Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
Utlönd
Stuttar fréttir
Búðir Basajevs
umkringdar
Vladimir Pútin, forsætisráðherra
Rússlands, sagði í gær að hann sam-
þykkti aðeins viðræður við yfirvöld
i Tsjetsjeníu ef þau afhentu ís-
lamska uppreisnarmenn. Forseti
Tsjetseníu, Aslan Maskhadov,
kvaðst á sunnudaginn reiðubúinn
til aðgerða gegn uppreisnarmönn-
um drægju Rússar herlið sitt til-
baka og hættu loftárásum.
Maskhadov sakaði í gær Rússa
um að hafa drepið um 700 manns í
loftárásunum að undanfömu.
Rússneskir hermenn hafa um-
kringt sveitir uppreisnarleiðtogans
Sjamils Basajevs, að því er rúss-
neskur herforingi fullyrti í gær.
Basajev hafði fyrr um daginn hótað
hryðjuverkum í Rússlandi í hefnd-
arskyni við árásimar á Tsjetseníu. í
símtali við AFP-fréttastofuna kvaðst
Basajev hafa nægan liðsafla og bún-
að til hefndaraðgerða. Basajev stóð
að baki árásunum í Dagestan í
ágúst síðastliðnum. Hann neitar
hins vegar aðild að sprengjuárásun-
um á fjölbýlishús í Moskvu.
Basajev varð frægur er hann tók
1 þúsund gísla í skyndiárás á
sjúkrahús í bænum Budennovsk í
Rússlandi í Tsjetsjeníustríðinu 1995.
Kjarnorkusmygl
Stúdent í Halmstad í Svíþjóð,
sem fæddur er í íran, smyglaði til
írans rafmagnsbúnaði sem hægt
er að nota við gerð kjamorku-
vopna.
Ríkisréttur
Hægriflokkurinn í Noregi íhug-
ar hvort hann eigi að styðja kröf-
una um að fyrrverandi ráðherra,
Kjell Opseth, verði látinn koma
fyrir ríkisrétt. Opseth lét þingið
ekki vita af veðurskilyröum við
Gardemoen áður en samþykkt
var að hafa þar flugvöll.
Þriðja stjórnin
Atal Behari Vajpayee, forsætis-
ráðherra Indlands, er nú reiðubú-
inn að mynda
þriðju stjórn
sína. Hann
lýsti því yfir í
gær að hraða
ætti umbótum
eins og lofað
hefði verið.
Forsætisráð-
herrann þarf nú að tilnefna ráð-
herra yfir 40 ráðuneyti.
Losec veldur krabba
Prófessorinn Helge Waldum
heldur því fram í viðtali við blað-
ið Lánstidningen í Östersund i
Svíþjóð að magasárslyfið Losec
geti valdið magakrabbameini.
Lyfjafyrirtækið Astra, sem fram-
leiðir Losec, vísar þessu á bug.
Lenti óvart í Molde
Khalil Abdulaziz Muhammed
ætlaði í frí til Moldavíu frá
Hannover í Þýskalandi. Vegna
tungumálaörðugleika eða af öðr-
um ástæðum lenti hann í Molde í
Noregi. Norðmenn sögðu honum
að koma aftur að ári með skíði
með sér og borguðu undir hann
til baka.
Þotur strand
Þotueldsneyti vantaði í gær á
aðalflugvellinum í Róm. Röskun
varð á flugi vegna eldsneytis-
skortsins.
Saxar á forskot Gores
Fyrrum öldungadeildarþing-
maðurinn Bill Bradley saxar nú á
forskot Als Gor-
es varaforseta í
baráttu þeirra
um útnefningu
Demókrata-
flokksins sem
forsetaefni. 51
prósent kjós-
enda vilja Gore
sem forsetaefhi
Bradley. Hefur
aukist um 9 prósentustig undan-
farinn mánuð.
en 39 prósent
fylgi Bradleys
Belo vill réttlæti fyrst
Carlos Belo biskup, friðarverð-
launahafi Nóbels, sagði í gær að
Austur-Tímor þyrfti réttlæti áður
en sættir gætu náðst.
