Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1999, Blaðsíða 10
10
ennmg
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999
Nýr steindur gluggi á vesturhlið Hallgrímskirkju verður helgaður á sunnudaginn:
Dýrð, vald, virðing
Börn velkomin
Á sunnudaginn hefst aðventudagskrá
Listasafns íslands með opnun sýningar-
innar Móðir og barn sem verður umgjörð
listsmiðju barna í sal 5. Á sýningunni
verða málverk og högg-
■ myndir úr eigu safnsins
sem tengjast þema sýning-
arinnar. Foreldrar og börn
geta átt góða stund mitt í
amstri jólafóstunnar, notið
sýninga safnsins og tekið
þátt i jólakortasmiðju á
vinnustofu bama frá kl. 13
-16 alla sunnudaga fram að
. jólum. Tónlist, piparkökur og mandarínur
koma öllum í jólaskap.
Safnið er opið daglega frá kl. 11 - 17.
; Lokað mánudaga. Sýningunni lýkur 21.
desember.
■
ÍViltu lesa fyrir mig?
Gerðuberg gerir líka vel við bömin um
helgina. Kl. 14 á morgun laugardag hefst
- hinn árlegi lestur úr nýjum bamabókum
og munu eftirfarandi höfundar setjast í
sögustólinn að þessu sinni: Andri Snær
i Magnason, Guðrún Helgadóttir, Gunnar
1 Karlsson, Kristín Helga Gunnarsdóttir,
; Ólafur Gunnarsson, Ólafur Guðlaugsson
og Menja von Schmalensee. Úr bók Einars
Kárasonar les Júlía Margrét dóttir hans og
I ljóð úr Vísnabók bamanna í þýðingu
p Böðvars Guðmundssonar les Silja Aðal-
steinsdóttir sem einnig er kynnir. Brói og
Anna Lea verða með fjöldasöng og leik.
Síðastur kemur svo Sveinbjörn I. Bald-
; vinsson sem rifjar upp Stjömur í skónum
og af hverju fullorðna fólkið er svo skrýt-
1 ið... Aðgangur er algjörlega ókeypis.
Bækur um duglegar stúlkur
Það er þakkarvert þegar rifjuð eru upp
íslensk ævintýri og þjóðsögur um dugandi
stúlkur; þau eru nú einu sinni
ekki eins mörg og sögur um dug-
lega stráka.
í Blákápu segir frá systrun-
um Ásu, Signýju og Helgu sem
búa í koti karls og kerlingar.
Helga er út undan en þegar
hún missir snælduna sína í
brunninn lendir hún í ævin-
týri þar sem hugrekki hennar,
dugnaður og manngæska fá að njóta sín og
hún fær ríkulega launað. Ása og Signý
vilja ekki vera eftirbátar Helgu en letin og
heimtufrekjan koma þeim í koll.
Ævintýrið skráði Jóhanna Á. Stein-
grímsdóttir en Anna Cynthia Leplar
myndskreytti.
í ævintýrinu kunna um
Líneik og Laufey segir frá
kóngsbörnunum Sigurði og
Líneik sem eignast vonda
stjúpmóður og stjúpsystirin
Laufey verður keppinautur
Líneikur um ástir kóngs-
sonarins. Hjartagæska
þeirra systkina veldur því
þó að þau koma Laufeyju til hjálpar
neyðarstundu, og allt fer vel aö lokum.
Ragnheiður Gestsdóttir endursagði og
myndskreytti bókina sem einnig er gefin
út á ensku í þýðingu Önnu H. Yates og
heitir Lineik and Laufey. Mál og menning
gefur bækumar út.
Glugginn sjálfur í allri sinni dýrð.
Á sunnudaginn kl. 11 mun biskup íslands,
herra Karl Sigurbjörnsson, helga nýjan steind-
an glugga eftir Leif Breiófjörö á vesturhliö Hall-
grímskirkju sem mun eftir aó dimma tekur
blasa viö vegfarendum niöur allan Skólavöróu-
stíg. Þetta er tœplega níu metra hár og tveggja
metra breiður gluggi, unninn algerlega af Leifi
og Ólafi syni hans á vinnustofu Leifs, og er
myndefniö falið í oröum Hallgríms Péturssonar:
„Dýrö, vald, viröing og vegsemd hœst. “
Leifur hefur gert glugga i fleiri kirkjur, jafn-
vel ennþá stærri en þennan, til dæmis í Bú-
staðakirkju og dómkirkjuna í Edinborg, og
kynnt sér trúarrit og trúarleg tákn í því sam-
bandi. Fyrir vinnuna við nýja gluggann las
Tiann ákveðin rit biblíunnar eins og Opinber-
unarbókina og einnig Passíusálmana því
glugginn er helgaður Hallgrími Péturssyni.
