Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
Sport
Bland í poka
Bjarki Gunnlaugsson fékk ekki að
spreyta sig með liði Preston North
End í ensku C-deildinni um helgina.
Preston sigraði Bristol City, 1-0, og er
í 7. sæti deildarinnar með 19 stig.
Brentford er í 8. sæti með 17 stig,
Stoke í 3. sæti með 20 stig og á
toppnum er Bristol Rovers með 23
stig.
Bjarnólfur Lárusson lék allan
tímann fyrir Walsall sem komst úr
botnsætinu í B-deildinni með því að
leggja Birmingham að velli, 1-0.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson var
ekki í leikmannahópi Walsall sem er
í þriðja neðsta sæti deildarinnar.
Haraldur Þorvarðarson skoraði 7
mörk fyrir CSG Erlangen sem sigraði
Saarbrilcken, 28-23, í þýsku B-
deildinni i handknattleik um helgina.
Fjórir rússneskir knattspyrnu-
dómarar, sem reknir voru heim frá
Evrópuleik 1 síðasta mánuði sökum
ölvunar, fá ekki fleiri verkefni hjá
rússneska knattspyrnusambandinu á
þessu ári. Á fundi UEFA síðar í
þessum mánuði verður mál
Rússanna tekið fyrir og er fastlega
búist við þvi að þeir verði settir í
ævilangt bann.
Forráðamenn enska B-deildar
liðsins ShetField United gera sér
góðar vonir um að fá Georgíu-
manninn Georgi Kinkladze til liðs
við sig i þessari viku en hann er á
mála hjá hollenska stórliðinu Ajax.
Kinkladze segist frekar vilja spila í
ensku B-deildinni heldur en sitja á
bekknum hjá Ajax. Adrian Heath,
stjóri Sheffield, hélt til Hollands í gær
til samningaviðræöna en talið er að
liðið þurfi að greiða 350 milljónir
fyrir leikmanninn.
Leikmenn júgóslavneska lands-
liðsins í knattspyrau voru hylltir við
komuna til Belgrad í gær en
Júgóslavar tryggöu sér sæti 1
úrslitakeppni EM á kóstnað Króata
eftir að þjóðimar skildu jafnar, 2-2, í
Zagreb. Þúsundir stuðningsmanna
landsliðsins tóku á móti liðinu við
komuna og er sannkölluö þjóðhátíð i
landinu. „Króatía er í tárum" segir í
fyrisögn Glas Javnosti og í
íþróttablaðinu Sportski Zumal segir:
„Maðurinn er sprengja“ en þar er átt
við Sinisa Mihajlovic sem lagði upp
bæði mörk Júgóslava í leiknum.
„ívar Ingimarsson er ekki á förum
til Kalmar. Við höfum ekkert heyrt i
forráðamönnum liðsins og fvar ekki
heldur. Fréttir þess efnis að hann sé
aö fara til félagsins eru orðum
auknar og úr lausu lofti gripnar enda
myndi sænska félagið aldrei hafa efni
á því að kaupa ívar,“ sagði
Þorsteinn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
ÍBV, í samtali við DV í gær.
Ægir Gunnarsson og Lárus
Jónsson, leikmenn úrvalsdeildarliös
Hamars í körfuknattleik, eru
meiddir. Lárus verður eflaust til í
slaginn á funmtudaginn en Ægir gæti
verið frá næstu tvo leiki. Lárus
meiddist á æfingu fyrir leik Hamars
og Tindastóls. En Ægir meiddist í
fyrri leik liðanna í Hveragerði.
Rodney Dean, leikmaður Hamars,
var rekinn út úr húsi í Leik
Tindastóls og Hamars í seinni leik
eggjabikarins á sunnudaginn.
Tindastólsmenn brutu Rodney niður
og varð Rodney né leikmönnum
Hamars ekki skemmt. Rodney ýtti
því við einum leikmanni Tindastóls í
öllum látunum og því fór sem fór. En
leikmenn Tindastóls geta ekki fengið
hrós fyrir góða hegðun eftir orðin
sem voru látin falla. Ekki er víst
hvort hann tekur út leikbannið á
fimmtudaginn á móti Tindastóli eða í
næstu viku á móti ÍA.
