Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 Fréttir sandkorn Hugmyndir sauöfjárbænda um hærri framlög valda undrun: Gæti gefið svínin - en vorkenni sauðfjárbændum, segir svínabóndi í Borgarfirði Sauðfjárbændur funduðu á Hótel Sögu í gær um hugmyndir að nýjum búvörusamningi. Sauðíjárbændur vilja aukinn styrk ríkisins til að halda úti sauðfjárrækt. í dag eru beingreiðslur til bænda um 2 millj- arðar króna á ári. Greiðslurnar eru tengdar greiðslumarki og það er skoðun forsvarsmanna að þær gangi engan veginn til að halda úti arðbærum rekstri. Hugmyndir eru því uppi um að ríkið auki styrki til greinarinnar með nýjum búvöru- samningi. Ekki fæst uppgefið hversu mikla viðbót bændur vilja en þegar nema styrkirnir tæpum 5 þúsund krónum á hverja kind. Sauðfjárbændur vilja að samið verði til 7 ára og áherslum verði breytt þannig að í stað þess að Frá fundi sauðfjárbænda á Sögu í gær. 2 milljarðar á ári duga ekki lengur til að um aukningu. styrkir verði í hlutfalli við greiðslu- mark verði horft til þess að bæta framleiðsluna og einnig verði litið til landnýtingar. Samninganefnd ríkisins mun fjalla um þessar tiUög- ur en verið er að takast á um 14 milljarða króna á núvirði auk þeirr- ar viðbótar sem bændur vUja. Þannig má reikna með að í pottin- um séu hátt í 20 miUjarðar króna. Víst er talið að á brattann verði að sækja hjá bændum enda land- búnaðarstyrkimir mörgum þymir í augum. Sterkar raddir hafa verið uppi um að skera niður í stað þess að auka. „Það hefur enga þýðingu að auka styrki til sauðfjárbænda. Þessi karlagrey eru að drepast. Það er búið að rústa sauðfjárræktina og ekkert til bjargar. Það er sama hversu marga miUjarða þeir fá í styrki, þetta er rússneskt kerfi sem þeir eru fastir í,“ segir Gunnar Gunnarsson, svínabóndi að Hýru- mel í Hálsasveit. Hann segir sauðfjárbændur eiga aUa sína samúð enda ekki við þá að sakast heldur það kerfl sem þeir búa við. Það eitt sé til ráða að af- nema styrki til sauðfjárbænda og gefa hana frjálsa. „Það á bara að leyfa mönnum að búa og vera bændur í friði. Þá tekst að byggja upp greinina á 10 tU 15 árum. Þar sem menn fá að vera í friði svo sem í svínarækt, blóma- rækt eöa hverju sem er, þar eru menn að hagræða á fuUum krafti. Ofstjómin í sauðfjárræktinni er aUa að drepa og ástandið er verra en í Rússlandi. Þetta skiptir okkur halda lífi í bændum og krafa er uppi DV-mynd ÞÖK svínabændur sáralitlu máli en skekkir að vísu samkeppnisstöð- una. Þama er bara verið að stinga einhverri ölmusu upp í menn sem frestar vandanum um örfá ár,“ seg- ir hann. Gunnar segir að hann fái um 240 krónur fyrir kUóið af svínakjöti. Niðurgreiðslur sauðfjárbænda nemi um 220 krónum á hvert kUó. Hann segir að fengi hann sambærUega styrki og sauðfjárbændur yrði veisla hjá neytendum. „Ég gæti gefið neytendum svína- kjötið ef sömu styrkja nyti við. Vel rekin bú gætu gefið svínin. Við erum með góðan rekstur í dag og eftir þrjú til fjögur ár verðum við tilbúnir til að mæta erlendri sam- keppni," segir Gunnar. -rt Noröurland: Jólatónleikar í fýrsta sinn DV, Akureyri: í fyrsta sinn í 7 ára sögu Sinfón- íuhljómsveitar Norðurlands efnir