Hallgrímur er sjálfur á neðstu mynd gluggans
og horflr upp í helgidóminn eins og hann segi:
„Upp upp mín sál og allt mitt geð.“
Vestur er dómsdagsátt
„Hallgrímur stillir víða upp andstæðum góðs og
ills í sálmunum og glugginn er byggður upp utan
um þær. Séð innan frá er drekinn, tákn hins illa,
fyrir ofan Hallgrím vinstra megin og innsett er of-
urlitil mynd sem sýnir Satan,“ segir Leifur og bend-
ir á lítinn rauðan djöful með stóran munn á magan-
um til að vera fljótur að gleypa sálirnar. „Hann er
frekar góðlegur á svip en það er blekking! Hinum
megin er Mikjáll erkiengill sem er að fara að berj-
ast við drekann, og miili þeirra er tákn Passíu-
sálmanna."
Þar fyrir ofan er Kristur að bera krossinn og
krossfestingin, hvort tveggja inni í sama fjórblaða-
formi, og þar fyrir ofan flýgur fuglinn Fönix, tákn
upprisu. f’yrir ofan hann situr Kristur í hásæti inni
í fjórblaðaformi; kringum hann er sterkblár himinn
með rauðum stjörnum og smaragðsgrænn möndlu-
laga rammi utan um hann. Beint fyrir ofan er eng-
ill með básúnu því glugginn er á vesturvegg og
dómsdagur nærri. Efst er glóandi hringur, tákn ei-
lífðar og fullkomnunar, með þríhyrningi innan í,
tákni þrenningarinnar, og heilögum anda í dúfulíki.
Til hliðar við Krist eru tákn guðspjallamannanna
íjögurra: nautið, tákn Lúkasar, ljónið, tákn Markús-
ar, öminn, tákn Jóhannesar og maðurinn, tákn
Mattheusar.
“Þessi dýr eru í biblíunni sögð alsett augum,“
segir Leifur. „Sú lýsing er sjaldan notuð en það geri
ég núna. Augasteinamir eru litlar glerkúlur sem
glitra þegar ljósið feliur á þær.“
Ekki em allar myndir gluggans auðráðnar, marg-
ar em óhlutbundnari en svo. „Ég vildi að glugginn
minnti á miðaldaglugga en væri samt nútímalegur,"
segir Leifur. „Myndirnar eiga ekki allar að vera
auðlæsilegar heldur á ímyndunarafl fólks að fá eitt-
hvað að gera þegar það horfir á gluggann.“
Grafísk áferð
„Fyrir mér vakti fyrst og fremst að hafa formin
sterk,“ heldur Leifur áfram, „að þau hæfðu kirkj-
unni vel og gotnesku bogagluggunum og sæjust vel.
Leifur Breiðfjörð við gluggann. DV-mynd Pjetur
í janúar þegar jólaskreytingin verður farin af Skóla-
vörðustígnum sjást þau líka langt að - og því nær
sem maður kemur því meira sér maður af smáatrið-
unum.“
Leifur notar gler sem nýtur sín vel við raflýsingu.
„Ef notað er glært gler er erfitt að fá ljósið til að
stoppa við það en ég blanda saman annars vegar
antíkgleri í sterkum gagnsæjum litum og ógagnsæju
ópalgleri sem er yfirlagt hvitu gleri sem grípur ljós-
ið og heldur því. Kirkjan er hraunuð bæði að utan
og innan og ég málaði gluggann graflskt, skvetti á
glerið og sló með bursta til að fá grófa áferð í stil við
hana. Áhrifin verða spontan en þó með unnum smá-
atriðum. Umfram allt vildi ég forðast að málunin
yrði sæt og sleikt.“
Leifur hefur unnið að verkinu í eitt og hálft
ár nær eingöngu. „Þetta er flóknasti hlutur sem
ég hef unnið en mér finnst hann hafa heppnast
alveg eins og ég vonaðist til.“
Opinberunarbókin myndlýst
Meðan Leifur var að gera gluggann fékk hann
boð um að sýna verk sín í anddyri Hallgrímskirkju
og verður sýningin opnuð á sunnudaginn. Annars
vegar sýnir hann vinnuteikningar að glugganum
mikla og hins vegar 17 vatnslita- og pastelmyndir
við Opinberunarbók Bibliunnar sem einnig kemur
út með málverkum Leifs sem geysihaglega gerður
og fagur prentgripur eða „bókverk".
“Þegar tilboðið kom um sýninguna var ég að
vinna með þetta fjórblaðaform í glugganum og
fannst það spennandi þó erfitt væri og mig langaði
til að vinna með það áfram,“ segir Leifur. „Þá lá
beint við að halda áfram með dómsdag og nota Op-
inberunarbókina sem hugmyndabanka. Þar er í
brennidepli barátta góðs og ills sem á við á öllum
tímum - ekki síst núna á árþúsundamótum."
