Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1999, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1999, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 Spurningin Fylgist þú með keppnum um hr. ísland? Kristjana Magnúsdóttir, vinnur í Heilsuhúsinu: Nei, ég hef ekki áhuga. Edda Jóhannsdóttir nemi: Nei. Rebekka Þormar nemi: Ekkert frekar, en ég reyna að gera það. Logi Karlsson sérfræðingur: Nei, ég hef ekki gaman af að horfa á líkamann á öðrum karlmönnum. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson nemi: Nei, ég er ekki fyrir karl- mannskroppa. Magnús Fannar Sigurhansson nemi: Nei, ég hef ekki áhuga. Lesendur___________ Feimni - ein- manaleiki og neysla göróttra efna „Feimni stráka við stelpur og gagnkvæmt veldur því að neysla áfengis og annarra göróttra efna hefst i þeim tilgangi að losna við feimnispúkann hvim- leiða.“ Ólafur Þór Eiríksson skrifar: í heilagri ritningu segir í fyrsta kafla frá því að vegna óhlýðni fyrstu mannver- anna Adams og Evu við Drottin Guð, skapara him- ins og jarðar, er þau í bamaskap sínum og reynslu- leysi neyttu hins forboðna ávaxtar, hafi Hann reiðst en í stað þess að berja böm sín til hlýðni, eins og lengstum hefur tíðkast með venju- legum foreldrum, blindaðist hann af eigin refsigleði og lagði þau af- drifaríku álög á þau að þau og af- komendur þeirra skyldu framvegis vera sjúklega feimin hvort og hvert við annað. Nú á dögum er feimni kynjanna hvors við annað mikið vandamál úti um allan heim. Vitrir menn, karlar og konur, halda því fram að hún sé orsök afbrigðilegrar hegðun- ar sístækkandi hóps af meðbræðr- um okkar og -systrum. Feimni stráka við stelpur og gagnkvæmt veldur því að neysla áfengis og ann- arra göróttra efna hefst í þeim til- gangi að losna við feimnispúkann hvimleiða. Þegar maður tekur upp og heldur að sér nýfæddu barni sínu veitir það manni ánægju- og verndartil- finningu sem er engu öðru lík. Stór- kostlegt er að fá síðan að fylgjast með dagvaxandi þroska þessarar yndislegu lífveru; hvemig hún eyk- ur kátinuviðbrögð sín við fíflalát- um okkar fullorðna fólksins; hvem- ig hún nær að siðustu fullkomnun í listinni að halda höfði; hvemig hún nær að skríða af ullarteppinu, þar sem hún átti að halda sig á meðan foreldri sinnti einhverju öðm sem er aðkallandi. Skyndilega er hún tekin að ganga og þá verður að fjar- lægja alla þá hluti sem skaða gætu valdið. - Síðan gengur kennslan út á endurtekningu upphrópunarinn- ar „Ó, ó“ en með auknum mál- þroska verður kennslan öll vit- rænni. Margt fólk fær aldrei hrós fyrir vel unnin verk. íslendingar kunna margir hverjir ekki einu sinni að taka við gullhömrum eða hrósi. Ég geri það að tillögu minni hér og nú að þú, lesandi þessara lína, takir upp þann góða sið að gefa öðrum hrós; t.d. maka þínum, en einkum þó og sér í lagi bömum þínum og annarra því að bæði eiga þau allt gott skilið og svo munu þau líklega hafa eftir það sem fyrir þeim er haft. Taktu ókunnuga tali og sannaðu til að það bætir samfélagið okkar. Með aukinni reynslu verðum við orðin eins og sannir atvinnumenn í mannlegum samskiptum og mun takast þannig að gera feimnina út- læga úr íslensku þjóðfélagi og aila hennar viðurstyggilegu fylgifiska. Ólafur Þór Eiríksson Leikskólar og aðgerðir foreldra - aöeins eitt ráö Aðalheiður skrifar: Ég er móðir með börn á leikskóla. Ég sé ekki að við foreldrar getum gripið til neinna annarra mótmæla sem hrifa en taka börnin af skólun- um í svo sem eina eða tvær vikur. Það bitnar auðvitað á okkur sem vinnum úti en þetta hafa aðrar stétt- ir gert og haft sigur líka. Varla borg- um við fyrir þann tíma sem börnin eru ekki á leikskólunum þannig að borgin missir þær greiðslur. Foreldrar verða bara að skiptast á að gæta bams eða bama sinna, t.d. hálfan daginn hvort um sig. Einstætt foreldri verður að tilkynna frátafir frá vinnu vegna þessara óvenjulegu aðstæðna. Borgarstjórn er í lófa lagið að gera ályktun um að greiða leikskólafólki kaupuppbót tU bráðabirgða þannig að þessu ófremdarástandi ljúki. Nota má það fé sem annars færi tU að bjóða 100 gestum í Perluna á gaml- árskvöld. - Þar er um nokkur hund- ruð þúsund að ræða, jafnvel mUljón- ir, að ég hygg. Fljótsdalsvirkjun og fögur náttúra Guðjón Jensson skrifar: Mikið hefur verið rætt um áætl- un um virkjun Jökulsár á Fljótsdal og fleiri áa á norðausturhluta ís- lands. Hafa menn kynnt sér stað- reyndir málsins, óháð áróðri? Benda má á eitt mikUsvert atriði: Hver er stysta leiðin með rafmagns- línur frá fyrirhugaðri virkjun til fyrirhugaðs álvers á Reyðarfirði? Er sú leið ekki sunnanvert með Lagar- fljóti, þvert í gegnum aðaldjásn skógræktar á Islandi, HaUorms- staðaskóg, og þaðan áfram áleiðis til strandar? - Sjá menn það fyrir sér þegar búið verður að höggva 100 metra rönd í gegnum skóginn? Hafa menn tekið eftir þögn virkj- unarsinna um hvaða leið þeir hyggj- ast fara með rafmagnslínuna? Ekki er einu aukateknu orði eytt í þá átt að svo stöddu til þess að fá ekki skógræktarmenn líka á móti virkj- unaráformum. Fremur ólíklegt er D=tl®ll[RO[D)Æ\ þjónusta allan sólarhringinn Lesendur geta sent mynd af sér með bréfum sínum sem birt verða á lesendasíðu Er ekki stysta leiðin með rafmagnslín- ur frá fyrirhugaðri virkjun til fyrirhug- aðs álvers á Reyðarfirði? Er sú leið ekki sunnanvert með Lagarfljóti, þvert í gegnum aðaldjásn skógræktar á Is- landi, Hallormsstaðaskóg? - Sjá menn það fyrir sér þegar búið verður að höggva 100 metra rönd í gegnum skóginn? að Landsvirkjun leggi rafmagns- taugar sínar yfir fjallgaröinn yfir í Skriðdal þegar öruggari leið er fyrir hendi í byggð. Reynsla er fyr- ir slíku, t.d. „Rússalínan" sem var lögð héma um árið frá virkj- ununum sunnanlands áleiöis til Reykjavíkur. Línunni var valin leið þvert yfir viðkvæmt verndar- svæði milli Grafnings og Hellis- heiðar. Þá var ekki verið að hlusta á óskir umhverfissinna. Ósk og til- mæli umhverfissina eru ákaflega hógvær: að nýja línan yrði lögð samhliða eldri rafmagnslínum sem fyrir eru. Virkjunarmenn spila aðeins út einu smátrompi í einu - sínu eig- in umhverfismati, sömdu eftir pöntun. Væntanlega verður ætlast til að sem flestir falli í stafi yfir því hversu áhrif virkjunar á nátt- úrufar séu „lítil“. Og athyglisverð er notkun lýsingarorða í skýrsl- unni. Mætti biðja guðina að forða oss frá nýjum áformum virkja- naglaðra ráðamanna: vatnsvirkj- unum, stórkostlegri röskun og eyðileggingu og sóun annarra náttúrugæða, sem og áldraumum þeirra, því íslenska þjóðin á næg- an auð fyrir ef hún lærði að nota hann betur. DV