-GH/-SK/-KB
Körfubolta-
pakki í boði
Reykjanesbær spilar þessa dag-
anna í Evrópukeppni félagsliða,
Korac-bikarnum og fram undan
eru þrír heimaleikir gegn sterku
fmnsku, frönsku og svissnesku
liði. Nú er hægt að kaupa miða
á alla leikina þrjá á sérstöku
tilboðsverði. Þá kostar 3000
krónur fyrir fullorðna á alla
þessa stórleiki í stað 3600 og 900
krónur fyrir börn í stað 1200.
Nálgast má þessa tilboðspakka á
bensínstöðvum í bænum. -ÓÓJ
25
Sport
Anna María Sveinsdóttir hjá Keflavík sú fyrsta yfir:
- stigin í efstu deild kvenna í körfubolta
Anna María Sveinsdóttir náði merkum áfanga um helg-
ina í 1. deild kvenna í körfubolta. Þegar hún skoraði sitt
| áttunda stig í seinni leiknum gegn KFÍ á laugardag varð
hún fyrsta íslenska körfuknattleikskonan til að skora
yfir 4000 stig í efstu deild.
Anna Maria hefur nú skorað 4006 stig í 235 leikjum í efstu deild
eða 17,0 að meðaltali. Þess má geta að hún er einnig sú sem hefur
skorað ílest stig í bikarúrslitaleik kvenna, úrslitakeppni kvenna og
meistarakeppni kvenna og styttist óðum í að hún nái sinni heildar-
stigatölu yfir 5000 stiga múrinn. Anna María hefur sex sinnum náð
að verða stigahæst í deild-
inni, þar af fimm ár í röð,
1988 til 1992.
Anna María hefur mest
skorað 35 stig í einum leik
en þejm árangri náði hún
gegn ÍR 8. nóvemeber 1997.
Alls hefur Anna María náð
að skora yfir 30 stig í níu
leikjum þar af í þremur af
þeim í Grindavík.
árangur. Anna María hefur unnið 17 stóra titla á
ferlinum með Keflavík, átta íslandsmeistaratitla og níu
bikarmeistaratitla.
Aðeins KR-systurnar Linda
og Ema Jónsdætur hafa unnið
fleiri stóra titla á ferlinum en
Stig gegn félögum
KR 41 leikur, 590 stig, 14,4 að meðaltali
Grindavtk 41 leikur, 696 stig, 17,0
ÍR 39 leikir, 744 stig, 19,1
ÍS 39 leikir, 608 stig, 15,6
Njarðvík 26 leikir, 429 stig, 16,5
Haukar 20 leikir, 365 stig, 18,3
Tindastóll 9 leikir, 185 stig, 20,6
Valur 8 leikir, 160 stig, 20,0
Breiðablik 8 leikir, 163 stig, 20,4
lA 2 leikir, 38 stig, 19,0
KFÍ 2 leikir, 28 stig, 14,0
Styttist í 200. sigurinn
Anna María hefur verið í
sigurliði í 198 af sínum 235
leikjum í efstu deild og vantar því nú aðeins tvo sigra upp á að hafa
unnið 200 deildarleiki með Keflavíkliðinu á ferlinum. Samtals gerir
þetta 84% sigurhlutfall í leikjum hennar í efstu deild sem er frábær
Anna María Sveinsdóttir fagnar hér að neðan fyrsta
íslandsmeistaratitli Keflavfkur í kvennakörfubolta 1988.
Með henni á myndinni er Krístín Blöndal en þær eru þær
einu sem eru enn í fullu fjöri í Keflavíkurliðinu í dag úr
því liðl sem vann fyrir tíu árum.
þær unnu 18 árin 1973 til 1987,
þar af 11 íslandsmeistaratitla.
Alls hefur Keflavík leikið 249
leiki í efstu deild í íslenskri
kvennakörfu og unnið 210 af
þeim, þannig að Anna María
hefur aðeins misst af 14 leikj-
um og 12 sigrum Keflavíkur
frá upphafi í efstu deild.
Stórleikur í Keflavík á
fimmtudag
Það stefnir í harða baráttu
milli þrefaldra meistara síð-
ustu tveggja ára, Keflavíkur
og KR, í kvennakörfunni í
vetur. Liðin mætast í fyrsta
sinn í deildinni í vetur á
flmmtudag i Keflavík.
