Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1999, Blaðsíða 30
34
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
Fólk í fréttum
Ari Teitsson
Ari Teitsson, formaöur
Bændasamtaka íslands,
Hrísum, hefur veriö í
fréttum DV vegna hug-
mynda um aukinn opin-
beran stuðning viö sauð-
fjárbændur. Aðalfundur
sauðfjárbænda var hald-
inn í Bændahöllinni í
gær.
Starfsferill
Ari fæddist 13.3. 1943 á
Brún í Reykjadal. Hann
lauk landsprófi 1960, bú-
fræðiprófi frá Hvanneyri 1961 og bú-
fræðikandídatsprófi þaðan 1973.
Ari var ráðunautur hjá Búnaðar-
sambandi Suður-Þingeyinga 1973-95
og í hlutastarfi síðar. Auk þess ráku
hann og kona hans refabú að Hrís-
um ásamt Erlingi, bróður Ara, til
1998.
Ari sat í stjóm Búnaðarfélags
Reykdæla, sat í stjórn Stéttarsam-
bands bænda í nokkur ár, hefur set-
ið í fjölda stjórnskipaðra nefnda um
landbúnaðarmál, var formaður
Framsóknarfélags Reykdæla, sat í
stjórn kjördæmaráðs framsóknar-
manna á Norðurlandi eystra, situr í
miðstjórn Framsóknarflokksins, sat
í stjóm Kaupfélags Þingeyinga til
1996 og er stjómarformaður Spari-
sjóðs Suður-Þingeyinga.
Fjölskylda
Ari kvæntist 2.1. 1972 El-
ínu Magnúsdóttur, f. 28.6.
1943, hússtjómarkennara.
Hún er dóttir Magnúsar
Bjamasonar, bónda í
Birkihlíð í Reykholtsdal,
og k.h., Brynhildar Stef-
ánsdóttur húsfreyju sem
er látin.
Böm Ara og Elínar eru
Elín, f. 19.5. 1973, nemi
við Samvinnuháskólann
á Bifröst, en maður hennar er Ingv-
ar Bjömsson frá Hólabaki, búfræði-
kanditat og starfsmaður við Land-
búnaðarháskólann á Hvanneyri;
Magnús, f. 25.6. 1974, verkfræðingur
í Reykjavík; Teitur, f. 5.4.1979, nemi
í eðlisfræði við HÍ.
Systkini Ara eru Bjöm, f. 11.10.
1941, skólameistari á ísafirði; Sig-
riður, f. 6.2. 1946, sérkennari við
Öskjuhlíðarskóla; Erlingur, f. 6.2.
1946, bóndi á Brún; Helga, f. 8.8.
1947, hússtjómarkennari og bóndi á
Flúðum; dr. Ingvar, f. 2.2. 1951,
læknir á Akureyri.
Foreldrar Ara: Teitur Bjömsson,
f. 14.10. 1915, d. 1998, bóndi á Brún
og heiðursfélagi Búnaðarfélags ís-
lands, og k.h., Elín Aradóttir, f. 3.11.
1918, húsfreyja.
Ætt
Teitur var bróðir Hróars, fóður
Sigurðar leikhússtjóra. Teitur var
sonur Bjöms, b. á Brún, bróður
Tryggva, foður Inga, fyrrv. for-
manns Stéttarsambands bænda.
Bjöm var sonur Sigtryggs, b. á Hall-
bjamarstöðum, Helgasonar, b. þar,
Jónssonar. Móðir Helga var Her-
borg, systir Bjargar, langömmu Þor-
gríms Starra, föður Kára í Garði.
Önnur systir Herborgar var Þuríð-
ur, móðir Sigurðar, ráðherra á Ysta-
felli, foður Jóns rithöfundar, fóður
Jónasar búnaðarmálastjóra. Her-
borg var dóttir Helga, ættfóður
Skútustaðaættarinnar, Ásmunds-
sonar. Móðir Sigtryggs var Sigur-
veig Sigurðardóttir frá Amarvatni.
Móðir Björns var Helga Jónsdóttir,
b. Arndísarstöðum, Ámasonar, og
Herdísar Ingjaldsdóttur, dbrm. á
Mýri, Jónssonar, b. þar Jónssonar,
af Mýrarætt, bróður Sigurðar, foður
Jóns, alþm. á Gautlöndum, foður
ráðherranna Péturs og Kristjáns og
afa ráðherranna Haralds Guð-
mundssonar og Steingríms Stein-
þórssonar.
Móðir Teits var Elin, systir Sigur-
geirs, foður Ingólfs, bókbindara í
Vallholti. Elin var dóttir Tómasar,
b. í Stafni, Sigurðssonar, b. þar, Sig-
urðssonar. Móðir Elínar var Ingi-
björg Jónsdóttir, b. á Lundarbrekku,
Sigurðssonar, b. þar Sigurðssonar.
