Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Page 6
6 MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 1999 Fréttir___________________________________________________________________________________dv Hillary Rodham Clinton ánægö meö íslandsheimsóknina: Keypti sér jakka og borðaði súpu á kaffihúsi Hillary Rodham Clinton forseta- frú skoöaöi miöborg Reykjavíkur á laugardaginn. Bæjarferðin var óvænt en fyrirhugaö hafði veriö að forsetafrúin færi til Vestmannaeyja. Á síðustu stundu var hætt við Vest- mannaeyjaferðina vegna veöurs og þess í stað hélt Hillary í bæinn og hóf gönguna á Barónsstíg. Þrátt fyr- ir rigningu og fremur leiðinlegt veð- ur gekk forsetafrúin í hægðum sin- um og stoppaði oft til að líta í búð- arglugga. Forsetafrúin hvarf inn í verslun Bernharðs Laxdals þar sem hún festi kaup á gulum jakka sem hún klæddist það sem eftir lifði dagsins. Með forsetafrúnni voru óeinkennisklæddir öryggisverðir auk þriggja aðstoðarkvenna. Hillary virtist njóta hverrar minútu, brosti til vegfarenda og heilsaði mörgum þeirra með handabandi. Þegar neð- ar dró á Laugaveginn fór Hillary inn í spilabúð Magna, Leðurbúðina og verslunina Flex. Hillary-súpan vinsæl Þá lá leiðin niður Bankastræti og inn Austurstræti en þar hvarf Hill- ary Clinton ásamt foruneyti inn á Café París. „Þetta var frekar óvænt því við vissum að starfsmenn for- setafrúarinnar voru búnir að skoða nokkur kafFihús. Við vildum samt vera við öllu búnir og héldum átta borðum í reyklausa salnum og það var jafngott því allt í einu stóð Hill- ary Clinton inni á miðju gólfi,“ sagði Jón G. Bjamason, yflrþjónn á Café París. „Hún er afskaplega al- þýðleg og elskuleg í öllu fasi. Ég Hillary Clinton yfirgefur Café París. DV-mynd S skal þó viðurkenna að blóðþrýsting- urinn hækkaði talsvert hjá nokkrum þjónanna en þeir voru fljótir að jafna sig. Forsetafrúin pantaði tómatsúpu sem hún borðaði af bestu lyst. Þetta gekk í alla staði vel og mér reiknast til að hún hafí haft um hálftíma viðdvöl hérna inni,“ sagði Jón og bætti því við að tómatsúpan hefði rokið upp í vin- sældum og nú vildu allir fá „Hill- £iry-súpu“. Að hádegisverði loknum hélt Hill- ary Clinton í Borgarleikhúsið þar sem hún stýrði pallborðsumræðum á ráöstefnunni Konur og lýðræði. Síðdegis skoðaði hún svo víkinga- skipið íslending og handritin í Ámastofnun. -aþ Ánægjulegt að heim- sækja Þingvelli - sagði Hillary Clinton í ræðu sinni yjjóttu V na h.afi augnabliksins og hafðu þtegindin ífyrirrúmi Edda Sverrisdóttir hitti Hillary Clinton tvisvar: Hrifnæm kona og blátt áfram Edda Sverrisdóttir sýnir Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, skartgripi í versluninni Flex. DV-mynd Sús. „Eg var búin að sjá öryggisverði á Lauga- veginum en ég átti alls ekki von á að Hill- ary kæmi fótgang- andi, hvað þá að hún kæmi inn i búðina,“ sagði Edda Sverris- dóttir, eigandi versl- unarinnar Flex, en hún hitti Hillary Clinton tvisvar um helgina; í seinna skiptið þegar hún, ásamt Jónínu Bjart- marz og Dagnýju Hall- dórsdóttur, afhenti forsetafrúnni viður- kenningu Samtaka kvenna í atvinnu- rekstri. „Hún kom mér al- veg yndislega fyrir sjónir, hún er afar hrifnæm og blátt áfram. Mér fannst hún vera kona sem leyfir sér að vera til og er hvorki stíf né þvinguð. Hún virðist vera mikill fagurkeri og það var gaman að fylgjast með hve hún naut þess að skoða bæði skartgripina og fötin. Hún mátaði mikið af skart- gripum og spurði margs í sambandi viö þá. Það var létt yfir forseta- frúnni og hún rabbaði á léttum nót- um við aðstoðarkonur sínar. Ég er viss um þær nutu þessa búðaráps," sagöi Edda Sverrisdóttir og bætti því við að seinni fundur hennar og Hillary Clinton á Hótel Sögu í gær- morgun hefði ekki verið siður ánægjulegur. -aþ ánægjulegt að heimsækja Þing- velli, sem eru í senn stolt ís- lensku þjóðarinn- ar og tákn lýð- ræðis og frelsis,“ sagði Hillary meðal annars í ræðu sinni. Hún yék einnig að Hillary á Þing- fundi Ameríku vö||Um í fyrradag. og kvaðst hun kunna að meta hlutverk íslendinga í landafundunum en ekki síst þær hugsjónir sem hefðu legið að baki. Þá sagði hún ánægjulegt að Banda- ríkin og Island hefðu gert samning vegna árþúsundamótanna. Að ræð- unni lokinni var forsetafrúnni boð- ið inn í Þingvallabæinn. Meðal þeirra sem sátu málsverð með Hill- ary voru Davíð Oddsson forsætis- ráðherra, sr. Heimir Steinsson, Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgEirstjóri, Guðrún Agnarsdóttir læknir, Rannveig Rist forstjóri, Páll Skúlason háskólarektor, Tinna Gunnlaugsdóttir, formaður Banda- lags íslenskra listamanna, og Sig- urður Líndal lagaprófessor. -aþ Það geta allir í Qölskyldunni látið fara vel lun sig í LA-Z-BOY. Hillary Clinton og Davíð Oddsson á leið niður Almannagjá. DV-mynd ÞÖK Hillary Rodham Clinton gekk nið- ur Almannagjá í fylgd forsætisráð- herra, Davíðs Oddssonar, síðdegis á laugardaginn. Á Lögbergi tók sr. Heimir Steinsson á móti forseta- frúnni og sagði henni frá stöðu og mikilvægi Þingvalla í gegnum ís- landssöguna. Eftir að hafa horft á hestasýningu og þegið tvo gæðinga bauð Davið Odssson hana formlega velkomna til Þingvalla og að því loknu hélt forsetafrúin stutta tölu. „Mér er bæði heiður og ánægja að heim- sækja ísland. Það er sérstaklega Framleitt í USA Margar tegundir. Verð frá kr. 35.980,-. Áklæði & leður í miklu úrvali. Bíldshöfði 20 HÚSCACNAHÖLLIN 112 Reykjavík Sími 510 8000 LA-Z-BOY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.