- Heldurðu að þú eigir ekki erfitt með að slíta þig
frá þessum kristilegu verkefnum? spyrjum við að
lokum.
“Nei nei, nú er þetta búið - í bili!“ segir Leifur og
skellir upp úr. „En mér fannst gaman að vinna með
fjórblaðaformið, það gaf ákveðið aðhald sem er svo
gefandi. Maður verður alltaf að finna sér ramma til
að vinna í, því möguleikarnir eru óendanlegir."
Myndir á sýningu
Á sunnudaginn kl. 16 verður
opnuð samsýning 31 listamanns í
Safnahúsinu á Egilsstöðum. Þar
verða listverk í margvíslegu formi;
málverk, teikningar, höggmyndir,
ljósmyndir, myndbönd og atburöir.
Að sögn eins af aðstandendum
sýningarinnar, Steingríms Eyfjörö,
er hugmyndin einmitt sú að setja
saman ólík birtingarform mynd-
listar og ólíka listamenn og skapa
með því margradda innsetningu.
Þátttakendur í sýningunni eru:
Anna Líndal, Áslaug Thorlacius,
Ásmundur Ásmundsson, Ásta
Ólafsdóttir, Bruce Conkle, Daði
Guðbjörnsson, Eggert Pétursson,
Egill Sæbjömsson, Erla Þórarins-
dóttir, Erling T. V. Klingenberg,
Finnur Amar Arnarson, Gabriela
og öll þessi ef og öll þessi kannski,
aö vera eöa vera ekki. Þess vegna trúum viö á spurningarmerkiö,
drekkjum táraflóöinu og hlœjum jafnvel í mótmœlaskyni.
t upphafi var oröió, og oröiö var tónn og oröiö var mynd
og engin mótsögn aö vera í mótsögn viö sjálfan sig,
því raddir lífsins eru margar
og heyrast löngu eftir aö þœr eru þagnaöar
og þögnin talar í sífellu
um öll þessi ef og öll þessi kannski,
um tóna og myndir, um orö án upphafs
því í upphafi var ekkert nema orö
hér á jöróu þar sem maginn
erjafn galinn og hausinn. Þess vegna trúum vió á
spurningarmerkiö, ekki á staófasta visku, ekki á útsmogna
þekkingu, bara á leit okkar aö sambandi, aö innstungu í vegginn hjá guöi
sem vitaskuld er án raflagna og sambandslaus viö allt nema skip
Friðriksdóttir, Haraldur Jónsson,
Harpa Björnsdóttir, Hildur Bjama-
dóttir, Hlynur Hallsson, Hrafnhild-
ur Arnardóttir, Hulda Hákon,
Ingólfur Arnarsson, Jón Óskar,
Jón Sæmundur, Kevin Kelly, Krist-
inn G. Harðarsson, Magnús Páls-
son, Magnús Sigurðsson, Margrét
H. Blöndal, Ragnheiður Ragnars-
dóttir, Ráðhildur Ingadóttir,
Spessi, Steingrímur Eyfjörö og Þór-
oddur Bjamason.
Sýningin verður opin alla
virka daga kl. 9 -17 til 18. des-
ember.
Yfirskrift sýningarinnar er
eftir Einar Má Guðmundsson,
„...og öll þessi ef‘:
heiöríkjunnar
hlaöin svörtum fánum og myrkri við sjónhring.
Já, sannleikurinn er undarlegur leikur
og endar sem neöanmálsgrein í alfræöioröabók
í vernduöum faðmi oröa og setninga
hjá stjórnmálamönnum og trúarleiötogum sem segja:
Ef kenningin passar ekki viö raunveruleikann
hefur raunveruleikinn á röngu aó standa.
Þess vegna trúum viö á spurningarmerkiö,
á hring lífsins sem er síðasta núlliö í síóustu krónunni
og ekkert getur bjargaö okkur
nema öll þessi ef
og öll þessi kanrtski,
trúin í trúleysinu
og trúleysið í trúnni,
amen.
Pétur Pan
Fallegi og fleygi strákurinn Pétur Pan
hefur skemmt ótal börnum i Borgarleik-
húsinu undanfarin misseri og gerir enn.
Nú er komin út stutt endursögn Edith
Lowe á þessari vinsælu sögu sem
hentar börnum undir skólaaldri
með myndum eftir Lynne Willey.
Sagan segir sem kunnugt er frá
Pétri Pan sem hljópst að heiman
daginn sem hann fæddist vegna
þess að hann vildi aldrei verða
fullorðinn. Hann settist að í
Hvergilandi hjá hinum stroku-
strákunum og er orðinn for-
ingi þeirra þegar hann hittir
Vöndu og bræður hennar.
Þau fljúga með honum til
Hvergilands og lenda þar 1
ýmsum ævintýrum sem sum eru stór-
hættuleg.
Stefán Júlíusson þýddi bókina og Set-
berg gefur út.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
HM