utan les ég mikið, bæði vegna starfsins og mér til gamans, og hlusta á tónlist en ég er alæta á tónlist og bókmenntir," segir Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra. -hdm Skemmtilegast: Að eiga frí. Leiðinlegast: Að taka til. Uppáhaldsmatur: Mexíkóskur matur. Uppáhaldsdrykkur: Kók. Fallegasta manneskja fyrir utan maka: Brad Pitt. Fallegasta röddin: Vanda Sig- urgeirs þegar hún messar yfir okkur í hálfleik. Uppáhaldslíkamshluti: Aug- un. Hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ríkisstjórninni: Hlynnt. Með hvaða teiknimyndaper- sónu myndir þú vilja eyða nótt: Bart Simpson. Uppáhaldsleikari: Julia Ro- berts. Uppáhaldstónhstarmaður: Enginn sérstakur. Sætasti stjórnmálamaður- inn: Pass. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Friends. Leiðinlegasta auglýsingin: Kjúklingaauglýsingin I feel j like chicken tonight... Leiðinlegasta kvikmyndin:J Postman. Sætasti sjónvarpsmaðurinn:| Enginn sérstakur. Uppáhaldsskemmtistaður: Það er misjafnt eftir kvöldum. Besta „pikk-öpp“ hnan: Er pabbi þinn þjófur? Stal hann fallegustu stjörnunum á himn- inum og setti í augun á þér? Hvað ætlar þú að verða þeg- ar þú ert orðin(n) stór: Rík, annað kemur svo bara i ljós. Eitthvað að lokum: Áfram Guðrún Sóley lék stórt hlutverk í liði íslands- meistara KR í sumar og á dögunum var hún svo valin í kvennalandsliöiö. Um síðustu helgi var Guðrún valin efnilegasti leikmaðurinn í kvenna- flokki í lokahófi knatt- spyrnufólks. Fullt nafn: Guðrún Sóley Gunnársdóttir. Fæðingardagur og ár: 15. september 1981. Maki: Benedetto Valur Nar- dini. Börn: Engin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.