Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1999, Page 17
FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1999
17
Einstaklingar í rekstri huga að mörgu fyrir áramót:
Fjárfestingar, sérfræði-
aðstoð og breytt form
Nú, þegar líðúr að áramótum,
þeim síðustu á þessu árþúsundi,
hrökkva ófáir upp við það að rekst-
ur sem þeir hafa með höndum sýn-
ir þokkalegan hagnað og timi því
kominn til að fjárfesta áður en árið
er úti. Bæta stöðuna gjaldamegin í
bókhaldinu um tiltekna upphæð i
stað þess að greiða af henni skatt.
Þegar um lítinn rekstur er að
ræða, t.d. einyrkja sem stunda rekst-
ur á eigin kennitölu, verður að hafa
ýmislegt í huga áður en fjárfest er.
Fyrsta reglan, rauður þráður í skatta-
lögunum, er sú að það sem keypt er
og á að gjaldfæra í rekstrinum sé
sannanlega notað vegna tekjuöflunar-
innar. Útgjöld sem viðkomandi þarf
að fara í vegna öflunar tekna eru frá-
dráttarbær.
Þegar fjárfest er verður að hafa í
huga ða fjárfestingar eru ekki gjald-
færðar nema upp að ákveðnu marki.
Annars eru það afskriftir, fast hlutfall
kaupfjárhæöarinnar, sem fara gjalda-
megin í rekstrarreikninginn. Þegar
fjárfesting er gjaldfærð er miðað við
um 120.000 króna hámark á árinu. Sé
keypt 300.000 króna saumavél má ein-
ungis gjaldfæra um 120.000 þúsund
krónur af kaupverðinu á þessu ári.
Aðstoðar leitað
Ef rekstur einyrkja hefur hlaðið
utan á sig og er orðinn umfangsmeiri
en lagt var upp með í upphafi getur
verið skynsamlegt að huga að breyt-
ingum. En þar sem eðli og umfang
rekstrar er mjög misjafnt er þörfin fyr-
ir utanaðkomandi aðstoð ærið misjöfn.
Ef mikill tími fer í bókhald og skylt stúss getur verið
skynsamlegt að leita sérfræðiaðstoðar.
Engin ein regla er til í þessu sambandi.
Ef sifellt meiri tími fer í bókhald
og skylt stúss er skynsamlegt að
nota verkaskiptaregluna, láta þá
sem eru góðir í bókhaldi og slíku sjá
um þann þátt og fá um leið frjálsari
hendur við verkefni sem reksturinn
byggist á. Er þá keypt þjónusta end-
urskoðanda eða bókhaldsfyrirtækja.
Kosturinn er sá að sérfræðingar
tryggja bestu bók-
haldsskil og koma
auk þess auga á
leiðir og tækifæri
í rekstrinum sem
annars yrðu ónot-
uð. Kostnaður
vegna sérfræðiað-
stoðar getur því
verið fljótur að
skila sér aftur. En
til að halda end-
urskoðunarkostn-
aði í skefjum er
ráðlegast að vera
skipulegur,
flokka nótur og
fylgiskjöl í möpp-
ur, en ekki demba
öllu i hrúgu úr
plastpoka á borð
endurskoðandans
og hverfa svo á
braut.
Endurskoðendur
sem DV hefur
rætt við, og skrif
þessi byggja á,
segja fólk í rekstri
yfirleit læra mik-
ið af fyrstu sam-
skiptum við endurskoðendur, þar
ætti sér stað ákveðið uppeldi sem
kæmi báðum aðilum til góða.
Bókhaldsforrit
Hafi menn vit á bókhaldi og eru
töluglöggir geta þeir fjárfest í bók-
haldsforritum. Þau eru mun ódýrari
en áður, geta kostað frá 20.000 krón-
um og upp úr, allt eftir þörfum. Ein-
*
JJ \M & — ÖL,- l_ .1 l
Lestur hagsýni í DV
52% -
40%
í
Konur
50
40
20
10
- %
f 50% 51% 48% 42%
Könnun 1998 I m 46% 42%
Konnunl999-
f jf b ■ 1 i K 1Í | ''
27%
w Pk: “ II t i i; ■. i „IL, .i.i
*
12-19 20-24 25-34 35-49 50-67 60-80
Aldur
í
Könnun Félagsvísindastofnunar á lestri dagblaða:
Hagsýni sækir
sig veðrið
i
Hagsýni, umfjöllun DV um neyt-
endamál og fiármál heimilanna,
hefur mælst vel fyrir það rúma ár
sem þessi þáttur hefur verið i blað-
inu. í könnun Félagsvisindastofn-
unar á lestri dagblaða, sem fram-
kvæmd var um síðustu mánaða-
mót, kom fram aö af þeim sem eitt-
hvað lásu í DV lásu 39% Hagsýni,
þar af 10% mestallt en 29% að
hluta. í sambærilegri könnun Fé-
lagsvísindastofnunar í október i
fyrra sögðust 36% lesa Hagsýni,
þar af 12% mestallt en 24% að
hluta.
í könnuninni nú fengu þátttak-
endur tækifæri til að gefa sérstök-
um efnisþáttum einkunn og hlaut
Hagsýni að meðaltali 6,2 í einkunn.