sveitin tU sérstakra jólatónleika sem haldnir verða í Akureyrar- kirkju nk. laugardagskvöld og í Dalvikurkirkju daginn eftir. For- ráðamenn hljómsveitarinnar von- ast til að jólatónleikar hennar eigi eftir að vinna sér fastan sess í jóla- undirbúningi Norðlendinga. Efnisskráin á tónleikunum tengist jólum, en hún samanstend- ur m.a. af fjórum þáttum úr Hnotubrjótnum eftir Tsjajkofskí, Sleöaferðinni eftir Frederick Dali- us og jólaævintýrinu Snjókarlin- um við tónlist eftir Howard Blake. Sinfóníuhljómsveitin hefur fengið tU liðs við sig tvo barna- kóra, Bama- og unglingakór Akur- eyrarkirkju og Húsabakkakórinn, Góða hálsa, sem flytja lög með hljómsveitinni. Þá kemur Sigurð- ur Karlsson leikari fram á tónleik- unum sem sögumaður og 11 ára einsöngvari, Baldur Hjörleifsson. Stjórnandi á tónleikunum er Guð- mundur Óli Gunnarsson. -gk . Sauðir og raðgreiðslur ™ Sauðfé landsmanna er að sliga bændur og nú situr forysta Bænd- samtakanna með sveittan skaUann til að reikna út hversu mikið eigi að greiða bændum til að þeir geti haldið áfram að ala roUur sfn- ar. Ríkissjóður hefur eins lengi og elstu bændur muna staðiö opinn þeim er fást við að reka fé á fjall og smala tU slátnmar. Sú var tíð að roUur voru fjórfalt fleiri en lands- menn en nú hefur þeim fækkað mjög og að baki hverjum íslendingi eru tveir sauðir. Það að breyta sauðunum í kótilettur eða saltkjöt eftir atvikum er dýrt svo ekki sé talað um blessað hangikjötið. Það er ekki á færi bænda einna að standa undir þeim kostnaði að koma fé af fæti í neytenda- umbúöir og þar kemur ríkissjóður tU skjalanna. Styrkir í dag nema aðeins um tveimur miUj- örðum króna tU sauðfjárbænda eða sem nemur 5 þúsund krónum á hvem sauð. Þar sem að baki hverjum einstaklingi em tveir sauðir þýðir þetta að 10 þúsund krónur af tekjuskattinum rennur í vasa örvasa bænda. TíuþúsundkaU er auðvitað smánarleg upphæð á einu ári. Til dæmis kostar það einstakling um 50 þúsund krónur á ári í bein- greiðslum eða raðgreiðslum að vera áskrifandi að Stöð 2. Það étur enginn Stöð 2 en sauðirnir nið- urgreiddu hafa haldið lifi í þjóðinni frá örófi. NeyðarkaU sauðfjárbænda á því fuUan rétt á sér og stjómvöld mega engan sauðshátt sýna og þeim ber aö bregðast strax við. EðlUegt er að bein- greiðslur verði aUagðar en þess í stað teknar upp raðgreiðslur til bænda og búaliðs. Hækka verður framlagið á hvem sauð um sem nemur öðmm fimmþúsundkaUi. Þannig legði hver einstakling- ur tU tuttuguþúsundkaU með sauðum sínum. Hann þarf ekki að éta sauði sína frekar en hann viU enda á hann ekkert í þeim. Framlag hvers ís- lendings tU sauða sinna má miklu fremur likja við ættleiðingu. Alkunna er að Kanar ættleiða hvali og greiða meðlag tU Free WiUy eða annarra skyldra sam- taka. Kanamir sem ættleiða hvali éta þá að sjálf- sögðu ekki. íslendingar sem „ættleiða" roUur eiga sumir tU þá vUlimennsku að éta hina ætt- leiddu sauði. Að vísu greiða þeir sérstaklega fyr- ir þá iðju þar sem meðlagið er ætlað tU að koma á legg og halda lífi í hinu eymamerkta viðfangs- efni. Það er áríðandi að halda áfram að styrkja sauðfjárrækt og þar dugir ekkert hálfkák. Hækka verður