Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Qupperneq 32
í «:
IdWW8!
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá ! síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
Þessir fallegu drengir eru þríburar og heita Hákon, Sverrir og Kjartan Magnússynir. Hér eru þeir að leika sér við ísaksskóla. Þeir eru prakkaralegir á svipinn, enda aldrei að vita upp á hverju svona
þríeyki tekur. . DV-mynd Hilmar Þór
Gróska er í atvinnustarfsemi á Litia-
^Hrauni.
Bílainnflutningur:
Litla-Hraun
græðir
- fangalaunin hækka
Fangelsið á Litla-Hrauni jók tekjur
sínar á síðasta ári um 16 milljónir
króna frá árinu á undan. Að mati
stjórnenda fangelsins má þakka tekju-
aukann auknum bílainnflutningi til
landsins en fangar á Litla-Hrauni hafa
sem kunnugt er þann starfa að steypa
númeraplötur á bila.
_ Sértekjur Litla-Hrauns vegna vinnu
nanga voru um 60 milljónir króna á
síðasta ári en námu rúmum 44 millj-
ónum árið á undan. Samanlagðar tekj-
ur fanga á Litla-Hrauni námu tæpum
13 milljónum í fyrra og höfðu hækkað
um tvær milljónir á milli ára.
Mikið um að ekið
sé á hross
Ekið var á hross um áttaleytið í
gærkvöld við Ölkeldu í Staðarsveit.
Samkvæmt upplýsingum frá starfs-
manni Neyðarlínunnar varð mönnum
eða dýrum ekki meint af en mikið er
um iausa hesta á þessum slóðum.
Banaslys hafa orðið þegar ökumenn
"^aka á hross en þau fara gjama i gegn-
um framrúðu bílsins með fyrrgreind-
um afleiðingum. -hól
Umhverfisverndarsinnar í Framsókn höföu sitt fram:
Beygðu flokks-
forustuna
- sem samþykkti viðræöuhóp um umhverfismál
Umhverflssinnar innan Framsókn-
arflokksins hafa sveigt flokksforyst-
una til að setja á fót hóp sem standa
skal að umræðum um umhverfismál
innan flokksins.
Viðræður um
stofnun sliks hóps
hafa staðið und-
anfamar vikur og
hefur mikill
ágreiningur ver-
ið, m.a. um for-
mann. Einnig
settu áform um að
vísa Fljótsdals-
virkjunarmálinu
beint í iðnaðamefnd Alþingis strik í
viðræðumar, enda fór sú ráðstöfun
illa í umhverfisvemdarsinna. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur náðst
samkomulag um að Einar Bollason
stýri hópnum.
Ólafur M. Magnússon staðfesti við
DV í gær að slíkt samkomulag væri í
burðarliðnum, en vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um málið. Viðmælendur
blaðsins segja að hugmyndin sé kom-
in frá umhverfissinnum í Framsókn-
arflokknum. Forystan hafi ekki verið
of hrifin af henni, en umhverfissinn-
ar náð sínu fram. Með þessu telji þeir
sig fá viðurkenningu á því að and-
stæð sjónarmið séu irman flokksins
um Fljótsdalsvirkjun. Málið sé því
alls ekki til lykta leitt innan flokks-
ins. Nokkrir umhverfissinna séu nú
skipaðir af forystunni til að fjalla um
málið sem sé snarhreytt vígstaða
þeirra innan flokksins.
Hart hefur verið tekist á um um-
hverfismál innan flokksins síðustu
misseri. Þar hafa farið fyrir umhverf-
issinnar með Ólaf Öm Haraldsson,
Ólaf M. Magnússon og fleiri i farar-
broddi. Hins vegar hafa verið tals-
menn stóriðju og virkjana s.s. Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra og Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra.