Fleiri konur en karlar lesa Hag-
sýni. Lestur meðcd kvenna mælist
52% en 28% hjá körlum.
Þegar lesturinn er skoðaður eft-
ir aldursflokkum kemur í ljós að
Hagsýni er mest lesin í aldurs-
flokknum 35-49 ára, 51%, og ald-
ursflokknum 68-80 ára, 48%. í ald-
ursflokkunum 25-34 ára og 50-67
ára lesa 42% Hagsýni. Lesturinn er
minnstur i aldursflokknum 12-19
ára, 9%, og 20-24 ára, 12%, enda
eru hlutfallslega færri í þessmn
aldursflokkum farnir að reka
heimili.
í Hagsýni í DV á fimmtudögum er
fiallað um flesta þætti sem snerta
rekstur heimila og einstaklinga og
hvemig best megi komast af. Er
fiallað um tilboð á matvöru og
annarri vöru og upplýst hvar ódýr-
ustu vörumar er að finna hverju
sinni. Rætt er við einstaklinga um
góð ráð við heimilisreksturinn. Þá
er fiallað rnn ýmislegt er viðkemur
eignum, bæði fasteignum og lausa-
fé, t.d. húsnæði, görðum, innbúi, bíl-
um, viðhaldi og rekstri. Loks er
fiallað vítt og breitt um verðbréf og
verðbréfasjóði, tryggingar, lífeyris-
sjóði, skatta og fleira sem snertir
peninga lesenda. -hlh
faldasta og um leið ódýrasta mynd
bókhaldsforrits er fiárhagsbókhald.
Þá má fá bókhaldspakka fyrir ein-
staklinga eða lítinn rekstur sem í er
fiárhagsbókhald, skuldunautakerfi,
sölukerfi og birgðakerfi. Slíkur
pakki, t.d. Stólpi, kostar um 30 þús-
und krónur. Þá má gera samning um
viðhald og uppfærslur forritsins komi
nýjar útgáfur. Annars geta menn
bætt við einingum og stækkað þær
eftir þörfum. Algengustu bókhaldsfor-
rit eru smíðuð hér á landi eða þá lög-
uð að íslenskum aðstæðum.
Einstaklingur eða félag
Afstætt er hvort menn eru betur
settir í forminu einstaklingur með
rekstur eða einkahlutafélag. Það
stjórnast m.a. af tekjum og hvers kon-
ar rekstur er hafður með höndum. Ef
einblínt er á tekjuskattsprósentuna er
augljóst hagræði af einkahlutafélag-
inu þar sem skattprósenta þess er
30% en skattprósenta einstaklingsins
er 38,34%. En félagsformið setur
mönnum skorður varðandi notkun
peninga sem eru í félaginu. Ef maður
vill ráðstafa þeim til sín, t.d. með
greiðslu arðs, þarf að greiða af hon-
um 10% fiármagnstekjuskatt.
Ef fólk er í vafa er ráðlegast að
leita ráða endurskoðenda og annarra
sérfróðra aðila um rekstur. -hlh
Dagpen-
ingar og
kílómetra-
gjald
í Tíund, fréttablaði Rikisskatt-
stjóra, er að finna ýmsar gagnlegar
upplýsingar sem nýst geta einstak-
lingum. Þar eru m.a. töflur yflr
greiðslu dagpeninga vegna ferðalaga
innanlands og utan.
Dagpeningar innanlands eru:
- gisting/fæði, ein nótt, kr. 8.500
- gisting, ein nótt, kr. 4.500
- fæði, 10 tíma ferð, 4.000
- fæði, 6 tima ferð, kr. 2.000
Almennir dagpeningar erlendis
eru reiknaðir í SDR (sjá gengi í
DV):
Gisting Annað
- Bretland 128 90
- New York 126 74
- Asía, Afríka og S-Ameríka 130
105
- annars staðar 95 90
Akstursgjald
Akstursgjald gildir frá 1. október
1999.
Almennt gjald á km:
- fyrstu 10.000 km, 41,65 kr.
- næstu 10.000 km, 37,50 kr.
- umíram 20.000 km, 33,30 kr.
Ef greitt er sérstakt gjald vegna
aksturs á vegum fyrir almenna um-
ferð þar sem ekki er bundið slitlag
skal reikna 15% álag á almennt kíló-
metragjald. Sé greitt torfærugjald
vegan aksturs utan vega eða á vega-
slóðum sem ekki eru færir fólksbíl-
um skal reikna 45% álag á almennt
kílómetragjald.
Handunnin útskorin massíf
og innlögð húsgögn
Úrval af Ijósum, klukkum og gjafavöru
Bómullar-satín rúmföto.fl. o.fl.
Aldamótadress - jóladress
Ekta pelsar, kr. 135.000
Sigurstjarnan
í bláu húsi við Fákafen.
Sími 588 4545.
Kress
Höggborvél
Jólal ilhuö
5.895 kr.
Kress borvél með
stiglausum rofa, höggi,
afturábak, áfram og
sjálflierðandi patrónu
Höggborvélar
frá 4.995 kr.
HIISASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is