styrkina tafarlaust og efla hag bænda. RoUur eiga að vera i öndvegi hjá fjár- málaráðherra. Almenningur getur ekki verið þekktur fyrir að vera örlátari á fé tU Stöðvar 2 en fjárræktar. Menn skulu vera minnugir þess að sauðkindin hefur haldið lífi í þjóðinni og nú er áríðandi að þjóðin haldi lífi í henni - þar tU hún verður étin. Dagfari Bullandi ágreiningur Tilnefningar tU íslensku bók- menntaverðlaunanna fóru fram á mánudag. Þykir vægt til orða tekið þegar fuUyrt er að í bókmennta- heiminum er fólk furðu lostið - eina ferðina enn. Þykir saga þessara verð- launa vörðuð skandölum og marg- ir á því að best sé að leggja þau af. í ár er sérstaklega eftir þvi tekið að hvorki Ólafur Jóhann Ólafsson né Ólaf- ur Gunnarsson skuli tilnefndir en gagnrýnendur hafa nær undantekningarlaust verið sammála um mikið ágæti nýútkom- inna bóka þeirra, Slóö flörildanna og Vetrarferðarinnar. En það er víð- ar en í hinum stóra bókmennta- heimi þar sem menn eru ekki á eitt sáttir með tilnefningarnar. Haft er fyrir satt að bullandi ágreiningur hafi einnig verið innan dómnefndar- innar... Hrókeringar Ráherraskiptakrísa Framsóknar virðist engan endi ætla að taka. Páll Pétursson félagsmálaráðherra ætl- ar ekkiað láta flytja sig úr stað eins og hvert annað peð og því útlit fyrir að Valgerður Sverr- isdóttir þurfi að bíða enn um stund eftir ráðherrastól. Ein- hverjir snillingar þykjast þó hafa fundið leið til lausnar þessum rembihnút. Hún felst í að gera Jón Kristjánsson, for- mann fjárlaganefndar, að ráðherra. Páll vilji frekar fikja fyrir honum en Valgerði. Um leið verði Valgerði gef- ið tækifæri til að spreyta sig á fjár- laganefndarformennsku. Þegar frétt- ir af þeim pælingum bárust inn á fund fjárlaganefndar í liðinni viku var ekki laust við að færi um fund- armenn enda mikil ánægja með Jón í forsæti á þeim bæ... Seldi Esjuna Eins og kunnugt er sló í brýnu milli sjálfs forsætisráðherra og rit- ara hans í Kristnitökunefnd, Arnar Bárðar Jónssonar , þegar séra Öm Bárður skrifaði smásögu í Lesbók Moggans um söluna á Esjunni úr landi. En nú er presturinn bú- inn að selja Esjuna. Þannig er að Örn Bárður er fri- stundamálari og þykir vel liðtækur. Hann hélt nýlega sýningu á verkum sínum við Skólavörðu- stíg i Reykjavík. Þangað inn kom er- lendur ferðamaður og leist vel á mynd - af Esjunni! Og út fór hann úr galleríinu með Esjuna. Hún hefur verið seld til útlanda og er flutt til Bandaríkjanna, aUt eins og í sög- unni...! Enn í amerísku sjónvarpi ísland virðist „inn“ í bandarfsku sjónvarpi. Við sögðum frá því á dög- unum þegar Danny Glover gataði í sjónvarpsleiknum Hollywood Squares og hélt að Vigdís Finn- bogadóttir væri fræg fyrir fjallaklifur. Núna síðast var ís- land á döfinni í spumingaþættinum Greed eða græðgi, sem er á Fox-stöð- inni frægu. í þætt- inum seilast kepp- endur eftir 2,2 milljóna dala verðlaunum. Þar kom það einum keppandanum held- ur en ekki vel að vita að ísland er ekki kallað „the country down und- er“ eða landið niður frá. Eins og flestir vita á það hugtak við um Ástralín Umsjón: Reynir Traustason Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.