Siv hefur einnig blandast með öðr-
um, og ekki síður harkalegum hætti,
í umræðuna. Umhverfissinnar full-
yrða að hún hafi verið talsmaður
þess að Fljótsdalsvirkjun færi i lög-
formlegt umhverfismat þegar hún
barðist gegn Finni um stól varafor-
manns í Framsóknarflokknum. Siv
Lögreglan í Kópavogi var kvödd á
vettvang rétt eftir klukkan sjö í gær-
kvöld þegar enn eitt strætisvagnaskýl-
ið var eyðilagt. Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglunni þurfa Kópavogs-
bær og lögreglan í Kópavogi að greiða
hefur borið þetta af sér, en um málið
hafa spunnist langvinnar og harðar
deUur. Ekki bætti svo úr skák þegar
hún valdi Óskar Bergsson, varaborg-
arfuUtrúa R-lista, tU formennsku í
svokaUaðri „hálendisnefnd" sem fer
með skipulagsmál á hálendinu. Ósk-
ar hafði þá borið fram vantraust á
stjóm Framsóknarfélags Reykjavík-
ur og beint spjótum sinum gegn
Finni vegna slæmrar útkomu flokks-
ins í síðustu alþingiskosningum. Val
Sivjar kom eins og köld vatnsgusa
framan í forystu flokksins. Er ekki
talið útUokað að HaUdór Ásgrímsson
beiti sér fyrir því með einhverjum
hætti að skipt verði um formann í
nefndinni enda er það sjónarmiö ríkj-
andi að tU starfans þurfi að veljast
hæfur og samningslipur lögfræðing-
ur - sem helst sé búsettur á lands-
byggðinni. -JSS
tugi mUljóna á ári vegna íkveikju og
rúðubrota í skólum. Um er að ræða
örfáa einstaklinga sem standa fyrir
verknuðunum en eignaspjöUin era
hvað verst á haustin þegar skólamir
hefja göngu sína. -hól
Ólafur M. Magn-
ússon.
Kópavogsbær:
Kveikt í strætóskýli
Veðrið á morgun:
Hlýnandi
veður
Á morgun verður sunnan- og
suðaustanátt, 8-13 m/s fram eftir
degi vestan til en 10-15 m/s undir
kvöld. Hægari vindur austan tU.
Rigning og súld sunnan- og vest-
anlands, einkum eftir hádegi.
Einnig rigning norðanlands undir
kvöld. Hlýnandi veður.
Veöriö í dag er á bls. 37.
Stóra fíkniefnamálið:
Tannlæknir
í gæsluvarð-
hald
Að kröfu efnahagsbrotadeUdar
ríkislögreglustjóra hefur EgiU R.
Guðjohnsen tannlæknir verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í stóra
fíkniefnamálinu.
Er EgiU tíundi
maðurinn sem
settur er inn
vegna málsins og
sá langelsti, 44
ára að aldri.
Tannlæknir-
inn hefur tengst
stóra fíkniefha-
málinu frá upp-
hafi sem eigandi
kjötvinnslunnar Rimax þar sem
Sverrir Þór Gunnarsson starfaði en
Sverrir var i hópi fjórmenninganna
sem fyrstir voru hnepptir í gæslu í
málinu. Var þá einnig lagt hald á
sendibifreið í eigu kjötvinnslunnar
Rimax en henni skilað þegar víst
þótti að hún tengdist málinu ekki
frekar. Annað er nú komið á daginn
þegar eigandi kjötvinnslunnar og
bUsins er kominn í hóp þeirra sem
nú sitja inni í stóra fíkniefnamál-
inu.
EgiU Guöjohnsen hefur rekið
tannlæknastofu við Álfabakka í
Reykjavík auk þess að vera lands-
þekktur laxveiðimaður og
bridgespUari. -EIR
Höfn í Hornafirði:
Bílvelta
við Ósland
BUl valt í gærkvöld við Ósland.
Engin slys urðu á mönnum sam-
kvæmt upplýsingum frá Neyðarlín-
unni. -hól
Egill R.
Guðjohnsen.
TÉrkÍœgamerkIveuT
brother pt-i2qíl
Islenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær línur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443