Flugþjónusta í einkarekstur? Þorgrímur skrifar: Það eiga einhverjir á ríkisjöt- unni eftir að reka upp ramakvein vegna hugmyndarinnar sem hæst ber nú í flugmálum hér á landi, þegar frá er talinn Reykjavíkur- flugvöllur og endurbygging hans, að koma flugþjónustu þeirri sem nú er í höndum ríkisins í einka- rekstur. Flest rök hníga samt að því að flugþjónusta, þar með tal- inn rekstur á flugvöllum og flug- stjórn, sé einkavædd. Það er löngu komið að endamörkum rík- isafskipta á mörgum ef ekki flest- um þeim sviðum sem hér áður þótti ekki vit í að hafa annars staðar en hjá ríkinu. Ríkisrekstur flugvalla og flugstjórnunar er þungur baggi á ríkinu, að ekki sé nú talað um lífeyrissjóðina sem ríkið verður að varðveita og fjár- magna fyrir allt það starfsfólk sem þama kemur að málum. En það á auðvitað eftir að heyrast grátur og gnístran tanna áður en þetta verður að veruleika. Ríkið á samt ekki að hvika frá þessum markmiðum. Nýbúarnir og tungumálið Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: Dagur íslenskrar tungu er ný- liðinn. Ályktun Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna, um dag- inn a'ð nýbúar á íslandi skuli hafa ákveðna þekkingu á íslensku máli til þess að öðlast ríkisborg- ararétt hefur farið fyrir brjóstið á sumum. Ég er gamall nýbúi, kom til íslands frá Skotlandi 1963 og var reyndar farinn að læra ís- lensku í Glasgow 1960 - og er enn að læra. Mér fmnst það minnsta krafa á hendur nýbúum á íslandi að þeir tali sæmilega upp í góða íslensku. En þegar íslendingar sjálfir ganga með orðið „OK“ á vörunum og „Bæ, bæ“ og enn fleira geta þeir lítið sagt. íslenska tungan er eitt hreinasta mál Evr- ópu og það er sannarlega skylda okkar að svo muni ávallt vera. Týnda taskan úr Geirfinnsmálinu Bjöm Jónsson hringdi: Ef það er rétt sem fram kemur í frétt Mbl. þann 21. nóvember sl. þar sem rætt er við Jón Steinar Gunnlausson hrl. um rannsókn á þáttum Geirfmnsmálsins, að málsskjöl í ferðatösku sem vörð- uðu málið hafi horfið sporlaust eftir að þau voru afhent á skrif- stofu ríkissaksóknara - þá er hér um stórfrétt að ræða en ekki tveggja dálka smáfrétt. í siðuðum þjóðfélögum myndi allt verða sett á annan endann til að upplýsa hvarf þetta á málsskjölunum. Þótt þáverandi ríkissaksóknari sé ekki lengur í starfi eru menn enn starf- andi sem þá störfuðu og eiga að vita um þetta. Það verður varla liöið að svona nokkuð verði þagað í hel. Fulltrúi bæjarfógetans i Keflavík sem afhenti skjölin hlýt- ur t.d. að vita hverjum hann af- henti töskuna. Langur biðlisti á Vog J.B. skrifar: Biðlistinn á Vog er orðinn frek- ar langur og hef ég tekið eftir því að t.d. vonlausir einstaklingar ganga þar inn og út eftir hentug- leikum sínum. Væri ekki nær að stytta afvötnunartíma og eftir- meðferð svo sem um helming, svo ekki þurfi að reka stofnunina eins og þar sé sauðahjörð i rétt? Ég gef lítið fyrir vinnubrögð af því tagi sem þama tíðkast í dag. Ég skora á heilbrigðisráðherra að gera verulega vandaða könnun á þess- um málum. Það eru margir sem þurfa á meðferð að halda en sitja eftir úti í þjóðfélaginu. Þeim þarf líka að sinna, og þama mætti koma á verulega góðu aðgengi og innlagnakerfi með styttra með- ferðarprógrami.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.