Fíkniefnahringur
Lögreglan í Hollandi kvaðst í
gær hafa handtekið 30 menn og
gert vopn og sprengiefni upptæk.
Hinir handteknu tilheyrðu fikni-
efnahring.
Myrti homma
Maðurinn sem sakaður var um
hafa í fyrra barið til bana
samkynhneigðan samstúdent
sinn var undir áhrifum fíkniefna
og lyfja, að því er verjandi hans
fullyrðir.
Að minnsta kosti fjörutfu manns létu lífiö og rúmlega þrjátíu slösuðust þeg-
ar langferðabfll fór ofan f gljúfur skammt norður af San Salvador, höfuðborg
Mið-Amerfkurfkisins El Salvador.
Jafnt í Austurríki
Frelsisflokkur Jörgs Haiders og
Þjóðarflokkurinn eru jafnir eftir
þingkosning-
arnar fyrir
rúmri viku
samkvæmt óop-
inberum úrslit-
xnn að lokinni
talningu utan-
kjörstaðaat-
kvæða. Fær
hvor flokkur 52 sæti á þingi.
Flokkur Klima kanslara, Jafnað-
armannaflokkurinn, er stærstur.
Schröder reynir
að gera gott úr
hrakförunum
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari reyndi í gær að
bera sig
mannalega
þrátt fyrir
miklar hrakfar-
ir Jafnaðar-
mannaflokks
hans í kosning-
unum í Berlín
um helgina.
Flokkurinn hafði ekki fengið
verri útreið í borginni frá
stríðslokum.
Schröder benti á að flokkur
hans hefði ekki tapað jafnmiklu í
Berlín og í hinum fylkjunum
fimm þar sem kosningar hafa ver-
ið síðan hann tók við völdum fyr-
ir ári. Jafnaðarmenn hafa alls
staðar tapað illilega.
„Við erum að snúa taflinu við.
Þetta er góð byrjun, en það er allt
og sumt,“ sagði Schröder við
fréttamenn.
Skotinn á fyrsta
degi í Kosovo
Erlenaur starfsmaður Samein-
uðu þjóðanna í Kosovo var skot-
inn til bana í héraðshöfuð-
borginni Pristina í gærkvöld, að-
eins nokkrum klukkustundum
eftir aö hann kom til borgarinnar
til aö taka viö nýju starfi.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, gerir sér vonir um að
nýr Norður-írlandsmálaráðherra
hans, Peter Mandelson, muni blása
nýju lífi i friðarferlið í héraðinu.
Mandelson ætlar ekki að sitja
auðum höndum því hann heldur
þegar í dag til Belfast, rétt um sólar-
hring eftir að hann tók við ráð-
herraembættinu af Mo Mowlam.
Mandelson sagði af sér embætti
iðnaðar- og viðskiptaráðherra í des-
ember síðastliðnum vegna tugmillj-
óna króna láns sem hann fékk hjá
samráðherra sínum. Sá ráðherra
sagði einnig af sér. Tony Blair hefur
hins vegar ekki farið dult með aðdá-
un sína á pólitískum hæfileikum
þessa gamla félaga síns og notfærði
sér uppstokkun í ríkisstjóminni í
gær til að kalla hann inn úr kuldan-
um.
Nýi ráðherra sagði fréttamönnum
skömmu eftir að hann tók við emb-
ætti að hann væri staðráðinn í að
Peter Mandelson, náinn bandamað-
ur Tonys Blairs, er aftur orðinn ráð-
herra í Bretlandi.
leggja allt kapp á að brúa bilið milli
mótmælenda og kaþólikka á Norð-
ur-írlandi.
„Ekkert er mikilvægara en að
komast að samkomulagi sem allir
geta sætt sig við, sem mun þjóna öll-
um,“ sagði Mandelson við frétta-
menn þar sem hann stóð við hlið
forvera síns í embætti.
Nokkur dagblöð á Bretlandi upp-
nefndu Mandelson „myrkraprins-
inn“ vegna þess sem þau kölluðu
baktjaldamakk hans til að styrkja
Blair í sessi og veikja þar með and-
stæðinga hans.