Meðal systkina Elínar er Bjami,
ráðunautur í Borgarnesi. Elín er
dóttir Ara, b. á Grýtubakka, bróður
Sigfúsar, tengdafóður Pálma, fyrrv.
landbúnaðarráðherra. Ari var sonur
Bjama, b. á Grýtubakka, Arasonar,
og Snjólaugar, systur Þóru, ömmu
Garðars Gíslasonar hæstaréttar-
dómara, Þóru Kristjánsdóttur list-
fræðings og Garðars Halldórssonar,
fyrrv. húsameistara ríkisins. Snjó-
laug var dóttir Sigfúsar, b. á Varð-
gjá, Guðmundssonar, og Margrétar
Kristjánsdóttur.
Móðir Elínar var Sigríður, systir
Gunnars, fyrrv. gjaldkera Búnaðar-
félagsins, og Jóhannesar, afa Stein-
gríms Sigfússonar alþm. Sigríður
var dóttir Áma, b. á Gunnarsstöð-
um, Davíðssonar, b. á Heiði, bróður
Ingibjargar í Stafni. Móðir Áma var
Þuríður, systir Jóns, langafa Jónas-
ar búnaðarmálastjóra. Þuríður var
dóttir Áma, b. á Sveinsströnd, Ara-
sonar, bróður Kristjönu, móður
Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum.
Móðir Sigríðar var Arnbjörg Jó-
hannesdóttir, systir Árna, pr. í
Grenivík, fóður Ingimundar söng-
stjóra.
Ari Teitsson.
Afmæli
Jón Grímsson
Jón Grimsson, fjármálastjóri
Halldórs Jónssonar ehf., Tungu-
bakka 22, Reykjavík, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Jón fæddist á Selfossi. Hann
lauk stúdentsprófl frá VÍ 1979 og
viðskiptafræðiprófl frá HÍ 1985.
Jón var endurskoðandi hjá End-
urskoðunarmiðstöðinni hf.,
Coopers & Lybrand frá 1979-84,
ráðgjafi og sérfræðingur hjá Tölvu-
miðstöðinni hf. 1984-95, hluthafl og
stjórnarmaður í fyrirtækinu og
fjármálastjóri þess frá 1992, ráð-
gjafi og sérfræðingur hjá Tölvu-
þjónustunni Skyggni hf. frá
1995-96 og hefur verið fjármála-
stjóri Halldórs Jóns-
sonar ehf. frá 1996.
Fjölskylda
Jón kvæntist 27.12.
1985 Sigríði Guð-
mundsdóttur, f. 4.3.
1958, hárgreiðslu-
meistara. Hún er dótt-
ir Guðmundar Ingólfs
Óskarssonar, f. 29.3.
1929, trésmiðs í
Reykjavík, og k.h.,
Sveinbjargar Unu
Pálmarsdóttur, f. 6.6.
1930, húsmóður.
Böm Jóns og Sigríðar em Grím-
ur, f. 13.1. 1986; Una Björg, f. 30.1.
1990; Guðmundur Ingi, f. 17.6.1996.
Systkini Jóns eru Frímann
Grímsson, f. 20.12. 1958,
starfsmaður hjá Ratsjár-
stofnun; Hrafnhildur Gríms-
dóttir, f. 13.2. 1961, starfræk-
ir heildverslunina Stjörnuna
á Reyðarflrði, ásamt manni
sínum; Ingibjörg Grímsdótt-
ir, f. 8.11. 1964, húsmóðir í
Seattle í Bandaríkjunum.
Foreldrar Jóns eru Grímur
Sigurgrímsson, f. 16.8. 1935,
trésmiður og matsmaður hjá
Fasteignamati ríkisins í
Reykjavík, og Elín Frí-
mannsdóttir, f. 26.11. 1935,
húsmóðir og matráðskona
hjá Kópavogsbæ.
Ætt
Grímur er sonur Sigurgríms, bú-
Jón Grímsson.
Taktu púlsinn á
viðskiptavefnum!
Notaðu vísifingurinn!
www.visir.is
Tilkynningar
Félag eldri borgara í Reykja-
vík, Ásgarði
Söngfélag FEB, kóræfmg kl. 17.
Línudanskennsla Sigvalda kl. 19.15.
Bókmenntakynning í dag kl. 13.30 í
Ásgarði Glæsibæ, lesið verður úr
nýútkomnum bókum: Vilhelm
Kristinsson les úr ævisögu Ólafs
Ólafssonar, fyrrv. landlæknis.