Þá skýrist hver staða þeirra er innbyrðis en þónokkrar manna-
breytingar hafa orðið á liðunum og þau bæði fengið fleiri en eina
landsliðskonu í sínar raðir. -ÓÓJ
Ferill Onnu Maríu
- hjá Keflavlk i efstu deild:
1985- 86 10 leikir, 89 stig
1986- 87 18 leikir, 251 stig
1987- 88 18 leikir, 315 stig
1988- 89 17 léikir, 277 stig
1988-90 18 leikir, 399 stig
1990- 91 13 leikir, 312 stig
1991- 92 20 leikir, 364 stig
1992- 93 7 leikir, 99 stig
1993- 94 17 leikir, 278 stig
1994- 95 23 leikir, 429 stig
1995- 96 17 leikir, 343 stig
1996- 97 18 leikir, 305 stig
1997- 98 16 leikir, 242 stig
1998- 99 20 leikir, 255 Stig
1999- 2000 3 leikir, 48 stig
Samtals:
235 leikir, 4006 stig
Anna María dáist að áttunda Islandsmeistarabikarnum sfnum á
ellefu árum og þeim síðasta eftir sigur á KR í Hagaskóla 1998. Alls
hefur Anna María unnið 17 stóra titla með Keflavík og líkt og tíu
árum áður er Kristín Blöndal Önnu Maríu á vinstri hönd.
HM í fimleikum:
Rúnar á
ÓL í Sydney
Rúnar Alexandersson, fim-
leikamaður úr Gerplu, vann sér
keppnisrétt í fjölþraut fyrir
Ólympíuleikana í Sydney á
næsta ári á heimsmeistaramót-
inu í fimleikum sem haldið er
þessa dagana í Kína.
Rúnar varð i 46. sæti í fjöl-
þrautinni og hlaut samtals 53,712
í einkunn, i keppninni í Kína í
gær. Árangur í einstökum
greinum varð að á bogahesti
fékk hann 9,587, í hringjum
7,925, í stökki 8,850, á tvíslá 9,375,
á svifrá 9,325 og í æfingum á
gólfi 8,650.
-mm- /
ittitrt
4006
stig
á 14 árum
Raff Schumacher
boðinn 2,1 milljarður
Kappaksturshetjan Ralf Schumacher, litli bróðir Michaels Schumachers, hefur fengið til-
boð frá Williams um framlengingu á samningi sínum við
liðið til ársins 2003.1 ljósi árangurs þessa
unga ökumanns, sem er nú með 33 stig
og er fimmti f stigakeppninní til heims-
meistaratitils, eru Williams-menn til-
búnir að greiða meira en nokkurn ííma
áður fyrir ökumann. Tilboðið hljóðar
upp á 2,1 milljarð króna fyrir þriggja ára
samning og verður Ralf, sem er aðeins 24
ára, einn af hæst launuðu ökumönnunum
í Formúlu 1.
Damon Hill fór á svipaða upphæð eftir að
hann varð heimsmeistari árið 1996 en var þess í stað rekinn
frá Williams. Willi Weber, umboðsmaður Schumacher-bræðra,
segir að Jaguar (Ford) hafi boðið honum 1,8 milljarða fyrir
sama samningstíma og heföu þeir því getað pressað á Williams
sem er mjög ánægt með frammistöðu Ralf Schumachers. -ÓSG
Þórsarar senda
Williams heim
- nýr maður fenginn fyrir föstudag
Nú er ljóst að körfuknattleikslið Þórs-
ara mun senda frá sér Jason Williams
sem kom til þeirra í byrjun september.
Jason hefur verið meiddur í ökkla síðan
hann kom og fannst Þórsurum hann
ekki standa sig nógu vel í leikjunum sem
búnir eru.
Enn er ekki
ljóst hver mun
koma í staðinn en
Þórsarar segjast
ætla að tefla fram
nýjum manni á
fóstudagskvöldið
þegar þeir mæta
Skallagrími í
Höllinni á Akur-
eyri. -JJ
Stórleikur hjá Herbert
Herbert Amarsson átti stórleik með Donar Groningen í
hollensku A-deildinni í körfuknattleik á sunnudag. Herbert
skoraði 28 stig og var stigahæstur leikmanna Donar sem
sigraði Drenthe, 83-58, en þetta var fysti sigur Donar í
fyrstu fimm umferðunum í deildinni.