„Forsætisráðherranum fannst að
Peter hefði meira en viðurkennt
mistök sín og goldið fyrir þau. Hann
er hæfileikaríkur stjórnmálamaður
sem er kominn þangað sem hann á
heima,“ sagði einn aðstoðarmanna
Tonys Blairs í gær.
Nokkrir nýir ráðherrar til viðbót-
ar voru tilnefndir í gær, meðal ann-
ars nýr landvarnaráðherra.
fReykjavíkurborg auglýsir eftir almennum
styrkumsóknum og ábendingum vegna
fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2000
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2000.
Auglýst er eftir umsóknum og tillögum borgarbúa svo og hagsmunasamtaka
(t.d. íbúasamtaka) um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem liggja
frammi í Upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur og á
heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is. Hægt er að fá
umsóknareyðublöð send þaðan ef óskað er.
Umsóknir skulu sendar til eftirtalinna aðila eftir því sem efni
þeirra gefur tilefni til.
Félagsmálaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna
á sviði félags- og heilbrigðismála í Reykjavík.
Umsóknir til félagsmálaráðs skulu berast til Elvu Bjarkar
Garðarsdóttur, Fólagsþjónustunni, Síðumúla 39,108 Reykjavík.
Fræðsluráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til skóla- og
fræðslumála, einkum vegna nemenda á grunnskólaaldri.
Umsóknir til fræðsluráðs skulu berast til Sigurbjörns Knudsens,
Fræðslumiðstööinni, Fríkirkjuvegi 1,101 Reykjavík.
Auglýst verður sérstaklega eftir umsóknum í Þróunarsjóð grunnskóla
Reykjavíkur í janúar árið 2000.
íþrótta- og tómstundaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til íþrótta-
æskulýðs- og tómstundastarfa í Reykjavík og eftir styrkjum vegna
sumarnámskeiða fyrir börn.
Umsóknir til íþrótta- og tómstundaráðs skulu berast til Helgu Björnsdóttur,
Iþrótta- og tómstundaráði, Fríkirkjuvegi 11, 101 Reykjavík
Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum um styrki
til verkefna sem hafa það að markmiði að jafna stöðu kynjanna, til verkefna
á sviði jafnréttisfræðslu í skólum og á öðrum uppeldisstofnunum og til
annarra sérstakra þróunar- eða samstarfsverkefna.
Umsóknir til jafnréttisnefndar skulu berast til Hildar Jónsdóttur, Ráðhúsi
Reykjavíkur, 101 Reykjavík
Leikskólaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi
fyrir leikskólabörn. Auk þess auglýsir leikskólaráð eftir umsóknum um
styrki til þróunarverkefna í leikskólum borgarinnar og geta umsækjendur
verið leikskólar, starfsmannahópar eða einstaka leikskólakennarar og
fagmenn á sviði leikskólamála.
Umsóknirtil leikskólaráðs skulu berast til Jakobínu Sveinsdóttur, Leikskólum
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavik
Menningarmálanefnd Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum
um styrki til menningarstarís í borginni.
Umsóknir til menningarmálanefndar skulu berast til Signýjar Pálsdóttur,
Ráðhúsi Reykjavíkur, 101 Reykjavík
Styrkumsóknir til annarra verkefna, til byggingar og kaupa á fasteignum
skulu sendar borgarráði.
• Umsóknir skulu berast til Höllu Marfu Árnadóttur, Ráöhúsi Reykjavfkur, 101 Reykjavfk
• Umsóknir skal senda til þess aðila sem sótt er til f sfðasta lagi 19. nóvember 1999.
• Umsóknir sem berast eftir þann tíma munu að jafnaði ekki hljóta afgreiðslu.
Þeir aðilar sem fengu styrk á síðasta ári þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfun
þess fjár. Félagasamtök sem sækja um niðurfellingu eða lækkun fasteignaskatts sbr.
5. gr. laga nr. 4 /1995 um tekjustofna sveitarfélaga skulu skila umsóknum sínum á
fyrrnefndum eyðublöðum fyrir 19. nóvember 1999.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563 2000 alla virka daga milli kl. 10 og 12.
Borgarstjórinn f Reykjavík 8. október 1999
Peter Mandelson inn úr kuldanum:
Myrkraprinsinn
í ráðherrastól