Bjöm Th. Björnsson les úr bók
sinni Hlaðhamrar. Valgeir Sigurðs-
son úr Ný framtíð í nýju landi og
Hcillgerður Gisladóttir úr íslensk
matarhefð.
Skipulagsmál í höfuðborginni
Félagsfundur verður haldinn í
Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur
miðv. 8. desember kl. 20.30 í Alþýðu-
húsinu, Hverfisgötu 8-10, 2. hæð.
Þar mun Helgi Pétursson, borgar-
fulltrúi og borgarráðsmaður, kynna
stöðu og þróun skipulagsmála á höf-
uðborgarsvæðinu. Jafnframt gefst
tækifæri til að fræðast um fjárhags-
áætlun borgarinnar fyrir næsta ár
og um önnur þau mál sem efst hafa
verið á baugi í borginni að undan-
fræðings, kennara og b. í Holti í
Stokkseyrarhreppi Jónssonar, b. í
Oddagörðum og i Holti Jónssonar,
b. í Jórvík og í Oddagörðum Gamal-
íelssonar. Móðir Sigurgríms var
Ingibjörg Gímsdóttir, b. í Gljákoti í
Stokkseyrarhreppi Jónssonar.
Móðir Gríms var Unnur kennari
Jónsdóttir, b. í Víðikeri og á Jarls-
stöðum í Bárðardal Þorkelssonar, b.
í Víðikeri Vemharðssonar. Móðir
Unnar var Jóhanna Katrín Sigur-
sturludóttir, b. á Vatnsenda í Ljósa-
vatnshreppi Erlendssonar.
Elín er dóttir Frímanns Einars-
sonar, b„ verkamanns og skálds,
síðast á Selfossi, og Kristínár, kenn-
ara og húsmóður Ólafsdóttur.
fömu.
Refirnir á Hornströndum á
kvöldvöku Ferðafélagsins
í kvöld verður kvöldvaka og
myndasýning á vegum Ferðafélags
íslands í FÍ-salnum að Mörkinni 6
og hefst hún kl. 20.30. Páll Her-
steinsson fjallar í máii og myndum
um lífsbaráttu og afdrif refanna á
Hornströndum en hann hefur und-
anfarin ár stundað rannsóknir á
þeim ásamt samstarfsfólki sinu.
Kvöldvakan er öllum opin og kafFi-
veitingar era í hléi.
MR-búðin,
Lynghálsi 3
hefur sent frá sér nýjan vörulista
yfir hestavörar. Fyrir um ári síðan
flutti MR-búðin í nýtt og glæsilegt
húsnæði að Lynghálsi 3 og jók um
leið úrval af hestavörum, bæði í
reiðtygjum og fatnaöi fyrir hesta-
fólk. í vörulistanum eru myndir af
vörum sem eru á boðstólum og verð
hlutanna.
Til hamingju með afmælið 8. desember
90 ára
Andrés Jónsson, Lönguhlíð 3, Reykjavík. Hulda Guðmundsdóttir, Borgarbraut 65, Borgamesi.
85 ára
María Stefánsdóttir, Austurbyggð 17, Akureyri.
80 ára
Sigurþór Sigurðsson bmrstagerðarmaður, Grettisgötu 46, Reykjavík.
75 ára
Dýrleif Jónsdóttir, Lindasíðu 2, Akureyri. Gróa Sigurjónsdóttir, Gullsmára 7, Kópavogi.
70 ára
Svanhvít Bjamadóttir, Aðalstræti 123, Patreksfirði.
60 ára
Baldur Guðmundsson, Hraunbæ 102b, Reykjavík. Bjöm Matthíasson, Suðurbraut 6, Hafnarfirði. Sólveig Sigurðardóttir, Þingskálum, Hellu. Öm Gísli Haraldsson, Espigerði 12, Reykjavík.
50 ára
Bjarni Andrésson, Staðarhrauni 11, Grindavik. Sigurjón Eysteinsson, Strýtuseli 10, Reykjavík.
40 ára
Adolf Adolfsson, Hátúni 30, Keflavík. Elín Björk Bmim, Ásvailagötu 31, Reykjavík. Kristín Bogadóttir, Eyrarflöt 8, Siglufirði. Láms Borgar Jónsson, Vesturbergi 31, Reykjavík. Ólöf Bjarnadóttir, Suðurvangi 12, Hafnarfirði. Rut Aðalsteinsdóttir, Bæjargili 9, Garðabæ. Sjöfn Jónsdóttir, Álfholti 48, Hafnarfirði. Sæmundur Hrafn Andersen, Hamarsstíg 24, Akureyri. Þráinn Sigfússon, Leifsgötu 9, Reykjavík.
^ínum
IUMFERÐAR L
RAÐ