Herbert lék í 36 mínútur, skoraði 28 stig, tók 8 fráköst og
„stal“ 8 boltum. Herbert hitti úr 5 af 10 2ja siga skotum og
skoraði 6 3ja stiga körfur úr 11 tilraunum. -GH
Sigurbjörn Hreiðarsson á leið utan:
Tilboö væntanlegt
Valsmenn eiga von á tilboði í Sigur-
bjöm Hreiðarsson á næstu dögum en
leikmaðurinn kom heim um helgina eft-
ir dvöl hjá sænska A-deildar liðinu
Trelleborg. Sigurbjörn lék einn leik með
liðinu og vom forráðamenn Trelleborg
ánægðir með frammistöðu hans. Sigur-
björn á eitt ár eftir af samningi sínum
við Hlíðarendaliðið svo það sænska fær
hann ekki frítt. -GH
Hermann Hreiðarsson varð í gær dýrasti íslenski knattspyrnumaðurinn:
verkefni að vera kominn á ný í efstu deild í Englandi
Landsliðsmaðurinn Hermann
Hreiðarsson er genginn til liðs við
enska A-deildar liðið Wimbledon.
Hann skrifaði undir samning hjá
Wimbledon í gær en félagið greiðir
Brentford rúmar 290 mUljónir króna
fyrir Hermann sem gerir hann að
dýrasta leikmanni íslands.
Ekki er hægt að segja annað en að
Brentford hafi hagnast vel á
sölunni en liðið keypti hann frá
Crystal Palace fyrir tæpum
tveimur árum fyrir 90 milljónir
króna. Wimbledon hafði betur í
baráttunni við annað Lundúnalið
en Tottenham haföi einnig augastað
á Hermanni.
Wimbledon bauð fyrir nokkru
síðan 120 milljónir króna í
Hermann en því boði hafnaði Ron
Noades, stjómarformaður
Brentford, og sagði það hlægilegt.
Hann bað menn að bíða eftir
landsleiknum gegn Frökkum þar
sem hann vildi sýna fram á hversu
sterkur leikmaður Hermann væri.
Og Hermann brást ekki trausti
Noads. Hann átti frábæran leik gegn
heimsmeisturunum og það kom ekki á
óvart að Wimbledon hækkaði boðið.
Samningamálin gengu vel
„Þegar ég kom frá landsleiknum við
Frakka var það fyrsta sem ég frétti að
Brentford og Wimbledon væru búin að
komast að samkomulagi um söluna á
mér. Ég átti því eftir að semja sjálfur við
Wimbledon og þaö gekk allt saman mjög
vel. Það er virkilega gaman að vera kom-
inn aftur í efstu deild í ensku knattspyrn-
unni og í raun mjög spennandi. Ég er
mjög ánægður með samninginn sem ég
gerði en hann er til tæpra flmm ára. Það
er mikill kostur að ég þarf ekki að flytja
þvi Brentford er ekki langt frá
Wimbledon-svæðinu," sagði Hermann
Hreiðarsson í samtali við DV rétt eftir
undirritun samningsins við
Wimbledon í sídegis i gær.
Ekki unnið í níu
leikjum
Staða Wimbledon I A-deild-
inni í dag er ekki góð en lið-
ið er í 17. sæti af 20 liðum
með átta stig. Liðið hefur
ekki unnið sigur í níu leikj-
um í röð. Á laugardaginn
kemur leikur liðið á heima-
velli gegn Bradford og verður
að telja líklegt að það verði
fyrsti leikur Hermanns með
sínu nýja félagi. Eitt af mark-
miðum Wimbledon með
kaupunum á Hermanni er
vafalaust að styrkja vörn
liðsins sem hefur ekki verið
sannfærandi.
I síðasta deildarleik fékk
liðið á sig fimm mörk og hef-
ur fengið á sig næstflest
mörk liða. Þessi fimm mörk
fékk liðið á sig gegn Sheffleld
Wednesday sem hefur fengið
flest mörk á sig í deildinni.
Hermann Hreiðarsson hef-
ur þónokkra reynslu af að
leika í A - efstu deild en
hann lék 30 leiki með Crystal
Palace áður en hann gekk í
raðir Brentford á símum
tíma.
„Það eru sterkir menn á
bak við Wimbledon en í við-
ræðum við þá kom fram að að þeir leggja
áherslu á að allir standi saman og leiki
með hjartanu. Það er mikill metnaður
innan félagsins að komast upp töfluna og
það vonandi gengur eftir. Það eru nokkr-
ir hörkuspilarar hjá Wimbledon og það
verður mjög spennandi fyrir mig að
takast á við þetta nýja verkefni og ég
hlakka mikið til þess,“ sagði Hermann í
samtalinu við DV.
Gamlir Manchester United-menn, frá fyrstu dögum Alex Ferguson
sem framkvæmdastjóra félagsins, sneru aftur á Old Trafford í
góðgerðarleik til heiðurs Sir Alex í gær. Þar mættust Manchester
United og Heimsúrvalið en fyrir síðustu mínútur leiksins komu
kappar eins og Steve Bruce, Eric Cantona og Mark Hughes inn á og
kláruðu leikinn sem Heimsúrvalið vann, 4-2. Reuter
Keflvíkingurinn Anna María
Sveinsdóttir, hér að ofan, hefur nú
skorað 4006 stig í 235 leikjum
sínum í efstu deild í kvennakörfu
eða frá því að hún lék sinn fyrsta
leik gegn KR 6. október 1985, fyrir
rúmum 14 árum.
Anna María náði þessum árangri gegn
KFÍ á ísafirði um helgina en KFI var
einmitt ellefta félagið sem hún nær að skora
stig gegn í deildinni. Flest stig hefur Anna María
gert gegn ÍR eða 744.
Víöavangshlaup Islands:
Sveinn og Marta
- öruggir sigurvegarar um helgina
Sveinn Margeirsson úr Tinda-
stóli og Martha Ernstsdóttir,
ÍR, sigruðu í karla- og kvenna-
flokki í Víðavangshlaupi ís-
lands sem fram fór um helgina.
Karlarnir hlupu 8 kílómetra
og kom Sveinn í mark á 27,09
mínútum. Daníel Smári
Guðmundsson, ÍR, varð
annar á 28,34 mínútum og
Arnaldur Gylfason, ÍR,
varð þriðji á 30,46 mínút-
um.
Konurnar hlupu 3 kíló-
metra. Sigurtími Mört-
hu var 12,23 mínútur.
Bryndís systir hennar
kom önnur í mark á 13,34 mínút-
um og í þriðja sæti hafnaði Gígja
Gunnlaugsdóttir, ÍR, á 15,27 mín-
útum.
í öldungaflokki varð Guðmann
Elísson, ÍR, hlutskarpastur á 30,49
mínútum. Ingvar Garðarsson,
HSK, varð annar á 33,49 minútum
og Vöggur Magnússon, ÍR, varð
þriðji á 37,24 minútum.
í sveitakeppni karla sigraði A-
sveit ÍR-inga en hana skipuðu
Daníel Smári Guðmundsson, Am-
aldur Gylfason, Guðmann Elísson
og Pálmar Steinar Guðmundsson.
-GH
Rodney Dean hefur leikið vel með Hamar það
sem af er en hann verður í banni á fimmtudag.
Dean i bann
DV, Hveragerði:
Nýliðarnir Hamars úr Hveragerði í
úrvalsdeildinni í körfu verða án tveggja lykil-
manna gegn Tindastóli á fimmtudagskvöldið kem-
ur. Hamarsmenn hafa byrjað vel í vetur og unnið
tvo fyrstu leikina. Tindastólsmenn slógu þá aftur
á móti Hamarsliðið út úr Eggjabikarnum um
helgina meo tveimur sigrum og leikurinn verður
þeim því erfiður. Ægir Gunnarsson og Lárus Jóns-
son eru meiddir. Menn eru að gera sér vonir um
að Lárus verði til í slaginn á fimmtudagskvöldið
en Ægir gæti verið frá næstu tvo leiki.
Lárus meiddist á æfingu fyrir leik Hamars og
Tindastóls í Eggjabikarnum á sunnudag en Ægir
meiddist í fyrri viðureign liðanna í sömu keppni í
Hveragerði. Rodney Dean var síðan rekinn út úr
húsi i leiknum gegn Tindastóli fyrir norðan, verð-
ur i leikbanni vegna atviksins. -KB